Morgunblaðið - 18.07.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 11
FRÉTTIR
SALA hófst í gær á fyrsta sam-
heitalyfinu sem lyfjafyrirtækið
Portfarma flytur inn en fyrirtækið
hyggst setja um 20 samheitalyf á
íslenskan markað á næstu 12 mán-
uðum. Olgeir Olgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Portfarma, segir að
erfitt sé fyrir lyfjafyrirtæki að
flytja inn samheitalyf á íslenskan
markað en hann vonast þó eftir að
slíkur innflutningur geti borið sig í
framtíðinni.
Rætt hefur verið um að spara
megi Tryggingarstofnun og neyt-
endum lyfja verulegar fjárhæðir ef
flutt væri inn til landsins meira
magn samheitalyfja. Samheitalyf
eru eftirlíkingar af lyfjum sem þeg-
ar hafa verið markaðssett, svoköll-
uðum frumlyfjum, og innihalda
sömu virku efnin og frumlyfin.
Samheitalyf eru hins vegar yfirleitt
ódýrari.
Á næstu 12 mánuðum ætlar
Portfarma að flytja inn og mark-
aðssetja um 20 samheitalyf. Sala
hófst á fyrsta lyfinu, Simvastatin
Portfarma, í gær en lyfið hefur
blóðfitulækkandi áhrif. Segir Ol-
geir að það sé nokkrum erfiðleikum
háð að flytja inn samheitalyf til Ís-
lands. „Helsti þröskuldurinn er
hvað Ísland er lítill markaður. Oft
er það þannig að lágmarkspöntun á
lyfi er 100 þúsund töflur en mark-
aðurinn hér þarf kannski ekki
nema 9 þúsund á ári hverju.“
Hann bendir einnig á að því fylgi
um 40% viðbótarkostnaður á al-
gengustu lyfjunum að hafa umbúð-
ir og fylgiseðla á íslensku. Þetta
hlutfall geti verið enn hærra við
framleiðslu lyfja sem eru minna
notuð.
Olgeir telur að með því að
stækka það markaðssvæði sem Ís-
land tilheyri megi leysa þennan
vanda og þar með stuðla að lyfja-
verðslækkun. Forsenda þess konar
lausnar sé að efla Lyfjastofnun svo
hún geti tekið við skráning-
arumsóknum fyrir önnur markaðs-
svæði líkt og gert hafi verið í Dan-
mörku. Þetta geri stofnunin nú
þegar fyrir Actavis.
Samkvæmt upplýsingum frá
Lyfju verður nýja samheitalyfið
rúmlega helmingi ódýrara en frum-
lyfið en rúmlega 10 prósent ódýr-
ara en sambærilegt samheitalyf.
Hyggjast flytja inn samheitalyf
Markaður fyrir
samheitalyf of
lítill hér á landi
Morgunblaðið/Golli
Sigurbjörn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Lyfju, og Olgeir Olgeirs-
son, framkvæmdastjóri Portfarma, kynntu nýja lyfið á fundi í gær.
ÞAÐ er orðið lítið eftir af Íþróttahúsi Ármanns við
Sóltún í Reykjavík. Íslenskir aðalverktakar ætla á
næstunni að reisa fjölbýlishús á lóðinni og því varð
íþróttahúsið að víkja. Húsið var reist í kringum 1960
og hefur gegnt hlutverki sínu með sóma. Ármann á
sér þó miklu eldri sögu, en félagið er elsta starfandi
íþróttafélag landsins, stofnað árið 1888.
Tryggvi Þ. Gunnarsson, varaformaður Ármanns,
sagði að Ármann fengi nýja aðstöðu í Laugar-
dalnum, en hús félagins er áfast íþróttahúsi Þróttar.
Hann sagði að félögin myndu hafa samstarf um ýmsa
hluti, m.a. húsvörslu. Hann sagði þetta fyrst sinn
sem íþróttafélög hér á landi færu í samstarf af þessu
tagi.
Morgunblaðið/Golli
Íþróttahús Ármanns látið víkja
GENGIÐ hefur frá skipan í
kjararáð, en hlutverk þess er
að ákveða laun og starfskjör
þjóðkjörinna manna, ráð-
herra og dómara og annarra
ríkisstarfsmanna sem svo er
háttað um að þau geta ekki
ráðist með samningum. Lögin
tóku gildi 1. júlí sl. Jafnframt
féllu úr gildi lög um Kjara-
dóm og kjaranefnd.
