Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 3. ágúst kl. 12.00: Pamela De Sensi, þverflauta, og Steingrímur Þórhallsson, orgel. 5. ágúst kl. 12.00: Christoph Schoener, orgel. 6. ágúst kl. 20.00: Christoph Schoener, organisti frá Hamborg, leikur verk m.a. eftir Mendelssohn, Bach, Mozart og Schumann. Á FYRRI tónleikum laugardagsins í Reykholti söng Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, við meðleik Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur píanóleikara ís- lensk lög á borð við „Það kom söngfugl að sunn- an“ eftir Atla Heimi Sveinsson, „Sofnar lóa“ eftir Sigfús Einarsson og „Hjá lygnri móðu“ eftir Jón Ásgeirsson. Maður hefur svo sem heyrt þessi lög hundrað sinnum, en engu að síður var sérstök ánægja að heyra Diddú syngja á tónleikunum því í með- förum hennar voru lögin óvanalega falleg. Ég t.d. man ekki eftir að hafa upplifað lag Jóns á þennan hátt; það var svo tilfinningaþrungið og styrkleika- jafnvægið á milli raddar og píanós svo vel ígrund- að að unaður var á að hlýða. Diddú er skemmtikraftur af Guðs náð. Lagið eftir Atla Heimi inniheldur langan píanóeinleiks- kafla og þóttist Diddú aldrei hafa heyrt hann áður og lét eins og hún vissi ekki hvar hún ætti að koma inn í laginu. Hér hljómar það eins og lélegur brandari, en á tónleikunum skelltu áheyrendur upp úr oftar en einu sinni, enda voru vandræðalegir tilburðir söng- konunnar skondnir. Eftir hlé voru nokkrar aríur og lög eftir þekkt óperutónskáld á dagskránni. Þar á meðal var „La Danza“ eftir Rossini og „La Barc- heta“ eftir Buratti. „La Barcheta“, sem er gondólasöngur, er reyndar hugsaður fyrir karlmann, og er sömu sögu að segja um „La Danza“, en Diddú fór þó ákaflega vel með lögin og söng af viðeigandi ástríðu. Steinunn spilaði líka fyrr- nefnda lagið af skáldlegri dýpt, en ég saknaði skaphitans og snerp- unnar í því síðarnefnda. Arían „Una voce poco fa“ úr Rakaranum í Sevilla eftir Rossini hefði sömuleiðis komið betur út ef hún hefði verið studd öfgafyllri pí- anóleik, en annað var hins vegar frábært, bæði hjá Steinunni og Diddú. „Casta Diva“ úr Normu eftir Bellini var t.d. einstaklega fögur og lokaatriði tónleikanna, arían fræga úr La Traviata eftir Verdi, sem Diddú hefur sungið við ýmis tækifæri í gegnum tíðina, var sérlega gríp- andi, enda spruttu áheyrendur á fætur og æptu af hrifningu. Óneitanlega var það glæstur endir á líf- legri dagskrá. Skemmti- kraftur af Guðs náð TÓNLIST Reykholtskirkja Sigrún Hjálmtýsdóttir og Steinunn Birna Ragnarsdóttir fluttu lög og aríur eftir Rossini, Bellini, Mozart, Verdi, Sigfús Einarsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Sigvalda Kaldalóns, Jón Ásgeirsson o.fl. Laugardagur 29. júlí. Söngtónleikar Morgunblaðið/Jim Smart Gagnrýnandi minnist þess ekki að hafa upplifað „Hjá lygnri móðu“ á sama hátt og í flutningi Diddúar og Steinunnar Birnu. Jónas Sen ÞAU leiðu mistök urðu í gagnrýni um myndlistarsýningu í Morg- unblaðinu í gær að rangt var farið með föðurnafn Dagrúnar Matthías- dóttur, en hún er annar eigenda DaLí-gallerísins á Akureyri. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Rangt farið með nafn SÝNINGIN „Sýn úr norðri“ er sum- arsýning listasafnsins í Uppsölum en það hefur í nokkur ár verið starf- rækt í sölum gömlu konungshall- arinnar þar í borg. Sýningin hófst í Norræna húsinu fyrir tveimur árum og er nú orðin farandsýning styrkt af Norræna menningarsjóðnum en í fyrra var hún í Alvar Aalto-safninu í Finnlandi. Nafnið „Sýn úr norðri“ undirstrikar það að listamennirnir sem standa að henni eiga sama bak- grunn frá norðurslóðum, en þeir skoða og túlka þrátt fyrir það heim- inn hver á sinn hátt. Listamennirnir eru allir með mikla reynslu af myndlistarstörfum og hafa tekið þátt í fjölmörgum listasýningum víðs vegar um heim- inn. Hinar íslensku Jóhanna Boga- dóttir og Valgerður Hauksdóttir eru með verk á sýningunni en aðrir þátttakendur eru Ulla Fries og Helmtrud Nyström frá Svíþjóð, Sonja Krohn frá Noregi ásamt Ullu Virta og Outi Heiskanen frá Finn- landi. Verkin á sýningunni eru unn- in með fjölbreyttri tækni og byggj- ast á persónulegri þróun hvers listamanns. Þar má finna