Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 208. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is MARAÞON REYKJAVÍKUR GLITNIS 19. ÁGÚST H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Skráðu þig núna á www.glitnir.is Fiskur í tvo mánuði Plokkari og hrefnukjöt í Tjöru- húsinu á Ísafirði | Daglegt líf Ballett og dýralækningar Ung Njarðvíkurmær í Konung- lega sænska ballettskólann | 18  Fyrsti tapleikur Vals  Einnig ný nöfn á holubikarinn?  FH leikur í Póllandi í kvöld Ríga. AFP. | Lettneskir foreldrar, sem greiða ekki meðlag með börn- um sínum eftir skilnað, eiga á hættu að verða sviptir ökurétt- indum samkvæmt tillögum sem embættismenn kynntu í gær. Tillögurnar koma frá stofnun sem innheimtir meðlögin. Yfir 11.000 foreldrar hafa ekki staðið í skilum við stofnunina. Stofnunin hyggst einnig láta bönkum í té nöfn foreldranna og láta bankana um að ákveða hvort þeir vilji veita slíkum vanskila- mönnum lán. Ainars Bastiks, ráð- herra barna- og fjölskyldumála, sagði að meðlagsskuldarar ættu ekki að fá að kaupa nýja bíla. Meðlagsskuldarar missi ökuleyfið Haag. AFP. | Dómstóll í Hollandi úr- skurðaði í gær að skóli hollensku siðbótarkirkjunnar gæti hafnað umsókn sextán ára pilts um skóla- vist á þeirri forsendu að foreldrar hans ættu sjónvarp og hefðu net- tengingu. Héraðsdómstóll í Utrecht komst að þeirri niðurstöðu að skólinn hefði rétt til að hafna umsókninni vegna þess að viðhorf foreldranna samræmdust ekki reglum skólans. Skólinn hefur bannað nemend- unum að horfa á sjónvarp og nota netið á þeirri forsendu að þar sé alltof mikið af „guðlasti“. Skólinn setti það einnig fyrir sig að for- eldrar piltsins leyfa systur hans að klæðast gallabuxum. Má banna sjónvarp og netið ÞÚSUNDIR skelfingu lostinna flóttamanna forðuðu sér frá hafn- arborginni Týrus í Líbanon í gær þegar Ísraelsher herti sókn sína inn í landið til að ganga milli bols og höfuðs á liðsmönnum Hizbollah- hreyfingarinnar. Ingibjörg Þórðardóttir, stríðs- fréttamaður hjá breska ríkisútvarp- inu, BBC, segir að neyðarástand hafi skapast í höfuðborginni Beirút vegna átakanna. „Þeir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna sem við höfum rætt við segja að algert neyðarástand ríki í borginni,“ sagði Ingibjörg í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Þeir búast við hinu versta. Þótt ennþá sé til drykkjarvatn er ekkert rennandi vatn sem fólkið getur notað til að þvo sér.“ Um 30.000 flýja norður Hundruð þúsunda flóttamanna hafast við í Beirút, að sögn Ingi- bjargar. „Hjálparstarfsmenn hafa miklar áhyggjur af því að sjúkdóm- ar kunni að brjótast út þegar svona margt fólk safnast saman á einum stað. Börn eru farin að veikjast og aðeins er hægt að veita fyrstu hjálp.“ Þótt ástandið sé slæmt í Beirút er borgin tiltölulega örugg og neyð- in er enn meiri sunnar í Líbanon. Talið er að 30.000 flóttamenn séu á leiðinni til höfuðborgarinnar. Ingibjörg segir að talsmenn hjálparstofnana í Líbanon fullyrði að sex bílalestir með hjálpargögn hafi tafist vegna þeirrar kröfu Ísr- aelshers að fá ýtarlegar skýrslur um ferðir þeirra síðustu þrjá daga. Þúsundir innrásarmanna Harðir bardagar geisuðu í sunn- anverðu Líbanon í gær og fjöl- miðlar í Ísrael sögðu að allt að 20.000 hermenn streymdu yfir landamærin. Að sögn fjölmiðlanna hefur verið ákveðið að hersveitirnar fari að Litani-ánni, sem er allt að 30 km frá landamærunum að Ísrael. Herinn dreifði miðum þar sem Líb- anar voru einnig varaðir við árásum norðan við ána. Ísraelsher hóf í gærkvöldi mikla sókn í Bekaa-dal, einu af höfuðvígj- um Hizbollah í norðaustanverðu Líbanon, nálægt landamærunum að Sýrlandi. Neyðarástand í Beirút Reuters Starfsmaður líbanska Rauða krossins horfir út um gat á þaki sjúkrabíls sem varð fyrir sprengju í loftárásum Ísraelshers í vikunni sem leið. Óttast farsóttir meðal hundraða þúsunda flóttamanna í borginni Eftir Baldur Arnarson