Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 43
og litið er inn í hugarheim almúgamanns á 17. öld og fylgst með hvernig er hægt að gera morgundaginn lítið eitt bærilegri en gærdaginn. Opið alla daga kl. 12–18 til 31. ágúst. Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn | Sýning í Þjóðarbókhlöðu. Myrkraverk og misindismenn. Reykjavík í íslenskum glæpasögum. Ritað í Voðir er sýning Gerðar Guðmunds- dóttur. Gerður safnar bókstöfum úr ís- lenskum handritum svo og laufblöðum haustsins, þrykkir á síður og býr til hand- rit og bækur. Safnið er opið virka daga kl. 9–17, laugardaga kl. 10–14. Sýning á teikningum Halldórs Bald- urssonar byggðar á Vetrarborginni eftir Arnald Indriðason. Teikningar Halldórs eru til sölu. Opið mán.–fösd. kl. 9–17, laugard. kl. 10–14. Laufás | Kvöldvaka í Gamla bænum. Har- aldur Þór Egilsson safnkennari Minja- safnsins á Akureyri, flytur erindi 3. ágúst kl. 20.30. Opið er til 22 í Gamla bænum og veitingasalnum í Gamla prestshúsinu þetta kvöld. Allir velkomnir. Minjasafnið á Akureyri | Gönguferð með leiðsögn um fornleifauppgröftinn á Gás- um. Gengið frá bílastæðinu við Gáseyrina 3. ágúst kl. 20. Þátttaka í göngunni kostar 300 krónur. www.gasir.is og www.akmus.is Minjasafnið á Akureyri | Sumarsýning. Ef þú giftist? Brúðkaupssiðir fyrr og nú. Ef þú giftist fjallar um brúðkaup og brúð- kaupssiði í gegnum tíðina. Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Ís- lands og er opin alla daga milli 10 og 17. Til 15. sept. Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum fjölda leikmynda sem segja söguna frá landnámi til 1550. ww.sagamuseum.is Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn – uppstoppuð veiðidýr ásamt veiðitengdum munum, ísl. og erlend skotvopn o.fl. Opið alla daga 11–18. Sjá nánar á www.hunting.is Víkin–Sjóminjasafnið | „Togarar í 100 ár“. Sýningunni er ætlað að veita innsýn í sögu togaraútgerðar og draga fram áhrif henn- ar á samfélagið. „Úr ranni forfeðranna“ er sýning á minjasafni Hinriks Bjarnasonar og Kolfinnu Bjarnadóttur. Boðið upp á kaffi. Þjóðmenningarhúsið | Íslensk tískuhönn- un sýnir fjölbreytnina í tískugeiranum og Í spegli Íslands, um skrif erlendra manna um Ísland og Íslendinga fyrr á öldum. Auk þess helstu handrit þjóðarinnar á hand- ritasýningunni og Fyrirheitna landið. Skemmtanir Hressó | Hljómsveitin Bermuda verður með húkkaraball 3. ágúst kl. 22. Uppákomur Laufás | Markaðsstemming í þjóðlegu um- hverfi 7. ágúst kl. 13.30–14. Handverk, matvara og lifandi tónlist. Veitingar í Gamla prestshúsinu opið kl. 9–18. Minjasafnið á Akureyri | Gengið verður frá Laxdalshúsi, Hafnarstræti 11, 5. ágúst kl. 14. Gangan tekur um eina og hálfa klukkustund. Þátttaka í göngunni er ókeypis. Leiðsögumaður: Hörður Geirsson, safnvörður á Minjasafninu á Akureyri. Fyrirlestrar og fundir Garðyrkjufélag Íslands | Garðaganga verður í Garðabæ í kvöld. Gengið verður undir leiðsögn Sigurðar Þórðarsonar verk- fræðings og frv. varaformanns Garðyrkju- félagsins. Mæting er við Fjölbrautaskóla Garðabæjar kl 20. Krabbameinsfélagið | Góðir hálsar, stuðn- ingshópur um krabbamein í blöðruháls- kirtli, verða með rabbfund í húsi Krabba- meinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík, 2. ágúst kl. 17. Fréttir og tilkynningar Ferðaklúbbur eldri borgara | 15. ágúst Fjallabaksleið syðri: Hvanngil – Emstrur – Fljótshlíð 17. til 21 ágúst: Sprengisandur – Hljóðaklettar – Raufarhöfn – Langanes – Dettifoss – Kjölur: Allir eldri borgarar vel- komnir. 