Morgunblaðið - 18.07.2006, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
15.07.2006
7
3 9 5 7 5
5 5 7 3 2
16 24 29 33
38
12.07.2006
2 4 21 44 46 48
4816 40
Tvöfaldur 1. vinningur
í næstu viku
VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
TAKTU AFSTÖÐU.
GRÁTBROSLEGASTA GAMANMYND
SUMARSINS ÞAR SEM JENNIFER
ANISTON OG VINCE VAUGHN VAR
HREINLEGA Á KOSTUM.
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM"
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
TAKTU AFSTÖÐU.
GRÁTBROSLEGASTA GAMANMYND
SUMARSINS ÞAR SEM JENNIFER
ANISTON OG VINCE VAUGHN VAR
HREINLEGA Á KOSTUM.
EINA LEIÐIN TIL
AÐ VINNA ER AÐ
MISSA STJÓRNINA
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
SUPERMAN kl. 5:50 - 9 - 10:40 B.I. 10.ÁRA.
THE BREAK UP kl. 6 - 8:15 - 10:40
THE LAKE HOUSE kl. 6 - 8:15 - 10:30
BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 5:50
CARS M/- ENSKU TAL. kl. 8:15
KEEPING MUM kl. 6 - 8:15 B.I. 12.ÁRA.
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 10:30 B.I. 14.ÁRA.
EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS.
BRYAN SINGER KOMIN Í HÓP ÞEIRRA FREMSTU
MESTA OFURMENNI HEIMS HEFUR SNÚIÐ AFTUR.
OFURMÖGNUÐ STÓRMYND OG SÚPERSKEMMTUN FYRIR ALLA.
S.U.S. XFM 91,9
„...EINHVER BESTA
AFÞREYING SUMARSINS...“
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
SÚPERMAN ER SANNARLEGA
KOMINN AFTUR.
M.M.J. KVIKMYNDIR.COM
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA
FERSK, HUGLJÚF OG RÓMANTÍSK ÞAR SEM STÓRSTJÖRNURNAR KEANU REEVES OG
SANDRA BULLOCK FARA Á KOSTUM.EKKI MISSA AF ÞESSARI PERLU. ALGJÖRT AUGNAKONFEKT.
eeee
V.J.V, Topp5.is
SUPERMAN kl. 6 - 9
THE BREAK UP kl. 8 - 10.10
BÍLAR ÍSL TAL. kl. 5:40
SUPERMAN RETURNS kl. 7 - 10 B.I. 10 ÁRA
THE LAKE HOUSE kl. 8 - 10:10 B.I. 12 ÁRA
eeee
SUPERMAN RETURNS SKAPAR SÉR SESS MEÐAL BESTU
MYNDASÖGU-KVIKMYNDUM SEM GERÐAR HAFA VERIÐ
V.J.V. Topp5.is
H.J. MBL.
eee
FRÁBÆR SUMARMYND
HLAÐIN SPENNU OG
MÖGNUÐUM ATRIÐUM.
Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ
NÝTT lag af væntanlegum hljóm-
diski Baggalúts er farið að hljóma á
útvarpsstöðum landsins. Um er að
ræða kántrílag sem ber heitið „Allt
fyrir mig“ og er sungið af Björgvini
Halldórssyni en lagið er eftir Braga
Valdimar Skúlason. Að sögn Braga
er lagið í svolítið öðrum stíl en hin
lögin á plötunni en upphaflega ætl-
un sveitarinnar var að platan inn-
héldi einungis Hawaii-tónlist.
