Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR www.lyfja.is - Lifið heil ÁHRIFARÍKT BÓLGUEYÐANDI GEL VIÐ VÖÐVA- OG LIÐVERKJUM. Voltaren Emulgel FÆST ÁN LYFSEÐILS ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S L Y F 33 20 4 0 6/ 20 06 Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd Selfossi - Laugarási Voltaren Emulgel® er notað sem staðbundin útvortis meðferð við vöðva- og liðverkjum. Lyfið má ekki bera á skrámur, opin sár eða á exem. Varist snertingu við augu og slímhúðir, notist einungis útvortis og má aldrei taka inn. Á meðgöngu skal ávalt leita ráða læknis eða lyfjafræðings áður en lyfið er notað. Þó skal það ekki notað á síðasta þriðjungi meðgöngu. Lítil hætta er á ofskömmtun vegna útvortis notkunar lyfsins. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. LÍTIÐ virðist vera um ref fjarri byggð enda sækir hann í auknum mæli nær mannabyggðum. Þessi breytta hegðan refsins stafar af því að dregið hefur úr umferð manna um heimalöndin og þar hefur refurinn því meiri frið en áður til þess að leita fanga. Þetta segir Snorri H. Jóhann- esson, formaður Bjarmalands, félags atvinnuveiðimanna í ref og mink. Hann telur þó að ref hafi ekki fjölgað heldur sé einfaldlega um það að ræða að meira beri á honum á stöð- um þar sem hann hafi ekki sést mik- ið áður. Snorri segir að fjöldi refa sé löngu orðinn vandamál sem þurfi að taka á. „Það hefur enginn talað um að útrýma tófunni en það er mjög æskilegt að okkar mati að halda stofninum í ein- hverju ákveðnu jafnvægi. Menn greinir þó á um það hve fjölmennur stofn það er sem menn telja æskilegan. Það er hins vegar ljóst að það er of mikið af tófu – að minnsta kosti á ákveðnum svæðum,“ segir Snorri og bendir sérstaklega á Hornstrandir, hvar fuglalíf eigi undir högg að sækja vegna refsins. Sum sveitarfélög sinna ekki lögboðnum skyldum sínum Hann segir að sums staðar hafi sveitarfélög staðið vel að málum hvað varðar fækkun refs en önnur dregið lappirnar. Það bitni þá aftur á þeim sveitarfélögum sem standi vel að þessum málum enda færi refurinn sig á milli. „Það má segja að stjórnvöld hafi ekki látið þá peninga fylgja sem þarf til þess að framkvæma þessa hluti og þegar þrengir að fjárhagslega leggja sveitarfélögin meiri áherslu á önnur málefni. Í okkar huga sem stundum sauðfjárrækt og unnum íslenskri náttúru og viljum hafa fugla í kring- um okkur er þetta áhyggjuefni.“ Snorri tekur sem dæmi að ákveðin sveitarfélög hafi hætt að borga skot- veiðilaun. Þannig sé sá háttur hafður á að hringja í grenjaskyttur ef sér- stök vandræði koma upp. „Það má segja að þetta sé rekið eins og slökkvilið en það er ákveðin lagaskylda á sveitarfélögum. Þeim ber að láta leita að grenjum og láta leita að mink en það er því miður ekki alls staðar gert. Þá er það hitt að það eru engin tvö sveitarfélög með sama kerfi hvað varðar greiðslur. Við viljum reyna að ganga í lið með sveitarfélögunum með að samræma aðgerðir.