Morgunblaðið - 02.08.2006, Síða 20

Morgunblaðið - 02.08.2006, Síða 20
Daglegtlíf ágúst ÍNeðstakaupstað á Ísafirðistanda fjögur hús sem voru öllreist á 18. öld, í dag erByggðasafn Vestfjarða þar með sjóminjasafn og er straumur ferðamanna þangað yfir sumartím- ann. Í einu þessara fjögurra húsa, Tjöruhúsinu, er rekinn veitinga- staður á sumrin sem nýtur mikilla vinsælda hjá ferðamönnum jafnt sem bæjarbúum. Um reksturinn sjá hjónin Magnús Hauksson og Ragn- heiður Halldórsdóttir og standa þau þar við pönnurnar á hverjum degi meðan opið er. Þegar blaðamann bar að garði voru þau að undirbúa kvöldmatinn en gáfu sér þó tíma til að setjast nið- ur og segja frá þessu sérstæða veit- ingahúsi. „Tjöruhúsið var reist 1736 sem pakkhús. Í kringum 1970 stóð til að jafna öll þessi gömlu hús hér í Neðstakaupstað við jörðu og byggja frystihús en það var stoppað og í dag er hér safn. Það er mikið upp- runalegt í þessu húsi, viðurinn varð- veittist vel því hér var geymt salt og net tjörguð,“ segir Magnús. Tjöru- húsið er fallegt en gróft hús, byggt úr tréplönkum, óeinangrað og ein- falt. Gestir sitja við gróf tréborð á trébekkjum, ekkert pjatt er í gangi og heillar það marga. Boðið er upp á sæti fyrir 80 manns en Magnús og Ragnheiður segja bekkina og borðin borin inn og út úr húsi eftir því hvort veður er gott eða ekki. „Það var byrjað með kaffihús hér fyrir um tíu árum en þegar hætt var með það var leitað til okkar og við beðin að taka við rekstrinum. Þetta er þriðja sum- arið okkar hér,“ segir Ragnheiður en þau hjónin ráku veitingastaðinn Sjó- mannastofuna við höfnina á Ísafirði frá 1987 til 1993. Saltfiskveislur vinsælar „Tjöruhúsið er opið alla daga í tvo mánuði á ári, við opnuðum núna í lok júní og höfum opið fram í byrjun september,“ segja þau en aðeins er boðið upp á sjávarrétti í Tjöruhúsinu. „Við bjóðum upp á plokkfisk, sjáv- arréttasúpu, pönnusteiktan fisk og hrefnukjöt þegar það er til. Við eld- um fiskinn á pönnu með öllu meðlæt- inu og berum svo beint á borð,“ segir Magnús. Vinsælasti rétturinn hjá þeim er þó plokkfiskurinn sem þykir einstaklega góður. Magnús segir bæjarbúa koma heilmikið til þeirra í hádeginu eingöngu til að fá sér plokkfisk. „Hálfsmánaðarlega eru svo hér miklar saltfiskveislur. Sum- arið byrjar á því að safnið er sjálft með veislu og þá koma gestir með saltfiskrétti með sér og markar það upphafið að opnuninni á sumrin. Svo hálfsmánaðarlega eftir það sjáum við um saltfiskveislurnar. Þá erum við með sjö til tíu saltfiskrétti á hlaðborði og bjóðum upp á skemmtiatriði og tónlist. Veislurnar eru alltaf mjög vel sóttar og færri komast að en vilja. Það var líka heilmikil skötuveisla hér á Þorláksmessu að sumri,“ segir Magnús. Í matinn þennan dag sem blaða- maður var á ferð var plokkfiskur og fiskisúpa og hægt var að velja á milli ýsu, ufsa, þorsks, kola og steinbíts á pönnuna. Magnús tekur sérstaklega fram að þau séu ekki með hlýra þennan dag en annars sé það mjög vinsæll fiskur hjá þeim. „Fólk er hrif- ið af fiski, bæði Íslendingar og út- lendingar, en það kemur alveg fólk hingað sem fer þegar það sér að við bjóðum bara upp á fisk.