Morgunblaðið - 07.06.2006, Side 21
Rúmræði, talningarfræði og
leikjafræði er meðal þess
sem hægt er að fræðast um í
nýju námsefni í stærðfræði,
Punktar og tölur. Höfundar
námsheftanna eru Áskell
Harðarson menntaskólakenn-
ari og háskólanemarnir Ey-
vindur Ari Pálsson og Stefán
Freyr Guðmundsson. Í for-
mála segja höfundar m.a.:
„Það er mikilvægt að dugleg-
ir nemendur hafi nóg verk-
efni að glíma við og eigi þess
kost að breikka og dýpka
þekkingu sína umfram það
sem námsskrá gerir ráð fyrir
...“ Námsefnið er einnig talið
veita góða undirstöðu fyrir
þátttöku í stærðfræðikeppn-
um í grunnskólum og fram-
haldsskólum og eru heftin
hugsuð bæði til kennslu og
fyrir nemendur sem vilja
læra efnið upp á eigin spýtur.
MENNTUN
Punktar
og tölur
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2006 21
DAGLEGT LÍF Í JÚNÍ
10.-11. júní
Reykjavíkurhöfn - Miðbakki
10.júní kl. 14:00-18:00
H2 hönnun
Fram koma:
Flís og Bogomil Font
Roðlaust og beinlaust
Ceol na Mara
Sjóm
annalagahátíð í Hafnarhúsinuj
l tí í f r i
A›gangur ókeypis
Að mati bandarískra og breskra vís-
indamanna eru ýmsar tegundir
grænmetis og ávaxta ekki eins hollar
heilsunni og áður, að því er m.a. kem-
ur fram á vefnum forskning.no.
Rannsóknir benda til þess að næring-
argildi ýmissa ávaxta og grænmetis
hafi minnkað verulega. Í sömu grein
kemur hins vegar fram að í Noregi
hafi ekkert komið fram sem bendi til
þess.
Það eru bandarískar rannsóknir
við Texasháskóla sem benda til þessa
og eru niðurstöðurnar birtar í vís-
indatímaritinu Journal of the Americ-
an College of Nutrition. Yfirlit yfir
næringargildi grænmetis og ávaxta á
árunum 1950 og 1999 lá til grundvall-
ar. Hollustan var greinilega minni ár-
ið 1999, þ.e. minna var af próteini,
kalki, fosfór, járni, ríbóflavíni og c-
vítamíni í ávöxtunum og grænmetinu
en árið 1950. Ríbóflavín var 38%
minna árið 1999 en árið 1950.
Óæskilegar aðferðir í landbúnaði
Lakara næringargildi telja vís-
indamennirnir orsakast af landbúnaði
sem er mun stærri í sniðum en áður.
Garðyrkjubændur þurfi að hugsa um
að búskapurinn borgi sig og noti því
óæskilegar aðferðir til að örva vöxt
grænmetisins og ávaxtanna sem
komi niður á gæðunum.
Sömu niðurstöður berast úr
breskri rannsókn sem gerð var á
sama hátt með samanburði á yfirliti
um næringargildi grænmetis og
ávaxta á árunum 1940 og 2002. Kalk-
innihald minnkaði um 46% og magn-
esíum um 24%.
Morgunblaðið/Arnaldur
HEILSA
Minna en áð-
ur af hollustu
í ávöxtum og
grænmeti?