“ Ríkið leggur nánast ekki neitt fé til málaflokksins Snorri segir að hér sé ekki um stórar upphæðir að ræða en fyrir hvern mink fáist 3.000 krónur og 7.000 krónur fyrir hvern ref. Af þessu borgi ríkið 40%. Þá séu vinnu- launin samkvæmt viðmiðunartaxta, sem veiðistjórnunarsvið Umhverf- isstofnunar gefur út, ekki nokkrum manni bjóðandi. „Aðalbaráttumálið í mínum huga er það að þegar ég fer með minn reikning leggst ofan á hann virð- isaukaskattur sem sveitarfélögin fá ekki endurgreiddan. Þegar dæmið er gert upp sést að ríkið leggur ekki nema einhverja smáaura til mála- flokksins vegna þess að þeir fá svo mikið til baka í virðisaukaskatti. Það þarf að breyta því en það gengur ekki að ríkið telji sig vera að eyða svo og svo miklu fé í þetta […] en þegar dæmið er gert upp leggur rík- ið nánast ekki neitt fé til málaflokks- ins.“ Snorri segir að þessi málefni hafi ítrekað verið rædd við stjórnvöld en afskaplega lítið hafi áunnist. Þessu þurfi þó að breyta og það sé eitt af mikilvægustu verkefnum sveitarfé- laganna að gera það sem fyrst. „Ég sé engan mun á því að end- urgreiða virðisaukaskatt af þessu og að endurgreiða virðisaukaskatt af sorphirðu og snjómokstri.“ Refurinn sækir í auknum mæli nær mannabyggðum og hefur meiri frið til þess Fjöldi refa löngu orðinn vandamál sem taka þarf á Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins Ríkið leggur nánast ekki neitt fé til grenjaleitar því það leggur virðisaukaskatt á veiðilaun, sem ekki fæst endur- greiddur, að sögn Snorra H. Jóhannessonar, formanns Bjarmalands, félags atvinnuveiðimanna í ref og mink.Snorri H. Jóhannesson Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is ÞORFINNUR Ómarsson, talsmað- ur norrænu eftirlitssveitanna (SLMM) á Sri Lanka, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að sú ákvörðun Svía að draga eftirlits- menn sína frá landinu kynni að hafa veruleg áhrif á starfsemi sveitanna. „Miðað við núverandi mannafla er ljóst að Norðmenn og Íslendingar geta ekki haldið uppi lágmarkseftir- liti haldi átökin milli tamílsku Tígr- anna og hersins áfram,“ sagði Þor- finnur. Þorfinnur segir að dregið verði úr eftirliti SLMM verði ekki fyllt í skarð þeirra sem séu á heimleið. „Við myndum þurfa að draga saman seglin,“ sagði Þorfinnur. „Yfirmenn SLMM þyrftu jafnvel að loka skrif- stofum tímabundið á einhverjum stöðum. Skv. vopnahléssamningn- um frá 2002 eigum við að sinna eft- irliti í tilteknum héruðum. Ef við verðum svona fáliðuð verður það ekki hægt.“ Þorfinnur segir ástandið hafa far- ið versnandi eftir að a.m.k. 67 manns hafi fallið í átökum Tígranna og hersins á síðustu dögum vegna deilna um vatnsból í Muthur-héraði. „Ástandið er mjög slæmt. Átökin færast nær flóanum og Trincomal- ee-svæðinu þar sem við erum. Við höfum reynt allt til að stilla til friðar og okkur grunar reyndar að þetta snúist um allt annað en vatnsbólið.“ Alls hafa 57 eftirlitsmenn verið á Sri Lanka á vegum SLMM og eru 15 frá Noregi, 5 frá Íslandi og 15 frá Svíþjóð. Hinir koma frá ESB-ríkj- unum Danmörku og Finnlandi, en hafa nú verið kvaddir heim. Var það gert í kjölfar þess að Tígrarnir sögð- ust ekki geta ábyrgst öryggi eftir- litsmanna þessara ESB-ríkja, auk Svía, eftir að sambandið skilgreindi þá sem hryðjuverkasamtök í maí. „Þyrftu að loka skrifstofum“ Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is EKKI er hægt að slá því föstu hversu stór refastofninn er um þessar mundir en Páll Hersteinsson, prófessor og refasérfræð- ingur, segir að það séu engin ný tíðindi að refastofninn fari stækkandi. Stofninn sé nú um það bil sex sinnum stærri en hann var fyrir tæpum þrjátíu ár- um. Þannig taldi hauststofninn Ekki ný tíðindi að refa- stofninn