Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.08.2006, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING „ÞESSI málverk eru máluð frá árinu 2003 til dagsins í dag og þetta eru afstrakt-expressjónísk verk.“ Svo hreint og klárt byrjar Óli G. Jó- hannsson myndlistarmaður að ræða um verk sín. Engu ofaukið, hreint til verks: blátt áfram. „Þau eru afstrakt en grunntónn- inn er landið, veðrið og dýralífið. Myndirnar eru frá öllum árstímum og í raun og veru þá er það birtan og ástand landsins, ýmist snjór, gróður eða annað slíkt, sem hefur áhrif og svo það skaplyndi sem ríkir í kallinum á hverjum tíma,“ bætir hann við. Sýningin Viðkomustaðir er um þessar mundir í Gallery Turpentine í Ingólfsstræti og um það leyti sem sýningin opnaði var gefin út bók um verk listamannsins sem ber einfald- lega titilinn Óli G. Jóhannsson. Í bókinni er búið að prenta úrval verka frá síðustu fimm árum ásamt ritgerð um Óla, Náttúran, tíminn og spuninn, eftir Aðalstein Ingólfsson listfræðing. Heldur sig við grunninn en þróar og mótar verkin Á þessum fimm árum hafa orðið nokkrar breytingar á verkum lista- mannsins, en þau eru öll byggð á sama grunni, að sögn Óla. „Ég mál- aði fyrir nokkrum árum síðan meira í flötum, en núna brýt ég oft og tíð- um hið séða niður í frumeindir. Verkin eru sum hver meira unnin, því ég hef gefið mér allt að tvö og hálft ár í sumar myndirnar, til þess að ýta í og teikna ofan í. Þannig að sumar myndirnar eru nokkuð þykk- ar og maður sér inn í litalögin.“ Óli leitar þannig á ný mið og víkkar út sinn afstrakt-expressjón- íska stíl um þessar mundir. En sér hann fyrir sér að hann muni fást við aðra hluti í framtíðinni? „Eins og er þá fullnægir það sem ég er að fást við alveg minni þörf í málverkinu. Ef einhver árangur á að nást, þá verður auðvitað að vera ánægja og gleði í því sem maður gerir þannig að það bíði manns eitt- hvað spennandi þegar maður kemur á vinnustofuna að morgni. Mál- verkið er í þróun og gerjun hjá mér og ég tel trúlegast að ég muni mála áfram í þeim anda sem ég geri í dag.“ Þótt Óli hafi haldið sig við sinn afstrakt-expressjóníska stíl fer því hins vegar fjarri að hann sé á móti því sem aðrir fást við í myndlistinni. „Ég er opinn gagnvart öllu sem lifir og hrærist innan þessa geira. Allt á rétt á sér. Ég er aðallega á móti þeirri stefnu sem hefur verið í gegnum tíðina á Íslandi, að menn séu einsýnir og að eingöngu eitt sé algilt og gott. Það er bara ekki þannig. Og unga fólkið okkar sem er í þessari „nýlist“, þetta er alveg blússandi fínt og flott og gaman að þessu. Ég er orðinn það gamall að ég er líklega orðinn andskoti víð- sýnn.“ Húnvetnsk gen ráða ferðinni Þessi víðsýni listamannsins er lík- lega til komin með árunum og víð- tækri reynslu í gegnum tíðina. Óli hefur t.a.m. ekki alltaf einbeitt sér að myndlist og fékkst áður við sjó- mennsku og blaðamennsku með- fram myndlist. Í kjölfar „hafarís norður í Barentshafi“ sem hann lenti í fyrir 13 árum einbeitti hann sér að listinni. „Ég var í sjónum í tuttugu mín- útur og lifði það af en „kíkkaði“ svo- lítið yfir um. Hægt og bítandi hef ég unnið mig út úr áverkum, þó ég sé ekki heill. En skítt og laggó, maður er lifandi. Axlarmeiðsl og hálsmeiðsl sem ég hlaut há mér í starfi. En maður lærir að lifa með því. Bítur á jaxlinn og bölvar í hljóði og lætur húnvetnsku genin ráða ferðinni.