Í ráðinu sitja Jónas Þór
Guðmundsson, lögmaður,
Rannveig Sigurðardóttir,
hagfræðingur og Kristinn
Hallgrímsson, lögmaður, kos-
in af Alþingi, Jakob R. Möll-
er, lögmaður, skipaður af
Hæstarétti og Guðrún Zoëga,
verkfræðingur, skipuð af fjár-
málaráðherra. Varamenn eru
Eva Dís Pálmadóttir, lögmað-
ur, Svanhildur Kaaber, skrif-
stofustjóri og Ása Ólafsdóttir,
lögmaður, kosin af Alþingi,
Kristinn Bjarnason, lögmað-
ur, skipaður af Hæstarétti og
Auður Finnbogadóttir, við-
skiptafræðingur, skipuð af
fjármálaráðherra.
Búið er að
skipa nýtt
kjararáð
RITHÖFUNDURINN og blaða-
maðurinn Þorgrímur Gestsson sit-
ur nú sveittur við að endurskrifa
viðtalsbók sem hann var byrjaður
á og þarf að skila handriti að hinn
20. ágúst nk. Ástæðan er sú að að-
faranótt sunnudagsins síðasta var
bæði borðtölvu og fartölvu Þor-
gríms stolið af heimili hans í Hafn-
arfirðinum. Aðspurður segist Þor-
grímur ekki hafa orðið þjófanna
var, en sjálfur svaf hann á efri hæð
hússins þegar stuldurinn átti sér
stað.
Að sögn Þorgríms er stuldurinn
afar bagalegur fyrir hann, þar sem
í tölvunum tveimur sé að finna ým-
is gögn sem hann megi alls ekki
missa, þar á meðal drög að viðtals-
bók við Guðrúnu J. Halldórsdóttur,
fyrrverandi skólastjóra Náms-
flokka Reykjavíkur, sem Þorgrím-
ur vinnur að í samvinnu við Hildi
Finnsdóttur, ættfræðirannsóknir í
tengslum við bókina, öll tölvu-
póstsamskipti hans síðustu ár og
dagbókarskrif sl. fjögurra ára, sem
afar sárt sé að missa.
Reynir nú að finna aftur hinn
eina sanna tón bókarinnar
Hvað viðtalsbókina varðar segist
Þorgrímur hafa uppgötvað sér til
mikils léttis í gær að hann hafi tek-
ið afrit af uppskrifuðum viðtölun-
um við Guðrúnu á minniskubbi, en
þar var að um að ræða 13,5 klst. af
viðtalsefni sem Þorgrímur var bú-
inn að skrifa inn og byrjaður að
vinna. „Ég hélt fyrst að ég hefði
misst meira efni bókarinnar en ég í
raun missti.
Góðu fréttirn-
ar eru þær að
ég reyndist
eiga afrit af
sjálfu hráefn-
inu,“ segir Þor-
grímur og tek-
ur fram að
hann hafi verið
kominn vel á
skrið með bók-
ina, en ekki náð að taka afrit af
þeirri handritavinnu. „Ég er því að
byrja aftur að hugsa og endur-
skrifa bókina og reyna að finna
hinn eina sanna tón,“ segir Þor-
grímur vongóður og tekur fram að
hann muni alls ekki láta þessa
óheppilegu uppákomu tefja útgáfu
bókarinnar, en hún á að koma út
fyrir næstu jól.
Að sögn Þorgríms er lögreglan
að vinna í málinu. „En samhliða því
er ég að vinna í minni eigin eft-
irgrennslan,“ segir Þorgrímur og
bendir á að það sé ekki erfitt í
svona litlu bæjarsamfélagi að hafa
samband við fólk sem þekki fólk
sem heyri hluti. „Ég bið menn á
vissum stöðum í þjóðfélaginu, sem
ég veit um og þekki til, að hafa
augu og eyru hjá sér,“ segir Þor-
grímur og bendir á að hann hafi
eftir lögreglunni að þjófarnir hljóti
sennilegast að vera einhverjir við-
vaningar, því engum alvöruþjófum
dytti í hug að stela borðtölvu sök-
um þess hve erfitt sé að koma slík-
um tölvum í verð.
Ef einhver þekkir til málsins og
vill koma ábendingum eða gögnum
til Þorgríms þá er hann með net-
fangið torg@vortex.is.
