Morgunblaðið - 02.08.2006, Síða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Himintunglin varpa ljósi á hrút sem tekur
sig saman í andlitinu á nýjan hátt. Svo
virðist sem helsti áhrifavaldur þinn hafi
haft óæskileg áhrif á þig, en þetta eru frá-
bærar fréttir. Nú veistu hvernig þú átt að
fara að því að velja þér æskilega stuðn-
ingsmenn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
En ánægjulegur dagur! Að upplifa hina
sönnu ánægju er eins og að hjóla, maður
gleymir því aldrei. Þegar þú kemst yfir
hindranirnar og leyfir þér að sleppa tak-
inu kemur framhaldið af sjálfu sér.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Lykillinn að velgengni þinni er heiðarleik-
inn sem þú hefur í hávegum. Staða him-
intunglanna hjálpar þér til að sjá það sem
gerst hefur til þessa. Ef þú viðurkennir
hlut þinn í því sem miður hefur farið tek-
ur þú jafnframt um taumana í eigin lífi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Alheimurinn er að tala við þig og þá að-
allega um umhverfisvernd. Ekki eyða
tímanum í samviskubit yfir því að hafa
ekki lagt nóg af mörkum. Byrjaðu smátt,
hvort sem það felst í smávegis endur-
vinnslu endrum og sinnum eða að deila bíl
með einhverjum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hvað gerir maður ef samband er aug-
ljóslega hinum aðilanum meira virði en
manni sjálfum? Auðvitað er það merki um
meðvirkni, en ljónið er svo rausnarlegt að
það lætur þá skýringu nægja.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Jákvætt hugarfar hefur ótvíræð áhrif á
heilsuna. Meyjan gengur skrefinu lengra
er jákvæð í tilfinningum, verkum og til-
veru. Ónæmiskerfið syngur þér lof fyrir
vikið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Áhrifamiklir vinir leita liðsinnis. Kannski
finnst þér þú skuldbundin en gerðu við-
komandi bara greiða ef þú finnur þig
verulega knúna til þess. Heilindi þín eru
þér meira virði en það sem þú berð úr
býtum með því að sleikja einhvern upp.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Áhugi á einhverjum gæti hæglega orðið
að þráhyggju. Nýttu þér hráan kraft him-
intunglanna til þess að miða þér áleiðis, í
stað þess að láta nýjan og yndislegan
snertiflöt villa þig af leið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn á enga óvini. Líttu svo á að
allir séu að reyna að gera sitt besta með
þeim verkfærum sem þeir hafa yfir að
ráða. Kannski tekst þér að láta aðra
standa við skuldbindingar sínar með því
að minna þá gætilega á þær.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin er manneskja sem aðrir leita
til. Að eyða deginum í að aðstoða nánast
alla í heiminum getur verið gefandi en að
sama skapi þreytandi. Gerðu það sem þú
getur í fimm tíma og hættu svo.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn myndi alveg vilja sleppa við
að þurfa að laga sig að öðrum, svona einu
sinni. Góðu fréttirnar eru þær að þeir
munu laga sig að þér í staðinn. Auðvitað
ertu ósanngjarn, en guði sé lof fyrir þig.
Framfarir verða fyrir tilstilli þeirra sem
láta sér ekki segjast.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er í aðstöðu að vilja það sama
og margir aðrir í kringum hann. Smáveg-
is samkeppni er af hinu góða og of mikil af
hinu illa. Notaðu vísbendingar til þess að
vita hvenær þú átt að hætta.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Sól og Júpíter eru í spennu-
afstöðu og ágreiningsefnið
er peningar. (Er það ekki
dæmigert.) Júpíter hreinlega elskar að
versla og sól í ljóni leggur metnað sinn í
það að geta borgað það sem lagt er út fyr-
ir. En ef greiðslukortið er notað of um,
gæti það hins vegar tekið næstu árin.
Spurningin er, get ég lifað án þess?
Sennilega.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 makráðar, 8
ásýnd, 9 húsgögn, 10
elska, 11 rótartaugin, 13
þráðar, 15 deila, 18 gerj-
unin, 21 skaut, 22 nurla
saman, 23 múlinn, 24 sjó-
poki.
Lóðrétt | 2 heiðarleg, 3
kvendýrið, 4 þjálfun, 5
korn, 6 daunillt, 7 hand-
fangs, 12 greinir, 14
kraftur, 15 sæti, 16 minn-
ast á, 17 aulans, 18 grikk,
19 örkuðu, 20 ófrægja.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 mergs, 4 velur, 7 rjúfa, 8 tæpum, 9 pat, 11 aðal,
13 bana, 14 japla, 15 hrjá, 17 kjör, 20 hrá, 22 orgar, 23
rósin, 24 Lárus, 25 skapi.
