Morgunblaðið - 02.08.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 37
MINNINGAR
þess að komast þangað þurfti að
komast yfir Markarfljót. Það vildi
svo illa til að bóndinn á Mið-Skála
(Jón Einarsson) lenti á hesti sínum í
sandbleytu en var snöggur að henda
sér af baki og bjargaðist og hest-
urinn einnig sem braust um og náði
sér upp úr. Við pabbi komumst til
Óla og fer ekki frekar sögum af
heimsókninni og til baka komumst
við pabbi eftir að hafa fengið góðar
leiðbeiningar um leið yfir Markar-
fljót til baka.
Við bræðurnir vorum kappsfullir
ungir menn og segir hér sögu af
einni keppni milli okkar. Ég var sem
stráklingur í sveit hjá systur okkar
Sigríði og manni hennar Jóhanni
Guðlaugssyni á Kirkjubóli í Skut-
ulsfirði. Eitt sinn fékk ég hjá þeim
orlof til að fara heim og tók mér far
með strandferðaskipinu Dronning
Alexandrine. Ferðin frá Ísafirði tók
hálfan mánuð. Með mér á skipinu
hafði ég hjólið mitt og fljótlega eftir
að ég kom í land þurftum við Óli
endilega að reyna með okkur. Óla
hjól var ekki í góðu ástandi, m.a.
vantaði á það annan pedalann. En
vegna þess að ég var eldri þótti rétt
að ég fengi hans hjól en hann mitt
hjól. Hófst nú spretturinn. Hann
fékk þó skjótan endi þegar við
beygðum fyrir hornið hjá Drífanda
kom vörubíll á móti okkur og vegna
þess að stjórntækin voru ekki í full-
komnu lagi á hjólinu hjá mér lenti
ég framan á vörubílnum og undir
hann. Þetta var á fjölförnu götu-
horni í Eyjum þar sem karlarnir
söfnuðust saman og ræddu pólitík
og voru þarna nálægir m.a. pabbi
minn og Stebbi pól sem brá við
skjótt og hugaði að mér undir bíln-
um. Ég skreið heill undan vörubíln-
um, en Stebbi pól hrópaði aftur og
aftur: „Hva finnurðu ekki til? Hva
finnurðu ekki til, strákur?“ Stýrið á
hjólinu hans Óla var aftur á móti
kengbogið og talið var að það hafi
bjargað því að vörubíllinn hafi lyfst
yfir mig. Þetta voru ekki neinir
margra tonna trukkar í þá daga.
Það er af Óla að segja að hann fékk
hjólið sitt viðgert, stýrið rétt og nýj-
an pedala.
Óli bróðir var sjómaður nær alla
ævi. Einhver ár var hann á togar-
anum Elliða sem gerður var út frá
Eyjum. Síðar eignaðist hann báta
sem hann gerði út. Þegar eldgosið
varð í Eyjum 23. janúar 1973 flutti
hann m. a. búslóð sína og annarra til
lands á bát sínum Sóma.
Ég kveð kæran bróður og við Jón-
ína vottum Huldu og börnunum
samúð okkar.
Hannes.
FRÉTTIR
Atvinnuauglýsingar
Forritari óskast
Netdeild mbl.is óskar eftir að ráða forritara til
starfa. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af
UNIX/Linux, þekkingu á forritun í perl og
reynslu af SQL-gagnagrunnum ásamt því að
þekkja vel til HTML, Javascript, CSS og XML.
Leitað er eftir dugmiklum og stundvísum
einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt og tekist
á við margvísleg verkefni í krefjandi umhverfi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Allar frekari upplýsingar veitir Ingvar Hjálmarsson,
netstjóri mbl.is, í síma 569 1308. Einnig er hægt að
senda fyrirspurnir á netfangið ingvar@mbl.is.
Umsóknir sendast til starfsmannahalds
Morgunblaðsins, Hádegismóum 2.