Drög að nýrri viðtalsbók í tveimur tölvum sem stolið var af Þorgrími Gestssyni
Strax byrjaður að endur-
skrifa viðtalsbókina
Þorgrímur
Gestsson
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
FYRSTU kartöflur sumarsins voru teknar
upp í Þykkvabænum í gærmorgun og voru
kartöflurnar komnar í verslanir á höf-
uðborgarsvæðinu fyrir
hádegi. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Sölufélagi
garðyrkjumanna má
vænta nýrrar sendingar
daglega í verslanir
næstu vikurnar eða þar
til hefðbundin kartöflu-
uppskera hefst um miðj-
an ágúst.
Það var Birkir Ár-
mannsson, bóndi í Vest-
urholti í Þykkvabæ, sem
reið á vaðið og tók upp eitt og hálft tonn af
premier-kartöflum og voru þær strax
sendar í verslanir.
Á næstu dögum munu fleiri bændur
byrja að taka upp kartöflur og senda í
verslanir samdægurs. Bryddað var upp á
þessari nýbreytni í fyrra og seldust kart-
öflurnar upp dag eftir dag.
Nýjar kartöflur
komnar á markað
Kartöflurnar voru
teknar upp í gær.
LÖGREGLAN í Keflavík handtók sex aðila
og gerði upptækar 415 e-töflur, 15 grömm
af amfetamíni auk lítilræðis af kókaíni við
húsleit í Reykjanesbæ á föstudagskvöld.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu lágu
fyrir ákveðnar upplýsingar um að fíkni-
efnamisferli ætti sér stað í húsinu og var
því ráðist í leit.
Þetta er mesta magn af e-töflum sem
lögreglan í Keflavík hefur gert upptækt í
einu máli en karlmaður á þrítugsaldri hef-
ur viðurkennt að eiga töflurnar, og aðrir
aðilar amfetamínið og kókaínið. Mega þeir
búast við ákærum í kjölfarið en málið telst
upplýst og var öllum aðilum sleppt úr
haldi af loknum yfirheyrslum.
E-töflur fundust við
húsleit í Reykjanesbæ
STURLA Böðvarsson, samgönguráðherra,
hyggst ekki verða við þeirri áskorun flug-
umferðarstjóra að beita sér fyrir því að
vaktafyrirkomulagið
sem gildi tók 16. mars
sl. verði fellt úr gildi.
Aðspurður segist Sturla
hvetja samningsaðila til
þess að leita sátta um
breytt vaktafyrir-
komulag. Bendir hann á
að samningsaðilar hafi
undirgengist það að
hlíta niðurstöðu Fé-
lagsdóms, en hann kvað
upp úrskurð sinn 6. júlí
sl. þar sem hann sýknaði ríkið af kröfu Fé-
lags íslenskra flugumferðarstjóra. Segir
Sturla að ekki þýði að deila við dómarann í
þessum efnum, enda sé dómur Félagsdóms
endanlegur.
Hvetur samningsaðila
til þess að ná sáttum
Sturla Böðvarsson
BORGARFULLTRÚAR í svartfellsku
borginni Cetinje hafa lagt fram formlega
ósk til héraðsþings svæðisins um að breyta
nafni á götu í borginni úr Smederevska-
stræti í Íslandsstræti.
Að því er kemur fram á fréttavefnum
b92.net er ástæðan sú, að bæjarfull-
trúarnir vilja með þessu sýna Íslandi
þakklæti fyrir að verða fyrsta landið til að
viðurkenna sjálfstæði Svartfjallalands í
maí á þessu ári. Frumkvæði Íslands í þessu
máli vakti mikla athygli í Svartfjallalandi
og var fjallað um það á forsíðum dagblaða
í landinu.
Gata í Svartfjallalandi
nefnd Íslandsstræti
LÖGREGLAN í Keflavík þurfti að hand-
járna átján ára gamla stúlku og færa til
fangaklefa eftir ólæti í lögreglubifreið á
sunnudagsmorgun. Stúlkan sem grunuð
er um ölvun við akstur var stöðvuð af lög-
reglu í Grindavík. Var hún afar ósátt við
afskipti lögreglunnar og reyndi m.a. að
sparka út rúðu í bifreiðinni. Þegar lög-
reglumaður reyndi að hemja hana beit
stúlkan þéttingsfast vinstra megin við
hægra hné hans. Var stúlkan í kjölfarið
handjárnuð. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu voru meiðsli mannsins lítil.
Réðist á lögregluþjón
við skyldustörf