Morgunblaðið - 19.08.2006, Page 18

Morgunblaðið - 19.08.2006, Page 18
18 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Banos. AFP, AP. | Að minnsta kosti fimm manns hafa látið lífið af völdum eldgoss í sunnanverðu Ekvador og hús í fimm þorpum hafa eyðilagst vegna gjósku og glóandi hrauns. Alfredo Palacio, forseti Ekvadors, lýsti yfir neyðarástandi í fjórum hér- uðum í grennd við eldfjallið Tung- urahua eftir að gosið hófst í fyrra- dag. Jarðfræðingar sögðu þetta mesta gos í eldfjallinu í sjö ár. Um 3.200 manns, sem búa nálægt fjallinu, voru flutt þaðan. Yfir 20.000 hektarar af ræktarlandi eyðilögðust, að sögn Juans Salazars, bæjarstjóra í Penipe, þar sem eyðileggingin er mest. „Fimm þorp grófust undir rauðglóandi hrauni og ösku og fimm manns fórust,“ sagði Salazar. „Í einni byggðanna kviknaði í tólf hús- um vegna hraunsins.“ Björgunarþyrla hersins bjargaði 60 mönnum sem saknað var eftir að eldgosið hófst. Tugir manna fengu brunasár Læknir sagði að um 50 íbúar Pen- ipe-bæjar hefðu fengið aðhlynningu vegna brunasára af völdum glóandi gjósku. „Sex þeirra brunnu mjög al- varlega, einn þeirra er með brunasár á 85% líkamans.“ Fólkið hélt á teppum og skjólum yfir höfðinu þegar það forðaði sér í dauðans ofboði niður hlíðar eldfjalls- ins. Um 60% 15.000 íbúa bæjarins Banos flúðu þaðan og höfðust við í kirkjum, skólum og hótelum í grennd við hættusvæðið. Þúsundir nautgripa drápust. Þjóð- vegir lokuðust vegna gjóskuhlaups, glóandi gjósku sem óð niður hlíðar fjallsins sem eldský á allt að 300 km hraða á klukkustund. Öskusúlan var allt að átta km há. Manntjón af völdum eldgoss í Ekvador APPiltur fjarlægir ösku af þaki húss í bænum Banos í Ekvador í gær eftir að eldgos hófst í fjallinu Tungurahua.   / ? *  N > ;   '( %  $ ' ( $)  (  %& *(   $   $) +   * #$ ( & ( $ )  +,-./,01 4K     #4K  #  2 # :# 2 O*3 P 4K !  ;  /!# ) A #Q # #K*  2 )4K2#/ 4K    0Q2 ) / Q    # #4K            !"# 2 ?(< "JN -?NR 3     $ 4 )(%   !"  #   $ % &'  Jerúsalem. AFP. | Ráðherra í stjórn Ísraels staðfesti í gær að Ehud Ol- mert forsætisráðherra hefði frestað áætlun um brotthvarf Ísraela frá hluta Vesturbakkans og að marka endanleg landamæri Ísraels án sam- komulags við Palestínumenn. Meir Shetreet húsnæðismálaráð- herra sagði þó að Olmert hefði ekki fallið alveg frá áformunum. Áður hafði ísraelska dagblaðið Haaretz skýrt frá því að Olmert hefði sagt á fundi með ráðherrum og forystumönnum flokks síns, Kadima, fyrr í vikunni að ekki væri lengur „viðeigandi“ að ræða áætlunina um að leggja niður sumar af landtöku- byggðum gyðinga á Vesturbakkan- um en halda stærstu byggðunum. Blaðið hafði eftir Olmert að ekki væri hægt að hunsa Palestínumálin en stjórnin stæði nú frammi fyrir enn brýnna verkefni, uppbyggingu í Norður-Ísrael eftir hundruð flug- skeytaárása liðsmanna Hizbollah í Líbanon. Stuðningurinn minnkar Haft var eftir heimildarmönnum í Kadima að ummæli forsætisráð- herrans bentu til þess að áætluninni um Vesturbakkann yrði að öllum lík- indum ekki komið í framkvæmd, að minnsta kosti í fyrirsjáanlegri fram- tíð. Nokkrir af forystumönnum Ka- dima létu í ljósi efasemdir um áætl- unina á fundinum. Kadima myndaði samsteypustjórn með Verkamannaflokknum og fleiri flokkum eftir þingkosningar í mars sem Olmert sagði að væru í raun þjóðaratkvæðagreiðsla um áætl- unina um brotthvarf frá hluta Vest- urbakkans. Stuðningurinn við