Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ein vinsælasta ferða-helgi sumarsins erframundan, sjálf
verslunarmannahelgin.
Verslunarmannahelgin
hefur sína kosti og galla
en flestum Íslendingum
þykir gott að fá þriggja
daga frí sem nýta má til
ferðalaga, útihátíða eða
aðeins til að slaka á heima-
fyrir. Þessi mikla ferða-
helgi hefur svo sem ekki
mikið breyst á undanförn-
um árum. Helst að fleiri
verslanir séu opnar á sjálf-
an frídag verslunar-
manna, en fátt er reyndar eftir
sem bendir til að mánudagurinn
sé tileinkaður verslunarmönnum,
sem vinna vart meira en þessa
helgi, alla vega á landsbyggðinni,
enda ekki gott að missa tekjur af
öllum þeim fjölda fólks sem legg-
ur leið sína út á land til þess eins
að njóta sín og lífsins – með til-
heyrandi þörf fyrir allrahanda
þjónustu.
Vinsældir frídagsins, og helgar-
innar, má rekja til þess að sjálfur
frídagur verslunarmanna leggst
við helgina og úr verður þriggja
daga samfellt frí fyrir flesta. Við
Íslendingar eigum ekki margar
þannig helgar og oft heyrast radd-
ir um að þeim ætti að fjölga yfir
sumartímann. Eins hafa í gegnum
árin heyrst hugmyndir um að
færa ætti verslunarmannahelgina
framar, svo t.a.m. minni hætta sé
á rigningu og leiðindaveðri, sem
oft fylgir fyrstu helginni í ágúst.
Buðust til að gefa starfsfólki
frídag til skemmtunar
Hugmyndin að frídeginum var
sótt til Danmerkur og var e.t.v.
fyrsti vísir að orlofi launafólks á
Íslandi en frídagur verslunar-
manna var fyrst haldinn hátíðleg-
ur hér á landi fimmtudaginn 13.
september 1894.
Þá hafði nýverið verið tilkynnt
að allir kaupmenn og verslunar-
stjórar stærri verslana í Reykja-
vík hefðu boðist til að gefa starfs-
mönnum sínum frídag til
skemmtunar. Verzlunarmanna-
félag Reykjavíkur (VR) sam-
þykkti að skipuleggja daginn til
þess að tryggja að hann yrði nýtt-
ur eins og til hans var stofnað.
Á vefsíðu VR má fræðast um
sögu frídags verslunarmanna. Þar
kemur fram að flestir verslunar-
menn í Reykjavík hafi tekið þátt í
hátíðahöldununum fyrstu árið
1894 en þá var safnast saman á
Lækjartorgi fyrir hádegi og geng-
ið fylktu liði undir fánum og lúðra-
þyt að Ártúnum við Elliðaár. Þar
voru haldnar ræður og unað við
söng, lúðraspil og skemmtiatriði í
skúraveðri. Deginum lauk síðan
með göngu til Reykjavíkur um
kvöldmatarleytið, með stuttu
stoppi á Lækjartorgi þar sem
dagurinn var hylltur í þeirri von
að menn sæjust aftur að ári.
Um fimm þúsund manns
á Þingvöllum
Fyrstu árin fögnuðu verslunar-
menn frídegi sínum í byrjun ágúst
en árið 1931 var breytt til og fyrsti
mánudagur í ágúst var valinn, en
það tengdist breytingu á sam-
þykkt um lokunartíma verslana.
Hátíðahöldin fóru yfirleitt fram í
Reykjavík en árið 1935 tók VR að
halda samkomu sína hátíðlega á
Þingvöllum og er talið að um fimm
þúsund manns hafi komið þar við.
Eftir síðari heimsstyrjöldina
hélt VR dansiböll á Hótel Borg en
árið 1947 hófust útisamkomur í
tilefni frídags verslunarmanna
aftur og þá í Tívolí. Smám saman
fékk helgin á sig það snið sem enn
ríkir, með skipulögðum útihátíð-
um, og byrjuðu ferðafélög og
ferðaskrifstofur að gangast fyrir
löngum helgarferðum, til dæmis í
Þórsmörk og Vaglaskóg. Í kjölfar-
ið varð mánudagurinn í reynd al-
mennur frídagur.
Skipulagðar samkomur VR
lögðust svo af árið 1957 en á und-
anförnum árum hefur félagið hins
vegar boðið félagsmönnum sínum
og fjölskyldum þeirra á hátíð í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Síðasta hátíð VR í Laugardalnum
var hins vegar haldin í fyrra en sá
siður hefur verið lagður af með til-
komu varasjóðs félagsins. Eins og
hann er uppbyggður hefur verið
ákveðið að hætta með skemmtanir
en um leið ná til fleiri félagsmanna
með því að leggja fjármunina inn
á þeirra varasjóð.
Snemma beygist krókurinn
Mikið hefur verið fjallað um
drykkju ungmenna á ýmsum bæj-
arhátíðum í sumar og eins og
flestir vita keyrir um þverbak í
neyslu áfengis og vímuefna um
helgina sem kemur. Áfengis-
drykkja hefur oft á tíðum skugga-
hliðar og fylgja ungmennum undir
áhrifum gjarnan mikil drykkju-
læti og sóðaskapur.
Í bók Árna Björnssonar, Sögu
daganna, kemur bersýnilega í ljós
að mikil drykkja hefur fylgt ung-
mennum í gegnum árin og marga
verslunarmannahelgina.