“ Með kaffinu er boðið upp á venju- lega súkkulaðiköku, vöfflur, hjóna- bandssælu og franska súkkulaðiköku og er það mamma Ragnheiðar sem bakar allar kökurnar. Nota eldavél frá 1922 Magnús og Ragnheiður vinna að- eins tvö í Tjöruhúsinu en njóta að- stoðar vina og ættingja þegar mikið er að gera. „Við stöndum hérna tvö alla daga í þennan tíma sem opið er. Það er gaman því umhverfið hér er skemmtilegt og góður andi í húsinu en við missum svolítið af sumrinu, “ segir Ragnheiður. Það er ekki aðeins Tjöruhúsið sjálft sem er gamalt því ýmislegt inni í því er það líka. Í eldhúsinu er t.d eldavél frá 1922 sem er mikil mubla. „Þessi vél var í notkun í Ögurhúsinu á Ögri, svo kom hún hingað og var gerð upp. Hún er safngripur en við notum hana einstöku sinnum og hún virkar vel,“ segir Magnús. Af- greiðsluborðið er líka gamalt en það kom úr verslun Jónasar Magg á Ísa- firði og í glugga á borðinu eru ýmsir munir, m.a. gamall Prins póló-kassi sem kom úr verslun sem var lögð nið- ur á Flateyri. Aðspurð segja þau að aðsóknin hafi vaxið mikið þessi þrjú ár sem þau hafi rekið staðinn en um fram- haldið eru þau óviss því þau gera að- eins samning við Ísafjarðabæ, sem á húsið, til eins árs í senn. Að lokum gefa Ragnheiður og Magnús les- endum uppskrift að tveimur fisk- réttum sem þau bjóða upp á í Tjöru- húsinu. Plokkari og hrefnukjöt Morgunblaðið/Ingveldur Magnús Hauksson, Ragnheiður Halldórsdóttir ásamt dótturinni Salome Katrínu fyrir utan Tjöruhúsið. Í Tjöruhúsinu í Byggða- safni Vestfjarða á Ísafirði er rekinn veitingastaður á sumrin þar sem fiskur er aðallega á boðstólum. Ingveldur Geirsdóttir fékk sér plokkfisk hjá Magnúsi Haukssyni og Ragnheiði Halldórsdóttur. Koli á pönnu kolaflök hveiti salt pipar aromat olía smjör sítróna steinselja rauður pipar konfekttómatar kartöflur alls kyns grænmeti Kolaflökin eru skorin til, velt upp úr hveiti sem búið er að krydda með salti, pipar og aromat, eða öðru kryddi að vild. Olía sett á pönnuna, sárið á fiskinum steikt fyrst og síðan roðhliðin, við frekar mikinn hita. Olíu hellt af pönnu og smjör sett á pönnu og látið malla. Hálf sítróna kreist yfir og fersk eða þurrkuð steinselja sett yfir fiskinn. Fiskurinn er kryddaður aðeins meðan verið er að steikja hann og endað á að krydda hann með rauðum fínmöluðum pipar. Meðlætið er sett gróft niðurskorið út á pönnuna með fiskinum rétt áð- ur en hann er borinn fram. Þetta er mjög einfalt og gott. Plokkfiskur fiskur (tegund eftir smekk) laukur olía smjör svartur pipar hveiti mjólk kjúklingakraftur kartöflur Skerðu laukinn frekar gróft og brúnaðu hann upp úr olíu- nni. Settu svo heilmikið af smjöri út í (½ stk. ef þú ert að gera mikið) og láttu laukinn malla í smjörinu. Þá setur þú mikið af svörtum pipar út í. Þegar laukurinn er orðinn linur er hveiti hrært út í og hrært til, þangað til það verður eins og smjörbolla. Þá er mjólk og svo- lítill kjúklingakraftur settur út í, hrært þangað til það er orðið að sósu og kartöflurnar þá brytjaðar út í. Fiskurinn er soðinn og einnig brytjaður út í sósuna með kartöflunum, nokkuð jafnt hlutfall á að vera af kartöflum og fiski. Þetta er hrært til og þá er plokkfisk- urinn tilbúinn og borinn fram með rúgbrauði með smjöri. Markaður fyrir krakka | 21  ÍSAFJÖRÐUR | Tvo mánuði á ári er veitingastaður í Tjöruhúsinu Gamla eldavélin frá Ögri stendur í eldhúsinu og fyrir ofan hana hanga pönnurnar sem fiskurinn er borinn fram á. ingveldur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.