Morgunblaðið - 18.07.2006, Side 36

Morgunblaðið - 18.07.2006, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Benidorm 17. eða 24. ágúst frá kr. 39.990 Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr.49.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi / stúdíó / íbúð í viku. Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn. Verð kr.39.990 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í viku. Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn. Síðustu sætin Nú bjóðum við frábært tilboð til Benidorm. Njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað í viku. Þú bókar og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. „ÞÓTT ótrúlegt sé hefur samfelld saga biskupsstólanna tveggja, Skálholts og Hóla, aldrei verið skrifuð. Þetta er tilraun til þess að gera það loksins,“ segir dr. Gunnar Kristjánsson um ritið Saga bisk- upsstólanna sem kom út í gær en hann er aðalritstjóri þess. Að sögn Gunnars kom hugmyndin að verk- inu fyrst upp í samtali hans og dr. Jóns Þ. Þór og undirbjuggu þeir verkefnið óformlega, áður en Gunnar lagði loks fram tillögu að ritinu á kirkjuþingi árið 1999. Í framhaldi var skipuð undirbúnings- nefnd. „Eftir það hef ég fylgt þessu eftir og stýrt þessu verki fram á þennan dag. Mér fannst að það þyrfti að gera eitthvað í tilefni af aðsteðjandi stórafmælum bisk- upsstólanna, 950 ára afmæli Skál- holts og 900 ára afmæli Hóla,“ seg- ir Gunnar. Tveir meginkaflar og kafað dýpra Eftir vinnu undirbúningsnefndar varð niðurstaðan sú að bókinni yrði skipt í tvo meginkafla, einn um Skálholt og annan um Hóla. Þeir kaflar eru um helmingur verksins en Guðrún Ása Grímsdóttir mið- aldafræðingur ritaði kaflann um Skálholtsstól og Jón Þ. Þór um Hólastól. „Síðan var ákveðið að hinn hluti verksins væri kaflar eftir ýmsa sérfræðinga sem fjölluðu um einstaka þætti í þessari sögu, og má þar t.d. nefna hina efnahags- legu undirstöðu, jarðaeign stól- anna, bókagerð og svo er fjallað um ýmislegt annað. Í þessum köflum er farið mun dýpra ofan í ýmis at- riði,“ segir Gunnar og nefnir að sér finnist þrír þættir afar áhugaverð- ir. Í fyrsta lagi að fá góða og tæm- andi lýsingu á hinni efnahagslegu undirstöðu stólanna, í öðru lagi að skoða hvernig samskiptum var háttað við hinar dreifðu byggðir og í þriðja lagi að sjá hversu virkir biskupsstólarnir voru í félagslegri þjónustu, t.d. í fátækraframfærslu. Upphafið á frekari rannsókn? „Þetta tók mikinn tíma, það voru margir fundir, menn voru ekki endilega alltaf sammála en það náðist alltaf gott samkomulag,“ segir Gunnar en fjöldi fólks kom að verkinu á einn eða annan hátt. Í ritnefnd sátu dr. Gunnar Krist- jánsson og vígslubiskuparnir Jón A. Baldvinsson og Sigurður Sig- urðsson. Undir lokin var Óskar Guðmundsson ráðinn fram- kvæmdastjóri verksins og dr. Hjalti Hugason var til ráðuneytis við fyrstu hluta vinnunnar. Ritið er alls 862 blaðsíður, prýtt myndum og kortum og segir Gunnar að stefnan hafi verið sú að skrifa læsi- lega bók fyrir hinn almenna les- anda og telur hann að það hafi tek- ist að mestu leyti og vill að framhald verði á. „Saga bisk- upsstólanna er það umfangsmikil að hún verður aldrei skrifuð end- anlega og það þarf alltaf að stunda frekari rannsóknir á ýmsum þátt- um í sögu stólanna og þetta gæti því verið upphaf á slíkri rannsókn.“ Gríðarlega mikill fróðleikur Geir H. Haarde forsætisráðherra tók við fyrsta eintaki bókarinnar í Þjóðmenningarhúsinu í gær en bókin er gefin út með stuðningi Kristnihátíðarsjóðs en hann heyrir undir forsætisráðuneytið. Heild- arkostnaður við útgáfuna nemur um 20 milljónum króna. Vinnan við ritið var að mestu fjármögnuð með styrknum frá Kristnihátíðarsjóði, fyrir utan 10% sem komu úr Kristnisjóði. Bókaútgáfan Hólar hefur svo séð um útgáfu. Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Karl Sig- urbjörnsson, biskup Íslands, fengu einnig afhentar bækur í gær. „Mér líst ágætlega á bókina og þetta virðist vera mikið þrekvirki,“ segir Karl Sigurbjörnsson og telur að bókin sé þýðingarmikil. „Hún safnar saman gríðarlega miklum fróðleik um biskupsstólana sem skipa stóran sess í íslenskri sögu, ekki bara í trúar- og kirkjusögu, heldur líka í menningu þjóðarinnar og atvinnusögu þannig að ég er ekki í vafa um það að það sem hér kemur fram er mikilvægt fyrir okk- ur öll að vita.“ Ekki bara trúarsaga Morgunblaðið/Golli Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra, Geir H. Haarde forsætisráðherra og Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, með fyrstu eintök af bókinni í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Með þeim á myndinni er Gunnar Kristjánsson, aðalritstjóri hennar. Gunnar segir sögu biskupsstólanna svo umfangsmikla að hún verði aldrei fullskrifuð. Eftir Jón Gunnar Ólafsson jongunnar@mbl.is Bókmenntir | Samfelld saga biskupsstólanna er komin út í fyrsta sinn með stuðningi Kristnihátíðarsjóðs og Kristnisjóðs Vinir Íslendinga eru þeimhjartfólgnir, lifandi semlátnir. Mark Watson varmikill Íslandsvinur, í dag hefði hann orðið 100 ára. Hilmar Foss endurskoðandi kynntist Richard Mark Watson, eins og hann hét fullu nafni, í London árið 1940. „Hann notaði sárasjaldan fyrra nafn sitt og aðalstitil,“ segir Hilmar í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. „Nú í september eru liðin 66 ár síðan danskur sendiráðsmaður bar skilaboð til okkar Péturs Benediktssonar um að koma á heimili Marks Watsons, sem við ekki þekktum. Í þá daga var svona „blind date“ óvenjulegt. Við vorum boðnir til Watsons til að skoða myndir sem hann hafði tekið á Íslandi og sem einmitt nú eru til sýnis á Þjóðminja- safninu. Sú sýning mun standa áfram eitthvað fram eftir sumri,“ segir Hilm- ar. „Síðan sneri þessi ágæti maður sér ítrekað til okkar í sambandi við áhuga sinn á Íslandi, og þá sérstaklega hvað snerti lista- og menningarefni. Mark var ákaflega virðulegur maður í viðkynningu en jafnframt alþýðlegur – hann var þannig að maður vildi sjálf- krafa aðstoða við hans áhugamál. Með þessu hófst okkar 40 ára náin vinátta.“ Hilmar kveður Mark Watson sér eftirminnilegan mann. „Hann fæddist Yorkshire 18. júlí 1906 og var fjórði sonur Mantons lá- varðar og konu hans lafði Frances Claire. Hann fékk menntun sína í hin- um þekkta Eton-skóla og síðar í skóla á meginlandi Evrópu. Að námi loknu var Watson aðstoðarmaður í sendiráði Breta í Washington 1930 til 1932. Í París var hann við störf næstu tvö árin en flugliðsforingi var hann styrjald- arárin 1940–1945. Hann bjó í Bandaríkjunum 1947 til 1958, verslaði með gömul húsgögn í New York og rak síðan búgarð nærri San Francisco, þar hafði hann nokkra íslenska hesta og hreinræktaði ís- lenska fjárhundakynið. Síðustu tvo áratugina bjó Mark í Bretlandi, hann ræktaði um tíma ís- lenska fjárhunda á búgarði í Devons- hire og rak verslun í Lundúnum. Síð- ustu ár sín gaf hann sig eingöngu að líknar- og menningarmálum. Hinn gjöfuli aðalsmaður Þegar við Pétur fórum til að skoða Íslandsmyndirnar haustið 1940 bjó Mark Watson ásamt móður sinni við Lowndes Place, nærri Belgrave Square. Þetta voru stækkaðar lands- lagsmyndir frá fyrstu Íslandsferðum þessa göfuga og gjöfula aðalsmanns sem hann hafði tekið sumrin 1937 og 1938. Einnig sýndi hann okkur og öðr- um gestum í þessu boði litmynd frá Ís- landi, eflaust eina þá fyrstu, hann lán- aði hana síðar íslenskum manni og kom hún aldrei til skila. Við Pétur fengum mikinn áhuga á landkynningarstarfi Marks sem að eig- in sögn rakst á lesefni um Ísland 9 ára gamall og fékk þá brennandi áhuga á þessu fjarlæga ævintýralandi. Hann skrifaði Sigurði Briem