“ Brýtur hið séða niður í frumeindir í nýju verkunum Morgunblaðið/Jim Smart Myndlistarmaðurinn Óli G. heldur sig við sinn afstrakt-expressjóníska stíl, en hefur þróað málverk sín síðustu ár. Myndlist | Óli G. Jóhannsson með sýningu í Gallery Turpentine og listaverkabók Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson hsb@mbl.is Myndasöguunnendur höfðu heldur beturástæðu til að kætast um miðjan síð-asta mánuð, en þá kom út sjöunda bókin í Fables-seríunni. Ég er meðal þeirra sem biðu spenntir eftir að bókin kæmi í hillur bókabúðarinnar Nexus, litlu nördaparadísarinnar á Hverfisgötu (þar sem ég gæti hæglega eytt öllum mínum peningum í heilu árgangana af Star-Trek, hilluraðir af teiknimyndasögum, herdeildir af tindátum, og ágætis vopnabúr af næstum-ekta Star-Wars geislasverðum).    Það er rétt að ég leggi á það áherslu að Fables-sögurnar eru ekki bara fyrir laumu-nörda eins og mig. Allir ættu að kunna að meta þessar teiknimyndasögur, sem eru með því allra besta sem býðst af myndasögubók- menntum í dag. Fables segja frá kunnuglegum hetjum: Mjall- hvít, Öskubuska, Alladín og Móglí eru öll mætt til sögunnar. Ekki nóg með það heldur eru Baba Yaga, Gosi og Svartskeggur og ótal aðrar ævintýra- og goðsagnapersónur það líka. Sögusviðið er New York, þar sem ævintýra- hetjurnar hafa sest að eftir að hafa flúið í ör- væntingu ævintýraheimanna, undan stríðandi fylkingum dularfulls og ógurlegs óvinar. Nú gætu menn haldið að ævintýraheimurFables væri barnalegur, enda sögupersón- urnar allar fengnar að láni úr sögum sem í dag eru helst lesnar fyrir börn. Aldeilis ekki: Bill Willingham, höfundi Fables, tekst að galdra fram raunsæjan og spennandi heim með al- vörugefnum söguþræði. Sögupersónurnar eru fjarri því barnalegar og saklausar. Þvert á móti er dregin upp persónuleg og djúp mynd af breyskum söguhetjunum, sem hafa þroskast og breyst frá því sem eitt sinn var og þurfa nú að takast á við vandamál allt annars eðlis en gerð- ist í ævintýraheimum. Frasinn „þau lifðu ham- ingjusamlega upp frá því“ á ekki lengur við.    Ósjaldan endurspeglast vandamál raunveru-leikans í Fables-sögunum. Í nýjustu bók- inni verða árekstrar milli ævintýrapersóna hins vestræna heims og goðsagna Mið-Austurlanda. Sjálfur Sindbað sæfari er kominn til Man- hattan með fríðu föruneyti. Innan um hafurtask Sindbaðs leynist ægilegt gjöreyðingarvopn sem hæglega gæti umturnað lífi ævintýrahetjanna. Strax kemur í ljós að mikil gjá er milli menn- ingarheima austurs og vesturs og má lítið út af bera svo allt fari á versta veg. Heldur betur kunnuglegt mótíf, og ómót- stæðileg lesning í túlkun Willingham og lista- mannanna sem hann hefur fengið til liðs við sig. Söguhetjur barnabókanna vaxa úr grasi ’ … „þau lifðu hamingjusamlegaupp frá því“ á ekki lengur við.