Morgunblaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
GYÐA INGÓLFSDÓTTIR,
Bergstaðastræti 68,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 19. júlí kl. 15.00.
Sigurður Ólafsson,
Vigdís Sigurðardóttir, Björn Lúðvíksson,
Hjörtur Sigurðsson, Hafdís Hafsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær og góð eiginkona, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG GÍSLADÓTTIR,
Hrafnistu,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum Hringbraut sunnu-
daginn 9. júlí, verður jarðsungin frá Hallgríms-
kirkju þriðjudaginn 18. júlí kl. 15.00.
Jósef Halldórsson,
Guðni Dagbjartsson, Elísabeth Dagbjartsson,
Guðrún Katrín Dagbjartsdóttir,
Gísli Dagbjartsson,
Sigurður Dagbjartsson,
Baldur Dagbjartsson, Soffía Þórisdóttir,
Gunnar Dagbjartsson, Helga Ottósdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir okkar, mágur og frændi,
STEFÁN JÓNSSON
bókbindari
frá Kringlu í Miðdölum,
sem lést þriðjudaginn 4. júlí í Seljahlíð, Hjallaseli
55 í Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
mánudaginn 17. júlí kl. 13.00.
Skarphéðinn Jónsson, Fanney Benediktsdóttir,
Elísa Jónsdóttir
og systkinabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, langafi og langalangafi,
BRYNJÓLFUR EYJÓLFSSON
fyrrv. vélamiðlari
hjá Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar,
Grundargerði 6,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu laugardaginn 8. júlí, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 19. júlí kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svanhvít Stella Ólafsdóttir,
Helena Á. Brynjólfsdóttir, Valur Waage,
Ólafur Brynjólfsson, Hrefna Björnsdóttir,
Eyjólfur Brynjólfsson, Steinunn Þórisdóttir,
Kristín Brynjólfsdóttir, Kristján Jónasson,
Sverrir Brynjólfsson, Guðríður Ólafsdóttir,
Dagný Brynjólfsdóttir, Gunnar Óskarsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og vinur,
ÖRN H. BJARNASON
rithöfundur,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut föstu-
daginn 7. júlí síðastliðinn, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 18. júlí kl. 15.00.
Ásta Júlía Arnardóttir, Grétar Skúlason,
Alda Arnardóttir, Pétur Eggerz Pétursson,
Oddur Bjarnason,
Halldór Bjarnason,
Gunnar Bjarnason,
Valdimar Jóhannesson,
Björn Jóhannesson,
Guðrún I. Jónsdóttir.
Elsku mamma, tengdamamma, amma og lang-
amma,
LÚLLA KRISTÍN NIKULÁSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 5,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðju-
daginn 18. júlí kl. 11.00.
Elín Sigríður Jósefsdóttir, Snæbjörn Guðbjörnsson,
Ketill G. Jósefsson, Karen Valdimarsdóttir,
Jenný Þuríður Jósefsdóttir, Alan Terry Matcke,
ömmubörn og langömmubörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ZOPHONÍAS JÓSEPSSON,
Ægisgötu 25,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju miðviku-
daginn 19. júlí kl. 13.30.
Jósep Zophoníasson, Ingibjörg Salóme Egilsdóttir,
Þóra Zophoníasdóttir,
Húni Zophoníasson, Anna Tryggvadóttir,
barnabörn og langafabarn.
✝ Jenny Lea Svan-hild Olsen fædd-
ist í Vestmanna í
Færeyjum 16. októ-
ber 1910. Hún lést á
Hrafnistu í Reykja-
vík 2. júlí síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Sigga
Margretha Sofie
(fædd Michelsen), f.
5. mars 1876, d. 24.
janúar 1936 og
Thomas Olsen, f. 10.
desember 1876, d. 8.
maí 1945. Systkini
Jennyjar voru: Hanna, f. 13. nóv-
ember 1899, d. 20. janúar 1984, Jo-
hannes, f. 28. júní 1903, d. 8. apríl
1981, Páll, f. 28. september 1904,
d. 16. ágúst 2001, Meinert, f. 20.
nóvember 1906, d. 4. mars 1953,
Hans, f. 20. nóvember 1913, d. 19.
apríl 2001 og Emmy, f. 13. nóv-
ember 1916, d. 14. janúar 1942.
Þórunni. 3) Elna, f. 8. september
1943, maki Baldvin E. Albertsson,
f. 27. apríl 1943 og eiga þau sam-
tals 6 börn; Matthías, Sólveigu,
Sigríði Elínu, Bjarklindi Þór, Bald-
vin Albert og Ingu Elínborgu. 4)
Þórunn, f. 5. mars 1947 og á hún
eina dóttur; Lindu Margit. Áður
átti Jenny soninn Trausta Ólafs-
son, f. 19. júlí 1935, maki María
Ágústa Einarsdóttir, f. 16. mars
1942. Þau eiga eina dóttur; Elísa-
betu.
Jenny ólst upp í Vestmanna í
Færeyjum, fór í skóla til Danmerk-
ur í eitt ár. Hún kom til Íslands
rúmlega tvítug í atvinnuleit og
vann hin ýmsu störf áður en hún
giftist Þórarni. Síðar vann Jenny
hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur,
Sælgætisgerðinni Freyju og síðast
hjá Ríkisútgáfu námsbóka þar til
hún lét af störfum vegna aldurs.