Kadima og Vesturbakkaáætlunina hefur hins vegar minnkað vegna átakanna í Líbanon og á Gaza-svæðinu í sumar. Frestar áætlun um brotthvarf frá Vesturbakka Boulder. AFP. | Yfirvöld í Banda- ríkjunum brugðust í gær var- færnislega við játningu banda- rísks kennara, Johns Marks Karrs, sem var handtekinn í Taílandi í fyrradag og kvaðst hafa orðið sex ára stúlku í Colo- rado að bana fyrir tíu árum. Bandarískir fjölmiðlar sögðu í gær að fram hefðu komið efa- semdir um að kennarinn væri banamaður stúlkunnar, „barnastjörnunnar“ JonBenet Ramsey, sem fannst látin í kjallara heimilis síns 26. desem- ber 1996. Lögreglan í Taílandi sagði að Karr segðist hafa orðið stúlkunni að bana fyrir slysni. Bandarískir fjölmiðlar höfðu eftir fyrrverandi eiginkonu Karrs að hún hefði verið með honum á allt öðrum stað daginn sem morðið var framið. Að sögn fjölmiðlanna hafa komið fram fleiri vísbendingar um að játn- ingin standist ekki. Saksóknar- ar í Colorado sögðust vilja rannsaka málið „fyrir utan kastljós fjölmiðlanna“ og lögðu áherslu á að Karr teldist sak- laus uns sekt hans væri sönnuð. Efasemdir um játningu kennarans Havana. AFP. | Fidel Castro, leiðtogi Kúbu, er allur að braggast eftir aðgerð á maga og gripið hefur verið til allra ráð- stafana til að koma í veg fyrir árás á Karíbahafseyjuna, að sögn Rauls bróð- ur hans í gær. „Þjóðin er að færa óræka sönnun fyr- ir því að hún getur reitt sig á sjálfa sig,“ sagði Raul í löngu viðtali við dagblaðið Granma, blað kommúnista, í gær, sem birtist undir fyrirsögninni „Enginn óvinur getur sigrað okkur“. Að sögn Rauls er Castro að ná „við- unandi og stigvaxandi bata“, eftir að hafa tímabundið falið honum völdin 31. júlí sl. Jafnframt útskýrði Raul fyrir les- endum Granma að hann hefði öðrum þræði varið tíma sínum í embætti í að styrkja varnir landsins vegna áætlana Bandaríkjastjórnar um eyjuna. „Ég ákvað að auka viðbragðsgetu hersveita okkar … meðal annars með því að kalla á tugi þúsunda varaliða. Það er ekki ætlun mín að ýkja hættuna.“ AP Blaðamaður ræðir við Raul Castro á mynd sem dagblaðið Granma á Kúbu birti í gær. Raul segir Castro að braggast Gerir ráðstafanir til að efla her Kúbu Washington. AFP. | Rúmur helmingur Írana telur ýmist mikilvægt eða mjög mikilvægt að auka réttindi kvenna í landinu, ef marka má nýja skoðanakönnun sem birt er í nýjasta hefti tímaritsins bandaríska, Reader’s Digest. Þessi niðurstaða kemur nokkuð á óvart en um 27 prósent þátttakenda sögðust hlut- lausir í afstöðu sinni gagnvart réttindum kvenna í hinu íhaldssama íranska þjóðfélagi. Þegar þátttakendur voru spurðir að því hvað þeir töldu vera mikilvægasta langtímamarkmið landsins sögðust 41 prósent vilja gera umbætur á hagkerfi þess í því skyni að auka skilvirkni, á meðan 27 pró- sent bentu á þróun kjarnavopna. Líkt og búist var við var afstaða margra þeirra sem tóku þátt í könnuninni fremur neikvæð í garð Ísraels. Þannig samþykktu 67 prósent þátttakenda þá stað- hæfingu að „Ísraelsríki væri ólögmætt og ætti ekki að vera til“, jafnframt því að 46 prósent tóku undir þá fullyrðingu að Bandaríkin væru „hættulegt land“. Rúmlega þriðjungur vill íhaldssamari stjórn, en nokkuð færri, eða 31 prósent, sagðist vilja veraldlegri stjórn. Alls tóku 810 manns þátt í könnuninni sem framkvæmd var í maí og júní. Íranar vilja auka réttindi kvenna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.