Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 11 FRÉTTIR SAMNINGAR Hveragerðisbæjar og byggingarfélagsins Eyktar ehf. standa og verða ekki felldir úr gildi að því er fram kemur í úr- skurði félagsmálaráðuneytisins um kæru sem fyrrverandi minnihluti bæjarstjórnar lagði fram. Í samningunum, sem bæjar- stjórn Hveragerðisbæjar sam- þykkti í febrúar, var Eykt ehf. veitt heimild til að byggja 800–900 íbúðir á um 80 hektara svæði aust- an Varmár en svæðið er í eigu Hveragerðisbæjar. Á svæðinu á að rísa nýtt hverfi á árunum 2006–2018 með íbúðum og atvinnuhúsnæði og er áætlað að hið nýja hverfi muni tvöfalda íbúa- fjölda bæjarins. Í kærunni sem lögð var fram í mars var þess krafist að samning- urinn yrði ógiltur þar sem hann bryti í bága við rannsóknarreglu og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga auk þess sem hann gengi gegn 65. grein sveitarstjórnarlaga, þar sem kveðið er á um að álit sérfróðs að- ila verði að liggja fyrir áður en sveitarstjórn staðfesti langtíma- samninga um framkvæmdir. Þetta álit var unnið af Orra Hlöðvers- syni, þáverandi bæjarstjóra Hveragerðisbæjar. Sjálfstæðis- menn töldu ennfremur að ómál- efnalegt hefði verið af fyrrverandi minnihluta að líta framhjá hag- stæðari tilboðum sem bárust. Í niðurstöðu ráðuneytisins segir að heimildir sveitastjórna til samn- inga sem þessara séu rúmar og að- eins bein brot gegn reglum stjórn- sýsluréttarins geti réttlætt ógildingu þeirra. Þá var tekið fram að samningarnir hefðu ekki verið útboðsskyldir en að í ýmsum til- fellum gæti það þó verið eðlilegra og til marks um vandaða stjórn- sýsluhætti að láta fara fram útboð til að fá hagstæðari kjör. Það hafi þó ekki verið skylt í þessu tilviki. Varðandi meint brot á rannsókn- arreglu stjórnsýslulaganna sagði ráðuneytið að mat sveitarstjórnar á því að Eykt ehf. væri traust og burðugt fyrirtæki sem hefði tök á að vinna verkið yrði ekki véfengt enda væri um málefnalegt sjón- armið að ræða. Gífurlega viðamikill samningur Þá segir ráðuneytið í úrskurði sínum að þess verði að gæta að samningurinn við Eykt sé óvenju- legur að ýmsu leyti, hann sé bæði gífurlega viðamikill og flókinn þar sem gera hafi mátt ráð fyrir löngu og kostnaðarsömu samningaferli auk þess sem nauðsynlegt geti ver- ið að gæta trúnaðar um efni við- ræðna. „Í ljósi þessara aðstæðna verður að ætla sveitarfélaginu um- talsvert svigrúm við val á samn- ingsaðila,“ segir í úrskurðinum. Ráðuneytið fellst á það sjónar- mið fyrrverandi meirihlutans að Orri Hlöðversson, fyrrverandi bæjarstjóri Hveragerðis, geti flokkast sem sérfróður aðili í skiln- ingi sveitarstjórnarlaganna. Meg- intilgang slíks álits telur ráðuneyt- ið vera að auðvelda kjörnum fulltrúum ákvarðanatöku í flóknum málum og því þurfi álitið að inni- halda upplýsingar um áhrif hinna umdeildu samninga fyrir sveitarfé- lagið. Telur ráðuneytið að þessi skilyrði hafi verið uppfyllt með áliti Orra. Félagsmálaráðuneytið úrskurðar um kæru sjálfstæðismanna í Hveragerði vegna umdeildra samninga Samningar bæjarins við Eykt standa Morgunblaðið/Margrét Í úrskurði félagsmálaráðuneytisins kemur fram að samningaferlið hafi verið flókið og viðamikið og veita þurfi sveitarfélaginu nokkuð svigrúm. Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is Um 800–900 íbúðir verða reistar á 12 árum og fjöldi íbúa mun tvöfaldast ALDÍS Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, er afar óhress með úrskurð ráðuneytisins og segir að í honum felist að sveitarfélög geti í raun farið með fjármuni borg- aranna að vild og eftirlitsákvæði sveitarstjórnarlaganna séu næsta gagnslaus. „Það sem aðrir sveitarstjórn- armenn geta lært af þessu er að það er engin eftirlitsskylda með sveit- arfélögum í landinu. Sveitarstjórn- arlögin eru götótt og gagnslaus til að gegna eftirliti með sveitarstjórn- armönnum,“ segir Aldís og bætir við að ráðuneytið túlki mjög rúmt heimildir sveitarstjórnarmanna til pólitískrar ákvarðanatöku. Sjálfstæðismenn gagnrýndu mjög túlkun á 65. grein sveitarstjórn- arlaga en þar segir að afla skuli álits sérfróðs að- ila áður en sveit- arfélag staðfesti samninga um framkvæmdir eða þjónustu við íbúa sveitarfé- lagsins sem gilda eigi til langs tíma og hafi í för með sér verulegar skuldbindingar fyrir sveitarsjóð. Þetta álit segir Aldís að bæjarstjórinn sjálfur hafi lagt fram og það telji ráðuneytið vera full- nægjandi framkvæmd á ákvæðinu. Hún segir það nánast óþekkt að sveitarfélög geri samning af þessari stærðargráðu og bendir á að bær- inn þurfi að leggja fram sjálfur á bilinu 1–2 milljarða vegna gatna- gerðar og uppbyggingar skóla og íþróttamannvirkja. Aldrei hafi legið fyrir mat á því hve verðmætt landið sé og þrátt fyrir að aðrir aðilar hafi stigið fram og gert betra tilboð hafi ekki verið orðið við því. Aðspurð um framhaldið segir Al- dís að bæjarstjórnin eigi eftir að fara yfir það. „Ein leiðin sem við höfum er að höfða ógildingarmál fyrir dómstólum en það er mjög dýrt og stórt skref að stíga þannig að það á eftir að setjast betur yfir það. Hin leiðin er að setjast niður með Eyktarmönnum og ræða við þá. Hitt er alveg ljóst að stjórnsýsl- an er búin að klára þetta fyrir sitt leyti.“ „Lögin eru götótt og gagnslaus“ Aldís Hafsteinsdóttir ÞORSTEINN Hjartarson, odd- viti minnihlutans í Hveragerði, segist fagna úr- skurði félags- málaráðuneyt- isins um samninga bæj- arfélagsins við Eykt ehf. og líta svo á að um mik- inn sigur sé að ræða í þessu stóra máli. Þorsteinn var í meirihluta á síð- asta kjörtímabili þegar samning- arnir voru samþykktir og segir hann að framtíðarhagsmunir Hveragerðis og íbúa bæjarins hafi verið hafðir að leiðarljósi. „Enda kemur fram að þessir samningar við Eykt ehf. séu álitnir vænlegur kostur fyrir bæj- arfélagið,“ segir Þorsteinn. Hann segist ekki vita hvort meiri- hlutinn hafi í hyggju að láta á málið reyna fyrir dómstólum en kveðst vona að hann einbeiti sér frekar að uppbyggingu bæjarfélagsins. „Ég vona svo sannarlega að nú- verandi meirihluti vinni í anda þessa samnings og haldi áfram að byggja upp Hveragerði til framtíðar. Við munum styðja þetta mál áfram eins og við höfum gert og vonandi munu sjálfstæðismenn vinna áfram með okkur að því að byggja upp þetta skemmtilega landsvæði,“ segir Þor- steinn. Mikill sigur Þorsteinn Hjartarson Eftir Jóhann Magnús Jóhannsson johaj@mbl.is LANGSTÆRSTUR hluti þeirra unglinga sem höfð voru afskipti af vegna neyslu áfengis eða vímuefna á útihátíðum í Galtalæk um versl- unarmannahelgi sl. tvö ár var ekki í fylgd með foreldrum, heldur í um- sjón annarra. Um 5% þeirra sem höfð voru afskipti af voru í fylgd með foreldrum en 95% í fylgd með öðrum. Þetta er niðurstaða skýrslu um útkomu útihátíðar í Galtalæk sl. þrjú ár. Skýrslan var unnin af Sig- urði Erlingssyni og Bjarna Jóns- syni, gæslustjórum á hátíðunum ár- in 2004 og 2005. Einstaklingum undir 16 ára aldri, sem ekki voru í fylgd með for- eldrum, var ekki hleypt inn á svæð- ið nema í fylgd með ábyrgð- armanni. Algengt var að ábyrgðarmenn kæmu úr hópi eldri vina, vina foreldra eða venslafólks. Þrátt fyrir að algengt sé að for- eldrar feli umsjón barna sinna í hendur annarra á útihátíðum segir Sigurður að fleiri séu í fylgd með foreldrum en ábyrgðarmönnum, í það minnsta í Galtalæk. „Það verður að stíga fram og taka á þessum málum. Það verður að vera framþróun á þessu sviði eins og öðrum, ekki má bara stinga höfðinu í sandinn og vona það besta,“ segir í skýrslunni. Hægt að halda útihátíð Í skýrslunni segir að mikil um- ræða sé í gangi um útihátíðir á þessum tíma árs og hún sé oftar en ekki á neikvæðum nótum. Við jaðri að ástandið sé einfaldlega við- urkennt, vegna þess að ógerlegt sé að lagfæra það. Skýrsluhöfundar eru ekki sammála því. „Við höfum sýnt fram á að hægt er að fá svona hluti til að virka. Þetta er bara nákvæmlega eins og annað, ef þú keyrir það eftir ákveðnu formi og fyrirframskil- greindum reglum eru meiri líkur á að þú fáir góða niðurstöðu,“ segir Sigurður, en þeir Bjarni gerðu verkefnahandbók þar sem umgjörð um mótahald er skilgreind og tekið á verkferlum sem nauðsynlegt er að séu í lagi. Unnu þeir eftir kerfinu í verk- efnahandbókinni undanfarin tvö ár og í skýrslunni er að finna sam- anburð við árið 2003, árið áður en kerfið var tekið í notkun. Öll árin var fjöldi mótsgesta mjög svipaður, um 3.500 manns, og því sam- anburður milli áranna hægur. Til að mynda voru skoðaðar heimsóknir í sjúkragæslu, í flestum tilfellum mjög smávægileg erindi, en að mati skýrsluhöfunda gæti það gefið nokkra vísbendingu um ástand mótsgesta. Árið 2003 voru heimsóknir í sjúkratjald 760, árið eftir voru þær 480 og í fyrra voru þær 115 talsins. Magn áfengis sem gert var upptækt á svæðinu jókst á milli ára á sama tímabili og skýrsluhöfundar gera því skóna að minna áfengismagn inni á svæðinu hafi haft áhrif í þá átt að minna væri um slys og önnur vandamál. Samkvæmt bókinni Sigurður og Bjarni hafa að baki fjórtán ára reynslu af gæslustarfi en hyggjast að þessu sinni taka sér frí frá gæslustjórnun í Galtalæk og að sögn Sigurðar verður gæslu á svæðinu um verslunarmannahelg- ina stjórnað af björgunarsveitinni Ársæli. Björgunarsveitin vinnur samkvæmt verkefnahandbókinni og því er vonandi, að sögn Sig- urðar, að framhald verði á þróun undanfarinna ára. Börn og unglingar í fylgd með foreldrum á útihátíðum byrja síður að neyta áfengis eða vímuefna „Ekki hægt að stinga höfðinu í sandinn“ Morgunblaðið/Kristinn Um 3.500 manns hafa ár hvert sótt útihátíð í Galtalæk um verslunarmannahelgina sl. 3 ár. Frá hátíðinni árið 2003.       *  +$   !$    ,  -$ " .  %      

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.