Lóðrétt: 1 merla, 2 rjúpa, 3 skap, 4 vott, 5 loppa, 6
remma, 10 aspir, 12 ljá, 13 bak, 15 hroll, 16 jagar, 18
jaska, 19 rengi, 20 hrós, 21 árás.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Reykholtskirkja | Kanadíski kvartettinn
Qartetto Constanze heldur tónleika í
Reykholtskirkju 10. ágúst kl. 20.30. Á efn-
isskrá er m.a. nýfundið verk eftir íslenska
tónskáldið Þórð Sveinbjörnsson. Sjá nánar
http://www.constanze.ca Aðgangur
ókeypis.
Myndlist
101 gallery | Serge Comte – sjö systur –
seven sisters. Til 2. sept. Opið fim.–laug.
kl. 14–17.
Anima gallerí | Múni – Árni Þór Árnason
og Maríó Múskat (Halldór Örn Ragn-
arsson). Á sýningunni eru málverk sem
þeir hafa unnið saman að síðan sumarið
2005. Sýningin stendur til 12. ágúst. Opið
fim. fös. og lau. kl. 13–17.
Art-Iceland Mublan | Fyrsta samsýning
gallerísins Art-Iceland.com Skólavörðustíg
1a. Listamennirnir sem sýna eru: Árni Rún-
ar Sverrisson, Helga Sigurðardóttir og Álf-
heiður Ólafsdóttir. Sýningin er í Versl-
uninni Mublunni, Nýbýlavegi 18, Kópavogi.
Café Karólína | Sýningin „Hlynur sterkur
Hlynur (portrett af Hlyni Hallssyni mynd-
listarmanni) er 3. sýningin í röðinni af
stjörnumerkjaportrettum unnin sem inn-
setning í rými. Sýningarlok 4. ágúst.
DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rým-
isverk til 26.ágúst. Opið virka daga og
laugardaga kl. 14–18 í sumar.
Eden, Hveragerði | Árni Björn með mál-
verkasýningu. Opið kl. 9–22 daglega til 14.
ágúst.
Gallerí Tukt | Rögnvaldur Skúli Árnason
sýnir málverk og teikningar til 5. ágúst.
Opið virka daga kl. 9–17.
Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin
blíðu hraun“ er frá Jóhannesi Kjarval og
er sjónum beint að hrauninu í Hafnarfirði.
Tólf listamenn sýna. Til 28. ágúst.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju á verkum Ásgerðar
Búadóttur veflistakonu. Í samvinnu við
Listasafn Háskóla Íslands. Allir velkomnir.
Til 26.ágúst
Handverk og Hönnun | Til sýnis eru bæði
hefðbundinn íslenskur listiðnaður og nú-
tíma hönnun eftir 37 aðila. Á sýningunni
eru hlutir úr leir, gleri, pappír, tré, roði, ull
og silfri. Sýningin stendur til 27. ágúst.
Opið alla daga kl.13 –17, ókeypis aðgangur.
Ketilhúsið Listagili | Hrefna Harðardóttir
sýnir veggskúlptúra úr leir. Til 13. ágúst.
Kirkjuhvoll Akranesi | Listsýning á verk-
um eftir 12 nýútskrifaða nema frá Listahá-
skóla Íslands. Listasetrið er opið alla daga
nema mánudaga kl. 15–18. Til 13. ágúst.
Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eirík-
ur Smith, Hafstein Austmann og Kristín
Þorkelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir.
Einnig eru sýndar vatnslitamyndir eftir
Svavar Guðnason í eigu Listasafns ASÍ.
Opið kl. 13–17, aðgangur ókeypis. Til 13.
ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag-
lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg-
myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf
opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning Lo-
uisa Matthíasdóttir. Sýningin rekur allan
listamannsferil Louisu í sex áratugi. Til 20.
ágúst.
Listasafn Íslands | Landslagið og þjóð-
sagan, sýning á íslenskri landslagslist frá
upphafi 20. aldar og túlkun þjóðsagna.
Verk úr safneign og Safni Ásgríms Jóns-
sonar. Opið í Safnbúð og í Kaffitári í kaffi-
stofu. Ókeypis aðgangur. Opið daglega kl.
