Morgunblaðið - 19.08.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 23
MINNSTAÐUR
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Hveragerði | „Ég hef gaman af
pólitísku starfi og vil sjá hluti ger-
ast. Ég þrífst á því að vera ekki í
fastri rútínu þar sem allt er fyr-
irfram ákveðið, kem reyndar úr
þannig umhverfi að vera vön að
búa við fjölbreytni, hitta marga og
vera í gefandi starfi. Ég vil vera í
ögrandi umhverfi,“ sagði Aldís
Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í
Hveragerði.
Hún hefur verið viðloðandi mál-
efni bæjarstjórnar síðan 1994 er
hún varð fyrsti varamaður í bæj-
arstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
Hveragerði. „Ég ætlaði einungis
að prófa að vera með og starfa í
einni nefnd en lenti inni sem að-
almaður og hef verið í bæjarstjórn
síðan, alltaf í meirihluta þar til á
síðasta kjörtímabili sem var lær-
dómsríkt á sinn hátt,“ sagði Aldís
sem hefur gegnt helstu embættum
bæjarstjórnar á sínum ferli og
starfað mikið með samtökum
sveitarfélaga á Suðurlandi.
Hún kom til Hveragerðis með
foreldrum sínum á árinu 1966, ólst
þar upp, gekk í menntaskóla á Ak-
ureyri, fór til Noregs og nam al-
þjóðastjórnmál, kom heim stofnaði
fjölskyldu. Síðan lá leiðin til Dan-
merkur í kerfisfræði en auk þess
hefur hún lagt stund á nám í við-
skiptafræði við Háskólann á Ak-
ureyri. Hún er gift Lárusi Inga
Friðfinnssyni matreiðslumeistara
og eiga þau fjögur börn.
Stöðug fjölgun fólks
„Starf bæjarstjóra í Hveragerði
er mjög skemmtilegt. Hér hefur
verið stöðug fjölgun fólks og aldr-
ei komið upp sú staða að íbúum
hafi fækkað milli ára og und-
anfarin ár hefur verið mikil fjölg-
un. Mér finnast það vera forrétt-
indi að fá að stýra bæjarfélagi við
þær aðstæður. Þetta er líka bær-
inn minn, ég bý hér og ætla að
búa hér þannig að hér eru mínar
rætur. Ég lít svo á að við í bæj-
arstjórninni séum að búa í haginn
fyrir framtíðina og allar okkar
gjörðir hafa áhrif á okkar eigin
umhverfi. Ég er ekki far-
andverkamaður í þessu starfi en
margir bæjarstjórar flytja brott úr
bæjarfélögum þar sem þeir hafa
starfað,“ sagði Aldís en í Hvera-
gerði hefur ekki áður verið póli-
tískur bæjarstjóri og aldrei heima-
maður eða kona sinnt starfinu.
Með ráðningu hennar má segja að
rofinn hafi verið múr að því leyti
að Hvergerðingur gæti verið bæj-
arstjóri.
Tröllatrú á Hveragerði
„Við erum hérna í stúkusæti
hvað bæjarfélög snertir. Þá á ég
við það að við erum í örskots-
fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu
og getum sótt þangað það sem við
viljum en við getum líka ákveðið
að fara aldrei þangað heldur nálg-
ast alla okkar þjónustu hér fyrir
austan. Umhverfið er einstakt
hérna og bæjarstæðið mjög fal-
legt,“ segir Aldís sem hefur mjög
sterkar taugar til bæjarins og hef-
ur mikinn metnað fyrir þess hönd
en verkefni bæjarstjórnarinnar og
bæjarstjórans sem leiðtoga eru
mörg.
„Skipulagsmálin eru eitt aðal-
verkefnið en við stöndum frammi
fyrir því að einkaaðilar eiga stór
svæði innan bæjarmarkanna og
við fáum mjög margar fyr-
irspurnir frá aðilum sem vilja
byggja upp hér hjá okkur. Hug-
myndir þeirra eru margvíslegar
og það þarf að samræma fram-
kvæmd þeirra og útfærslur á áætl-
unum bæjarins, um byggingamagn
og þéttleika byggðarinnar og við
göngum ákveðið til þess verks.
Við viljum að hér byggist upp fjöl-
skylduvænt samfélag sem nýtir þá
kosti sem hér eru og sérstöðuna
sem dregur fólk hingað.