málverk, innsetningar, skúlptúra og grafíkl- ist. Viku eftir opnun sýningarinnar í Svíþjóð opnuðu sömu listamenn sýn- ingu í Galleri Nordatlantens Brygge í Christianshavn í Kaup- mannahöfn. Hún er þar á 1. hæð í gömlu pakkhúsbyggingunni sem gerð hefur verið upp og hýsir meðal annars sendiráð Íslands. Sýningin var opnuð 17. júní og stendur til 17. júlí. Verk Jóhönnu og Valgerðar á „Sýn í norðri“ hafa fengið jákvæða umfjöllun í fjölmiðlum og í Uppsala Nya Tidning segir Cristian Karl- stamt t.d. „að innsetning með graf- íkverkum Valgerðar Hauksdóttur skapi heillandi heim þar sem grás- kalinn sé svo ríkur að maður sjái þar veröld í öllum litaskalanum“. Um verk Jóhönnu segir Karlstamt að „þar séu á ferð hin stóru málverk unnin með yfirþyrmandi öruggum kolórisma og djörfum vinnubrögð- um og að hið stóra form gefi henni tækifæri til að ná fram sterkri tján- ingu“. Sýningin í Uppsölum stendur til 27. ágúst. Myndlist | Íslenskir myndlistarmenn sýna verk unnin með fjölbreyttri tækni í Svíþjóð og Danmörku Frá norðri og túlka heiminn ólíkt Valgerður Hauksdóttir og Jóhanna Bogadóttir innan um verkin á sýningunni í Kaupmannahöfn. „MÉR finnst það mikill fengur fyrir skólann að Hreinn Friðfinnsson sé að vinna verk fyrir hann. Bæði feng- ur fyrir skólann og fyrir staðinn. Og ég vona, og á allt eins von á því, að þegar þetta verk verður komið hér upp þá muni fólk leggja leið sína hingað til að sjá þetta. Hreinn er vax- andi listamaður, hefur verið það lengi, hann er vel þekktur erlendis og hefur gert ýmsa merkilega hluti,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, fyrrv. skólameistari Menntaskólans á Ísa- firði. 28. júlí sl. undirrituðu hún og myndlistarmaðurinn Hreinn Frið- finnsson samkomulag um kaup skól- ans á útilistaverk- inu „Ljós“ eftir Hrein, eins og fram hefur komið í fréttum, en samningurinn var síðasta embætt- isverk Ólínu í starfi skólameist- ara. Hún lét af störfum 31. júlí. Verkið er sett upp í minningu Jóns Sigurðssonar og verður það afhent 1. desember nk. Ákaflega falleg tillaga Forsaga málsins er sú að fyrir nokkrum árum stofnuðu hjónin Marías Þ. Guðmundsson og Mál- fríður Finnsdóttir Minnisvarðasjóð Jóns Sigurðssonar og lögðu í sjóðinn eina milljón króna til þess að koma upp listaverki í minningu Jóns á lóð menntaskólans. Sjóðurinn var svo af- hentur skólanum til varðveislu. „Listskreytingasjóður ríkisins ákvað svo að styrkja verkið og samkvæmt hefð sjóðsins er mynduð ákveðin val- nefnd. Í þeirri nefnd var Ragnhildur Stefánsdóttir myndlistarmaður, en hún var formaður, Finnur Arnar Arnarson myndlistarmaður og ég,“ segir Ólína en þrír listamenn sendu inn tillögur að verkinu í lokuðu út- boði. „Tillagan hans Hreins varð svo fyrir valinu. Hún þótti ákaflega fal- leg. Til stendur að verkið verði þriggja og hálfs metra há ljóssúla. Inni í súlunni eru flúorlampar sem lýsa og svo er ljósinu endurvarpað, svona regnbogaljósi. Þessi súla mun standa á skólalóðinni og síðan verða einkunnarorð Jóns Sigurðssonar: Sómi Íslands, sverð þess og skjöldur, meitluð í stein á jörðinni í kringum súluna.“ Framfarahugur og framsýni Ólína segir að sér hafi strax fund- ist einhver galdur vera í tillögu Hreins. „Þetta heitir bara einfald- lega ljós. Það er ekkert meira sagt. Mér finnst þetta svo fallegt. Ljósið úr perunum er svokallað dagsljós eða heilsuljós, en þannig ljós hefur heilsufræðilega eiginleika, varnar gegn þunglyndi og veitir dagsbirtu yfir vetrartímann. Sú hugsun er líka til staðar í þessu.“ Og Ólínu finnst að það sé svo sannarlega við hæfi að reisa fallegan minnisvarða um Vest- firðinginn Jón Sigurðsson á lóð Menntaskólans á Ísafirði. „Hann skrifaði merka grein í „Ný félagsrit“ á sínum tíma þar sem hann talar í raun fyrir sömu hugmynd og fjöl- brautakerfið er kennt við þannig að hann tengist skólamálum á Íslandi. Hann er táknmynd fyrir framfara- hug og framsýni.“ Myndlist | Útilistaverk í minningu Jóns Sigurðssonar á Ísafirði eftir Hrein Friðfinnsson Ljóssúla og meitluð ein- kunnarorð Eftir Jón Gunnar Ólafsson jongunnar@mbl.is Hér má sjá nýlega innsetningu Hreins, Án titils (Diver) 2002. Ólína Þorvarðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.