Morgunblaðið - 18.07.2006, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 18.07.2006, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is BRÚÐAN Randy varð þess valdandi að lögregla, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háafossi í Fossárdal, inn af Þjórsárdal í Árnessýslu, síð- astliðið sunnudagskvöld. Brúða þessi var notuð við tökur á kvik- myndinni Köld slóð í vetur sem leið. Hún týndist í gilinu við Háafoss og hefur ekki fundist fyrr en nú, þrátt fyrir endurtekna leit. Kristinn Þórðarson, handritshöf- undur og framleiðandi Kaldrar slóð- ar, sagði að brúðan hefði verið notuð í atriði sem tekið var í snjónum í vet- ur við Háafoss. Flugbjörgunarsveit- in á Hellu var kvikmyndagerðarfólk- inu til aðstoðar. Í einu atriðinu var brúðunni varpað fram af gilbrúninni. Kristján sagði að björgunarsveitar- mennirnir hefðu leitað brúðunnar en ekki fundið. Til stóð að síga í gilið nú í júlí og gera enn eina tilraun til að finna brúðuna. „Áður en náðist að gera það fannst dúkkan, á aðeins óskemmtilegri hátt en við áætluð- um,“ sagði Kristinn. Ekki var til- kynnt til lögreglu um týndu brúðuna og sagði Kristinn að kvikmynda- gerðarmennirnir og eins björgunar- sveitarmenn hefðu gert ráð fyrir að þeir fyndu brúðuna áður en einhver annar gerði það. „Þetta var óheppi- legt og við biðjum þá afsökunar sem hlut eiga að máli,“ sagði Kristinn. Köld slóð verður frumsýnd um næstu jól. Kristinn sagði að þá yrðu áhorfendur leiddir í allan sannleika um hlutverk brúðunnar Randy. Svanur S. Lárusson, formaður Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu, sagði að brúðunni, sem þeir kölluðu Randy, hefði verið kastað niður í gil- ið af brúninni austan megin gegnt Háafossi. Björgunarsveitarmenn hefðu leitað hennar eftir að atriðið var tekið upp, en ekki fundið. Þá hefði verið mikill snjór í gilinu. Síðan var farið tvisvar til að leita brúðunn- ar án árangurs. Þeir hefðu á end- anum talið líklegast að brúðan hefði lent í ánni og hún tekið hana. Svanur taldi líklegt, í ljósi atburða nú, að brúðan hefði ekki fallið niður í botn gilsins upphaflega og því hefði hún ekki fundist við leit. Brúðan var neðst í grjótskriðu, nýfallinni að því er talið var, í um 100 metra djúpu gljúfri og um 20 metra frá 122 metra háum fossinum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var brúðan þannig að erfitt var að átta sig á því úr fjarlægð að ekki væri um lík að ræða. Lögreglunni barst tilkynning um kl. 20 á sunnudagskvöldið að maður lægi í skriðu neðan við Háafoss, lík- lega látinn. Lögregla og björgunar- sveitir fóru á staðinn og þyrla LHG var kölluð út. Þegar lögreglan kom á vettvang kom í ljós að um brúðu var að ræða, en ekki mannslík. „Þetta til- vik sýnir glöggt að skynsamlegt er að láta vita af slíkum tapa á leikmun- um,“ segir í tilkynningu lögreglunn- ar. Þegar hið sanna kom í ljós voru frekari aðgerðir afturkallaðar og þakkar lögreglan aðstoðina öllum sem brugðust skjótt og vel við. Líkið reyndist vera brúða Úr fjarlægð var erfitt að greina hvort það var brúða sem lá í gilinu eða lík. NÚ þegar nokkrar vikur eru til slát- urtíðar styttist í að sláturhús gefi upp hvaða verð bændur fá fyrir framleiðslu sína á sláturfé í ár. „Við vonumst til að sjá á bilinu 8– 11% hækkun á kílóverði, sem algjört lágmark,“ segir Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Landssambands sauðfjárbænda. Að baki þeim væntingum segir hann liggja að leiðrétta þurfi lækk- un á skilaverði til bænda á árunum 2002–2004 sem hafi numið 25% sam- tals, vegna ástands á kjötmarkaði þá. Núna sé hins vegar staðan að skortur er á kjöti og bændur hafa ekki undan að framleiða. „Svo við sjáum ástæðu til að kjörin séu leið- rétt og ástand á markaði skili sér í greiðslum.“ Þá segist Özur frekar reikna með að hækkunin gangi eftir þótt ekki sé annað hægt að gera en vona. „Ég held það ætti að vera möguleiki að bændur fái eitthvað af hækkuninni á kjötverði til baka því þeir hafa verið að fá minnst í þessari keðju.