11–17, lokað mánudaga. til 19. ágúst.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré,
leir, gifs, stein, brons og aðra málma – og
hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum
efnum. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýn-
ing á listaverkum sem voru valin vegna út-
hlutunar listaverkaverðlaunanna Carnegie
Art Award árið 2006. Sýningin end-
urspeglar brot af því helsta í norrænni
samtímalist en meðal sýnenda eru fjórir
íslenskir listamenn, meðal annars listmál-
arinn Eggert Pétursson. Til 20. ágúst.
Erro – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum
tímabilum í list Errós þær nýjustu frá síð-
astliðnu ári. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem
fagurfræði er höfð að leiðarljósi við val
verkanna og hefðbundin listasöguleg við-
mið látin víkja fyrir samhljómi þeirra.
Margir af helstu málurum þjóðarinar eiga
verk á sýningunni sem spannar tímabilið
frá aldamótunum 1900 til upphafs 21. ald-
arinnar. Til 17. sept.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
völdum skúlptúrum og portrettum Sig-
urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema
mánudaga kl. 14–17. Kaffistofan er opin á
sama tíma. Tónleikar á þriðjudagskvöldum.
Sjá nánar á www.lso.is
Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri
Norræna hússins til 27. ágúst. Ljósmyndir
frá Austur-Grænlandi eftir danska ljós-
myndarann Ole G. Jensen. Opið virka daga
kl. 9–17. Laugardaga og sunnudaga kl. 12–
17.
Out of Office – Innsetning. Listakonurnar
Ilmur Stefánsdóttir og Steinunn Knúts-
dóttir í sýningarsal fram til 30. september.
Opið alla dag kl. 12–15, nema mánudaga.
Gjörningar alla laugardaga og sunnudaga
kl. 15–17.
Nýlistasafnið | Björk Guðnadóttir, Daníel
Magnússon og Hildur Bjarnadóttir sýna.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina.
Til 28. ágúst.
Safn | Bandaríska myndlistarkonan Joan
Backes sýnir ný málverk og skúlptúra.
Einnig eru til sýnis verk úr safneigninni.
Opið er mið–fös kl. 14–18 og lau–sun kl. 14–
17. Ókeypis er inn.
Salfisksetur Íslands | Ari Svavarsson sýn-
ir til 6. ágúst. Atli nefnir sýninguna Tákn
og leikur sér þar með línur og form.
Skriðuklaustur | Bandaríska listakonan
Kamilla Talbot sýnir vatnslitamyndir af ís-
lensku landslagi en hún hefur síðustu vik-
ur fetað í fótspor langafa síns, danska list-
málarans Johannesar Larssen, sem gerði
teikningar fyrir danska Íslendingasagnaút-
gáfu um 1930.
Listakonan Ingrid Larssen frá Vesterålen í
Norður–Noregi sýnir hálsskart sem hún
vinnur úr silki, ull, perlum og fiskroði. Sýn-
ingin er liður í menningarsamstarfi Aust-
urlands og Vesterålen.
Skúli í túni | Þóra Gunnarsdóttir sýnir
„Upptekin! –hef annað betra að gera“.
Myndbands og hljóðinnsetning. www.sku-
lituni.com www.thoragunn.is. Til 6. ágúst.
Skúli í Túni er í Skúlatúni 4.
Thorvaldsen Bar | Jónína Magnúsdóttir,
Ninný, með myndlistarsýninguna Í góðu
formi. Sýningin stendur til 11. ágúst.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning í
tilefni af 70 ára afmæli Laugarnesskóla
stendur yfir á Reykjavíkurtorgi, Tryggva-
götu 15, 1. hæð. Opin virka daga kl. 11–19 og
um helgar kl. 13–17. Ókeypis aðgangur.
Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú-
inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk-
aðist í kringum aldamótin 1900. Veitingar í
Gamla Presthúsinu. Opið daglega kl. 9–18,
fimmtud. kl. 9–22. 500 kr. inn en frítt fyrir
börn.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga í sumar kl. 9 – 17. Hljóðleiðsögn á ís-
lensku, ensku, þýsku og sænsku. Marg-
miðlunarsýning og gönguleiðir í nágrenn-
inu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is og í 586 8066.
Iðnaðarsafnið | Á safninu gefur að líta
vélar og verkfæri af öllum gerðum, fram-
leiðsluvöru o.fl. Opið daglega kl. 13–17 til
15. sept. 400 kr inn, frítt fyrir börn.
Kotbýli kuklarans | Sýning á Klúku í
Bjarnarfirði sem er bústaður galdramanns
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða