Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 35
sem sögur fara af. Það var líka alltaf svo gaman að koma til ykkar afa því þið tókuð svo vel á móti manni og þú varst alltaf tilbúin að hlusta og gefa góð ráð þegar mér lá eitthvað á hjarta. Mér þykir afskaplega leitt að Katrín og Anna Steina litla skyldu ekki fá tækifæri til að kynnast þér betur, en þær verða bara að fá að gera það í gegnum afa. Ég finn svo mikið til með honum afa að vera orðinn einn, hann á samt marga góða að sem munu hjálpa honum að ganga í gegnum þessa sorg. Þó svo að þetta sé allt hluti af lífinu, þá er bara svo erfitt að missa þig, en ég er samt þakklátur fyrir það að þú þurftir ekki að þjást. Þú varst alltaf svo falleg og skemmtileg og full af lífi og þannig munum við minnast þín, elsku amma mín. Blessuð sé minning þín. Þorsteinn Stefánsson. Elsku amma. Í dag er jarðsungin amma mín, Helga Kristinsdóttir. Vegna aðstæðna var samgangur ekki mikill okkar á milli, en eitt var það sem aldrei brást, þú hringdir alltaf í mig á afmælisdaginn minn og óskaðir mér til hamingju með dag- inn. Ávallt var gaman að koma til ykkar afa í Háholtið og var ég í góðu yfirlæti hjá ykkur þann tíma er ég stundaði sjó frá Sandgerði sumarið 1995. Að mínu viti var amma vel gef- in og fróð kona. Hún sagði oft inni- haldsríkar sögur sem fengu mann til þess að hugsa, oftar en ekki frá sín- um uppvaxtarárum sem ég tel að hafi mótað hana og haft áhrif á allt hennar líf. Heimilið og öll umgjörð þar í kring bar glögglega merki þess hversu vinnusöm og þrifaleg hún var. Hin síðustu ár voru samvistir okkar oftar en ekki í afmælis- og fjölskylduboðum og var sérstaklega gaman að því þegar þið afi komuð óvænt í eitt slíkt 7. júlí síðastliðinn. Ekki er hægt að ljúka þessum skrif- um án þess að minnast á það sér- staklega góða samband sem var á milli afa og ömmu sem stóð í um 60 ár. Með þökk fyrir þann tíma sem okkur var gefinn saman. Hvíl þú í friði. Þitt barnabarn Brynjar Atli. Takk elsku amma mín fyrir allar stundirnar. Takk fyrir kaffið og meðlætið. Takk fyrir spjallið á kvöldin og kvöldkaffið (og afi fyrir koníakið). Takk fyrir öll ráðin. Takk fyrir umhyggjuna. Takk fyrir að hengja upp úr vélinni þegar ég gleymdi því og brjóta saman þegar ég gleymdi því. Takk fyrir allar sög- urnar. Takk fyrir jólaboðin. Takk fyrir þolinmæðina. Takk fyrir minn- ingarnar. Takk, elsku amma mín. Við Egill knúsum hann afa fyrir þig. Jóhann og Egill Máni. Mig langar að minnast minnar elskulegu frænku Helgu Kristins- dóttur sem nú hefur kvatt okkur. Helga var mér miklu meira en frænka, ég leit alla tíð á hana sem systur mína þar sem við ólumst upp saman mín fyrstu æviár þar sem Guðríður móðir hennar tók mig ný- fæddan í fóstur, en móðir mín lést þegar ég fæddist. Foreldrar mínir hófu búskap á loftinu í Akri um svip- að leyti og eldri bróðir minn, Vignir, fæddist 1931. Þá höfðu foreldrar mínir tekið í fóstur móðursystur mína Halldóru sem hafði brennst illa á heitri feiti, og litu þær Helga alla tíð á okkur sem bræður sína. Á síðari árum höfum við Helga oft rifj- að upp sagnir úr Innri-Njarðvík frá fyrri hluta sl. aldar en þá voru Innri-Njarðvíkur lítið samfélag. Fyrir fimm mánuðum fluttu Helga og eiginmaður hennar Björn til Innri-Njarðvíkur, nánast í túnfót- inn heima í Akri eins og hún oft nefndi. Þarna þekkti Helga hverja þúfu og kennileiti en Helga var fróð- ust þeirra sem ég þekki til um allt sem viðkom Innri-Njarðvík. Mörg- um gönguferðunum tók Helga þátt í um æskuslóðirnar þar sem hún miðlaði af fróðleik sínum sem ánægjulegt hefði verið að eiga á prenti en Helga var bæði ritfær vel og minnug. Helga var hæfileikarík kona og nutu hæfileikar hennar sín