Morgunblaðið - 02.08.2006, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 02.08.2006, Qupperneq 46
46 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ UNNENDUR íslenskrar þjóðlaga- tónlistar geta glaðst, því platan Á köldu svelli með hljómsveitinni Krás kom út á dögunum. Uppi- staða hljómsveitarinnar er gam- alreyndir hljóðfæraleikarar, Ing- ólfur Steinsson og Steingrímur Guðmundsson. Ingólfur lék á tíma blóma- barnanna með hljómsveitinni Þokkabót og hefur starfað jöfnum höndum sem kennari og tónlist- armaður eftir það. Steingrímur er slagverksleikari, aðalsprauta í Milljónamæringunum og annar helmingur dúettsins Steintryggs ásamt Sigtryggi Baldurssyni. Nýi diskurinn á sér langa sögu, en ræturnar ná allt aftur til níunda áratugarins. Þá voru Steingrímur og Ingólfur báðir búsettir á Flóa- svæðinu á vesturströnd Bandaríkj- anna. Steingrímur lærði á ta- blatrommur við Ali Akbar tónlistarskólann í San Rafael ná- lægt San Francisco og þeir félagar fóru að spila saman þjóðlög með trommunum ásamt gítarspili Ing- ólfs. Útkoman var sérstök blanda af þjóðlögum og frumsömdu efni í þjóðlagastíl með austrænu yf- irbragði og indverskum áslætti í fyrirrúmi. Semsagt þjóðlög og lög í þjóðlagastíl með heimstón- listarbrag. Austrænn taktur í staðinn fyr- ir gelda poppþjóðlagataktinn „Það var stefnan að fá nýjan blæ á þessi þjóðlög og lögin sem Ingó semur“, segir Steingrímur, sem hefur fengist mikið við heimstónlist fyrir utan hljómsveitin Krás. „Ing- ólfur er meira hefðbundinn þjóð- lagatónlistarmaður, en fyrir mér var alltaf mjög spennandi að fá að heyra þessi lög með austrænu slag- verki. Sérstaðan við útkomu disks- ins er líka austræna slagverkið í staðinn fyrir þennan popp- þjóðlagatakt sem er svolítið geldur finnst mér oft.“ Á meðal efnis á nýju plötunni eru sígild þjóðlög eða lög við þjóð- vísur, líkt og Á sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns, Krummavísur Jóns Thoroddsen, Vísur Vatns- enda-Rósu, Móðir mín í Kví, kví og Þat mælti mín móðir. Einnig eru nokkur frumsamin lög Ingólfs og ber þar hæst mjög fallegt lag eftir hann við ljóðið Þjóðlag eftir Snorra Hjartarson. Það ber þess merki að Ingólfur semur í þjóðlagastíl. Þeir félagar komu nokkrum sinn- um fram sem dúett fyrir vestan haf undir nafninu Icelandic Duo, að- allega hjá Íslendingafélögum og á síðhippahátíðum. Þegar þeir voru báðir komnir heim árið 1987 tóku þeir lögin upp á analógspólur og fengu til liðs við sig Lárus Gríms- son og bassaleikarann Richard Corn. Spólurnar voru hins vegar hvíldar um árabil þar til ráðist var að gefa þær út fyrir tveimur árum. Lögin voru færð yfir í tölvutækt form, Steingrímur og Ástralinn Ben Frost uppfærðu hljóðrit- anirnar og bætt var við upptökum. Ýmsir hljóðfæraleikarar voru kvaddir til við að leggja lokahönd á plötuna, t.a.m. dætur Ingólfs, Sunna og Arnþrúður, sem sungu raddir, Jóel Pálsson sem lék á saxafón í nokkrum lögum, og Arn- ljótur Sigurðsson bassaleikari. Upptökurnar voru spilaðar fyrir börnin og ættingjana Steingrímur viðurkennir að það var „svolítið sérstakt“ að vinna að verkinu 20 árum eftir að hafist var handa. Burtséð frá því er hann mjög sáttur við útkomuna. „Já, ég er rosalega sáttur við þetta. Hún er mjög þægileg og góð áheyrnar.“ Þótt efni plötunnar hafi verið tekið upp fyrir tæpum 20 árum án þess að koma út, týndust upptök- urnar aldrei heldur urðu nokkurs konar húsgangar á heimilum Ing- ólfs og Steingríms. „Við áttum allt- af eintök á kassettum. Það má segja að börnin okkar hafi alist upp við þessa tónlist og eins hlustuðu ættingjar okkar á þetta.“ Hljómsveitin Krás hefur spilað nokkuð að undanförnu til að kynna plötuna. Þau spiluðu í ráðhúsinu 17. júní og á menningardögum í Hafn- arfirði í byrjun júní. Einnig er væntanlegt að hljómsveitin komi fram í Kastljósinu. Hins vegar var júlí rólegheita- mánuður, að sögn Ingólfs. „Við er- um að pæla meira í haustinu til að halda áfram að kynna plötuna. Enda erum við nokkuð uppteknir um þessar mundir. Ingólfur vinnur að sólóplötu og ég er sjálfur að vinna í tíu plötum.“ Tónlist | Hljómsveitin Krás sendi á dögunum frá sér plötuna Á köldu svelli Leika þjóðlög á heimstónlistarvísu Hljómsveitin Krás lék í ráðhúsinu 17. júní. Frá vinstri eru: Steingrímur Guðmundsson á tabla, Sunna Ingólfsdóttir, Arnljótur Sigurðsson á bassa, Ingólfur Steinsson á gítar og Arnþrúður Ingólfsdóttir á hljómborði. Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson hsb@mbl.is Sími - 564 0000Sími - 462 3500 FRÁ HÖFUNDI BRING IT ON Stormbreaker kl. 6, 8 og 10. Silent Hill kl. 8 og 10.20 B.i. 16.ára. Stick It kl. 6 Silent Hill kl. 8 og 10.40 B.i. 16 ára Silent Hill LÚXUS kl. 8 og 10.40 B.i. 16 ára Over the Hedge m.ensku.tali kl. 3, 5, 7 og 9 Over the Hedge m.ensku.tali LÚXUS kl. 3 og 5 Over the Hedge m.ísl.tali kl. 3 og 5 Ultraviolet kl. 4.50 og 8 B.i. 12 ára Stick It kl. 3, 5.30, 8 og 10.20 Click kl. 10.10 B.i. 10 ára Rauðhetta m.ísl tali kl. 3 ÞÚ ERT ALDREI OF UNGUR TIL AÐ DEYJA HÖRKU SPENNUMYND Í ANDA JAMES BOND MILLA JOVOVICH Í MÖGNUÐUM SCI-FI SPENNUTRYLLI! BLÓÐSTRÍÐIÐ ER HAFIÐ! Magnaður spennutryllir eftir höfund „Pulp Fiction“ VELKOMIN TIL SILENT HILL.VIÐ ÁTTUM VON Á ÞÉR! Með frábærum úrvalsleikurum eins og Sean Bean, Deborah Kara Unger og Radha Mitchell (Pitch Black og Melinda & Melinda) FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! HLAUT TILNEFNINGU TIL GOLDEN TRAILER VERÐLAUNANNA Í FLOKKNUM BESTA HRYLLINGSMYNDIN SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Þau ætla að ná aftur hverfinu... ...einn bita í einu! eee L.I.B. Topp5.is eee S.V. Mbl. eeee P.B.B. DV „Nánast eina hrollvekjan gerð eftir tölvuleik sem getur borið höfuðið hátt“ S.U.S XFM 91.9 Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þínu? Hvað myndir þú gera ...?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.