Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BRUNATJÓN sem hlutfall af fast- eignamati allra fasteigna í landinu var lægra í fyrra en það hefur verið und- anfarin tíu ár og sýnir samanburður við brunabótamat svipaða þróun. Kemur þetta fram í ársskýrslu Brunamálastofn- unar fyrir árið 2005. Brunatjónið í fyrra nam 0,05 prósentum af fasteignamati en hefur á undanförnum áratug oftast verið um og yfir 0,10 prósent. Bætt brunatjón nam alls 1.640 millj- ónum króna á síðasta ári miðað við verð- lag í júlí 2005. Er það nokkuð yfir með- allagi, en brunatjón á árunum 1981 til 2005 nam að meðaltali 1.090 milljónum króna á sama verðlagi. Tjón af völdum brunans í fiskimjölsverksmiðju Samherja í Grindavík í febrúar á síðasta ári vegur þungt og nam um helmingi alls eignatjóns vegna bruna á síðasta ári. Samsvarar brunatjón í fyrra 0,18 pró- sentum af þjóðarframleiðslu sem er hærra hlutfall en á árunum 2003 og 2004, en ná- lægt meðallagi sé litið til lengra tímabils. Brunatjón í fyrra hlutfallslega það lægsta í áratug Holdgervingur ameríska draumsins á morgun UMHVERFISRÁÐHERRA hef- ur ákveðið að leggjast ekki gegn því að byggingarleyfi verði veitt fyrir tveimur frístundahúsum skammt austan Jökulsár á Fjöllum í Öxarfirði. Allt útlit er því fyrir að húsin rísi en Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun höfðu áður hafn- að byggingu þeirra þar sem talið var að þau myndu lenda innan þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfrum þegar hann verður stækkaður. Því er ráðherra ósammála. Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi hafa harmað ákvörðun umhverfisráð- herra, Jónínu Bjartmarz. Húsin tvö munu standa í óskiptu landi Austara-Lands og Sigtúna við Landsárgil, skammt frá tveim- ur öðrum frístundahúsum sem reist voru á síðasta áratug, en Náttúruverndarráð, forveri Um- hverfisstofnunar, lagðist einnig gegn byggingu þeirra. Húsin eru á austurbakkanum en þjóðgarður- inn í sinni núverandi mynd er ein- göngu á vesturbakkanum. Í sam- ræmi við ákvörðun Alþingis er unnið að því að stækka þjóðgarð- inn til austurs. Þar sem ekkert skipulag er í gildi á því svæði sem bústaðirnir munu rísa þurfti Öxarfjarðar- hreppur, sem nú er runninn inn í Norðurþing, að óska eftir með- mælum frá Skipulagsstofnun til að hægt væri að auglýsa deiliskipu- lag. Leitað var umsagnar Um- hverfisstofnunar en stofnunin taldi að sumarhúsin myndu lenda innan stækkaðs þjóðgarðs í Jökulsár- gljúfrum enda væri kveðið á um það í náttúruverndaráætlun 2004– 2008 að hann myndaði samfellda heild um gljúfrin. Vegna staðsetn- ingar húsanna, verndargildis svæðisins og gildis þess sem úti- vistarsvæðis ásamt áhrifum á birkiskóg lagðist Umhverfisstofn- un gegn byggingu frístundahús- anna. Skipulagsstofnun tók undir álit Umhverfisstofnunar og féllst ekki heldur á framkvæmdina. Umhverfisráðuneytið hóf af- skipti af málinu um miðjan júní og í kjölfarið fór hið nýja sveitarfélag Norðurþing fram á það við Skipu- lagsstofnun að hún endurskoðaði afstöðu sína en því hafði stofnunin áður hafnað. Nú féllst stofnunin á að taka málið aftur upp og óskaði eftir umsögn ráðuneytisins. Í umsögn umhverfisráðuneytis- ins, sem er undirrituð fyrir hönd ráðherra, er sérstaklega tekið fram að ráðuneytið sjálft annist framkvæmd þess hluta náttúru- verndaráætlunar sem varðar stækkun þjóðgarðanna í Skafta- felli og Jökulsárgljúfrum og að það hafi verið tekið sérstaklega fram við Umhverfisstofnun með bréfi í byrjun júní sl. Bent er á að í náttúruverndar- áætlun 2004–2008 séu mörk stækkaðs þjóðgarðs sett með fyr- irvara og líta beri á þau sem til- lögur. Þá hafi umhverfisnefnd Al- þingis lagt á það ríka áherslu að við friðlýsingarferlið yrði haft náið samráð við þá sem friðlýsing varð- ar, þ.m.t. landeigendur. Málið skyldi unnið í sátt og ekki væri gert ráð fyrir að land í einkaeign yrði innan þjóðgarðsins nema um það næðist samkomulag við eig- endur. Ráðuneytið hafi þegar hafið viðræður við landeigendur á þeim svæðum við Jökulsá á Fjöllum sem talið væri áhugavert, með hliðsjón af náttúrufari, að friðlýsa sem þjóðgarð. Á grundvelli þeirra við- ræðna og umræðna og tillagna í ráðgjafarnefnd um Vatnajökuls- þjóðgarð hafi ráðuneytið ákveðið að reyna að ná því markmiði að Jök- ulsá á Fjöllum ásamt Kreppu og báðir bakkar árinnar, a.m.k. 100– 150 metra spilda, frá upphafi til ósa verði innan þjóðgarðs frá stofnun. Ekki sé gert ráð fyrir að mörkin verði dregin fjær ánni nema nátt- úrufarslegir þættir mæli sérstak- lega með því og að samkomulag ná- ist við eigendur. Með vísan til þessa og til viðræðna við landeigendur