Hin fullkomna kona
„Við ákváðum að hressa aðeins
upp á plötuna með nokkrum
„kántrí“- og „bluegrass“-lögum,“
segir Bragi og bætir við að það hefði
legið beint við að fá Björgvin Hall-
dórsson til að syngja lagið. „Okkur
langaði sérstaklega að heyra hann
fara með þennan texta, leggja hon-
um svolítið svöl orð í munn. Textinn
er um hina „fullkomnu konu“ sem
birtist söngvaranum þar sem hann
er aðframkominn í eyðimörkinni
upp á hálendi Íslands og þessi kona
vill allt fyrir hann gera. Hún er ekki
beinlínis pólitískt rétthugsandi og
sinnir öllum húsverkum með bros á
vör. Og Björgvin söng þetta af
glimrandi snilld enda listamaður
sem nær yfir fleiri áttundir á radd-
sviði en nokkur annar núlifandi Ís-
lendingur, hugsanlega að Diddú
undanskilinni.“
Lagið var tekið upp í fjórum mis-
munandi hljóðverum en þess má
geta að lúðrablásturinn í laginu var
tekinn upp í hljóðveri Nashville í
þeirri meiningu að ná hinum sanna
eyðimerkurhljóm.
„Við vildum ná dálítið gamaldags
hljómi við gerð plötunnar og reynd-
um að fara helst ekki fram yfir 1940
í hljóðheiminum. Allt er tekið upp á
ævaforna míkrafóna og þar fram
eftir götunum. Ætli við þurfum ekki
að bíða eitthvað lengur eftir að við
förum að gera iðnaðarkántrí á borð
við Shaniu Twain.“
Sem fyrr segir inniheldur platan
að miklu leyti Hawaii-tónlist sem er
í sérstöku uppáhaldi meðlima sveit-
arinnar. Töluvert af þjóðþekktu tón-
listarfólki kemur að plötunni en auk
Björgvins má nefna KK, Valgeir
Guðjónsson og Borgardætur.
Engir apar í Eden
„Við byrjuðum að hlusta á Hawa-
ii-tónlistarmenn sem voru uppi í
kringum 1920 en þeir eru með mjög
furðulegar stillingar í gíturunum
þar sem strengirnir eru mjög lausir.
Í þessum lögum er gítarleikarinn
aðalhetjan en söngvararnir detta
kannski inn í þriðja hvert erindi. Á
þessa tónlist hlustuðum við mikið og
við reyndum að ná fram sama stíl á
okkar plötu. Við ákváðum að leggja
upp með Hawaii-plötu en eins og
með fyrri plötuna okkar endaði
þessi í eins konar samsulli. Það
myndi enginn alvöru Hawaii-
tónlistarmaður gefa út svona sam-
suðu.“
Væntanlega platan ber titilinn
Aparnir í Eden en ekki er ennþá bú-
ið að negla niður útgáfudaginn. Tit-
illinn er til kominn vegna óljósra
æskuminninga meðlima hljómsveit-
arinnar um apa í Eden í Hveragerði.
„Ég heyrði fyrir skömmu í út-
varpinu viðtal við mann sem rak
Eden á þessum árum og hann vildi
meina að það hefðu aldrei verið apar
þar. Þeir voru í versluninni við hlið-
ina en hins vegar var Eden með tal-
andi kráku sem hét Margrét sem
þessum manni fannst miklu merki-
legri en þessi apakvikindi. Og hann
var frekar sár og pirraður yfir því
að það skyldi alltaf vera talað um
apana í Eden.“
Tónlist | Hljómsveitin Baggalútur sendir frá sér lagið „Allt fyrir mig“
Bó og Baggalútur
Guðmundur Freyr Vigfússon
Liðsmenn Baggalúts hafa mikið dálæti á öpum, og líka á kántrítónlist.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Björgvin Halldórsson er ekki með
öllu óvanur kántrí og brást ekki
bogalistin með Baggalúti.
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
ÞAÐ ánægjulegasta við Stick It er kraftmikill
og trúverðugur leikur Jeff Bridges í hlutverki
fimleikaþjálfarans Vickermans, hann sannar enn
eina ferðina að skapgerðarleikarar gerast ekki
betri í kvikmyndaborginni.
Stick It kemur að öðru leyti lítið á óvart: Að-
alpersónan, Haley Graham (Peregrym), er ung
og efnileg íþróttastjarna sem virðist í mynd-
arbyrjun vera búin að klúðra ferlinum. Þessa
sögufléttu þekkja bíógestir úr aragrúa mynda
eftir að Rocky og eftirlíkingar tröllriðu kvik-
myndahúsunum á síðasta fjórðungi 20. ald-
arinnar.
