Morgunblaðið - 07.06.2006, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
MA hátíð verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri
föstudaginn 16. júní
Fordrykkur frá 18:15-18:45
Miðasala er hafin á netinu, www.ma81.com og einnig er hægt að ganga frá greiðslu á
1175-26-101981, kt. 6402060630 og miðarnir verða sendir í pósti til viðkomandi.
Miðaverð er kr. 6.800 fyrir aðra en eins árs stúdenta
en fyrir þá er miðaverð kr. 4.200.
Miðasala stendur til 13. júní á netinu en verður í höllinni 15. og 16. júní
frá kl. 13.00-17.00.
Miðar á dansleik verða seldir við innganginn, verð kr. 2.000.
Afmælisárgangar eru hvattir til að fjölmenna.
Samkvæmisklæðnaður.
Upplýsingar um dagskrá og fyrirkomulag miðasölu á heimasíðu 25 ára
stúdenta: www.ma81.com.
SUÐURNES
Reykjanesbær | FFGÍR, sem eru
samtök foreldrafélaga og for-
eldraráða grunnskólanna í Reykja-
nesbæ, veittu tveimur einstaklingum
viðurkenninguna Fjöregg fyrir að
vinna gott starf í þágu barna og fjöl-
skyldna í Reykjanesbæ. Viðurkenn-
ingarnar komu í hlut þeirra Sóleyjar
Birgisdóttur úr Foreldrafélagi Myllu-
bakkaskóla, fyrrverandi formanns
FFGÍR, og Ásdísar Ýrar Jak-
obsdóttur úr Foreldrafélagi Holta-
skóla.
Við úthlutun viðurkenninga
FFGÍR var athyglinni beint sér-
staklega að sjálfboðastarfi og að þeim
sem hafa starfað að eflingu tengsla
heimila og skóla, forvörnum fyrir
börn og unglinga, eða eflingu og
stuðningi fyrir foreldra og foreldra-
starf almennt. Markmiðið er ekki síst
að vekja athygli á því góða og ósér-
hlífna starfi sem oft fer ekki hátt en
hefur mikið að segja við að bæta sam-
félagið. Viðurkenningin var nú veitt í
fyrsta skipti en fram kom að stjórn
FFGÍR vonaðist til að hún yrði veitt
árlega.
„Ég hef mikinn áhuga á skóla-
starfi, ætlaði sjálf að verða kennari.
Maðurinn minn er kennari og mér
finnst hann gegna mikilvægasta
starfi í heiminum,“ sagði Sóley Birg-
isdóttir iðnrekstrarfræðingur þegar
hún var spurð að því hvers vegna hún
hefði tekið svo mikinn þátt í starfi for-
eldra. Sóley var formaður Foreldra-
félags Myllubakkaskóla og hefur
starfað sem bekkjarfulltrúi í mörg ár.
Hún var síðan formaður FFGÍR þar
til síðastliðið haust. Sóley segir að
eins árs dvöl fjölskyldunnar í Dan-
mörku hafi eflt þennan áhuga hennar.
Þar þyki sjálfsagt að foreldrar taki
þátt í skólastarfinu. Þeir komi til
dæmis nokkrum sinnum á ári í skól-
ann til að borða með bekknum. „Á
þessum eina vetri í Danmörku kynnt-
ist ég öðrum foreldrum jafnmikið og í
mörg ár áður hér heima. Þetta heill-
aði mig,“ segir Sóley.
Ásdís Ýr Jakobsdóttir hefur verið
formaður Foreldraráðs Holtaskóla í
um átta ár. Í rökstuðningi fyrir við-
urkenningunum er á það bent að hún
hafi tekið þátt í að móta starf for-
eldraráða í Reykjanesbæ frá því þau
voru sett á laggirnar og hafi vinna
hennar nýst foreldraráðum í öðrum
skólum. Þá er tekið fram að hún hafi
átt þátt í að leggja grunn að starfi
FFGÍR.
Sóley segir að foreldrastarf sé öfl-
ugt í Reykjanesbæ og þakkar það
sérstaklega velvilja bæjaryfirvalda.
Þau styðji samtökin þannig að unnt
hafi verið að ráða verkefnastjóra til
starfa sem sé grundvöllur þeirra
stóru skrefa sem tekin hafi verið. Sól-
ey nefnir að gerðar hafi verið hand-
bækur fyrir stjórnir foreldrafélaga og
önnur störf á vegum samtakanna.
