Morgunblaðið - 18.07.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 2006 41
eeee
V.J.V, Topp5.is
FERSK, HUGLJÚF OG RÓMANTÍSK ÞAR SEM STÓRSTJÖRNURNAR KEANU REEVES OG
SANDRA BULLOCK FARA Á KOSTUM.EKKI MISSA AF ÞESSARI PERLU. ALGJÖRT AUGNAKONFEKT.
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
KVIKMYNDIR.IS
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
eeee
KVIKMYNDIR.IS
STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
SUPERMAN kl. 3:50 - 4:50 - 7 - 8 - 10:10 - 11:10 B.I. 10.ÁRA.
SUPERMAN LUXUS VIP kl. 4:50 - 8 - 11:10 B.I. 10.ÁRA.
THE BREAK UP kl. 3:50 - 6 - 8 - 8:15 - 10:20 - 10:30
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 8 - 10:20 B.I. 12.ÁRA.
BÍLAR M/ÍSL TALI kl. 3 - 5:30
CARS M/ENSKU TALI. kl. 3:30
SHE´S THE MAN kl. 6
SUPERMAN kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.I. 10.ÁRA. DIGITAL SÝN.
THE BREAK UP kl. 8:20 - 10:30
BÍLAR M/ÍSL TALI kl. 3:30 - 6
CARS M/ENSKU TALI kl. 3:30 DIGITAL SÝN.
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNIMESTA OFURMENNI HEIMS HEFUR SNÚIÐ AFTUR. OFURMÖGNUÐ STÓRMYND OG SÚPERSKEMMTUN FYRIR ALLA.
EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS. BRYAN SINGER KOMIN Í HÓP ÞEIRRA FREMSTU
S.U.S. XFM 91,9„SANNKALLAÐ AUGNAYNDI OG ÞRUSUGÓÐ SKEMMTUN Í
ÞOKKABÓT, EINHVER BESTA AFÞREYING SUMARSINS“
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
SÚPERMAN ER SANNARLEGA KOMINN AFTUR.
M.M.J. KVIKMYNDIR.COM
eeee
SUPERMAN RETURNS SKAPAR SÉR SESS MEÐAL BESTU
MYNDASÖGU-KVIKMYNDUM SEM GERÐAR HAFA VERIÐ
V.J.V. Topp5.is
H.J. MBL.
eee
FRÁBÆR SUMARMYND HLAÐIN SPENNU
OG MÖGNUÐUM ATRIÐUM.
Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á glæsilegri íbúðagistingu í Króatíu
í ágúst. Njóttu lífsins á þessum vinsæla sumarleyfisstað við frábæran
aðbúnað. Að sjálfsögðu nýtur
þú traustrar þjónustu farar-
stjóra Heimsferða allan tímann.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Sértilboð til
Króatíu
16. og 23. ágúst
frá kr. 54.990 m.v. 2
Sértilboð – Laguna Bellevue ****
Glæsileg gisting
Verð kr. 54.990 m.v. 2
Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíóíbúð á Laguna
Bellevue **** í viku. Sértilboð 23. ágúst.
16. ágúst er kr. 5.000 dýrara á mann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Rokkævintýri Magna í Á móti sólheldur áfram annað kvöld eftir
miðnætti. Eins og aðdáendur og allir
þeir sem fylgjast með Rockstar:
Supernova-þáttunum á Skjá einum
þekkja hefur Magni staðið sig vel í
þáttunum og stefnir ótrauður í hlut-
verk aðalsöngvara hljómsveit-
arinnar með þeim Jason Newsted,
Tommy Lee og Gilby Clarke.
Nú er ljóst að lagið sem Magni
syngur verður Stone Temple Pilots
slagarinn „Plush“ af fyrstu plötu
hljómsveitarinnar. Magni verður
númer 10 í röðinni af flytjendum og
munu án efa margir fylgjast með
honum í beinni útsendingu annað
kvöld.
Fólk folk@mbl.is
Enn á ný heyrast fréttir af því aðhugsanlega séu bandarísku
Vinirnir að koma saman á nýjan
leik. Í þetta sinn er það Jennifer
Aniston sem ber ábyrgð á því að
fjallað er um málið en hún lét þau
orð falla í breska sjónvarpsþætt-
inum Richard and Judy að hún
sakni að leika Rachel Green og
bætti við að sér myndi finnast gam-
an að taka upp einn þakkargjörð-
arþátt af Vinum til viðbótar.
Og meira afAniston en
hún er stödd í
Bretlandi um
þessar mundir til
að kynna mynd-
ina The Break
Up. Mótleikari
hennar er Vince
Vaughn en sögusagnir hafa lengi ver-
ið á kreiki um það að þau séu par og
jafnvel trúlofuð. En í sama sjónvarps-
þætti og hún ræddi um mögulega
endurfundi Vinanna vildi Aniston
ekkert kannast við sambandið. Hún
sagði að Vaughn væri skemmtilegur,
frábær maður, leikari og vinur.
BRESKA plötuútgáfufyrirtækið Moshi
Moshi Records verður með sérstakt kvöld
á Iceland Airwaves hátíðinni í ár og verður
það annað árið í röð sem að slíkt kvöld
verður haldið.
