Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. endurskoðun reikningsskil skattar / ráðgjöf www.ey.is PÁLI Stefánssyni hefur verið boðið að vera meðal tuttugu ljósmyndara sem á næstu fjórum árum munu festa á filmu þá staði sem eru á heimsminjaskrá Menningar- málastofnunar Sameinuðu þjóð- anna, UNESCO. Fljótlega ætti að skýrast hvaða verkefni falla Páli í skaut en ljóst er að starf- inn er ærinn enda hefur heims- minjaskráin að geyma 850 staði sem dreifast vítt og breitt um heim- inn. Þeirra á meðal eru Þingvellir en meðal annarra má nefna egypsku píramíðana, Machu Pichu- minjarnar í Perú, Stonehenge á Bretlandi, óbyggðir Tasmaníu og Vatíkanið. | 45 Myndar heimsminjar UNESCO Páll Stefánsson STUNDUM er sagt að fólk fari eitthvað í loftköstum þegar það er að flýta sér. Gestir Laugardalslaugarinnar voru fæstir að flýta sér í gær, enda veðrið með allra besta móti. Orðatiltækið að fara eitthvað í loftköstum kemur þó upp í hugann þegar horft er á þetta brosandi barn sem fékk flug- ferð í boði pabba í lauginni í gær. Veðurstofa Íslands spáir því að í dag verði hægviðri og bjart um mestallt landið, en það er von á lægðum sem gætu lagt leið sína um landið um versl- unarmannahelgina. „Þær eru að leika sér núna, lægðirnar, og vita ekkert hvar þær ætla að vera um helgina,“ sagði Kristín Hermannsdóttir, veður- fræðingur á Veðurstofu Íslands, í gær. Morgunblaðið/Golli Í loftköstum í lauginni ♦♦♦ UMHVERFISRÁÐHERRA hefur fyrir sitt leyti fallist á að veitt verði byggingarleyfi fyrir tveimur nýjum sumarhúsum skammt frá austur- bakka Jökulsár á Fjöllum. Þar með sneri ráðuneytið við ákvörðunum tveggja undirstofnana sinna en bæði Umhverfisstofnun og Skipulagsstofn- un höfðu lagst gegn framkvæmdun- um. Húsin sem um ræðir verða byggð í óskiptu landi Austara-Lands og Sig- túns. Þau eru utan núverandi marka þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfrum en Umhverfisstofnun taldi að þau myndu lenda innan garðsins þegar hann hefði verið stækkaður í sam- ræmi við ákvæði í náttúruverndar- áætlun. Undir það tók Skipulags- stofnun. Í byrjun sumars stefndi því allt í að húsin fengju ekki að rísa. Um miðjan júní greip umhverfisráðuneyt- ið inn í málið og í kjölfarið féllst Skipulagsstofnun á að leita eftir áliti ráðuneytisins. Í álitinu segir að gert sé ráð fyrir að þjóðgarðurinn teygi sig 100–150 metra út frá ánni og þar sem bústaðirnir standi fjær leggist ráðu- neytið ekki gegn byggingu þeirra. Við það skipti Skipulagsstofnun um skoð- un og stefnir því allt í að bústaðirnir rísi. Samtök um náttúruvernd á Norð- urlandi hafa mótmælt þessari ákvörð- un og hvetja Jónínu Bjartmarz um- hverfisráðherra til að endurskoða hana. Skora samtökin á ráðherra að beita sér fyrir því að við friðlýsingu verði miðað við landslagsheildir eins og almennt sé lögð áhersla á í dag. Greinir á um ný mörk í Jökulsárgljúfrum Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is  Leggst ekki gegn | 10 SAMANLAGÐUR hagnaður bank- anna fjögurra, Glitnis, Kaupþings banka, Landsbankans og Straums- Burðaráss fjárfestingabanka, eftir skatt nam rúmum 91,7 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og hefur aukist um tæp 70% sé mið- að við sama tímabil í fyrra, en þá nam hagnaður bankanna rúmum 54 milljörðum. Hagnaður Straums-Burðaráss jókst hvað mest milli tímabila eða sem nemur 155% en hagnaður KB banka jókst um rúm 28% og er það minnsta aukning hagnaðar hjá bönk- unum. Methagnaður hjá Glitni Þá námu hreinar vaxtatekjur bankanna fjögurra 68,7 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins sam- anborið við 33,1 milljarð króna á sama tímabili í fyrra. Glitnir skilaði sex mánaða uppgjöri sínu í gær og nam hagnaður bankans á öðrum árs- fjórðungi 11 milljörðum króna en það er mesti hagnaður á ársfjórð- ungi í sögu bankans. | 12        !  " #  "  $" % &  &'  !  # ()!  Stóraukinn hagnaður bankanna SAMNINGAR Hveragerðisbæjar og Eyktar ehf. um byggingu 800– 900 íbúða austan Varmár eru gildir, segir í úrskurði félagsmálaráðu- neytisins, en minnihluti sjálfstæðis- manna á síðasta kjörtímabili kærði ákvörðun bæjarstjórnar um að sam- þykkja samningana. Ráðuneytið féllst ekki á sjónarmið sjálfstæð- ismanna sem töldu m.a. að samning- arnir brytu gegn rannsóknar- og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga. Áætlað er að bygging hins nýja hverfis taki í það heila tólf ár og íbúafjöldi Hveragerðis tvöfaldist. Í samningunum við Eykt ehf. felst að fyrirtækið kaupir landið af Hveragerðisbæ með því að greiða fyrir byggingu fyrsta áfanga leik- skóla á svæðinu og er verðmæti þess talið vera um 80 milljónir kr. Þá mun fyrirtækið byggja brú yfir Varmá, annast gerð holræsa, vatns- veitu og opinna svæða á skipulags- svæðinu. Sjálfstæðismenn gagnrýndu samningana á sínum tíma og bentu m.a. á að endurgjald Eyktar ehf. fyrir landið hefði verið alltof lágt. Í lok maí urðu þær breytingar að sjálfstæðismenn komust í meirihluta og segir Aldís Hafsteinsdóttir bæj- arstjóri óvíst um framhald málsins. Til greina komi að fara með málið fyrir dómstóla eða taka upp við- ræður við forsvarsmenn Eyktar ehf. Þorsteinn Hjartarson, oddviti minnihlutans, fagnar úrskurðinum og vonar að bæjarstjórnin geti stað- ið saman í því að byggja upp bæinn. Samningar Hveragerðis- bæjar og Eyktar ehf. standa      &'()* +(),-  %$#     Samningar bæjarins | 11 ÓLAFUR Ólafsson, formaður Landssambands eldri borgara (LEB), segir að forsvarsmenn fé- lagsins hafi fengið skilaboð þess efnis að skrifuðu þeir ekki undir yf- irlýsingu ásamt fulltrúum rík- isstjórnarinnar sem undirrituð var í síðasta mánuði, þá fengist engin trygging fyrir því að fjármagn yrði sett í aukna heimaþjónustu og rekstraraðstaða hjúkrunarheimila bætt. „Ein meginástæðan fyrir því að við skrifuðum undir þessa yfir- lýsingu er sú að við sáum ákveðnar bætur og meiri úrbætur en við höfum séð áður og við viljum breyta núverandi ástandi. Við viljum búa öldruðum viðunandi dvalarrými og hverfa frá þeirri stofnanavæðingu sem hér hefur ríkt,“ segir Ólaf- ur. | Miðopna Fjármagn ekki tryggt án undirskriftar BROTIST var inn í sprengiefna- geymslu verktakafyrirtækisins Arn- arfells við Kárahnjúka í fyrrinótt og unnar skemmdir á hráefni og lása- búnaði. Starfsmenn fyrirtækisins hafa reglulegt eftirlit með geymsl- unni en þessa nótt var svartaþoka á svæðinu svo þeir sem brutust inn náðu að athafna sig án þess að vera ónáðaðir. Að sögn Sigurbergs Kon- ráðssonar, verkstjóra Arnarfells á svæðinu, hafa þeir sem þarna áttu í hlut klippt gat á girðingu og skriðið þar í gegn. Skorið var á tíu poka með efni sem notað er til að búa til sprengiefni en efnið skemmdist síð- an þegar rigndi ofan í það. Einnig hefur verið reynt að brjóta upp eða skemma lása geymslunnar og þurfti að skipta um þá í gær. Sigurbergi þykir ljóst að þarna hafi mótmæl- endur Kárahnjúkavirkjunar verið á ferð en þeir hafi truflað starfsemi Arnarfells nokkuð síðustu daga. Brotist inn í sprengiefna- geymslu við Kárahnjúka ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.