Morgunblaðið - 02.08.2006, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 49
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
MESTA OFURMENNI HEIMS HEFUR SNÚIÐ AFTUR.
OFURMÖGNUÐ STÓRMYND OG SÚPERSKEMMTUN FYRIR ALLA.
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
ÞAU ÆTLA AÐ NÁ AFTUR HVERFINU...
....EINN BITA Í EINU !
H.J. MBL.
eee
VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
P.B.B. DV.
eeee
„SANNKALLAÐ AUGNAYNDI OG ÞRUSUGÓÐ SKEMMTUN Í
ÞOKKABÓT, EINHVER BESTA AFÞREYING SUMARSINS“
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
SÚPERMAN ER SANNARLEGA KOMINN AFTUR.
M.M.J. KVIKMYNDIR.COM
S.U.S. XFM 91,9
eeee
SUPERMAN RETURNS SKAPAR SÉR SESS MEÐAL BESTU
MYNDASÖGU-KVIKMYNDUM SEM GERÐAR HAFA VERIÐ
V.J.V. Topp5.is
TVEIR BRÆÐUR. EIN HELGI. ENGIN SKÖMM.
MEÐ CHRIS KLEIN ÚR “AMERICAN PIE” MYNDUNUM.
HANN HEFUR EINA LANGA HELGI TIL AÐ KENNA LÍTLA BRÓÐUR SÍNUM
HVERNIG EIGI AÐ HÚKKA Í DÖMURNAR.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 - 11 B.I. 12.ÁRA
PIRATES OF CARIBBEAN 2 LUXUS VIP kl. 2 - 5 - 8 - 11
THE LONG WEEKEND kl. 6:15 - 8 - 10 - 11 B.I. 12.ÁRA
SUPERMAN kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.I. 10 ÁRA
OVER THE HEDGE M/- ÍSL TAL.. kl. 2 - 4 - 6 Leyfð
OVER THE HEDGE M/- ENSKU TAL kl. 2 Leyfð
THE BREAK UP kl. 8:15 Leyfð
BÍLAR M/- ÍSL TAL.. kl. 1:45 - 4 Leyfð
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 5:15 - 8:15 - 11:15 B.I. 12.ÁRA. DIGITAL SÝN.
THE LONG WEEKEND kl. 6 - 8:15 - 10:15 - 11:15 B.I. 12.ÁRA.
OVER THE HEDGE M/- ÍSL TAL. kl. 4 - 6 Leyfð DIGITAL SÝN.
OVER THE HEDGE M/- ENSKU TAL. kl. 8 Leyfð DIGITAL SÝN.
BÍLAR M/- ÍSL TAL. KL. 3:45 Leyfð
STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
KVIKMYNDIR.IS
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
HLJÓMSVEITIN Todmobile lagði
í gær lokahönd á nýja smáskífu
sem mun fara að heyrast á út-
varpsstöðvum landsins á fimmtu-
dag: „Þetta er fyrsta smáskífan
hjá okkur þremur síðan 1996 þeg-
ar við gerðum Voodooman,“ sagði
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson,
þegar blaðamaður náði af honum
tali, og bætti við að lagið hefur
fengið nafnið „Ljósið ert þú“. „Það
má segja að þetta lag sé sing-
along dauðans, en við sleppum
ekki okkar hæglátlega tignarlega
bíti frekar en fyrri daginn. Það
siglir eins og stórt skip,“ sagði
Þorvaldur Bjarni, spurður um
hvernig lagi aðdáendur Todmobile
mega eiga von á á fimmtudag.
Hljómsveitin vinnur um þessar
mundir að nýrri plötu og er auk
þess í stífum æfingum fyrir tón-
leika verslunarmannahelgarinnar
en Todmobile verður eitt af aðal-
númerum Þjóðhátíðar í Eyjum.
Þorvaldur mun í framhaldi af
nýju plötunni hefja vinnu við tón-
list kvikmyndarinnar Astrópíu:
„Haldið verður til Tékklands og
þar tekin upp ævintýraleg tónlist
með heljarinnar sinfóníuhljóm-
sveit. Svo munu vinsælar íslenskar
hljómsveitir leggja myndinni til
gott rokk.“
Þorvaldur Bjarni lætur ekki þar
við sitja, heldur mun hann einnig
halda tónvinnslunámskeið í vetur
og hefjast þau í byrjun september:
„Námskeiðið hefur notið mikilla
vinsælda en á tæpu ári hafa um
100 manns lokið námi og greini-
legt að margir vilja læra að koma
frá sér lagi.“
Nánar má fræðast um Tón-
vinnsluskóla Þorvaldar Bjarna á
www.Tonvinnsluskoli.is.
Tónlist | Todmobile með smáskífu
Morgunblaðið/Jim Smart
Hljómsveitin Todmobile: Andrea Gylfadóttir, Eyþór Arnalds og Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson. Þau senda nú frá sér smáskífuna „Ljósið ert þú“.
„Sleppum ekki okkar
hægláta tignarlega bíti“
PETE Garrison (Michael Douglas)
er leyniþjónustumaður Banda-
ríkjastjórnar sem vann sér það til
frægðar fyrir 20 árum að hafa
stokkið fyrir byssukúlu sem skotin
var að forsetanum. Hann stýrir nú
öryggisráðstöfunum fyrir forseta-
frúna og er vel liðinn af samstarfs-
mönnum sínum, ekki síst fyrir að
vera áreiðanlegur og skipulagður.
En það á eftir að breytast þegar
samstarfsmaður hans, Charlie
Merriweather, gefur til kynna að
hann vilji greina frá mikilvægum
en leynilegum upplýsingum. Áður
en honum tekst það er hann drep-
inn. Rannsókn morðmálsins er sett
í hendur David Breckinridge (Kie-
fer Sutherland) sem einsetur sér
að komast að hinu sanna en honum
til mikillar furðu leiðir slóð morð-
ingjans hann aftur að leyniþjón-
ustu Bandaríkjanna, nánar tiltekið
að Peta Garrison sem sér sér
engra annarrra kosta völ en að
flýja og um leið hreinsa orðspor
sitt.
Frumsýning | The Sentinel
Varð-
maðurinn
Michael Douglas túlkar leyniþjónustumann The Sentinel.
ERLENDIR DÓMAR
Los Angeles Times 70/100
The Hollywood Reporter 60/100
Variety 50/100
The New York Times 30/100
(allt skv. Metacritic)
ED Waxman vinnur í auglýs-
ingabransanum. Hann vinnur of
mikið og kynlífið hefur verið í lægð
síðan hann man eftir sér en til að
bæta gráu ofan á svart hefur honum
verið gert skylt að skipuleggja stóra
auglýsingaherferð til handa konum
á 48 klukkutímum ellegar verða rek-
inn. Ed fær þá snilldarhugmynd að
bróðir hans Cooper, sem er í miklum
metum hjá kvenþjóðinni, geti ef til
vill komið honum úr klípunni. Coo-
per leiðir hann um strætin þar sem á
vegi hans verða kvenmenn af öllum
stærðum og gerðum en án árangurs,
hugmyndirnar láta á sér standa allt
þar til hann hittir draumakonuna, og
nú lítur út fyrir að hann geti bæði
bjargað starfinu og kynlífinu.
Frumsýning | The Long Weekend
Helgar-
ævintýri
Raunir auglýsingastarfsmanns eru
til skoðunar í The Long Weekend. ERLENDIR DÓMAR
LA Weekly 30/100
The Hollywood Reporter 30/100
Los Angeles Times 10/100
(allt skv. Metacritic)