Graham var komin í fimleikalandslið Banda-
ríkjanna þegar hún yfirgaf félaga sína í miðri
keppni (af ástæðum sem hún á með sjálfri sér),
og í myndarbyrjun er hún í fremur ógæfulegum
félagsskap unglingsdrengja sem leika listir sínar
á reiðhjólum. Hún veldur umtalsverðum spjöll-
um með hjólhestinum og má velja á milli her-
skóla, fimleikaskóla Vickermans og fangels-
isvistar. Graham velur fimleikaskólann, þó hún
finni þar fyrir óvini sína eftir brotthlaupið úr
landsliðinu. Handritshöfundurinn og leikstjórinn
Bendinger (Bring It On) hressir upp á klisj-
urnar með líflegri tónlist og ómældu háði að vel
kunnum uppákomum: uppreisn Graham, sáttum
hennar við sjálfa sig, félaga sína og fortíðina og
sætri hefnd til handa þeim sem misboðið hafa
stúlkunni. Ekki ýkja frumlegt.
Stick It nærist á skörugleika Bridges og
Peregrym fer mikinn á slám, gólfi og í hringjum
fimleikasalanna. Hún er heldur ekki sem verstur
leikari þó fátt sé í myndinni um dramatísk til-
þrif fyrir utan uppsteyt og kvikindishátt. Bend-
inger er furðufundvís á nýjar og oft skoplegar
leiðir og hliðar á langþvældri keppnismynda-
greininni. Útkoman er afþreying í vænu með-
allagi sem höfðar til táninga og fimleikadellu-
fólks, ef það er á annað borð mælanlegt í hópi
kvikmyndahúsgesta. Það skapar Stick It nokkra
sérstöðu að myndin fjallar á sannfærandi hátt
um fyrirsjáanlegan og ótrúverðugan efnisþráð
og er óvenjuleg og jákvæð skoðun á bar-
áttuheimi ungra stúlkna þar sem hæfileikar og
refsiháttur, hroki og vinátta togast á með já-
kvæðum árangri.
Áfram stelpur!
Jeff Bridges þjálfar fimleika í myndinni Stick It.
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn.
Leikstjóri: Jessica Bendinger. Aðalleikarar: Jeff Bridges,
Missy Peregrym, Vanessa Lengies, Nikki Sooh, Maddy
Curley, Kellan Lutz, John Patrick Amedori, Jon Gries.
100 mín. Bandaríkin 2006.
Stick It Sæbjörn Valdimarsson
Í DAG verður nafni íþrótta-
stöðvarinnar Enska boltans
breytt í Skjársport. Málið er
enn hulið nokkurri leynd og
ekki er vitað hvort nafna-
breytingin muni hafa áhrif á
efni stöðvarinnar eða ekki.
Það er aftur á móti öruggt
að hin nýja sjónvarpsstöð,
Skjársport,
mun halda
áfram að sýna
alla leiki ensku
úrvalsdeild-
arinnar í beinni
útsendingu á fimm stöðvum
samtímis. Þannig gefst aðdá-
endum enska boltans tækifæri
til að fylgjast með uppáhalds-
liðum sínum þegar þau byrja
að spila 19. ágúst næstkom-
andi. Áskriftarverðið á að
sama skapi að haldast óbreytt.
Sparkfíklar ættu líka að
taka gleði sína með haustinu
þegar Meistaradeildin fer í
gang. Leikur vikunnar í
Meistaradeildinni verður
nefnilega í opinni dagskrá á
Sýn næsta vetur. Þetta
ákváðu forráðamenn UEFA,
sem eiga sýningarrétt á leikj-
um í Meistaradeildinni, að
sjónvarpsstöðvar yrðu að
gera til að fá að sýna úr deild-
inni. Markmiðið er að styrkja
fótboltann sem íþróttagrein
enn frekar með því að mark-
aðssetja hana betur og gefa
öllum færi á að njóta hennar.
Enski bolt-
inn verður
Skjársport