Það er mjög mikill áhugi fyrir
þessu svæði og framkomnar vænt-
ingar fjárfesta hér í Hveragerði á
næstu árum nema samtals 1.700
íbúðum. Þar er Eyktarsvæðið
stærst, fyrir austan Varmá með
900 íbúðir. Til samanburðar má
geta þess að í dag eru um 660
íbúðir í Hveragerði. Þetta sýnir að
margir hafa tröllatrú á Hvera-
gerði og veðja á uppbygginguna
fyrir austan fjall. Straumurinn
liggur greinilega hingað en auð-
vitað er þetta uppbygging sem
mun gerast á löngum tíma en
Hveragerði er að vaxa úr þorpi í
stóran bæ,“ sagði Aldís.
Tvöfalda þarf Suðurlandsveg
„Stærsta verkefnið fyrir svæðið
hér fyrir austan Hellisheiði er úr-
bætur á Suðurlandsveginum og
tvöföldun hans. Það er ótrúleg
skammsýni ef ekki verður strax
ráðist í tvöföldun vegarins. Allir
þeir fjölmörgu sem koma og
kynna hugmyndir sínar um fjár-
festingu hérna segja að tvöföldun
vegarins þurfi að verða að veru-
leika og það er á hreinu að það
lætur enginn bjóða sér 2 plús 1
veg með vegriði. Rétt er líka að
benda á þá staðreynd að Suður-
landsvegurinn er ekki eingöngu
sunnlenskt verkefni. Hann er gríð-
arlega mikilvægur fyrir höf-
uðborgarsvæðið og þingmenn þar
ættu að berjast fyrir tvöföldun
vegarins, rétt eins og þingmenn
okkar kjördæmis.
Hveragerði er með í félagi
ásamt Sjóvá hf., fleiri sveit-
arfélögum og aðilum um tvöföldun
vegarins. Sjóvá hefur lagt fram at-
hyglisverðar tillögur um veginn
sem marka tímamót í vegagerð og
þar er komin fljótvirkasta aðferð-
in við að tvöfalda veginn. Aðkoma
þeirra sýnir að þeir horfa mjög til
öryggisþátta og eru með tillögur í
þeim efnum sem ekki hafa sést áð-
ur hér á landi. Ég trúi ekki öðru
en að tekið verði mark á þessu og
ríkisvaldið nýti sér frumkvæði Sjó-
vár hf.,“ sagði Aldís.
Ferðalög og garðyrkja
„Mér finnst mjög gaman að
ferðast og ég nýt þess að skoða
framandi slóðir. Svo finnst mér
garðyrkjan heillandi og hef gaman
af því að dunda við hana í mínum
heimagarði þegar tími er til. Svo
kemur aftur hin hliðin sem er sú
að þeir sem eru í pólitík eiga fáar
frístundir því það þarf auðvitað að
sinna fjölskyldunni og halda sam-
bandi við vini og ættingja. Ég er
mikil fjölskyldumanneskja og hjá
mér hefur hún forgang. Ég vil
fylgja börnunum eftir því það er
mjög gefandi og veitir lífsfyllingu
að vera nærri sínu fólki,“ sagði
Aldís Hafsteinsdóttir.
Aldís Hafsteinsdóttir á sterkar rætur í Hveragerði
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Heimamaður Aldís Hafsteinsdóttir í fögru umhverfi við Reykjafoss.
Forréttindi að fá að stýra
bæjarfélagi í stöðugum vexti
Eftir Sigurð Jónsson
Hveragerði | Öll börn og unglingar í
Hveragerði, að átján ára aldri, hafa
fengið frítt í sundlaugina í Lauga-
skarði frá 1. júlí síðastliðinn. Mark-
mið bæjarins með því er að auka
hreyfingu og hreysti hjá þessum ald-
urshópi.
Við hverja sundferð er merkt í
sérstakt sundkort og eftir 30 skipti
fá sundiðkendur svo viðurkenningu,
sundpoka sem merktir eru Hvera-
gerðisbæ.
Þær Daniela og Mayra Ruiz voru
fyrstar til þess að ná þessum áfanga
og afhenti íþrótta- og æskulýðs-
fulltrúi þeim viðurkenningar fyrir
fyrstu þrjátíu skiptin. Á vef Hvera-
gerðisbæjar kemur fram að systurn-
ar fara í sund á hverjum degi og eru
komnar langleiðina með að fylla önn-
ur 30 skipti.
Hinn 1. október verður dregið úr
öllum fullútfylltum sundkortum og
veitt sérstök verðlaun.
Fara á hverjum degi í sund