liggi það fyrir að fyrirhuguð frí- stundahús verði ekki innan stækk- aðs þjóðgarðs. Ekkert stendur nú í vegi fyrir að deiliskipulagið verði auglýst og því næsta víst að húsin muni rísa. Leggst ekki gegn nýjum sumarhúsum við Jökulsá Morgunblaðið/RAX Stefnt er að því að stækka þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum til austurs á næstu árum. Umhverfisstofnun og umhverfisráðherra greinir á um stækkun þjóðgarðsins Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is SAMTÖK um náttúruvernd á Norðurlandi harma niðurstöðu umhverf- isráðherra og telja að bygging húsa á þessum stað rýri gildi núverandi þjóðgarðs í Jökulsárgljúfrum og ekki síður væntanlegs Vatnajökuls- þjóðgarðs. Auk þess sé fordæmi gefið fyrir annarri frístundabyggð á umræddu landsvæði, innan landslagsheildar gljúfranna. Í þessu tilviki mæli náttúrufarslegir þættir sterklega með friðlýsingu og haga verði skipulagi og byggingarleyfum þannig að í framtíðinni geti stærð þjóð- garðsins miðast við landslagsheild gljúfranna. Í minnispunktum sem Sigrún Helgadóttir, líffræðingur og sérfræð- ingur í þjóðgörðum, tók saman vegna málsins segir m.a. að nútímanátt- úruvernd geri ráð fyrir friðlýsingu landslagsheilda og því ekki hálfra árdala. Það sé fjarri lagi að viðunandi þjóðgarðsmörk með Jökulsá í Öx- arfirði séu 100–150 metrar, líkt og umhverfisráðuneytið stefni að. Sig- rún minnir einnig á að togstreita um bústaði á þessum stað hafi staðið allt frá 1990 þegar Silfurstjarnan sótti um leyfi til að byggja tvö smá- hýsi á svæðinu. Þau hús hafi síðan verið reist í óleyfi og farið sístækk- andi síðan þá. Bústaðirnir tveir, sem fyrir eru, séu ekki aðeins þyrnir í augum landeiganda Austara-lands heldur einnig ferðamanna. Gamaldags náttúruvernd UNGATALNINGAR á rjúpum standa yfir um þessar mundir á vegum Nátt- úrufræðistofnunar Íslands (NÍ). Tilgang- urinn með talningunum er að meta við- komuna eða árangur varpsins. Þessi gögn má einnig nota samhliða ald- urshlutföllum frá veiðitíma og vori til að rannsaka afföll ungfugla en tíu ára stofn- sveifla rjúpunnar ræðst af kerfisbundnum breytingum á afkomu þessa aldurshóps. Viðkoman skiptir jafnframt miklu máli um hversu stór veiðistofninn er á hausti hverju og niðurstöður ungatalninganna veita því mikilvæg gögn fyrir veiðiráðgjöf. Ólafur K. Nielsen, vistfræðingur hjá NÍ, segir að stofnunin muni standa fyrir taln- ingum á NA-landi en mikilvægt sé að fá upplýsingar um viðkomuna sem víðast af landinu. Því sé ætlunin að fá veiðimenn og aðra áhugamenn til aðstoðar við taln- inguna. „Þetta er ekki heildartalning á einhverju svæði heldur snýst þetta um að fá aldurshlutföll eða hlutföll á milli ungra og fullorðinna,“ segir Ólafur en niðurstöð- urnar munu liggja fyrir um miðjan ágúst. Frekari upplýsingar og leiðbeiningar er hægt að nálgast á heimasíðu Skotveiði- félags Íslands. Áhugamenn aðstoði við að telja rjúpur TENGLAR ....................................................... www.skotvis.is TÍU VAGNSTJÓRAR hafa sagt upp störf- um hjá Strætó bs. frá áramótum sem er ívið meira en alla jafna, að sögn Harðar Gíslasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Strætós bs. Á sama tímabili hætta tveir vagnstjórar fyrir aldurs sakir. Hörður segir ávallt ákveðið gegn- umstreymi starfsmanna og ekki hafi verið brugðist við uppsögnum með öðrum hætti en að nýir starfsmenn hafi komið í stað þeirra sem hætt hafa. „Við vitum út af fyrir sig ekkert af hverju þessir menn hætta, menn fara auð- vitað bara á milli í vinnu og annað,“ segir Hörður. Hjá Strætó bs. starfa um 185 vagnstjórar og í sumar reyndist óvenju- lega erfitt að manna í afleysingar. Aukin starfsmanna- velta hjá Strætó FIMM karlmenn voru handteknir á nekt- ardansstaðnum Bóhem við Grensásveg í fyrrinótt og færðir til yfirheyrslu hjá lög- reglunni í Reykjavík, að sögn Harðar Jó- hannessonar, yfirlögregluþjóns í Reykja- vík. Hann segir tildrög málsins þau að starfsfólk á Bóhem hafi kallað til lögreglu þegar mennirnir birtust á staðnum. „Þeir lokuðu staðnum og gestirnir fóru og svo læstu þeir staðnum,“ segir Hörður. Einn úr hópnum telur sig vera eiganda hús- næðisins og sá ber því við að húsaleiga hafi ekki verið greidd. Lögreglan fékk ekki annað séð en rekstr- araðilar Bóhems væru með sína pappíra í lagi en það skal tekið fram að engin um- merki um ofbeldi voru sjáanleg vegna þess- arar uppákomu. Mennirnir eru lausir úr haldi en rannsókn málsins heldur áfram. Deilt um húsaleigu á nektardansstað       )!%    "  !                                                 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.