Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 24

Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 24
Reuters Hvor er áhrifameiri? Helmingi fleiri þátttakendur í nýlegri bandarískri könnun þekktu nafn Harry Potter en Tony Blair. Nýverið birtust í erlendudægurmenningarpressunniniðurstöður bandarískrar könnunar, sem leiddu í ljós yf- irgripsmikla þekkingu þjóðarinnar á ýmsum málefnum er tengjast dægurmenningu og afþreyingu. Um leið varpaði könnunin ljósi á nokkra vanþekkingu fólksins á „alvarlegri“ málefnum eins og alþjóðastjórn- málum. Þannig vissi mun minna hlutfall hinna bandarísku þátttak- enda í könnuninni hvert nafn breska forsætisráðherrans, Tony Blairs, væri, en söguhetju bóka J.K. Rowl- ing, Harry Potter. Þrír fjórðu þátt- takenda gátu nefnt nöfn tveggja dverga af heimili Mjallhvítar, með- an aðeins fjórðungur gat nefnt tvo bandaríska hæstaréttardómara. Og tvöfalt hærra hlutfall vissi hvað síð- asti sigurvegarinn í American Idol hét – Taylor Hicks – en hvað hinn umdeildi nýlega skipaði hæstarétt- ardómari hét – Samuel Alito.    Það er auðvelt að falla í þá gryfjuað fordæma Bandaríkjamenn sem vitlausa, yfirborðskennda og óupplýsta. En sé litið í okkar eigin barm, er til dæmis ekki fremur lík- legt að allt að þrefalt fleiri Íslend- ingar geti nefnt nöfn tveggja eða þriggja jólasveina en hæstarétt- ardómara? Það væri fróðlegt að gera íslenska útgáfu af könnun eins og þessari og sjá hvað hún leiddi í ljós.    Hvað sem einstökum nið-urstöðum lýtur, er eitt mjög ljóst sem lesa má út úr könnuninni. Það er að almenningur veit ýmislegt um afþreyingarbransann og fólkið þar, og oft meira en um önnur mál- efni. Af þessu má leiða að áhrif af- þreyingarbransans og fólksins þar séu þó nokkur, sem leiðir hugann óneitanlega að ábyrgð þess, sam- félagslegri ábyrgð.    Leikarinn Richard Gere komsteinnig í erlendar dægurmenn- ingarfréttir nýverið, þegar hann benti á að afþreyingariðnaðurinn yrði að láta til sín taka í málefnum AIDS. Gere, sem lengi hefur verið öflugur í baráttunni gegn sjúk- dómnum, benti á blaðamannafundi nýverið á að „the media“ – allt frá stjórnendum stærstu sjónvarps- stöðvanna til kvikmyndastjarna Hollywood og Bollywood (en fund- urinn var haldinn á Indlandi) – yrðu að taka samfélagslega ábyrgð í bar- áttunni. Í þeim tilgangi hafa til- kynningar frá hinu opinbera varð- andi sjúkdóminn verið fluttar af þekktum stjörnum, persónur sem eru HIV-jákvæðar skrifaðar inn í sápuóperur og alnæmissmitað fólk komið fram í viðtalsþáttum og heimildamyndum.    Hvort heldur er í baráttunni viðAIDS eða önnur málefni sem heimurinn þarf að taka höndum saman um, hefur Gere nokkuð til síns máls. Frægðinni fylgir ábyrgð, vegna þess að almenningur fylgist náið með hinum frægu, eins og könnunin sem vitnað var til í byrjun pistilsins gefur til kynna. Það er hlustað á þetta fólk. Líkur mætti til dæmis leiða að því að fleiri hefðu áhuga á að vita hvað Idol-stjarnan Taylor Hicks hefur um ýmis málefni að segja en hæsta- réttardómarinn Samuel Alito, eða hvaða ákvarðanir Harry Potter kýs að taka en Tony Blair. Þennan áhuga ætti að virkja í jákvæðum til- gangi fyrir samfélagið.    Og rétt eins og horft var hingaðheim með tilliti til könnunar- innar frægu, má líka líta til „hinna frægu“ á Íslandi. Hvað það fólk hef- ur að segja skiptir vissulega máli, og rétt eins og erlendis – verður það að taka ábyrgð. Frægðinni fylgir ábyrgð ’Þrír fjórðu þátttakenda gátu nefnt nöfntveggja dverga af heimili Mjallhvítar, meðan aðeins fjórðungur gat nefnt tvo bandaríska hæstaréttardómara. Og tvöfalt hærra hlutfall vissi hvað síðasti sigurvegarinn í American Idol hét – Taylor Hicks – en hvað hinn umdeildi ný- skipaði hæstaréttardómari hét – Samuel Alito.