Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 16
Grundarfjörður | Það var margt
sem hjálpaði til við að gera há-
tíðina Á góðri stundu í Grund-
arfirði jafnvel heppnaða og
raunin varð á, segir Jónas Guð-
mundsson framkvæmdastjóri.
Veðrið átti sinn þátt í því sem og
almenn þátttaka bæjarbúa við
skreytingar og framkvæmd há-
tíðarinnar. Talið er að fjöldinn
hafi verið mestur um 3.000
manns á laugardagskvöldið, en
þá fór fram skrúðganga hverf-
anna niður á hátíðarsvæðið við
Grundarfjarðarhöfn þar sem
fram fóru skemmtiatriði og síð-
an bryggjuball. Lögreglan hvað
hátíðahöldin hafa farið vel fram.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Vel heppnuð Góð stund
Grillveisla
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Met í lestri | Slegið hefur verið met í sum-
arlestri á Bókasafni Reykjanesbæjar. Alls
var 871 bók lesin í þessu verkefni í júní og
júlí. Einn mánuður er eftir af sumarlestri
og hefur stefnan verið sett á þúsund bækur
í ár, að því er fram kemur á vef Reykjanes-
bæjar.
Sumarlestur hófst á safninu sumarið
2004 og þá voru 629 bækur lesnar en í fyrra
jókst þátttakan í 673 bækur. Skýringin á
mikilli fjölgun er talin vitundin um lestr-
armenningu í Reykjanesbæ og heimsókn
barnabókavarðar í alla grunnskólana í vor
til að kynna sumarlesturinn en hann er fyr-
ir börn á grunnskólaaldri.
Tónaflóð á Duus | Tríóið Tónafljóð sem
skipað er þeim Sigrúnu Erlu Egilsdóttur
sellóleikara, Hafdísi Vigfúsdóttur flautu-
leikara og Þórunni Elínu Pétursdóttur
sópransöngkonu heldur tónleika í Duus-
húsum í Keflavík í kvöld, kl. 20.30.
Á efnisskránni eru verk eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson, Snorra Sigfús Birgisson, Haf-
liða Hallgrímsson, Þóru Marteinsdóttur,
Betty Roe, Jacques Ibert og Eugéne Bozza.
Ungir í Evrópukeppni frumkvöðla | Sex
nemendur úr Verkmenntaskólanum á Ak-
ureyri ásamt kennara sínum munu dagana
3.–6. ágúst taka þátt í Evrópukeppni ungra
frumkvöðla sem fram fer í Interlaken í
Sviss.
Nemendafyrirtæki ársins 2006, DJÚSÍ
LÍF JA frá VMAvann sér inn þátttökurétt í
Evrópukeppni JA-YE á Uppskeruhátíð JA
– Ungra frumkvöðla í apríl sl. en þau fram-
leiddu og þróuðu hollustudrykkinn Mjús
sem framleiddur var með aðstoð Norð-
urmjólkur á Akureyri. Mjús er framleiddur
úr mysu og appelsínusafa og var seldur í
Nettó á Akureyri.
Alls munu fulltrúar 26 Evrópuþjóða úr
bestu nemendafyrirtækjum Evrópu taka
þátt í í keppninni. Fulltrúar nemendafyr-
irtækjanna munu þar kynna og sýna vörur
og þjónustu fyrirtækjanna sem voru stofn-
uð og rekin í Fyrirtækjasmiðju JA um alla
Evrópu sl. skólaár. Dómnefnd skipuð fólki
úr viðskiptalífi Evrópu mun svo dæma þátt-
takendur og verðlauna bestu fyrirtækin
samkvæmt viðskiptaáætlunum, sölumálum,
ársskýrslum og kynningu þátttakenda.
Þess má geta að Evrópusambandið hefur
valið Fyrirtækjasmiðju JA – Ungra frum-
kvöðla sem „bestu leiðina“ í menntun ungra
frumkvöðla í Evrópu.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Fjörutíu ára vígsluafmælis Grund-arfjarðarkirkju var minnst meðhátíðarmessu í Grundarfjarð-
arkirkju sl. sunnudag. Biskup Íslands,
Karl Sigurbjörnsson, predikaði, en fjórir
fyrrverandi sóknarprestar tóku þátt.
Á myndinni eru, aftast Gunnar Hauks-
son, Runólfur Guðmundsson, Sigurður
Kr. Sigurðsson, Kolbeinn Þorleifsson og
Magnús Magnússon, í miðröð Karl V.
