Morgunblaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÉG LENTI í þeirri lífsreynslu að
þurfa að fá mér nýtt vegabréf í vik-
unni. Ég vaknaði árla, lífsglaður að
vanda, og var mættur í röðina inni í
Borgartúni með öðrum skilríkjalaus-
um mönnum. Þegar
númerinu mínu var
flassað upp á skjá til
marks um að röðin væri
komið að mér hófust
vandræði dagsins. Þeg-
ar elskuleg kona hafði
afgreitt umsóknina
mína dró ég upp kred-
itkortið mitt og ætlaði
að greiða keisaranum
það sem keisarans er.
„Því miður“ – sagði
þolinmóð afgreiðslu-
kona og hafði greini-
lega lent í þessu þús-
und sinnum áður. Það kom í ljós að
dómsmálaráðuneytið treystir ekki
kreditkortum. Ég spurði hvort ekki
væri þá hraðbanki staðsettur í skil-
ríkjamiðstöð ríkisins fyrst dóms-
málaráðherra tæki kreditkort ekki
gild. „Því miður“ – svaraði af-
greiðslukonan. Ég spurði hvort þetta
skapaði ekki alls konar vandamál, til
dæmis varðandi eldra fólk sem væri
komið á það skeið í lífi sínu að leið-
angur til að afla skilríkja væri meiri-
háttar mál. Afgreiðslukonan horfði á
mig þolinmóðum langreyndum aug-
um – og sagði ekkert. Hún hafði
heyrt þetta mörgum, mörgum sinn-
um áður.
Þegar ég hafði aflað mér reiðufjár
kom ég aftur og var vísað áfram á
annan bás. Í nýja kerfinu er tekin
mynd á staðnum af þeim sem þurfa
skilríki – hugsanlega til að hafa verk-
efni fyrir greiningardeildina nýju. Ég
var settur á stól fyrir framan stóran
stólpa með örsmáu myndavélarauga.
„Þú situr of hátt,“ sagði stúlkan sem
átti að taka myndina. Ég fálmaði
undir stólinn að reyna að finna takka
til að lækka stólinn – en fann ekki.
Stúlkan sat fyrir aftan stóran og há-
an desk og mér var lífsins ómögulegt
að skilja leiðbeiningar hennar. Það
fór að síga í mig. Eftir japl og jaml og
fuður og margar hjálpsamar hendur
úr biðröðinni sem lengdist fyrir aftan
tókst að lækka stólinn.
„Þú situr of lágt,“ sagði stúlkan.
Nú tók við löng tilraun til að finna
rétta hæð á stólnum. Ekkert skilrúm
var á milli mín og biðraðarinnar fyrir
aftan sem fylgdist af athygli með at-
höfninni. Fyrir framan biðröðina sat
ég, orðinn fokreiður, og reyndi að
setja upp þokkalega glaðværan svip
fyrir myndina. „Brostu, sagði hjálp-
söm rödd úr röðinni.“ „Snúðu þér að-
eins meira á ská,“ sagði
önnur. „Þú ert bara af-
myndaður,“ sagði Guð-
jón Andrésson, bif-
reiðastjóri, og hló við
fót.
Stúlkan varð hálf-
vandræðaleg eftir
fyrstu tvær myndirnar.
Hún tók nokkrar í við-
bót. Ég er nægilega hé-
gómagjarn einsog títt
er um stjórnmálamenn
á mínum aldri til að
vilja líta þokkalega út í
vegabréfinu mínu. Ég
fylltist illum grun þegar stúlkan
sagði loksins: „Við verðum bara að
láta þessa duga.“ Mér hnykkti við
þegar hún sýndi mér hana á skján-
um. Þarna húkti ég einsog lortur á
stólnum, í vondri lýsingu með vondan
bakgrunn. Ég sver að það var varla
að ég þekkti sjálfan mig.
„Þetta er ekki nógu góð mynd,“
sagði ég brúnaþyngri en að jafnaði
svo snemma dags. Stúlkan afsakaði
sig með því að benda á hið augljósa –
hræðilega lýsingu og vondan bak-
grunn. Ég sagði stúlkunni að það
kæmi ekki til mála að nota þessa
mynd. Hún samsinnti því með
þreytulegu brosi. Hún hafði líka
heyrt þetta áður. Eftir deilur í
þinginu um þessa nýju aðferð var
samþykkt að fólk gæti átt val á því að
fara sjálft til ljósmyndara og koma
með sínar eigin myndir. Svo ég hélt
af stað í leiðangur til Fríðar í Svip-
myndum á Hverfisgötu 50. „Jú,“
sagði Fríður. „Það hefur allur biss-
ness dottið niður hjá okkur eftir að
ríkið tók upp þetta skrítna kerfi.“
Mér þótti það leitt, og skrítið að ríkið
skyldi með þessum hætti vera að
grafa undan farsælum smáfyr-
irtækjum. Ég fór samt glaðari inn í
Borgartún með flotta passamynd á
diski frá Fríði. „Það þarf samt að
taka af þér mynd með maskínunni,“
sagði lipur og hlýleg stúlkan. „Kerfið
þarf að geta borið passamyndina
saman við lífkennin á myndinni sem
við tökum.“ Það tók fljótt af í til-
tölulegri sátt við umhverfið.