Einnig er hægt að fylla út umsókn á eftirfarandi slóð:
http://www.focal.is/mbl/webApp.nsf/form/webAppli-
cation?OpenForm og veljið Tölvuumsjón.
Umsóknarfrestur er til 14. ágúst nk.
Yfirmaður
Við óskum eftir yfirmanneskju í kaffiteríu.
Aðeins vant fólk kemur til greina.
Upplýsingar í síma 894 1141, Sigrún.
Lausar stöður
við grunnskóla
Borgarbyggðar
Borgarbyggð auglýsir lausar til umsóknar stöð-
ur kennara við grunnskólana næsta skólaár,
sem hér segir:
Við Grunnskólann í Borgarnesi
2-3 stöður á unglingastigi. Meðal kennslu-
greina raungreinar, stuðnings- og sérkennsla
og almenn kennsla í 8.-10. bekk.
Við Varmalandsskóla
2-3 stöður á mið- og unglingastigi. Meðal
kennslugreina er stærðfræði, danska og
íslenska í 8.-10. bekk og almenn kennsla á mið-
stigi.
Við Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar,
deildirnar á Kleppjárnsreykjum og
Hvanneyri
2 stöður. Meðal kennslugreina á Kleppjárns-
reykjum eru smíði, tónmennt og sérkennsla
og á Hvanneyri (áður Andakílsskóli) meðal ann-
ars íþróttakennsla.
Í samræmi við Jafnréttisstefnu Borgarbyggðar
eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja
um starf hjá sveitarfélaginu.
Umsóknir berist til skólastjóra viðkomandi
skóla sem einnig veita nánari upplýsingar.
Kristján Gíslason (Grunnskólinn í Borgarnesi),
s. 898 4569, (kristgis@grunnborg.is); Flemming
Jessen (Varmalandsskóli), s. 840 1520,
(fjessen@varmaland.is); Guðlaugur Óskarsson
(Grunnskóli Borgarfjarðarsveitar), s. 861 5971,
(goskars@ismennt.is).
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs.
5 ungar, kraftmiklar
og drífandi
manneskjur óskast
Ný áskorun í sölu og markaðssetningu.
Starfssvið:
Sala á nýrri, byltingarkenndri vöru til neytenda
og fyrirtækja.
425.000 kr. sölulaun pr. mánuð ef markmiðum
er náð. Að auki bifreið og ársfjórðungslegir
bónusar með greiddum ferðalögum til fram-
andi staða.
Reynsla af viðskiptum, sölu- eða markaðsstörf-
um æskileg, ekki skilyrði.
Umsækjendur sendi umsókn ásamt mynd til
auglýsingadeildar Morgunblaðsins eða á
box@mbl.is merkt „I-18846“.
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
FORVARNADEILD lögreglunnar hefur verið með hjól-
reiðaátak í Grafarvogi í sumar þar sem hjólreiðafólk
hefur verið stöðvað og ástand hjálma og reiðhjóla skoð-
að með hliðsjón af umferðarlögum og reglugerð um gerð
og búnað reiðhjóla. Forráðamenn fá gátlistann með at-
hugasemdum lögreglu sendan heim ásamt lögum og
reglugerðum um reiðhjól auk bæklinganna „Reiðhjól og
hjálmar“ og „Hlífðu þér“ – sem fjalla um öryggi á reið-
hjólum, línuskautum, hjólabrettum og hlaupahjólum.
Stúlkurnar á myndinni heita Unnur Björk Berndsen, 8
ára og Halla Steingrímsdóttir, 8 ára, lögreglukonurnar á
myndinni heita Unnur María Sólmundardóttir og Jó-
hanna Steingrímsdóttir. Þess ber að geta að reiðhjól
stúlknanna voru í góðu lagi og báðar með hjálma.
Morgunblaðið/Kristinn
Hjólreiðaátak í Grafarvogi