Þær hjálpi nýju fólki að komast af
stað.
Hún segir einnig að mikil orka hafi
farið í það að efla bekkjarfulltrúa.
Þeir hafi bætt mjög tengslin milli
skólastjórnenda, kennara og foreldra.
Tveir forystumenn foreldra heiðraðir
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Fjöregg Ásdís Ýr Jakobsdóttir og Sóley Birgisdóttir fengu viðurkenningu
FFGÍR fyrir gott starf í þágu barna, í fyrsta skipti sem hún var veitt.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
FYRSTA alþjóðlega tónlistarhátíðin á Ak-
ureyri, sem haldin var um hvítasunnuhelgina,
gekk mjög vel. Hátíðin var að þessu sinni helg-
uð blústónlist. Tónleikar voru þrjú kvöld, að-
sókn mjög góð og stemningin frábær.
„Við erum mjög lukkuleg með þetta; hátíðin
gekk alveg eins og við hefðum kosið,“ sagði Jón
Hlöðver Áskelsson við Morgunblaðið, en hann,
Pálmi Gunnarsson og Guðrún Þórsdóttir höfðu
veg og vanda af hátíðinni.
Dagskráin var mjög fjölbreytt „og ég efast
um að nokkurn tíma hafi verið boðið upp á betra
eða lengra blúsprógramm á Íslandi en síðasta
kvöldið, að kvöldi hvítasunnudags; tónleikarnir
þá stóðu í þrjá og hálfan klukkutíma,“ sagði Jón
Hlöðver.
Allar sveitirnar náðu upp góðri stemningu á
Rocco, ekki síst Bandaríkjamennirnir í Lamont
Cranston Blues Band sem byrjuðu af miklum
krafti. „Það varð smá hlé eftir að Blúsmenn
Andreu kláruðu sitt prógramm, á meðan banda-
ríska hljómsveitin var að stilla upp sínum græj-
um. Sumir óttuðust að stemningin myndi
kannski detta svolítið niður – einn sem sat fyrir
aftan mig talaði að minnsta kosti um að hann
myndi fara fram á að fá miðann endurgreiddan
ef þeir næðu ekki stemningunni upp aftur, en
hann talaði svo ekkert meira um það! Þetta voru
svakalega flottir karlar; Náðu áhorfendum
mjög vel með sér,“ sagði Jón Hlöðver.
Hátíðin hófst á föstudagkvöldið á Hótel KEA.
Þar komu fram annars vegar Blúskompaní
Magnúsar Eiríkssonar og hins vegar Park Proj-
ekt, sem er samvinnuverkefni Kristjáns Edel-
stein og Pálma Gunnarssonar.
Kvöldið eftir lék í Ketilhúsinu bandaríska
blússveitin Lamont Cranston Blues Band frá
Minneapolis og á sunnudagskvöldinu var svo
haldin mikil veisla á veitingastaðnum Rocco.
Þeir sem tróðu upp að kvöldi hvítasunnudags
voru í fyrsta lagi Blúskompaní Magnúsar Ei-
ríkssonar ásamt gestasöngkonunni Hrund Ósk
Árnadóttur, sem söng einnig með þeim Magn-
úsi á föstudagskvöldinu. Hrund Ósk sigraði í
Söngkeppni framhaldsskólanna á sl. ári.
Næstir á svið voru Blúsmenn Andreu, og síð-
astir léku Lamont Cranston Blues Band.
„Þetta gekk allt mjög vel, stemningin var
mjög góð og aðsóknin hefði ekki mátt vera mik-
ið meiri. Það hefðu ekki mikið fleiri komist fyrir.
Það er svo sem á mörkunum að þetta lafi fjár-
hagslega, við færðumst mikið í fang en erum
staðráðin í að halda áfram undir nafni AIM –
Akureyri International Music Festival; það gef-
ur okkur tækifæri til þess að bjóða upp á ýmiss
konar tónlist,“ sagði Jón Hlöðver.
Blúshátíðin um hvítasunnuhelgina heppnaðist mjög vel að mati aðstandenda
Góð aðsókn og
frábær stemning
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Tilþrif Andrea Gylfa og blúsmenn hennar, ekki síst Guðmundur Pétursson, fóru á kostum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stemmning Pat Hayes, forsprakki Lamont Cranston, lék á gítar og munnhörpu og söng.
Jim Greenwell saxafónleikari Lamont.
Bruce McCabe fór á kostum á píanóinu.
AKUREYRI