Stúlkan varð hálfvandræðaleg
þegar myndatökunni var lokið. Hálf-
hikandi tilkynnti hún mér hina
hræðilegu niðurstöðu: „Það eru ekki
nema 92% líkur á að myndin sem þú
komst með sé af þér.“ Svo bætti hún
við: „Það verður bara að duga. Það
kemur oft fyrir.“
Þetta er semsagt hið gulltrygga
kerfi sem á að veita vörn gegn því að
glæpamenn komist á fölskum for-
sendum milli landa.
Ég velti fyrir mér hversu oft ég
ætti eftir að lenda í vandræðum á
flugvöllum erlendis, þar sem hyster-
ískir landamæraverðir eru stöðugt á
höttunum á eftir hryðjuverkamönn-
um eða öðrum sem eru að reyna að
smygla sér yfir landamæri. Hversu
margir landamæraeftirlitsmenn á er-
lendum flugvöllum eiga ekki eftir að
staldra við þá staðreynd, að það eru
ekki nema 92 % líkur á því að mað-
urinn sem réttir þeim vegabréfið sitt
sé 1. þingmaður Reykjavíkur norð-
100 prósent menn og við hinir
Össur Skarphéðinsson fjallar
um stjórnsýslu ’Ofan á allt saman þákemur í ljós að lífkenna-
kerfið sem á að sortera
glæpamennina frá hinum
er ekki tryggara en svo,
að hér eftir eru töluverð-
ar líkur á að umheim-
urinn telji að ég sé allt
annar en sá sem ég segist
vera. ‘
Össur Skarphéðinsson
Tíðkast hefur að setja Virðingarfyllst undir sendibréf.
Ýmsum þykir snotrara og íslenskulega að setja þess í stað: Með virð-
ingu.
Gætum tungunnar
Nýkomið í einkasölu glæsilegt nýlegt sumarhús, 51,4 fm auk sambyggðs gestahúss 8,6 fm. Samtals stærð
60 fm. Húsið er staðsett í landi Kjarnholts og er 0,7 hektarar. Heitur pottur og einkahitaveita. Vandaðar inn-
réttingar og parket. Frábær aðstaða fyrir hestamenn o.fl. Rúmlega 60 mín. akstur frá höfuðborginni. Fjórir
golfvellir í 15 mín. radíus, fagurt útsýni. Arkitekt Valdimar Harðarson. Myndir á mbl.is Verð 21 millj.
Sumarhús í Biskupstungum
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Höfum fengið í einkasölu mjög gott rað-
hús á 2 hæðum m/innbyggðum bílskúr,
samtals um 166,3 fm, vel staðsett við
Ásbúð í Gbæ. Eignin er á mjög góðum
barnvænum stað þar sem er stutt í
skóla, leikskóla og framhaldsskóla. Fal-
legur gróinn garður í suður með skjól-
girðingum og tilheyrandi. Eignin skiptist
í forstofu, hol, baðh., 2 góð herb.,
geymslu og bílskúr. Á efri hæð er stofa, borðstofa, eldhús, hol, hjónah., barnah.
og baðh. ásamt geymslulofti. Gólfefni eru parket og flísar. V. 38,5 millj.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi í s. 896 0058.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Ásbúð - Garðabæ
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Stórglæsilegt 233 fm tvílyft einbýlishús með 28 fm innb. bílskúr á þessum eftirsótta stað
í Vesturbænum. Eignin er afar vel staðsett innst í botnlangagötu. Á neðri hæð eru forst.,
hol, stórt endurnýjað eldhús með vönduðum innréttingum og tækjum, borðstofa með
gólfsíðum gluggum, setustofa með útgangi á verönd og þvottaherb. með sturtu og mikl-
um innréttingum. Á efri hæð er stórt opið rými með allt að 4 metra lofthæð, 4 rúmgóð
herb. og flísalagt baðherb. Tvennar svalir til austurs og vesturs. Falleg ræktuð lóð með
hellulögðum veröndum og hita í stéttum fyrir framan hús.
Granaskjól
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Holtsbúð - Einbýli - Garðabæ
Sérlega fallegt einbýli á þessum friðsæla
stað í Garðabæ. Húsið er 226,7 fm með
bílskúr sem er skráður 54,8 fm. Skipting
eignarinnar: 4 svefnh., hol, stofa, borð-
stofa, eldhús með borðkróki, búr,
þvottahús, baðh., gestasnyrting, for-
stofa, herb. með sturtu og bílskúr. Búið
er að útbúa aukaíbúð sem er um 50 fm. Eign sem vert er að skoða. V. 53,5 millj.
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í
einkasölu mjög fallega 105,9 fm íbúð,
þar af er bílskúr 19,3 fm. Íbúðin er á
tveimur hæðum með sérinngangi á frá-
bærum útsýnisstað, vel staðsett í
Byggðahverfi í Garðabæ. Eignin skiptist
í forstofu, hol, eldhús, stofu. Á neðri
hæð er stórt hjónaherbergi, barnaher-
bergi, hol, baðherbergi /þvottahús,
einnig fylgir geymsla og bílskúr. Parket, flísar, korkur. Frábær staðsetning. Stutt í
skóla og leikskóla. Verð 24,5 millj. Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi í s. 896 0058.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Brekkubyggð - Gbæ.