vel í hannyrðunum. Hún var snilldar- saumakona og saumaði ósjaldan föt á elstu dætur mínar og bar hver flík vandvirkni og smekkvísi Helgu glöggt vitni. Dætur mínar minnast m.a. rauðu „leðurkápanna“ og glæsilegu samfestinganna sem Helga saumaði á þær og alltaf var jafnspennandi að koma til Helgu og máta og sjá sig í vængjaspeglinum sem virkaði eins og í speglasalnum í Tívolí, þar sem þær gátu séð enda- laust inn úr speglinum og hreyft vængina til og frá og leyft huganum að fara á flug. Sú hefð myndaðist að fjölskyldan heimsótti Helgu og Bjössa í Háholt- ið um miðjan daginn á aðfangadag. Sjaldnast var Harpa með mér þar sem hún stóð í ströngu við að und- irbúa kvöldið en börnin komu með og þáðu góðgæti hjá Helgu og Bjössa og glöddu yngsta soninn og afmælisbarnið Höskuld. Helga naut sín í eldhúsinu sínu og var snillingur að baka allar tegundir af meðlæti með kaffinu og var af gamla skólanum þar sem heima- tilbúið meðlæti þótti sjálfsagður hlutur, kleinurnar hennar og hjóna- bandssælan voru lostæti. Helgu var annt um fjölskyldu mína og vil ég þakka henni rækt- arsemi við mig og mína alla tíð. Fjölskyldan minnist Helgu með hlýju, söknuði og þakklæti. Við biðj- um guð að styrkja Bjössa sem hefur misst lífsförunaut sinn og börnin þeirra og fjölskyldur sem sjá á eftir móður, tengdamóður og ömmu. Megi allar góðu minningarnar ylja þeim um ókomin ár. Birgir Guðnason og fjölskylda. Á einum besta degi sumarins, 21. júlí sl., fór hún Helga í ferðalagið langa er liggur fyrir okkur öllum Þegar ég lít til baka er Helga ein af þeim er alltaf hafa verið í nálægð. Fyrst man ég eftir henni á Vall- argötu 17 er fjölskylda mín bjó á Vallargötu 19 en þá var Vallargatan full af lífi. Þar voru margar stórar fjölskyldur búsettar við götuna. Á þessum árum voru konurnar yf- irleitt heimavinnandi og myndaðist góð vinátta á milli þessa fólks er hefur haldist alla tíð. Börnin í göt- unni voru úti að leika sér í þá daga og ekki var setið yfir tölvum eða sjónvörpum alla daga eins og geng- ur og gerist í dag. Í 15 ár bjuggum við í húsum hvor á móti annarri í Háholtinu og þá var aftur farið að skjótast á milli bæja líkt og á árum áður á Vallargötunni. Við störfuðum líka saman við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en þar starfaði Helga sem ræstinga- stjóri til margra ára. Helga og hóp- ur kvenna undir hennar stjórn héldu Heilbrigðisstofnunni svo glansandi hreinni að athygli vakti á landsvísu. Síðast heimsótti ég Helgu og Björn á nýtt heimili þeirra í Njarð- vík en þar voru þau eins og ungir krakkar nýbyrjaðir búskap er þau sýndu mér nýja húsið. Við Birgir vottum Birni og allri fjölskyldunni innilega samúð. Bless- uð sé minning Helgu Kristinsdóttur. Stella Olsen. Ein af bestu konum sem ég hef þekkt hefur kvatt þetta líf. Við vor- um æskuvinkonur, unnum saman hjá KRON í Keflavík, seinna Kaup- félag Suðurnesja, til margra ára. Það voru 27 „stelpur“ sem stofn- uðu 3. sveit í skátafélaginu Heið- arbúum í Keflavík hinn 2. júlí 1943 og var Helga fyrsti sveitarforingi 3. sveitar, en þetta var fyrsta skátafé- lag landsins og já heimsins, sem hafði bæði drengi og stúlkur í sama félagi. Helga var frábær foringi, hvort sem hún stjórnaði fundum, gönguæfingum eða útilegum og bár- um við allar virðingu fyrir henni og hlýddum henni í einu og öllu. Þegar Helga giftist sínum góða manni Birni Stefánssyni bættist hann við í vinahópinn, svo og börn þeirra fimm. Helgu var margt til lista lagt, hún var frábær hannyrða- og sauma- kona og marga flíkina saumaði hún fyrir mig. Ég vil þakka Helgu áralanga vin- áttu sem aldrei féll skuggi á, alla hjálp hennar við mig og fjölskyldu mína sem aldrei gleymist. Ég bið algóðan