Jenny og Þórarinn hófu búskap á
Brekkustíg 14 b í Reykjavík og
bjuggu þar lengst af en áttu heim-
ili á Akureyri um nokkurra ára
skeið. Síðustu níu árin dvaldist
Jenny á Hrafnistu í Reykjavík.
Jenny var jarðsungin frá Foss-
vogskapellu 10. júlí, í kyrrþey.
Jenny giftist Þór-
arni Helga Jónssyni,
f. á Ytri-Rauðamel í
Eyjahreppi 8. janúar
1913, d. 23. apríl
1986. Foreldrar hans
voru Elín Guðrún
Árnadóttir, f. 11. apr-
íl 1877 á Syðri-
Rauðamel í Kolbeins-
staðahreppi, d. 15.
ágúst 1963 og Jón
Magnússon, f. 3.
ágúst 1865 í Hólma-
koti í Hraunhreppi,
d. 9. maí 1953. Jenny
og Þórarinn eignuðust fjórar dæt-
ur. Þær eru: 1) Lea, f. 29. ágúst
1939, maki Gestur Óli Guðmunds-
son, f. 3. júlí 1937 og eiga þau 4
börn; Bryndísi, Tómas Jennþór,
Agnar og Baldur. 2) Emmy Mar-
git, f. 28. desember 1941, maki
Guðjón Hallur Hallsson, f. 23. mars
1939 og eiga þau 2 börn; Hall og
Elsku mamma mín.
Ég þakka þér fyrir allt og kveð þig
með söknuði.
Mamma, elsku mamma,
man ég augun þín,
í þeim las ég alla
elskuna til mín.
Mamma, elsku mamma,
man ég brosið þitt;
gengu hlýir geislar
gegnum hjarta mitt.
Mamma, elsku mamma,
man ég lengst og best,
hjartað blíða, heita –
hjarta, er sakna ég mest.
(Sumarliði Halldórsson.)
Þín dóttir
Elna.
Jenny, tengdamóðir mín, lést hinn
2. júlí á Hrafnistu í Reykjavík 95 ára
gömul, södd lífdaga og viðbúin enda-
lokunum. Ég minnist hennar með
hlýhug um leið og ég rifja upp þær
góðu stundir sem við áttum saman í
þessi 23 ár sem liðin eru frá okkar
kynnum.
Hún tengdamóðir mín var heil-
steypt, gamansöm, bráðgreind og
mjög bókhneigð. Hún hafði gott
minni þar til fyrir fáum árum. Mér
þótti afar vænt um hana og fór oft til
hennar, bæði á Hrafnistu þar sem
hún bjó seinustu árin sem og að
Höfðatúni og Langholtsveginum.
Jenny var færeysk sem fór ekki
framhjá neinum. Hún var sannkölluð
Færeyjamær og henni þótti afar
vænt um landið sitt og þjóð og hélt
því hátt á lofti. Í hvert skipti sem ég
kom sagði hún mér frá Færeyjum og
frá fólkinu sínu þar og bara við að
hlusta á hana segja frá fór mér að
þykja vænt um Færeyjar og Vest-
mannahavn þar sem hún var fædd.
Undanfarin 3 ár voru henni erfið,
hún var farin að gleyma miklu og það
var hún ekki ánægð með. En hún var
lánsöm að dvelja á Hrafnistu í
Reykjavík, nú síðast á hjúkrunar-
deild H-1. Þar er frábært starfsfólk
sem sýndi bæði henni og okkur mik-
inn kærleik sem við gleymum aldrei
og kunnum við þeim bestu þakkir
fyrir. Það er gott að eiga hlýjar
minningar um þann tíma.
Jenny var ekki allra, var frekar
seintekin en þeim sem hún tók, tók
hún vel. Við áttum mjög vel saman
og er ég afar þakklátur fyrir það. Við
gátum talað saman um allt milli him-
ins og jarðar. Hún var vel að sér um
menn og málefni, en við vorum ekki
endilega alltaf sammála sem gerði
samræðurnar mun skemmtilegri.
Jenny var glæsileg kona alla tíð og
hélt því alveg til hins síðasta. Mér
fannst hún alltaf eins og prinsessa,
ávallt vel klædd og skartaði sínu feg-
ursta. Ég minnist tengdamóður
minnar sem traustrar konu sem
hafði sterkan persónuleika, var
vönduð, glæsileg og falleg. Ég er
stoltur og þakklátur fyrir að hafa
fengið að vera tengdasonur hennar
og mér finnst ég vera ríkari eftir að
hafa kynnst henni og átt hana að fyr-
irmynd. Hún fær nú að hvíla við hlið
mannsins síns. Blessuð sé minning
hennar. Ég færi allri fjölskyldu
hennar samúðarkveðju og bið Guð að
vera með þeim.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist
eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Þinn tengdasonur
Baldvin E. Albertsson.
Með þessu ljóði kveðjum við elsku
ömmu.
Guð blessi minningu hennar.
Við kistu þína kveðjumst við í dag,
í kirkju hljómar ómþýtt sorgarlag.
Þú leggur upp í langa gönguför,
þín leið er greið að drottins fótaskör.
Við höfum ótal margt að þakka þér,
þakklátt auga minninganna sér
myndir koma minn á hugarskjá,
já, margt er gott sem hugarfylgsnið á.
(Hörður Zóphaníasson.)
Þín barnabörn,
Matthías, Sólveig,
Sigríður Elín, Bjarklind Þór
og Inga Elínborg.
JENNY LEA
SVANHILD OLSEN