og Boga Þór Arason  Algjört brot | 26 LÍFEYRISGREIÐSLUR til 20% allra örorkulífeyrisþega munu að óbreyttu skerðast eða verða algjör- lega felldar niður frá og með 1. nóv- ember næstkomandi. Kemur þetta til vegna þess að viðkomandi öryrkjar hafa haft hærri tekjur en þeir höfðu áður en þeir urðu fyrir orkutapi en framkvæmdastjóri Landsambands líf- eyrissjóða segir að samkvæmt sam- þykktum lífeyrissjóðanna beri þeim ekki að greiða út örorkulífeyri í slíkum tilfellum. Greiðslustofa lífeyrissjóða hefur staðið fyrir umfangsmikilli athugun á tekjum öryrkja til að kanna hverjar þær voru áður en örorkan kom til og bera saman við núverandi tekjur. Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landsambands lífeyrissjóða, segir að heildartekjur örorkulífeyrisþega hjá lífeyrissjóðum séu í allmörgum tilvik- um umfram þau viðmiðunarmörk sem kveðið sé á um í samþykktum og reglum lífeyrissjóðanna. Til mats á því hvort tekjuskerðing hafi orðið skuli miðað við tekjur sjóðfélagans síðustu árin fyrir orkutapið. Hafi heildar- tekjur öryrkja í raun hækkað eftir orkutap eigi hann ekki rétt á örorkulíf- eyri frá lífeyrissjóðunum. „Samkvæmt samþykktum lífeyrissjóðanna eiga sjóðirnir að greiða þeim bótaþegum sem verða fyrir tekjuskerðingu eftir örorkuna. Markmiðið með örorkulíf- eyrisgreiðslum frá lífeyrissjóðum hef- ur aldrei verið að viðkomandi örorku- lífeyrisþegar geti fengið hærri tekjur eftir orkutap heldur en þeir höfðu fyr- ir orkutapið,“ sagði Hrafn í samtali við Morgunblaðið í gær. Þeir öryrkjar sem nú hafi fengið tilkynningu frá líf- eyrissjóði sínum um að örorkulífeyr- irinn verði skertur eða felldur niður hafi hækkað í tekjum vegna greiðsln- anna, sé miðað við árin fyrir orku- skerðingu. 14 lífeyrissjóðir munu breyta örorkulífeyrisgreiðslum Um er að ræða 14 lífeyrissjóði sem breyta munu örorkulífeyrisgreiðslum með þessum hætti en þeir vilja sam- ræma hvernig örorkulífeyririnn er greiddur út. Á undanförnum árum hefur hlutfall örorkubóta af greiðslum lífeyrissjóðanna farið vaxandi og er ör- orkulífeyrir nú allt að 44% af heildar- greiðslum einstakra sjóða. Hrafn seg- ir að sjóðirnir fari fyllilega eftir þeim reglum sem settar hafi verið um starf- semi þeirra og þeir hafi ekki óskað eft- ir endurgreiðslum á þeim lífeyri sem ofgreiddur hafi verið. „Fólk hefur tíma til 1. nóvember til að koma með leið- réttingar sem skýrt geta hvers vegna það hafði svo lág laun á viðmiðunar- tímabilinu fyrir orkutapið,“ segir Hrafn. Hann segir að reynt hafi verið að hafa samráð við Öryrkjabandalagið vegna breytinganna en án árangurs. Lífeyrisgreiðslur um 2.500 öryrkja skerðast Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is Íþróttir í dag SIGURSTEINN Másson, formaður Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), gagnrýnir með hvaða hætti ráð- stöfun lífeyrissjóðanna 14 kemur til og segir ekkert samráð hafa verið haft við ÖBÍ um þessar breytingar. Það sé bagalegt enda verði afar stór hópur öryrkja fyrir tekjuskerðingu. Um sé að ræða í kringum 2.500 manns eða 20% örorkulífeyrisþega en meirihluti þeirra muni missa all- an örorkulífeyri. „Það er ljóst að í sumum tilfellum er um að ræða um- talsverðan hluta heildartekna fólks. Ég furða mig á að þessi bréf séu send út án samráðs við ÖBÍ þegar um svo stóra ákvörðun er að ræða,“ segir Sigursteinn. Hryggilegt sé að þetta berist ör- yrkjum nú þegar langþráðum áfanga sé náð varðandi einföld- un á almanna- tryggingakerfinu og hækkun á greiðslum til bótaþega al- mannatrygginga. „Það er afar kald- hæðnislegt að við séum að fást við þessar alræmdu tekjutengingar, nú þegar loksins er þverpólitískur skilningur á því að einn versti óvinur öryrkja og aldraðra er einmitt þess- ar tekjutengingar.“ „Afar kaldhæðnislegt“ Sigursteinn Másson Greiðslustofa lífeyrissjóða hefur gert umfangsmikla athugun á tekjum öryrkja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.