Morgunblaðið - 19.08.2006, Side 8

Morgunblaðið - 19.08.2006, Side 8
8 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tvískipt kerfi í þjón-ustu við heyrnar-skerta sem eiga rétt á niðurgreiðslum við kaup á heyrnartækjum frá ríkinu er við lýði og telja talsmenn einkafyrirtækis- ins Heyrnartækni órétt- læti fólgið í ríkjandi skipu- lagi. Fjármagn hins opinbera dugir aðeins fjórða hverjum sjúklingi hjá fyrirtækinu, en hinir þurfa að bíða eftir næstu úthlutun jafnvel svo mán- uðum skiptir – eða kaupa heyrnartækin strax og fá engan styrk. Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ) sem er ríkisstofnun niðurgreiðir eingöngu þau tæki sem stofnunin kaupir inn og er af- greiðslufrestur 6–8 vikur, marg- falt styttri en fyrir fáeinum árum. Að sögn Björns Víðissonar, framkvæmdastjóra Heyrnar- tækni, hafa viðskiptavinir hans átt rétt á sömu krónutölu við niður- greiðslu tækja og HTÍ frá 2003. En vandinn felst í því að Heyrn- artækni fær aðeins lítið brot af því árlega fjármagni sem hið opinbera veitir til þessara tækjakaupa. „Þetta dugar fyrir 25% af okkar viðskiptavinum á ársgrundvelli og þess vegna myndast þessi hal- arófa. Þeir sem áttu rétt á niður- greiðslum frá ríkinu þurfa að bíða eftir því að röðin komi að þeim,“ segir hann. „Nú er það svo að við erum löngu búin að klára kvóta þessa árs og við vitum ekki hvað tekur við eftir áramót. Við höfum engin svör fengið frá heilbrigðis- ráðuneytinu og það ríkir alger óvissa.“ Fyrir síðasta ár var Heyrnartækni leyft að úthluta 312 niðurgreiddum heyrnartækjum til viðskiptavina sinna. „Það er mikið óréttlæti fólgið í þessu gagnvart viðskiptavinum okkar. Við erum með þjónustu út um allt land og margt eldra fólk á ekki kost á öðru en að fá niður- greiðslu hjá ríkinu með því að fá tæki hjá Heyrnar- og talmeina- stöðinni. Það þýðir mörg ferðalög til Reykjavíkur sem ekki eru á allra færi vegna kostnaðar.“ Út frá sjónarhóli sjúklings sem Morgunblaðið hefur talað við er ríkjandi kerfi óskiljanlegt. Við- komandi tapaði heyrn í kjölfar lyfjagjafar vegna krabbameins- meðferðar og var heyrnarskerð- ing hans það mikil að hann hefði átt rétt á niðurgreiðslu. Hann kaus að versla við Heyrnartækni vegna gæða á tækjum þar að eigin sögn, greiddi 305 þúsund kr. í stað þess að bíða eftir næstu styrkút- hlutun frá ríkisins hendi. En styrk fékk hann engan, þar sem í fyrsta lagi var niðurgreiðslukvóti Heyrn- artækni búinn og í öðru lagi veitir HTÍ ekki styrk til kaupa á tækjum annars staðar en innan stofnunar- innar sjálfrar. Eins og staðan var hjá sjúk- lingnum gat hann beðið með tækjakaupin hjá Heyrnartækni þar til í janúar, áfram heyrnar- skertur, eða fengið tækin niður- greidd hjá HTÍ en það telur hann mannréttindabrot að þurfa að láta beina sér í ríkisverslun í stað þess að fá fyrirgreiðslu á þeim stað sem hann velur sjálfur. „Ég er á besta aldri og tek þátt í fundum og félagsstarfi og slíku,“ segir hann. „En ég var farinn að missa af því sem sagt var og sjálf- ur farinn að þegja á þessum sam- komum vegna þess að ég gafst upp á því að biðja einhvern um að end- urtaka það sem sagt hafði verið. Það var því alveg eins gott fyrir mig að vera ekki á staðnum.“ 200 manns bíða nú eftir heyrn- artækjum frá HTÍ og er af- greiðslufresturinn 6–8 vikur. Fyr- ir um þrem árum voru hinsvegar á annað þúsund manns á biðlistum eftir tækjum og var afgreiðslu- fresturinn kominn í á annað ár. HTÍ er á fjárlögum og hefur 70 milljónir króna til niðurgreiðslna á heyrnartækjum á þessu ári. Skilyrðin eru þannig að þegar heyrnarskerðing er orðin meiri en 30 db á betra eyranu á sjúklingur rétt á 30.800 kr. á hvert heyrnar- tæki. Þegar heyrnin er nánast al- veg farin, greiðir sjúklingur 20%. Heyrnartæki geta því kostað sjúk- ling frá 10–40 þúsund á hvert tæki að sögn Guðrúnar Gísladóttur, framkvæmdastjóra HTÍ. Þjónum miklu stærri hópi „Við fáum miklu stærri fjárveit- ingu en Heyrnartækni, enda ætlað að þjóna miklu stærri hópi þ.á m. öllum börnum í landinu,“ segir hún. Bendir hún á að til séu dæmi þess að fólk kaupi sér heyrnartæki hjá einkaaðila og fari síðan til Tryggingastofnunar ríkisins með ósk um styrk. TR vísi þá umsókn strax til HTÍ enda sér sú stofnun alfarið um styrkjamál á þessu sviði fyrir hönd ríkisins. Það er á því stigi sem HTÍ hafnar umsókn af einfaldri ástæðu að sögn Guð- rúnar. „Ég niðurgreiði ekki heyrnartæki sem eru keypt ann- ars staðar. Stofnuninni er ekki ætlað að gera það. Við fáum ákveðna fjárveitingu til að kaupa inn heyrnartæki og afgreiða hér. Þau tæki eru niðurgreidd að upp- fylltum skilyrðum. En því er ekki þannig háttað að fólk geti keypt sér heyrnartæki í Danmörku eða einkafyrirtæki í Reykjavík, og komið síðan til HTÍ í leit að nið- urgreiðslunni sinni.“ Fréttaskýring | Kostnaðarhlutur heyrn- arskertra í heyrnartækjum Tvískipt kerfi í þjónustunni Heyrnartæki á 10–40 þúsund krónur með niðurgreiðslu hins opinbera Enginn vafi er á nauðsyn heyrnartækja. Fjórða hvert tæki einka- sala niðurgreitt af ríkinu  Heyrnar- og talmeinastöð Ís- lands niðurgreiðir heyrnartæki fyrir hönd ríkisins, þ.e. eingöngu þau tæki sem stofnunin kaupir inn. Einkageirinn sem einnig flytur inn heyrnartæki er með samning við hið opinbera og nær að niðurgreiða fjórða hvert tæki. Óréttlæti, segir fulltrúi einka- framtaksins. Fulltrúi hins op- inber bendir á margfalt stærri skjólstæðingahóp sinn m.a. öll börn í landinu. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is ELDUR kom upp í vél sendibif- reiðar á Biskupstungnavegi á sjö- unda tímanum í kvöld. Slökkviliði tókst að slökkva eld- inn en eins og sjá má er bíllinn mikið skemmdur. Ekki er ljóst hvað olli brun- anum en engin meiðsl urðu á fólki. Ljósmynd/Gunnar Björn Bjarnason Eldur í sendibifreið á Biskupstungnavegi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.