Matthíasson, Ragnheiður Karitas Pét-
ursdóttir, Guðjón Skarphéðinsson og
Bernharð Guðmundsson og fremst
Helga Helena Sturlaugsdóttir, Karl Sig-
urbjörnsson, Elínborg Sturludóttir, Jón
Þorsteinsson og Sunna Njálsdóttir.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Fjörutíu ára vígsluafmæli
Halldór Blöndal al-þingismaðurgisti á Keldunesi
í Kelduhverfi fyrir helgi
og skrifaði í gestabókina:
Í Keldunesi er gisting góð
gjöful, falleg bleikjuslóð
hundar þrír og hagamýs
og hér er fuglaparadís.
Hagyrðingar hittust á
Mærudögum á Húsavík
25. júlí. Halldór svaraði
svo spurningunni um,
hvort við þyrftum leyni-
þjónustu:
Freisting! mín tálsýn! mitt frelsi!
minn kross!
Ég fell þér á kné en þó bara til hálfs.
Á leyniþjónustu innra með oss
er ávallt þörf til að gæta sín sjálfs.
Hvað er það fyrsta, sem
þú tekur eftir við hitt
kynið? Halldór svaraði
þessari vandasömu
spurningu svo:
Ef þú spyrð mig, spjalda gná,
spjörunum úr hvað mér þyki fríðast
það sem innri augun sjá
eftir tek ég fyrst og síðast.
Það sem innri
augun sjá
pebl@mbl.is
♦♦♦
Vesturbyggð | Miðað við ætluð afköst
kalkþörunganámunnar á Bíldudal mun
hún endast í fimm hundruð ár.
Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta
nýlega og segir þar einnig að rannsóknir
sýni að kalkþörungasetrið í firðinum nemi
21,5 milljónum rúmmetra.
Starfsleyfi hefur verið veitt til fimmtíu
ára og er talið að á þeim tíma náist upp um
tíundi hluti kalkþörunganna.
Framkvæmdir ganga vel
Reiknað er með að afkastageta verk-
smiðjunnar verði um 40.000 tonn á ári en
gert er ráð fyrir að í fyrsta áfanga verði
hún um 8.000 tonn á ári og verði aukin í
fulla getu í nokkrum áföngum.
Framkvæmdir við verksmiðjuna hafa
gengið vel í sumar og er búist við því að
hún fari í gang um mánaðamótin septem-
ber-október, og standa vonir til þess að
með verksmiðjunni skapist tíu til fimmtán
framtíðarstörf og um fimm í viðbót sem af-
leiðing af rekstrinum.
Megnið af afurðum selt úr landi
Kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal er
fyrsta fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi.
Íslenska kalkþörungafélagið er aðaleig-
andi verksmiðjunnar, en það er svo aftur í
75% eigu Celtic Sea Minerals á Írlandi.
Írska fyrirtækið á einnig kalkþörunga-
verksmiðju í bænum Castletownbere á Ír-
landi.
Gert er ráð fyrir að megnið af afurðum
verksmiðjunnar verði seldar úr landi.
Afkasta-
getan mun
aukast
Hvalfjörður | Sveitarstjórn Hvalfjarðar-
sveitar ákvað á fundi sínum síðastliðinn
mánudag að ráða Einar Örn Thorlacius í
embætti sveitarstjóra Hvalfjarðarsveitar.
Ráðningin var samþykkt samhljóða.
Hvalfjarðarsveit er nýtt sveitarfélag
sem varð til með sameiningu í vor. Einar
Örn var valinn úr hópi 39 umsækjenda.
Sveitarstjórnin naut aðstoðar ráðningar-
stofunnar Hagvangs við ráðninguna.
Einar hefur síðustu árin verið sveitar-
stjóri Reykhólahrepps. Hreppsnefnd
Reykhólahrepps hefur ákveðið að ráða
Óskar Steingrímsson, skrifstofustjóra
hreppsins, í starf sveitarstjóra.
Sveitarstjóri
í Hvalfirði
Fáskrúðsfjörður | Ný slökkvistöð
hfur verið tekin í notkun á Fá-
skrúðsfirði. Var það gert við hátíð-
lega athöfn sem haldin var í
tengslum við Franska daga.
Sóknarpresturinn, Þórey Guð-
mundsdóttir, blessaði húsið.
Slökkviliðið fékk gjafir, meðal ann-
ars peninga frá VÍS til endur-
menntunar slökkviliðsmanna.
Húsið er 400 fermetrar að
grunnflatarmáli með aðstöðu á efri
hæð sem er 100 fermetrar. Verk-
taki var Röra- og hellusteypan á
Fáskrúðsfirði. Heildarkostnaður
var 56 miljónir.
Slökkvilið á von á nýrri slökkvi-
bifreið á næstunni.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Húsið skoðað Lars Gunnarsson verktaki og Steinn Jónasson slökkviliðs-
stjóri á Fáskrúðsfirði sýndu lögreglumönnum nýju slökkvistöðina.
Ný slökkvistöð
tekin í notkun