Samtarf Airwaves og Moshi Moshi hófst
í kjölfar vel heppnaðra tónleika bresku raf-
poppsveitarinnar Hot Chip, sem gefur út
hjá Moshi Moshi, á Airwaves-hátíðinni
2004. Í fyrra ákváðu aðstandendur hátíð-
arinnar að gefa plötuútgáfunni heilt kvöld
þar sem hljómsveitir á þeirra snærum
væru í forgrunni.
Sveitirnar Metronomy, Au Revoir Sim-
one, Architecture in Helsinki og Stórsveit
Nix Noltes, sem gefur reyndar ekki út hjá
Moshi Moshi, stigu á svið á þessu kvöldi og
hlutu verðskuldaða athygli innanlands sem
utan.
Á kvöldi Moshi Moshi á Iceland Airwaves í
ár koma fram fimm hljómsveitir frá Bretlandi
og ein frá Bandaríkjunum. Þarna verða
hljómsveitirnar Tilly and the Wall sem fengið
hefur mikið lof gagnrýnenda fyrir breiðskíf-
una Wild Like Children sem kom út í byrjun
árs og Hot Club de Paris sem hefur farið
mikinn í tónleikahaldi í London og nágrenni
undanfarið og margir bíða spenntir eftir
fyrstu breiðskífu þeirra Winners sem er
væntanleg í september.
Einnig verða þarna índí-harðkjarna-reif-
rokkararnir í Klaxons, popp dúóið Mates of
State og Semifanlists sem fyrir skemmstu gaf
út sína fyrstu breiðskífu samnefnda sveitinni
sem líkt hefur verið við verk Wayne Coyne,
Fleetwood Mac og Arcade Fire. Líklegt er að
1–2 innlendir flytjendur muni síðar bætast við
dagskrá kvöldsins.
Moshi Moshi-kvöld á Airwaves
Morgunblaðið/Árni Torfason
Stórsveit Nix Noltes spilaði á Moshi Moshi-
kvöldinu á Airwaves-hátíðinni í fyrra.
ÞAÐ ER ekkert slor að fá
bassaleikara eins og Carol
Kaye til liðs við sig þegar
taka á upp plötu. Ekki eru hinir
samverkamennirnir af verri end-
anum en orðspor Kaye er líklega
eitt það athyglisverðasta innan tón-
listariðnaðarins. Þegar hlustað er á
þessa plötu fer ekki á milli mála
hvers vegna svo er. Um það ætla ég
ekki fleiri orð að hafa.
Þessi lög eru ágæt. Ég hlustaði á
plötuna mjög oft en þau náðu aldrei
neitt sérlega vel til mín. Það tók
mig smástund að átta mig á því
hvað væri að þeim, því léleg eru
þau ekki. Mér sýnist það vera út-
setningarnar. Hljómur plötunnar er
svo hreinn og tær að persónuleiki
laganna, ef lög geta haft persónu-
leika, týnist. Hljóðfæraleikurinn er
svo góður að hann rennur saman í
heild sem er svo góð að hún verður
samskeytalaus. Mér finnst það ekki
endilega jákvætt en sér er hver
smekkurinn. Lögin flæða svo vel að
ekkert kemur á óvart og fátt virðist
tilviljanakennt.
Þetta hefur þó sínar jákvæðu
hliðar. Í stað þess að þurfa að
hlusta á viðvaningslegan hljóðfæra-
leik og hallærislega texta, fær
hlustandinn að njóta þess að þarna
er einvalalið tónlistarmanna á ferð-
inni. Öll framsetning tónlistarinnar
er smekkleg, lagasmíðar vandaðar
og hressleikinn í fyrirrúmi. Ég get
vel séð fyrir mér hvernig þessi
plata getur notið hljómgrunns hjá
þeirri kynslóð sem Frummenn til-
heyra og ekki bara þeim, heldur hjá
öllum þeim sem hafa gaman af
átakalítilli og vandaðri tónlist. Ég
hef ekki sérstaklega gaman af þess-
um diski, en ég skal alveg við-
urkenna að hann er ágætis tónlist.
Mér þykja lög Valgeirs Guðjóns-
sonar skemmtileg. Þau sverja sig
algerlega í hans stíl og minna mig á
það sem hann hefur haft til mál-
anna að leggja í íslensku tónlistar-
lífi. Ég hefði gaman af því að fara á
ball með Frummönnum, tónlist á
borð við þessa nýtur sín best á þeg-
ar hún er lifandi.
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Geislaplata Frummanna, hinna upp-
runalegu Stuðmanna, Tapað/Fundið.
Frummenn eru Valgeir Guðjónsson sem
spilar á gítar, Jakob Frímann Magnússon
á hljómborð, Gylfi Kristjánsson, söngur
og Ragnar Danielsen spilar einnig á gítar
og syngur í Passing Through. Aðrir tón-
listarmenn: Carol Kaye á bassa, Jim Kelt-
ner leikur á trommur, Jimmy
Ripp á gítar og Warren D. blæs
í munnhörpu. Hljóðritað í
Track Record Studios í North
Hollywood í Kaliforníu. Um
hljóðupptöku sá Tom Murphy.
Sam Frank og Frummenn sáu
um upptökustjórn. Upp-
tökumenn voru Haffi Tempó,
Addi 800 og Aron. Um hljóð-
blöndun sá Eddie Delena og
um stafræna tónjöfnun sá
Bjarni Bragi Kjartansson.
Reykjavík Music gefur út.
Frummenn (Hinir upprunalegu Stuðmenn)
– Tapað/Fundið
Helga Þórey Jónsdóttir
Átakalítið og vandað