16 ára reynsla. Upplýsingar hjá Hannesi í síma 892 3011. Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið á móti matvælum, fatnaði og leikföngum á mið- vikudögum kl. 13–17. Úthlutun matvæla sama dag kl. 15–17 að Eskihlíð 2– 4 v/ Miklatorg. Þeir sem vilja styðja starfið fjárhagslega, geta lagt inn á reikning 101- 26-66090 kt. 660903-2590. GA- fundir | Ef spilafíkn er að hrjá þig eða þína aðstandendur er hægt að hringja í síma: 698 3888 og fá hjálp. Frístundir og námskeið Árbæjarsafn | Boðið er upp á örnámskeið tengd sýningunni „Diskó & pönk – ólíkir straumar?“ Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 7–12 ára. Hvert námskeið stendur í 3 klukkustundir og verða nokkur undirstöðuatriði í pönk–tónlist og diskó- dansi kennd. Nánari upplýsingar og skrán- ing í síma 411 6320. Útivist og íþróttir Grasagarður Reykjavíkur | Fræðsluganga um garðtré og runna verður í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal 3. ágúst kl. 20. Vernharður Gunnarsson garðplöntufram- leiðandi mun leiða gönguna. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 43 DAGBÓK Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Gullni hringurinn. 9. ágúst verður ekið um Þingvöll að Gullfossi, þaðan að Geysi og áfram að Faxa í Tungufljót. Ekið til baka um Grímsnesið. Leiðsögumaður er Eirík- ur Einarsson. Brottför kl. 12.30. Verð: kr. 3.000, skráning á Aflaganda 40 eða í s: 411 2700. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, hárgreiðsla, fótaaðgerð, spila- dagur, dagblöðin liggja frammi. Dalbraut 18–20 | Bridge mánudag kl. 14. Félagsvist þriðjudag kl. 14. Bón- us miðvikudag kl. 14. Hádegisverður og síðdegiskaffi. Uppl. um sum- arferðir í síma 588 9533. Félag eldri borgara Kópavogi | Ferð FEBK um Fjallabaksleið syðri 10. ágúst. Brottför frá Gullsmára kl. 8 og Gjábakka kl. 8.15. Leið: Keldur - Lauf- afell - Álftavatn -Hvanngil - Mark- arfljótsgljúfur - Emstrur - Fljótshlíð. Kvöldmatur á Hótel Örk í Hveragerði. Skráningarlistar í félagsmiðstöðv- unum. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinnustofan opin. Félagsvist kl. 13, bobb kl. 17. Félagsstarf Gerðubergs | Vegna sumarleyfa starfsfólks fellur starf- semi og þjónusta niður til þriðjud. 15. ágúst. Sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug, sími 557 5547, eru á mánud. kl. 10.30 og miðvikud. kl. 9.30. Strætisvagnar S4, 12 og 17. wwwgerduberg.is. Geðhjálp | Sjálfshjálparhópur fyrir fólk sem glímir við félagsfælni kemur saman öll miðvikudagskvöld í húsi Geðhjálpar að Túngötu 7 í Reykjavík. Hópurinn er öllum opinn. Sjá: www.gedhjalp.is Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöðin. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13 brids. Kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9, pílukast kl. 13.30. Hvassaleiti 56–58 | Böðun fyrir há- degi og hádegisverður kl. 11.30. Hár- snyrting 517 3005/ 849 8029. Hæðargarður 31 | Listasmiðjan opin. Félagsvist mánud. kl. 13.30. Frjáls spil miðvikudag kl. 13.30. Guðnýjarganga kl. 10 þriðjudag og fimmtudag. Gönu- hlaup föstudag kl. 9.30. Út í bláinn laugardag kl. 10. Púttvöllur opinn. Sumarferð 15. ágúst. Nánari upplýs- ingar 568 3132. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9–12 aðstoð v/ böðun, kl. 10–12 sund, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 12.15–14 versl- unarferð í Bónus, Holtagörðum. Kl. 13–14 videó /spurt og spjallað, kl. 14.30-–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9–12.30, morgunstund 10–11, hand- mennt alm. kl. 11–15.00, kóræfing kl. 13, söngur og dans kl. 14, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnar. Kirkjustarf Bessastaðasókn | Foreldramorgnar í Haukshúsum hefjast aftur í dag kl. 10–12. Allir foreldrar ungra barna á Álftanesi velkomnir. Púttæfingar eldri borgara á Álftanesi eru á púttvell- inum við Haukshús kl. 13–15, kaffiveit- ingar að loknum æfingum. Dómkirkjan | Bænastund kl. 12.10 –12.30, hádegisverður á kirkjuloftinu á eftir. Bænarefnum veitt móttaka í síma 520 9700 eða domkirkj- an@domkirkjan.is Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8 árdegis. Íhugun, altarisganga. Morg- unverður í safnaðarsal eftir messuna. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bænasamvera kl. 12. Kristniboðssalurinn | Samkoma í Kristniboðssalnum 2. ágúst kl. 20. Ræðumaður er Miriam Óskarsdóttir, kaffiveitingar eftir samkomuna. Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Beð- ið fyrir sjúkum og hverjum þeim sem þurfa á fyrirbæn að halda. Alt- arisganga. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is MENNING Í REYKHOLTI, þar sem Snorri Sturluson bjó, er haldin alþjóðleg kammerhátíð á hverju sumri. Há- tíðin í ár er sú tíunda og voru upp- hafstónleikarnir helgaðir Mozart. Hópur strengjaleikara sem kalla sig Virtuosi di Praga flutti fyrst Divertimento í B-dúr KV 137 og síðan Adagio & fúgu KV XXX. Leikur sveitarinnar var hressileg- ur og margt í verkunum var skemmtilega spilað. Stundum var flutningurinn þó heldur glanna- legur; menúettinn í lok fyrri tón- smíðarinnar hljómaði t.d. eins og sveitin væri að flýta sér og virkaði það ósannfærandi. Fúgan í lok þeirrar síðari var ekki heldur nægilega vel spiluð; neðri radd- irnar voru óhreinar og skemmdi það heildarhljóminn. Sem betur fer lagaðist hljóð- færaleikurinn er á leið tónleikana. Næturserenaða KV 239, sem var síðasta atriði tónleikanna, var yf- irleitt spiluð af nákvæmni þótt maður saknaði óneitanlega fág- unarinnar og heiðríkjunnar sem einkennir tónlist Mozarts. En sjálfsagt er það að einhverju leyti smekksatriði hvernig á að túlka hana. Sigrún Hjálmtýsdóttir söng konsertaríuna Exultate Jubilate með Virtuosi di Praga og gerði það ákaflega vel. Rödd hennar var í senn silkimjúk, kraftmikil og tær. Og sónata í e-moll KV 304 í flutningi þeirrar Auðar Hafsteins- dóttur fiðluleikara og Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur, píanóleikara og listræns stjórnanda hátíð- arinnar, var himnesk; túlkunin var blæbrigðarík og tilfinningaþrung- in. Tónlist Mozarts er vand- meðfarin vegna þess hve „míní- malísk“ hún er; hún segir ótalmargt í fáum dráttum, sem þýðir að feilnótur verða meira áberandi en ella. Þær Auður og Steinunn voru hinsvegar með allt sitt á hreinu og var sérstakur un- aður að hlýða á fókuseraðan fiðlu- tóninn sem skilaði skáldskapnum í tónlistinni fullkomlega til áheyr- enda. Sömu sögu er að segja um strengjadúó í G-dúr KV 423 í túlk- un þeirra Auðar og Þórunnar Ósk- ar Marinósdóttur víóluleikara. Hafi ég ekki sagt það áður þá geri ég það núna: Þær Auður og Þór- unn Ósk eru með bestu strengja- leikurum sem við eigum. Leikur þeirra var frábær, þetta viðkvæma verk var sérlega fallegt í með- förum þeirra og var útkoman ein- staklega hrífandi. Bravó! Himneskur Mozart TÓNLIST Reykholtskirkja Tónlist eftir Mozart. Flytjendur: Virtuosi di Praga, Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Auður Hafsteins- dóttir