Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 19 MINNSTAÐUR LANDIÐ Grundarfjörður | Helgi Berg Frið- þjófsson sigraði í fjallahjóla- brunkeppni sem fram fór í Grund- arfirði um helgina. Helgi er einnig Danmerkurmeistari í fjallabruni. Fjallahjólabrunkeppnin sem fram fór í fyrsta sinn á síðasta sumri á Jökulhálsi sem sérstakt norðurslóðaverkefni með tilstyrk Evrópusambandsins, var áformuð öðru sinni sl. laugardag en þegar til átti að taka voru forsvarsmenn Hjólreiðafélags Reykjavíkur ekki ánægðir með brautina og var því ákveðið að flytja hana í brekkurnar ofan við Grundarfjörð og þar sem leið þeirra lá fram hjá vatnstanki Grundfirðinga flaug einum kepp- enda í hug að kalla þetta Tankat- rylli. Þar fór hún svo fram kl. 14. sl laugardag með þátttöku 6 hjól- reiðakappa úr Hjólreiðafélagi Reykjavíkur sem sýndu snilld- artakta á hjólum sínum. Teymdu þeir hjól sín upp en brunuðu síðan niður tvær ferðir hver. Að sögn for- svarsmanna HSH, sem annaðist framkvæmd keppninnar í samvinnu við Hjólreiðafélagið og Héraðs- nefnd Snæfellinga, voru þátttak- endur ánægðir með brautina og var haft á orði að hafa hana á þessum slóðum árlega. Verðlaunaafhend- ing fór síðan fram á hátíðarsvæði niðri við höfn en þar stóð sem hæst bæjarhátíð Grundfirðinga „Á góðri stundu“. Milli ferða Keppendur þurftu að teyma hjól sín upp, áður en þeir brunuðu niður hlíðina. Danmerkurmeistarinn sigraði í fjalla- hjólabrunkeppni í Grundarfirði Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Selfoss | Sumarslátrun sauðfjár hófst í sláturhúsi Sláturfélags Suð- urlands á Selfossi í gær. Slátrað er 700 til 800 lömbum í þessari viku og fer kjötið beint á grillin hjá lands- mönnum um verslunarmannahelg- ina. Sumarslátrun hefst heldur fyrr en venjulega hjá sláturhúsi SS á Sel- fossi, að sögn Hermanns Árnasonar stöðvarstjóra. Er þetta eina slátur- húsið sem hefur slátrun þetta snemma, eins og venjulega. Slátrað verður í hverri viku, einn til tvo daga í senn, eftir því hvað býðst af lömb- um fram á haust. Hermann segir að óvenjumikill áhugi virðist hjá bændum fyrir sum- arslátrun og er bjartsýnn á verkefn- ið. Segir hann að það verð sem greitt er fyrir innleggið skipti þar mestu máli. Í þessari fyrstu viku eru greiddar 2300 kr. aukalega fyrir hvert 13 kílóa lamb. Sjálft grundvall- arverðið hefur ekki verið ákveðið. Mikil eftirspurn Á gær var verið að stilla vélarnar í sláturhúsinu og fyrstu lömbunum slátrað en aðalslátrunardagurinn er í dag. Hermanni sýndist í gær að lömbin væru ágætlega væn og hon- um fannst vera gott hljóð í bændum þrátt fyrir kuldatíð fyrr í sumar. Segir Hermann að það hafi bjargað að ekki hafi gert nein hrakveður. Lömbin koma frá bændum á öllu suðvesturhorninu, frá Borgarfirði og austur til Mýrdals. Þá segir Hermann að mikil eftir- spurn sé eftir kjötinu hjá verslunum. Telur hann að litlar birgðir lamba- kjöts kunni að skipta þar máli en þó öllu heldur hvað fyrsta slátrun komi á góðum tíma, rétt fyrir verslunar- mannahelgi. Lambakjötið fer til sölu í verslunum Nóatúns og Samkaupa- úrvals. Það verður komið í búðirnar fyrir hádegi á fimmtudag og bætir Hermann því við að ekki sé hægt að fá öllu betra kjöt á grillið. Nýtt lambakjöt á grillið fyrir helgi Morgunblaðið/Ásdís H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.