Morgunblaðið - 03.07.2006, Page 4

Morgunblaðið - 03.07.2006, Page 4
4 F MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Selfoss | Eignamiðlun er með til sölu um 330 fm einbýlishús með bíl- skúr á Austurvegi 21C á Selfossi. Húsið var byggt árið 1980. Á að- alhæð eru forstofa, hol, snyrting, eldhús, búr, stofa, borðstofa, þrjú til fjögur herbergi og baðherbergi. Í kjallara eru tvö herbergi, baðher- bergi, þvottahús og mikið óinnréttað rými með gluggum. Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Úr forstofu er gengið inn í mjög rúmgott korklagt hol með skápum. Inn af holi er flísalögð snyrting. Úr holi er gengið inn í stórt dúklagt herbergi (tvö skv. teikningu). Eldhúsið er korklagt og með beykiinnréttingu. Inn af eldhúsi er búr með hillum. Borðstofa með sérsmíðuðum skápum og stofa með kamínu eru korklagðar. Svefnálman er dúklögð og herbergin eru tvö. Baðherbergið er flísalagt. Það er með baðkari og sturtuklefa. Úr holi er gengið niður í kjallara, en einnig er sér inngangur í kjall- arann. Þar eru tvö góð dúklögð her- bergi, baðherbergi með sturtu, rúm- gott þvottahús, geymslur og stórt óinnréttað rými með gluggum og fullri lofthæð. „Þetta er mjög fallegt og vandað einbýlishús og kjallarinn bíður upp á mikla möguleika,“ segir Magnea Sverrisdóttir hjá Eigna- miðlun. Ásett verð er 41,5 milljónir. Austurvegur 21C Eignamiðlun er með í sölu um 330 fm einbýlishús með bíl- skúr á Austurveg 21C á Selfossi. Ásett verð er 41,5 millj. kr. Heitir & fallegir Ofnar Ofnlokar Handklæðaofnar Sérpantanir www.ofn.is // ofnasmidjan@ofn.is Háteigsvegi 7 Sími: 511 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.