Morgunblaðið - 18.07.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 33
DAGBÓK
Boðið er upp á fjölbreytta fræðsludagskráá Þingvöllum í sumar. Næstkomandifimmtudag, 20. júlí, mun Sverrir Tóm-asson, prófessor við Árnastofnun, flytja
erindið „Sögur og staðreyndir á Þingvöllum“. Í er-
indi sínu fjallar Sverrir um elstu heimildir um Þing-
velli og hvernig megi túlka þær og gerir jafnframt
grein fyrir helstu skoðunum fræðimanna um þingið
og þinghald: „Ég mun fjalla um heimildir um Þing-
velli í fornum ritum og hvaða ályktanir má draga af
þeim. Nánar tiltekið munum við skoða heimildir um
Þingvelli allt frá miðöldum og fram á 19. öld og
ræða heimildagildi þeirra og merkingu,“ segir
Sverrir.
„Þetta eru heimildir á borð við Grágás, Njáls-
sögu, Sturlungu, Jarðabók Árna Magnússonar og
frásögn Jóns Grunnvíkings. Síðan kemur að túlkun
þessara heimilda á 19. öld og ritgerðum Kristjáns
Kålund og Matthíasar Þórðarsonar,“ útskýrir
Sverrir.
Skortir á nákvæmar lýsingar
Erindi sitt flytur Sverrir í fræðslumiðstöðinni við
útsýnisskífuna á Hakinu þaðan sem gengið er niður
í Almannagjá: „Ég mun lesa úr heimildunum, fara í
einstaka liði og fjalla um hversu vel má treysta
þeim og draga af þeim ályktanir.“
Eftir fyrirlesturinn verða heimsóttir þeir staðir
sem fjallað hefur verið um: „Við höldum niður Al-
mannagjá að þeim sögustöðum sem þar er getið og
athugum hvernig heimildum ber saman. Þaðan
verður gengið að Flosagjá, Nikulásargjá og upp á
Spöng og komið við í Þorleifshólma,“ segir Sverrir.
Þó Þingvellir hafi verið miðpunktur miðalda-
bókmennta Íslendinga segir Sverrir nokkuð skorta
á nægilega góðar lýsingar af svæðinu: „Þingvellir
hverfa því sem næst úr rituðum heimildum á síðari
helmingi 13. aldar þegar þjóðveldistímanum lýkur
og staðurinn fær annað hlutverk. Í þeim lýsingum
sem finna má skortir upplýsingar svo við getum vit-
að með vissu hvar vissir atburðir hafa átt sér stað,“
útskýrir Sverrir.
Sverrir bætir við að margir hafi sýnt því áhuga
að reyna að velja sögufrægum stofnunum stað á
Þingvölum: „Sumt hefur tekist sæmilega og annað
miður, og verður að gæta að því hvaða heimildir er
stuðst við.“
Gangan og fyrirlesturinn á fimmtudag er ókeyp-
is og er áætlað að dagskráin taki um hálfan annan
tíma. Gengið verður á þægilegum hraða og eru
gestir beðnir að klæða sig og skóa eftir veðri. Sem
fyrr segir hefst dagskráin kl. 20 og eru allir vel-
komnir.
Nánari upplýsingar um sumardagskrá þjóð-
garðsins á Þingvöllum má finna á slóðinni
www.Thingvellir.is
Sagnfræði | Sverrir Tómasson fjallar um áreiðanleika ritaðra heimilda um Þingvelli
Sögur og staðreyndir á Þingvöllum
Sverrir Tómasson
fæddist í Reykjavík 1941.
Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1961, cand.
mag. í íslensku frá Há-
skóla Íslands 1971 og
doktorsprófi í mið-
aldabókmenntum 1988
frá sama skóla. Sverrir
hefur síðan starfað sem
prófessor og síðar rann-
sóknarprófessor við Stofnun Árna Magn-
ússonar. Sverrir hefur meðal annars annast út-
gáfu Íslendingasagna og Sturlungu og hefur
verið ritstjóri Griplu frá 1994. Sverrir hlaut ís-
lensku bókmenntaverðlaunin 1992 fyrir „Ís-
lenska bókmenntasögu“.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 c5 5.
a3 Bxc3+ 6. bxc3 Rc6 7. Bd3 0-0 8. Re2
b6 9. e4 Re8 10. Be3 Ba6 11. Rg3 Ra5
12. De2 Hc8 13. Hc1 Rd6 14. e5 cxd4
15. Bxd4 Rf5 16. Dg4 Rxd4 17. Rh5 Rf5
18. Bxf5 g6 19. Rf6+ Kg7 20. Be4 Rxc4
21. f4 d5 22. Bd3 d4 23. O-O dxc3 24.
Hf3 Hh8 25. Dh4 Dd4+ 26. Kh1
Staðan kom upp í AM-flokki Fyrsta
laugardagsmótsins sem lauk fyrir
skömmu í Búdapest í Ungverjalandi.