fari stækkandi Páll Hersteinsson árið 2003 um átta þúsund dýr. Mælingin sem notast er við verður nákvæmari eftir því sem lengri tími líður og því óná- kvæm fyrir daginn í dag að sögn Páls. „Þær raddir hafa heyrst á hverju ári í mörg ár að refa- stofninn sé að stækka og það að hann skuli sjást í auknum mæli nærri mannabyggðum bendir til þess að svo sé,“ segir Páll. Hann bendir á að ástand fuglastofna hafi verið gott undanfarin ár og því sé ástand refastofnsins al- mennt gott. EINHVERJIR launamenn ráku upp stór augu er þeir fengu launa- seðilinn sinn í hendur nú um mán- aðamótin og höfðu ekki fengið greiddan 15 þúsund króna taxtavið- auka líkt og samið var um í viðbót- arkjarasamningum í sumar. Ástæð- an er hins vegar sú að ekki áttu allir rétt á þessari hækkun, aðeins þeir sem fá greidd laun samkvæmt taxta kjarasamninga, en ekki þeir sem eru yfirborgaðir hjá vinnuveitanda sín- um, þ.e. eru á launum sem eru hærri en umsamdir launataxtar. Taxtaviðaukinn á rætur sínar að rekja til meiri hækkana í kjarasamn- ingum hjá hinu opinbera en í kjara- samningum á almennum vinnumark- aði. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, segir að sér komi ekki á óvart að einhverjir hafi búist við viðbótar- greiðslunni en ekki fengið hana, en þetta hafi þó verið alveg skýrt í samningunum. Þeir hafi í raun geng- ið út á að bæta laun þeirra sem fá greitt samkvæmt töxtum. „Þetta var eitt helsta viðfangsefnið í samning- unum,“ segir Vilhjálmur. „Það er fyrst og fremst verið að hækka laun þeirra sem ekki hafa fengið yfirborg- anir.“ Vilhjálmur segir að SA hafi fengið fjölmargar fyrirspurnir varðandi þennan lið kjarasamninganna allt frá því þeir voru gerðir í júní sl. „Við eig- um alveg von á því að fleiri mál komi upp núna um mánaðamótin eins og gengur.“ Á heimasíðu SA, www.sa.is, er að finna ítarlegar upplýsingar um kjarasamningana og fréttir þeim tengdar. Ekki allir eiga rétt á taxta- aukanum PÁLMI Ragnar Pálmason, sem láta mun af störfum sem stjórnarnefnd- arformaður Landspítala – háskóla- sjúkrahúss eftir næsta fund stjórn- arinnar, segir að brotthvarf sitt úr nefndinni hafi ekkert með gagn- rýni sína á fjár- mögnun spítalans að gera. Eðlilegt sé að skipt sé reglulega um for- mann stjórnar- nefndarinnar og tímabært hafi verið fyrir hann að hætta. Pálmi hafði áður gagn- rýnt hvernig rekstur LSH væri fjár- magnaður. Pálmi hefur setið í stjórn sjúkra- hússins síðan árið 2000 en hann til- kynnti heilbrigðisráðherra í síðasta mánuði um ákvörðun sína. Pálmi sagði í samtali við Morgunblaðið að ráðherra hefði ekki óskað þess að hann léti af störfum né að hann teldi að hans verk kölluðu á að hann léti af störfum. „Það var bara kominn tími á að fá nýtt blóð inn í stjórnina,“ seg- ir Pálmi og bætir við að það sé hollt hverri stofnun að enginn sitji of lengi við stjórnvölinn. Pálmi segir einnig að brotthvarf hans úr stjórninni hafi ekkert með ummæli hans um fjár- mögnun spítalans að gera og e.t.v. hafi einhverjir mistúlkað þau orð sem hann hafi látið falla. Hann stendur þó við skoðanir sínar og seg- ir að fjármögnun spítalans ætti að miðast við fjölda sjúklinga sem leita til stofnunarinnar en ekki fasta upp- hæð á fjárlögum. Vildi hleypa nýju blóði í stjórnar- nefndina Pálmi Ragnar Pálmason ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.