‘ Í nýjustu bókinni í Fables-seríunni kastast í kekki milli ævintýrahetja hins vestræna menn- ingarheims og þess austræna. asgeiri@mbl.is AF LISTUM Ásgeir Ingvarsson RJÓMABLÍÐA var í Skálholti og létt yfir mönnum þegar leið að fyrri tónleikum sl. laugardags. Nærri hvert sæti kirkjunnar var skipað. Eflaust hafði þegar borizt orð af frá- bærum Árstíðatónleikunum tveim dögum áður þegar sama fólk var að verki – Bachsveitin í Skálholti, sem undir forystu rúmensk-ísraelsk- enska fiðluleikarans Katiar De- bretzeni hafði sýnt þvílíka fjörkálfa- spretti í konsertafernu Vivaldis að annað eins heyrist varla nema hjá fremstu núverandi barokk- strengjasveitum heims á góðum degi. Hér á yfirstandandi afmælisári W. A. Mozarts voru verk eftir hann á bæði fyrri og seinni tónleikum dags- ins. Var því dável til fundið að kynna í upphafi tónlist tveggja næstu fyr- irrennara undrabarnsins frá „gal- anta“ rókókóskeiðinu. Pietro Anton- io Locatelli (1695–1764) átti fyrsta leik með Introduzio Teatrali, þrem bráðskemmtilegum strengjasveit- arþáttum af sex er leiknir voru af sama smitandi fjöri og Vivaldi und- angenginn fimmtudag. Af ein- hverjum torskiljanlegum ástæðum voru tveir aðrir þættir bálksins síð- an fluttir að loknum flautukonsert Quantzs næst á eftir, að því er Sig- urður Halldórsson kynnti, enda ótil- greint í tónleikaskrá. Johann Joachim Quantz (1697– 1773) mun þekktastur fyrir digran flautuskóla („Versuch der wahre Art die Flöte traversière zu spielen“) og um 300 flautukonserta. Flestir samdir fyrir valdamesta flautuama- tör 18. aldar, Friðrik mikla Prússa- konung, sem hafði á honum miklar mætur. C. P. E. Bach (Sebastíans- son), er einnig starfaði fyrir Pots- damhirðina á sama tíma, fékk þann- ig aðeins brot af launum Quantzs. Hermt er að þessi eftirlæt- isflautukennari einvaldsins hafi m.a. haft það þarfa hlutverk að rjúka á fætur og æpa „bravó!“ þegar kóngsi þurfti að stelast til að anda í miðri hendingu. Rifjaðist sú sögn óhjá- kvæmilega upp við heljarlöngu ein- leiksrunur G-dúr konsertsins QV 5:174 er Martial Nardeau fór snilld- arvel með á klappalausu barokk- flautu sína. Íðilfagur sortulyngstónn hennar – einhvers staðar á milli blokkflautu og nútímaþverflautu – var syngjandi mjúkur í hæga mið- þættinum (merkilega laus við hinn ýkta „kjökuraffekt“ er áður fyrr gat lýtt barokktúlkun Martials) og blásturinn áreynslulaust virtúós í leifturhraða lokaþættinum. Að meðtöldum eldvökrum samleik Bachsveitarinnar var þetta skýrt mótaða og vel samda verk að mínu viti hápunktur tónleikanna, jafnvel þótt hin öllu þekktari Serenata Notturna Mozarts K239 (1776) væri einnig yndisvel flutt sem síðasti lið- ur. Því miður heyrði ég ekki fyr- irlestur Debretzenis kl. 14. Hins vegar tjáði hún mér eftir tónleikana að sum „nútíma“leikbrögð Vivaldi- tónleikanna – þ. á m. „sul ponticello“ og „Bartók-pizzicato“ – fyndust þeg- ar fyrirskrifuð í handritum miðbar- okkhöfunda á við Biber og Schmel- zer(!). Svosem gott að vita eitt sér. Hitt var þó fyrir mestu hversu sann- færandi var með farið. Og það vant- aði hvorki umræddan fimmtudag né við þetta tækifæri. Það var bók- staflega eins og að verða unglingur á nýjaleik að upplifa jafn hörundslaust fágaðan og fantasprækan flutning. Ódáins- veigar í tónum TÓNLIST Skálholtskirkja Verk eftir Locatelli, Quantz og Mozart. Bachsveitin í Skálholti. Leiðari: Kati Debretzeni fiðla. Laugardaginn 29. júlí kl. 15. Sumartónleikar í Skálholti Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.