Guðmundur Kjartansson (2.291) hafði
svart gegn Jim Dean (2.232). 26. …
Rxe5! 27. Rh5+ hvítur hefði einnig tap-
að tafl eftir 27. Bxa6 Rxf3. 27. … gxh5
28. Dg5+ Rg6 29. Bxa6 Dd2 og hvítur
gafst upp þar sem eftir 30. Hff1 Hc5
hefur svartur þrem peðum yfir og gjör-
unnið tafl.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Dulin innkoma.
Norður
♠ÁD762
♥K S/AV
♦K5
♣Á8653
Suður
♠G103
♥Á7
♦ÁG109876
♣K
Suður verður sagnhafi í sex tíglum
eftir blátt áfram sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 tígull
Pass 1 spaði Pass 2 tíglar
Pass 3 lauf Pass 3 tíglar
Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu
Pass 6 tíglar Allir pass
Útspil: Hjartagosi.
Hvernig er best að spila?
Slemman er sterk og vinnst alltaf ef
tíguldrottning fellur eða ef spaðakóng-
urinn liggur fyrir svíningu. Líkur á því
eru allgóðar, en það má gera betur
með því að taka laufið inn í myndina,
sem er hægt með fullri nýtingu á inn-
komum blinds.
Það fer þannig fram: Sagnhafi spil-
ar laufi á kóng í öðrum slag. Trompar
svo hjartaásinn (!) með tígulhundi og
stingur lauf. Innkoman á tígulkóng er
notuð til að trompa lauf í þriðja sinn
og þá er liturinn frír í 4-3 legunni
(62%).
Norður
♠ÁD762
♥K
♦K5
♣Á8653
Vestur Austur
♠984 ♠K5
♥G109632 ♥D854
♦4 ♦D32
♣G94 ♣D1072
Suður
♠G103
♥Á7
♦ÁG109876
♣K
Sagnhafi lýkur verkinu með því að
spila tígulás og tígli, en síðan fer hann
inn á spaðaás og hendir niður tveimur
spöðum í Á8 í laufi.
Þessi spilamennska skilar 12 slög-
um í allt að 90% tilvika.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
Brúðkaup | Hinn 17. júní síðastliðinn
gengu í hjónaband í Ráðhúsinu í Dun-
kerque, Claire og Ragnar Þór Ósk-
arsson. Heimili þeirra er í París.
Hvar er kærleikurinn
hjá fólki í dag?
HVAR er kærleikurinn hjá fólki í
dag? Hvar er virðingin fyrir náung-
anum? Erum við algjörlega að tapa
glórunni í eiginhagsmunahyggju?
Nei, ég bara spyr.
Við lifum og hrærumst í þjóð-
félagi sem einkennist af sjálfselsku,
eigingirni og meðvirkni.
Þurfum við ekki aðeins að staldra
við, rannsaka sjálfið, og hugsa út í
það hverskonar þjóðfélag við erum
að skapa, og hver við erum að
verða?
Þurfum við ekki að fara að hlúa
betur að þeim yngstu sem eiga jú
eftir að bera þetta þjóðfélag í fram-
tíðinni? Hlúa betur að þeim eldri
sem að hafa borið okkur inn í þetta
þjóðfélag, hlúa að þeim ungu sem
að eru að ströggla við að standast
hæfniskröfur þjóðfélagsins í dag?
Ef allir væru með laun þeirra vel
launuðu í dag þá værum við svo
sannarlega búin að klára það nám
sem við vildum, koma okkur fyrir,
og gætum leyft börnunum okkar að
njóta þess náms og þeirra áhuga-
mála sem þau kysu. Gætum verið
áhyggjulaus hvað varðar framtíð-
ina, seinni árin og sæmandi athöfn
þegar okkar hlutverki er lokið hér
á jörðu!
Hrukkurnar, áhyggjurnar, tárin,
hnútarnir í maganum og svefnlausu
næturnar væru færri.
Ég vil geta gefið afkomendum
mínum góða áhyggjulausa framtíð í
kærleiksríkara þjóðfélagi!
Valka Riksen.
Farsími týndist
SUNNUDAGINN 16. júlí um kl. 16
tapaðist Nokia-farsími með mynda-
vél fyrir utan Njálsgötu 38 eða
flugafgreiðslu Flugfélags Íslands í
Skerjafirði. Finnandi er vinsamlega
beðinn að hafa samband í síma
847 6413 eða 899 2009. Fund-
arlaunum heitið.
Kettlingur í óskilum
KETTLINGUR, svört, hvít og gul
læða, fannst við Birkihvamm í
Kópavogi 12. júlí. Hún er með
dökka augn-
umgjörð,
eins konar
grímu, og
hvíta
„sokka“.
Hún er
hvorki með
ól né eyrna-
merkt. Þetta
er mjög ljúf
og góð læða
sem vill
endilega
komast heim
til sín sem
fyrst. Endilega hafið samband í
síma 554 4091 eða 698 1133 ef þið
þekkið til kisunnar.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Í dag, 18. júlí, ersjötug Ásta Ólafsdóttir, Lækj-
arsmára 2, Kópavogi. Hún er að heim-
an í dag.