Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 13 ÚR VERINU Vökvadælur Vökvamótorar Stjórnbúnaður Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf Fagmennska í fFagmennska í fyrirrúmi VEL hefur gengið á aflakvóta al- gengustu fiskveiðitegunda og er út- litið nokkuð bjart, nú þegar tæpur mánuður er eftir af fiskveiðiárinu. Aðeins 8% þorskkvótans eru óveidd og útlit fyrir að stóru skipin nái að nýta sér heimildir sínar til hins ýtr- asta. Krókabátarnir eiga þó talsvert eftir óveitt af þorski, eða um 2000 tonn. Vilhjálmur Ólafsson, sölumað- ur aflaheimilda hjá Viðskiptahúsinu, segir áhyggjurnar einna mestar varðandi þorskinn í litla kerfinu, enda sé ágústmánuður oft og tíðum ekki jafndrjúgur og aðrir mánuðir sökum sumarfría í tengslum við verslunarmannahelgina. Hann segir að hundruð tonna geti „brunnið inni“ ef veiði verði slæm og menn haldi ekki rétt á spilunum. Ýsan á góðu róli Vilhjálmur segir að ýsan, sem oft hafi verið ansi „krítísk“ á þessum tíma árs, sé nú á mjög góðu róli. Um 5000 tonn eru óveidd af ýsu í stóra kerfinu og útlit fyrir að menn nái að nýta allan kvóta. Vilhjálmur telur að trilluveiðimenn hafi dregið skipin í stóra kerfinu á land að því er ýsuna varðar þar sem þau hafi leigt mikinn kvóta af þeim stóru. Að mati Vil- hjálms ætti að íhuga alvarlega að opna leiðina í hina áttina, þ.e. að eig- endum stærri skipa verði gert kleift að leigja kvóta frá minni skipum. Með þessu mætti auka jafnvægi kerfisins og koma í veg fyrir að krókabátaeigendur brenni inni með kvótann, líkt og gerðist með steinbít- inn fyrir ekki alls svo löngu. Saxast á skötusel og humar- vertíðin gríðarlega góð Hvað varðar aðrar tegundir telur Vilhjálmur útlitið gott. Veiðar á skötusel hafi gengið vel að undanförnu og því ekki útlit fyrir að menn brenni inni með kvóta þar eins og útlit hafi verið fyrir á tímabili. „Þeir sem gera út á skötusel hafa verið að demba miklu magni af net- um í sjóinn og það er að saxast mjög hressilega á skötuselinn. Ég hef eng- ar áhyggjur af vandamálum þar, enda hörkukarlar sem stunda veiðar á skötusel,“ segir Vilhjálmur. Ýmislegt annað merkilegt kemur fram í heildaraflamarksstöðutölum Fiskistofu. Þar ber sennilega hæst hversu vel humarveiðar hafa gengið. Slegist er um hvert kíló af humri og sárálítið er eftir af kvótanum. „Þetta er þrusuvertíð hjá þeim sem stunda humarveiðar,“ segir Vilhjálmur að lokum. Kvótinn að klárast þegar mánuður er eftir af kvótaárinu Þorskkvóti gæti „brunn- ið inni“ í litla kerfinu         2.   !  3    $%+   4 6  "#  % '(%)  %  /  "#  % '(%)  % $ & !  "#  % '(%)  %  $ $  "#  % '(%) %  7 $ "#  % '(%)  % ,  !" "#  % '(%)  %  1  "#  % '(%)  %  8 !  "#  % '(%) %  $  "#  % '(%)  %  9  "#  % '(%)  %  $(   "#  % '(%) % :  -$ "#  % '(%)  %  * # "#$ % '(% % 7 $$% !  "#  % '(%) %   „VERÐIÐ sem Grímseyingarnir fá fyrir kvóta sinn við söluna til Sand- gerðis virðist vera um 200 krónum á kíló yfir markaðsvirði í litla kerfinu. Það virðist vera nánast það sama og í því stóra. Mér finnst einkennilegt að bankarnir séu tilbúnir til að fjár- magna kvótakaup á svo háu verði, en óska Grímseyingunum jafnframt til hamingju með hátt verð, verði þessi viðskipti að raunveruleika,“ segir Vilhjálmur Ólafsson, kvótamiðlari á Viðskiptahúsinu. Vilhjálmur segir, að sér komi það á óvart fáist fjármögnun vegna kaupa á svo háu verði, einkanlega í ljósi þess að að undanförnu hafi bankarnir haldið að sér höndum í viðskiptum af þessu tagi, sérstaklega þegar um svona miklar upphæðir sé að ræða. Þeir hafi verið að hafna við- skiptum þar sem verðið sé í kringum 1.550 krónur á kílóið. Því virðist sér vanta samræmi hjá bönkunum, verði þessi viðskipti að veruleika. „Kannski er verið að selja eitthvað meira en fjóra báta og kvóta þeirra. Það á þá eftir að koma í ljós, en gangi þessi sala eftir á um 1.950 krónur kílóið, er það stórt mál, sem mun hafa mikil áhrif og vera fordæmis- gefandi í framtíðinni,“ segir Vil- hjálmur. Miðlara finnst verðið á Grímseyjarkvótanum hátt                                   !  "       # $ %    &    '         (    #   &  "     %    )    "  "   * !   +   ,   ,  -.    / 0       $     *!  #  *$  " ,%       " 1 %  !   !  "  !  #    ($  "          " 1%     " /   "      "     "   "    "     "   ", %  "    "2 ,  %      3 %    "           $ %% %!% %* +% .4 & M 35 & .3 " & )11 & )$ & * & &  & " " " " " " "        ;&  NO"5 &  + 1 "  !3" * ( !& '4    ! " %&% & * ,% "%- " %. /0  7!1 E="$3& &                         !! "  FISKISTOFA svipti átta báta veiði- leyfi í júnímánuði. Fimm þeirra voru sviptir leyfinu vegna afla um- fram heimildir og gilti sviptingin þar til aflamarksstaða þeirra hafði verið lagfærð. Þetta voru Núpur BA, Gulltoppur ÁR, Sindri ÞH, Björgvin ÍS og Guðrún Jakobsdóttir EA. Sæberg SH var svipt leyfi í fjórar vikur þar sem afli var ranglega til- greindur til tegundar við vigtun á hafnarvog. Þórsnes II SH var svipt leyfi í tvær vikur þar sem undirmáls afli var yfir stærðarmörkum og Hafborg KE var svipt leyfi í sex vikur þar sem afli var ekki færður til vigtunar á hafnarvog við löndun. Átta bátar sviptir leyfi Með afla umfram heimildir í júní

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.