Guð að gefa Birni, börnum, tengdabörnum, ömmu- og langömmubörnum styrk á sorgar- stundu. Hanna. Okkur langar með nokkrum fá- tæklegum orðum að minnast okkar kæru vinkonu Helgu Kristinsdóttur sem kvaddi þennan heim 21. júlí eft- ir stutta en óvægna baráttu. Við erum þó meðvituð um að Helgu var mærð lítt að skapi. Við áttum því láni að fagna að vera næstu nágrannar þeirra hjóna Helgu og Björns í Háholtinu í 30 ár og vorum við nokkuð samstiga í að koma yfir okkur eigin þaki þó vissu- lega fylgdumst við stundum með þeirra framandi verklagi, með undr- un og kannski pínulítilli öfund. Okkur tókst þó að komast fram úr á endasprettinum og gátum flutt inn, árinu á undan. En kannski var þetta allt með ráðum gert hjá þeim, því í hönd fór einn harðasti vetur um árabil. Háholtið var þá ekki til nema á teikniborðinu og engin veg- tenging upp holtið í þessa fyrirhug- uðu götu sem í fyllingu tímans var moldartroðningur næstu 20 árin. Að eignast vini eins og þau hjón verður seint þakkað, vináttu sem aldrei hefur borið skugga á í öll þessi ár. Síðasti samfundur okkar var 6. júlí sl. þegar þau heimsóttu okkur í sumarbústaðinn og verður sú heimsókn okkur ætíð dýrmæt, þó síst af öllu dytti okkur í hug að við værum að kveðja Helgu í hinsta sinn. Elskulegri og samhentari hjón eru vandfundin, bæði fagurkerar og smekkleg, og ber heimili þeirra vott um það. Helga var bráðflink í öllu húshaldi, en vann sín verk af hóg- værð. Alltaf var sjálfsagt að aðstoða, ef eitthvað stóð til hjá okkur. Þau hjón áttu það sameiginlegt að vera miklir sagnabrunnar, minnug og sögðu svo skemmtilega frá um menn og málefni að unun var á að hlýða. Góð og mikilhæf kona er gengin og eru henni færðar þakkir fyrir samfylgdina í gegnum árin. Hennar verður sárt saknað. Góður vinur gleymist aldrei. Ljósin lifa í minningunni. Kæri Björn, börn og aðrir að- standendur, hugheilar samúðar- kveðjur til ykkar allra. Rósa, Hörður og dætur. Kveðja frá St. Georgsgildinu í Keflavík Kær skátavinkona er „farin heim“ eins og skátar segja. Helga var stofnfélagi í Gildinu okkar, ein af okkar bestu félögum „ávallt viðbúin“ við hvaða verk sem henni var falið. Frábær ferðafélagi í mörgum ógleymanlegum ferðum en upp úr standa kannski tvær ferðir er farnar voru, önnur á Gildisþing sem haldið var á Þelamörk í Noregi 1972 og síð- an heimsreisan til Nýja Sjálands 1982. Sú ferð verður okkur ógleym- anleg á allan hátt, sex vikna ferða- lag, alls voru 650 gildisskátar sem tóku þátt í þessu heimsþingi. Þegar við vorum að innrétta skál- ann okkar Tjarnarsel, suður á Hvalsnesi var Helga potturinn og pannan við gardínusaum og við að yfirdekkja sæti í stóran sófa, þá voru basarkvöld hjá stelpunum og safnað fyrir búsáhöldum í skálann, en skálinn var hlýlegt félagsheimili fyrir Gildið. Þar héldum við flesta okkar fundi. Já, við eru öll þakklát fyrir að hafa notið vináttu og starfa Helgu í öll þessi ár. Við sendum Birni og fjölskyld- unni allri, innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að blessa minningu Helgu Kristinsdóttur. Sofnar drótt, nálgast nótt sveipar kvöldroða himin og sæ. Allt er hljótt, nú er nótt Guð er nær. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 35 MINNINGAR Örn H. Bjarnason var föðurbróðir minn og vinur. Nú er hann þar sem honum líður vel og skrifar bestu sögu sína í friðsælu umhverfi. Ég bjó með honum hjá ömmu Ástu þegar ég þóttist vera að læra við Mennta- skólann við Hamrahlíð. Okkur kom vel saman, tefldum og sögðum sög- ur. Töluðum um stelpur og fram- tíðina. Örn var frábær sögumaður og hjálpaði mér oft þegar ég var að skila ritgerð í skólanum. Amma Ásta sá um okkur Örn. Passaði upp á okkur með einstökum hlý- hug og áreynsluleysi. Hún var perlan okkar sem gerði okkur án efa að betri mönnum. Þegar við bjuggum saman í Álftamýrinni sýndi hann mér eitt sinn kassa sem var falinn í efstu hillu í fataskáp í forrýminu. Þar voru smásögur sem hann hafði skrifað. Ég sökkti mér í að lesa þær og fannst þær skemmtilegar enda hann góður sögumaður. Nú velti ég því fyrir mér hvar þær séu. Það væri gaman að lesa þær aftur núna 25 árum seinna og lesa á milli línanna. Ég er viss um að ég myndi finna þar mikið af hans lífssýn og stríðnishugmyndum. Ég gat því miður ekki verið við útför Arnar og stutt þar mann sem ég elska út af lífinu, sem er faðir minn, og verið huggun bræðra hans og fjölskyldu en ég fékk þó þann heiður að signa yfir hann við kistulagningu og kvaddi hann þannig. Ég veit að Erni líður vel núna, hann er að spá og spekúlera og kannski sendir hann mér hug- skeyti um sig og ömmu Ástu þar sem þau sitja og spjalla áreynslu- laust og án fordóma um lífið og til- veruna. Örn minn, hafðu það æði og knúsaðu ömmu Ástu frá mér. Þið ÖRN H. BJARNASON ✝ Örn HelgiBjarnason fædd- ist í Danmörku 13. nóvember 1937. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 7. júlí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 18. júlí. gáfuð mér þá gjöf að vera sáttur við það sem maður hefur með lítillæti og skiln- ingi. Pabbi – ég elska þig og láttu sorg þína sameina enn betur frábæra fjölskyldu í lambalæri og knús- um. Lárus Hall- dórsson. Fyrstu kynni mín af Erni var er ég byrjaði fyrir allmörg- um árum í hestamennsku. Örn vakti eftirtekt. Vel klæddur og hafði fágaða framkomu, falleg brún augu og fallegt bros. Bar með sér heimsborgaralegt yfir- bragð. Hann var rólegur í fasi, fylgdist vel með en sagði fátt, kímdi og fékk sér í nefið og sopa af diet coke. Hann var hinn virki hlustandi. Fólk á öllum aldri lað- aðist að honum. Það fór ekki fram hjá neinum hversu skarpgreindur hann var. Hann var mikill húmoristi en bak við húmorinn var viðkvæm sál. Örn hafði orðið fyrir ýmsu mót- læti í lífinu sem setti svip á allt hans líf. Meðal annars missti Örn föður sinn á viðkvæmum aldri. Það var þungbært. Faðirinn sem alltaf gat huggað litla drenginn sinn. Ég á vini mínum mikið að þakka. Hann gaf mér nýja sýn á lífið. Og studdi mig og hvatti á all- an hátt. Örn veiktist hastarlega fyrir nokkrum árum, að vísu var farið að bera á sjúkdómseinkenn- um miklu fyrr. Fékk þokkalegan bata en þá tók annar sjúkdómur við. Örn var orðinn þreyttur, vildi ekki afskipti lækna. Sagðist ekki eiga afturkvæmt ef hann færi á sjúkrahús. Örn var mikill kunnáttumaður í öllu er varðaði tölvur. En þegar heilsan fór að gefa sig var sorglegt að sjá að það sem hann kunni svo leikandi var nú horfið. Hann veikt- ist aftur en þurfti ekki að kveljast lengi. Guð er líknsamur og mis- kunnsamur. Takk fyrir allt sem þú gafst mér, elsku Örn minn, og Guð blessi þig. Þín Guðrún. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, VALGARÐS STEFÁNSSONAR. Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, Ásdís Ingibjargardóttir, Guðlaugur Valgarðsson, Guðrún Helga Stefánsdóttir, Lárus Valgarðsson, Valgerður R. Valgarðsdóttir og afabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN MAGNÚS GUÐMUNDSSON vélvirki, (frá Suðureyri við Súgandafjörð), Hjarðarhaga 30, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landakotsspítala sunnudag- inn 30. júlí, verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 8. ágúst kl. 13.00. Björg Sigurðardóttir, Kristjana Jóhannsdóttir, Elín G. Jóhannsdóttir, Gylfi Björgvinsson, Inga Jóhannsdóttir, Hendricus Bjarnason, Magnús J. Jóhannsson, Birna Davíðsdóttir, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.