“ Ákvörðun liggi fyrir fljótlega Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri SS, segir enn of snemmt að segja til um hvernig bændum verði borgað í ár. „Þetta verður gert tímanlega,“ segir hann en jafnframt að ákvörðun liggi enn ekki fyrir. Árni Magnússon, fjármálastjóri Norðlenska matborðsins ehf., segir að endanleg ákvörðun um verð liggi væntanlega fyrir á næstu dögum. Aðspurður hvort bændur megi vera vongóðir, segir hann að um ein- hverja hækkun verði að ræða þótt hann geti ekki nákvæmlega sagt til um hversu mikla. Varðandi lág- markskröfur bænda um 8–11% hækkun segir hann mega reikna með að þær verði uppfylltar og jafn- vel gert „ívið betur“ en það við sauð- fjárbændur að þessu sinni. Morgunblaðið/Árni Torfason Lömb af fjalli. Nú styttist í sláturtíð. Sauðfjár- bændur vonast eftir 8–11% verðhækkun Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is ÍSLENDINGARNIR sex, sem sáu á bak Norðmönnum í rútum frá Beirút til Sýrlands á sunnudagsmorgun, fengu allt aðra og betri afgreiðslu hjá Finnum í gærmorgun. Sex- menningarnir komust með Finnum yfir landamæri Líbanons og Sýrlands og fjar- lægðust smátt og smátt sprengjuregn Ísraelsmanna í Líbanon. Eftir tæplega tíu tíma rútuferðalag komust Íslendingarnir til Damaskus ásamt fjölda annarra skjólstæð- inga Finna frá Þýskalandi, Kanada og víðar. Fólkinu var komið fyrir í finnska sendi- ráðsbústaðnum þar sem hýsa átti fólkið áður en það yrði flutt til alþjóðaflugvallarins í borginni í nótt. Þar átti flugvél á vegum ís- lenska utanríkisráðuneytisins að taka á móti þeim auk hundruð annarra Norðurlandabúa sem þegið hafa boð íslenskra stjórnvalda um brottflutning. Gekk allt mjög vel Í för Íslendinganna var annars vegar þriggja manna fjölskylda með 4 mánaða gam- alt barn og síðan þrír flugvirkjar sem unnið hafa undanfarið fyrir Atlanta í Beirút. Að sögn Más Þórarinssonar flugvirkja sem var í hópnum var fólkið komið til Damaskus kl. 21.30 að staðartíma í gærkvöldi. „Þetta gekk mjög vel,“ sagði Már. „Við erum afar ánægð með framvindu mála.“ Finnska rútu- lestin fór í samfloti með þýskum rútum en varð að bíða nokkra tíma eftir Þjóðverjunum vegna ákveðins skipulagsleysis hjá Þjóðverj- unum við að leggja af stað. Vél utanríkisráðuneytisins átti að flytja Norðurlandabúana frá Damaskus til Kaup- mannahafnar. Tvær seinkanir um alls 5 tíma settu strik í flugáætlunina. Er því áætlað að lenda með fólkið í Kaupmannahöfn um há- degið í dag, þriðjudag. Þaðan var förinni heit- ið til Keflavíkur með Íslendingana sem alls voru tíu talsins í Beirút. Mjög fegin að vera komin til Damaskus „Við erum mjög fegin því að vera komin hingað til Damaskus því sprengjur voru að falla í hálfs km fjarlægð frá okkur þegar við hittum Finnana. Við erum ósköp rólegir en fjölskyldur okkar heima voru mjög órólegar þannig að þetta var meira álag fyrir þær en okkur.“ Alma Hannesdóttir var með í förinni ásamt ungri dóttur sinni og eiginmanni sem hefur íslenskan og líbanskan ríkisborgararétt. Hef- ur hún verið búsett í Líbanon í tvö ár og var á leiðinni til Íslands þegar hin mannskæðu átök Ísraelsmanna og Hizhbolla samtakanna í Líbanon hófust með fyrrgreindum afleið- ingum. „Þetta gekk alveg eins og í sögu og Finnar eiga allan heiðurinn af því,“ sagði Alma. „Meðhöndlun þeirra á málum fólks var margfalt betra en hjá Norðmönnum í gær og vart hægt að bera þetta tvennt saman. Þeir tóku afar vel á móti okkur og voru almenni- legheitin uppmáluð. Frá byrjun voru allir vel- komnir í rúturnar þeirra án tillits til þjóð- ernis og ekki var spurt um eitt né neitt. Bara allir boðnir velkomnir.“ Ölmu varð hverft við þegar sprengja Ísr- aelsmanna sprakk rétt hjá hópnum þegar verið var að leggja af stað frá Beirút þá um morguninn og segir hún að þar hafi verið um að ræða skeyti sem skotið er af sjó undan ströndum Líbanons. „Maður hoppar aðeins við lætin en maður gerir sér grein fyrir því að þetta var ástæðan fyrir því að maður tókst á hendur þetta ferðalag. Maður hlakkar held- ur betur til að komast til Íslands.“ Íslendingar með Finnum frá Beirút og sprengjur fallandi í 500 metra fjarlægð Allir velkomnir hjá Finnum Reuters Guðmundur Karl Guðmundsson, Már Þórarinsson og Markús Sigurjónsson fyrir framan Le Meridien-hótelið í Hamra-hverfinu í Beirút skömmu áður en þeir lögðu af stað til Damaskus. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Reuters Franskir ríkisborgarar fyrir framan sendiráðið í Beirút er þeir biðu eftir að komast frá Líbanon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.