og Þórunn Ósk Marinósdóttir. Föstudagur 28. júlí. Kammertónleikar Jónas Sen Morgunblaðið/Golli „Þær Auður og Þórunn Ósk eru með bestu strengjaleikurum sem við eig- um. Leikur þeirra var frábær,“ er meðal þess sem segir í gagnrýninni um tónleika í Reykholtskirkju. FIÐLUKONSERTARNIR fjórir sem Antonio Vivaldi samdi ein- hvern tíma á fyrsta fjórðungi 18. aldar undir samheitinu Le Quattro Stagioni hafa nú í nærri öld til- heyrt vinsælustu klassísku verkum heims. Síðan 1950 hafa mismunandi plötuútgáfur skipt tugum ef ekki hundruðum, og þykir dæmigert að Árstíðirnar fyrirfinnast jafnvel á heimilum þar sem annars má telja klassískar plötur á fingrum ann- arrar handar. Það er því kannski skiljanlegt ef lengra komnum tónlistarunnendum þykir slíkar ofurvinsældir jaðra við útjöskun ef ekki verra. Að ekki sé minnzt á atvinnuflytjendur, er eftir lauslegum heimildum að dæma virðast aðeins hafa fært upp verkið einu sinni eða tvisvar eftir fyrri flutning Bachsveitarinnar í Skál- holti 1990 undir forystu Ann Wallström. Furðusjaldan, skyldi maður ætla, fyrir verk er nýtur meiri lýðhylli en Fimmta sinfónía Beethovens. Um ástæður dettur manni helzt í hug að þegar jafnvíðþekkt verk á í hlut, þyki varla duga minna en að geta lagt eitthvað verulega nýtt til málanna. Sem auðvitað útheimtir dýpri heimildaþekkingu og jafn- framt frumlegri nálgun en tími og ráðrúm leyfa í okkar takmarkaða tónlistarlífi þar sem kalla má kraftaverk að kammerflytjendur fáist yfirleitt til að æfa vikum sam- an dagskrá undir aðeins eina fram- komu. Virtist sú tilgáta eiga vel við fimmtudagstónleikana. Það var nefnilega engin spurning, að þrátt fyrir að hafa heyrt Árstíðirnar í fjölmörgum ólíkum hljóm- plötuútgáfum fékk ég hér að upp- lifa konsertana í það ferskum og persónulegum búningi að það var nánast eins og að skreppa aftur um 40 ár og kynnast þeim í allra fyrsta sinn. Æra myndi óstöðugan að tíunda í smáatriðum hið geysibreiða litróf sem einkenndi túlkun Katiar De- bretzeni og samleikara hennar á þessum sem betur fór fjölsóttu tón- leikum. Hugmyndaauðginni virtust engin takmörk sett, og teygði hún sig víða talsvert út fyrir stöðluð mörk „sagnréttrar“ upphafshyggju, jafnvel þótt almennt væri spilað undir þeim formerkjum. Hvað myndu HIP („historically informed performance“) gúrúar t.a.m. segja við smellandi Bartók-pizzicato skot- hvellunum í dýraveiðilýsingum Haustsins? Eða gætu sömu post- ular ekki eins fett véfengjandi vísi- fingur út í kaldglerjaðan sul ponti- cello ísingarhéla Vetrarins – svo aðeins tvö dæmi séu nefnd? Mér stóð innilega á sama um það. Öllu skipti að bráðheillandi innlifunin var gegnmúsíkölsk og sannfærandi fram í fingurgóma. Ásamt eisufrussandi hrynskerpu og ótrúlegri styrkvídd, sem sízt væri ætlandi aðeins sex manna strengja- sveit auk einleikara og sembals, var auðheyrt að hér fór túlkun sem sjaldan þessu vant sagði manni eitthvað nýtt og viðkomandi um þriggja alda gamla tónlist. Ýmist á kampakátum Breughelskum þjóð- lífsnótum, fínlega ljóðrænu svifi eða við fítonsmagnaðan veðurofsa. Enda var hefðbundið klappbann Skálholtskirkju ósjálfrátt rofið að leikslokum – og það af ærnu tilefni. Vivaldi í nýju ljósi TÓNLIST Skálholtskirkja Vivaldi: Árstíðirnar. Bachsveitin í Skál- holti. Einleikari og leiðari: Kati De- bretzeni. Fimmtudaginn 27. júlí. Sumartónleikar í Skálholti Bachsveitin í Skálholti leikur Árstíðirnar fjórar eftir Vivaldi. Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.