póstmeistara á Íslandi og bað hann um myndir frá Ís- landi. Póstmeistarinn sendi honum af og til póstkort og gaf hann þau hálfri öld síðar Þjóðminjasafninu. Gjafmildi Watsons í garð Íslendinga kom fyrst í ljós þegar hann gaf ríflega upphæð til þess að torfbæjum að Glaumbæ í Skagafirði yrði viðhaldið í upprunalegum stíl. Hann var kjörinn heiðursfélagi Hins íslenska fornleifa- félags í viðurkenningarskyni fyrir frumkvæði þetta. Uppúr 1950 hófust Íslandsferðir Marks á ný. Jafnan kom hann með eða sendi hingað fágætar bækur og lista- verk sem hann gaf bókasöfnum og ýmsum stofnunum. Kristján Eldjárn, fyrrum forseti Íslands, lét þau orð falla þegar hann var þjóðminjavörður að myndasafn fornleifa- og fagurfræð- ingsins Williams Gershoms Coll- ingwoods, sem Watson gaf Þjóðminja- safni Íslands, yrði aldrei metið til fjár. Myndasafn Collingwoods fékk hann fyrir tilstilli dótturdóttur Coll- ingwoods, en þær höfðu þá legið gleymdar í geymslu áratugum saman. Watson lét setja 134 þeirra á karton og innramma, lánaði flestar þeirra síðan Þjóðminjasafninu á sýningu en gaf þær síðan allar safninu ásamt mörgum öðrum dýrgripum. Gaf fullbúinn dýraspítala Þegar Watson fluttist til Bandaríkj- anna á fimmta áratugnum sótti hann hingað íslenska hunda og fór að rækta þá upp á vísindalegan hátt. Jafnframt fór hann víða um til að afla vitneskju um allt sem ritað hefði verið um fjár- hundakynið íslenska og gaf út bók um að efni „The Icelandic Dog 874–1956“. Hann sparaði hvorki fé né fyrirhöfn þegar hann starfaði að dýravernd- unarmálum og gaf hérlendum sam- tökum margar góðar gjafir. Hina síð- ustu 1973, hinn veglega dýraspítala búinn fullkomnum tækjum. Bókasöfnun hóf Watson eftir að hann flutti til Lundúna. Þá lét hann innrétta sérstakt herbergi fyrir bækur sínar um Ísland við Brompton Square. Hann einskorðaði safn sitt við bækur um Ísland á öðrum tungumálum en ís- lensku. Safn hans taldi 1310 verk og hafði hann lagt svo fyrir áður en hann dó að 24 binda verk William Morris og allt bókasafn hans um Ísland og Fær- eyjar færu til Íslands. Þessar bækur eru nú í Landsbókasafni Íslands. Fjölskylda Marks Watsons var á sínum tíma mjög vel efnum búin en hann var þó uppalinn við ýtrasta sparnað. Þetta fylgdi honum alla ævi þótt hann byggi rausnarlega og ætti lengst af tvö heimili, annað í sveit og hitt í borg. Eyðsla hans var aðallega fólgin í örlæti við aðra. Hann sendi t.d álitlega fjárhæð morguninn þegar fregnir bárust af eldgosinu á Heimaey og símskeyti þess efnis að hann vildi einnig greiða kostnað sem leiddi af brottflutningi dýra frá Vest- mannaeyjum á örugga staði. Mark Watson var hár maður vexti og fríður sýnum. Allt hans fas bar vott um prúðmennsku, áræðni og dugnað og mönnum leið vel í návist hans. Hann var löngum heilsugóður nema hvað hann fékk tvö hjartaáföll eftir miðjan aldur sem hann náði sér þó furðanlega af. En aðfaranótt hins 12. mars 1979 fékk hann þriðja hjarta- áfallið og það dró þennan ágæta og ör- láta Íslandsvin til dauða á heimili sínu að 14 Eaton Place í Belgravia. Íslandsvinurinn Mark Watson Um þessar mundir stendur yfir sýn- ing á ljósmyndum Richards Marks Watsons í Þjóðminjasafninu. Í dag hefði hinn þekkti Íslandsvinur Mark Wat- son orðið 100 ára. Hilm- ar Foss endurskoðandi var náinn vinur hans í 40 ár. Guðrún Guð- laugsdóttir ræddi við Hilmar um kynni hans af Watson og um gjafir hans til Íslendinga. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70, 105 Rvík. www.lso.is - lso@lso.is Þriðjudagstónleikar í kvöld kl. 20.30 Söngvar og aríur fyrir baritón og píanó. Þorbjörn Björnsson og Jan Czajkowski flytja söngva og aríur eftir Henry Purcell, Charles Ives, Gabriel Fauré, Franz Schubert, W.A. Mozart og Benjamin Britten.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.