„Ungt fólk fór snemma að nýta
sér hina löngu helgi til útilegu í
nánd við dansleiki og þegar árið
1952 er kvartað yfir „óheyrilegri
ölvun og skrílsmennsku“ um
verslunarmannahelgi, einkum við
Hreðavatnsskála þar sem „ölmóð-
ur óspektalýður … framdi mikil
spell“.“
Fréttaskýring | Frídagur verslunarmanna
Vísir að orlofi
launafólks
Fátt eftir sem bendir til að frídagurinn sé
tileinkaður verslunarmönnum landsins
Hópur fólks um verslunarmannahelgi.
Helgi ferðalaga og
skemmtanahalds
Verslunarmannahelgin er
kennd við frídag verslunar-
manna, fyrsta mánudag í ágúst.
Sú dagsetning hefur haldist
óbreytt frá árinu 1934 en á rót að
rekja til þjóðhátíðarinnar 2.
ágúst 1874. Eftir síðari heims-
styrjöld varð frídagur versl-
unarmanna smám saman al-
mennur frídagur. Var helgin
mikið notuð til ferðalaga og
skemmtanahalds, og á sjöunda
áratugnum var farið að skipu-
leggja útihátíðir víða um land.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
SIGMUND Jóhannsson, skopmynda-
teiknari Morgunblaðsins, er farinn í
sumarleyfi og því hverfa skopmynd-
ir hans af síðum blaðsins næstu vik-
ur. Myndir hans birtast aftur á síð-
um Morgunblaðsins í september.
Sigmund í sumarfrí
ÞEIR SEM starfa við malbikun
hafa ekki verið öfundaðir í rign-
ingunum í sumar en nú þegar sól-
in skín sem aldrei fyrr má gera
ráð fyrir að útivinnan heilli ein-
hverja. Líklega hefur hitinn í gær
verið næsta óbærilegur fyrir þessa
vösku menn sem hér sjást að
störfum því þeir fækkuðu fötum
til að kæla sig.
Morgunblaðið/Golli
Í tómri tjöru
LIÐSMENN skákfélagsins Hróks-
ins lentu í hrakningum þegar þeir
sigldu frá Kulusuk til Tasiilaq á
þriðjudaginn þegar borgarísjakar
nánast lokuðu siglingaleiðinni inn í
höfnina. Hópurinn náði þó með
naumindum að komast í gegn en bát-
ur sem sigldi í kjölfar þeirra þurfti
frá að hverfa enda lokaðist sigl-
ingaleiðin eftir að liðsmenn Hróksins
náðu höfn.
Það hefur eflaust haft sitt að segja
að ísmaðurinn, Sigurður Pétursson,
var við stjórnvölinn á bátnum sem
var hinn nýi dráttarbátur hans, Þyt-
ur, frá Ísafirði. Ísmaðurinn er, eins
og nafnið gefur til kynna, ekki alls
ókunnugur aðstæðum sem þessum
og átti því ekki í miklum vandræðum
með að stýra bátnum fimlega fram
hjá hverjum borgarísjakanum á fæt-
ur öðrum. Þannig þræddi hann fram
hjá ísjökunum þar til hann að lokum
fann smugu inn í höfnina.
Kátu biskuparnir héldu þegar af
stað þegar höfnin opnaðist aftur
Ljósmyndari Morgunblaðsins var
með í för en um borð í bátnum voru
um 25 liðsmenn Hróksins. Að hans
sögn var engin augljós hætta á ferð-
um en mönnum þótti afar til-
komumikið að sigla svo nærri ísnum
með þessum hætti.
Liðsmenn Hróksins eru nú í sinni
fjórðu árlegu Grænlandsferð og
munu þeir efna til margra viðburða á
austurströnd Grænlands, bæði fyrir
börn og fullorðna. Hrakningar þeirra
á leið til Tasiilaq setja þar ekkert
strik í reikninginn og hugaðir liðs-
menn Kátu biskupanna frá Hafn-
arfirði héldu þegar af stað frá Tasiil-
aq til nærliggjandi þorpa þegar
höfnin opnaðist aftur í gærmorgun.
Þeir munu meðal annars halda
þriggja daga hátíð í Kuummiit, 300
manna þorpi í grennd við Tasiilaq, og
verða þrjú þorp til viðbótar heimsótt
þar sem slegið verður upp hátíðum
fyrir börn.
Liðsmenn Hróksins lentu í hrakningum á leið sinni til Tasiilaq
Borgarísjakar nánast
lokuðu leiðinni inn í höfnina
Morgunblaðið/Ómar
Hróksmenn fylgjast spenntir með ísjökunum sem Sigurður ísmaður þræddi
framhjá af miklu öryggi. Hópurinn náði með naumindum að komast í gegn.
Sigurður Pétursson sigldi gegnum ísbreiðuna á dráttarbátnum Þyt sem hann er nýbúinn að sækja til Ísafjarðar.
ALLT tiltækt slökkvilið var sent að
Kársnesbraut í Kópavogi um átta-
leytið í gærkvöldi eftir að tilkynning
barst um eld í húsi við götuna. Húsið
sem um ræðir er fjölbýlishús með
verslunum á neðri hæðum. Hluti
hússins hafði þegar verið rýmdur er
slökkvilið kom á staðinn en þá kom í
ljós að eldurinn reyndist minni en
talið var í fyrstu. Var rýmingu íbúða
þá hætt. Um var að ræða eld í
gluggakarmi í íbúð á efstu hæð húss-
ins og urðu skemmdir á karminum
en annars mun íbúðin að mestu vera
óskemmd. Íbúðin stendur auð og er
talið líklegt að um íkveikju hafi ver-
ið að ræða, en málið er í rannsókn.
Eldur í húsi á
Kársnesbraut