‘ ingamaria@mbl.is AF LISTUM Inga María Leifsdóttir 24 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Myndirnar eru teknar örlítið á hlið þannig þegar horft er beint á t.d. ljós- rofann þá skýtur myndin beinlínis skökku við og truflar augun á vissan hátt. Þarna eru sömuleiðis þrjár myndir af sömu loftræstingunni sem hanga í einni röð. Myndirnar eru teknar örlítið á ská þannig að skuggi myndast í loftræstiopinu einum meg- in. Síðan er myndunum öllum snúið einhvern veginn og skugginn innan í loftræstiopinu vísar þar af leiðandi í þrjár mismunandi áttir. Í öllum ljós- myndunum á sýningunni er eitthvað svipað að verki en á misáberandi hátt; sjónarhorninu er búið að snúa en myndunum er stillt upp beinum og vinda þannig rýmið aðeins til. „Þetta er mjög svipað því sem ég var að sýna í i-8 gallerí í vetur en þar var ég með stórar ljósmyndir af kassalaga hlutum sem teknar voru á ská og svo leiðréttar. Þá er eitthvað sem ekki gengur upp í myndinni og truflar.“ Samræður sjónvarpsskerma Í Ásmundarsal sýnir Aleksandra Signer þrjú verk. Eitt þeirra er svart náttborð í einu horni salarins með tveimur myndarömmum ofan á. Þeg- ar betur er að gáð má sjá að ramm- arnir eru stafrænir og sýna þeir „sli- deshow“ með nokkuð pólitísku innihaldi sem gjarnan er viðloðið hennar listsköpun. Annar ramminn sem ég hef verið að gera áður,“ segir Tumi. „Það má segja að þetta sé hálf- gerð tilraun hjá mér. Hingað til hafa vídeóverk mín haft mjög sterka teng- ingu við málverkið sem í rauninni er hægt að skoða sem vídeó-málverk. Ég var svo lengi að mála á striga og það hefur einhvern veginn haft áhrif á hugsunarhátt minn allar götur síð- an. Þetta vídeóverk sem ég er að sýna núna fer eiginlega lengst frá því og mér fannst það passa sérstaklega vel inn á þessa sýningu með Alek- söndru.“ Snúið upp á rýmið Hitt verk Tuma á sýningunni er tölvuunnar ljósmyndir af ljósarofum og innstungum og ýmislegum smá- legum fyrirbærum sem fest eru í inn- veggi. Myndirnar eru í raunstærð og staðsettar þar sem myndefnin sjálf, þ.e.a.s. ljósrofar, dyrabjöllur, loft- ræstiop, eru venjulega staðsett á veggjum. „Ég hef alltaf haft gaman af að nota einhverja hluta rýmisins sem ekki eru yfirleitt notaðir til þess að festa upp verk. Í þessu verki smellur það allt saman.“ Í sumum myndunum hefur listamaðurinn breytt litunum og verða þær þar af leiðandi meira áberandi á hvítum veggjum Ásmundarsals. „Það má segja að málaranálgunin sé nokkuð áberandi í þessum verk- um,“ útskýrir Tumi. VÍDEÓ-INNSETNINGAR verða í meginhlutverki á sýningu sem Tumi Magnússon opnar í Listasafni ASÍ ásamt pólsku listakonunni Alek- söndru Signer í dag. Að sögn Tuma er ýmislegt sem skarast á í list þeirra og sérstaklega í vídeóverkum þeirra. Tumi gegnir nú prófessorsstöðu við Listaháskólann í Kaupmannahöfn og hefur verið starfandi þar síðasta árið en fram að því var hann prófess- or við Listaháskóla Íslands frá árinu 1999. Rætur hans liggja í málverkinu og hefur það alla tíð verið fyrirferð- armikið í hans listsköpun, þrátt fyrir að hann hafi skipt út striganum fyrir öðruvísi undirlag. Í seinni tíð hefur hann unnið meira með ljósmynda-, vídeó- og tölvutækni en á sýningunni í ASÍ mun hann sýna vídeóverk á fjórum skjám ásamt litlum tölvuunn- um ljósmyndum. Aleksandra er búsett í Sviss og starfar í St. Gallen en hún hefur mestmegnis fengist við vídeó- innsetningar sem margar hverjar hafa einhvers konar pólitískt inni- hald. Vídeóverk hennar fjalla ýmist um rými eða standa sem víd- eóskúlptúrar. Hún mun sýna fimm verk á þessari sýningu sem ná aftur til ársins 1997 en þetta verður í fyrsta skipti sem hún sýnir á Íslandi. Landslag á ferð Videóverkið sem Tumi sýnir í Ás- mundarsal er á fjórum flatskjám sem staðsettir eru hver á sínum veggnum. Verkið er tekið á fjórar myndbands- vélar samtímis úr bifreið á ferð um Mjóafjörð á Austurlandi. Allar vél- arnar vísa í sitt hvora áttina og súmmar síðan hver þeirra langt út á sjóndeildarhringinn og þar af leið- andi hverfur bíllinn alveg úr verkinu. Þegar staðið er fyrir miðjum salnum getur að líta fjögur sjónarhorn; fram á við, til beggja hliða og aftur á bak. Vélarnar snúast og hristast á krók- óttum vegunum og þar sem allar myndirnar eru teknar á sama tíma er öll hreyfing á skjáunum fjórum mjög samhæfð. Áhorfandinn fær þannig sterka tilfinningu fyrir hreyfingunni og ferðalaginu. „Þetta er í rauninni frábrugðið því sýnir ólíkar myndir af George W. Bush Bandaríkjaforseta halda ræðu og hinn sýnir myndir af vafasömum manni, hugsanlega geðsjúkum, að handleika byssu. Þá er Aleksandra einnig með tvo litla sjónvarpsskjái sem hún stillir þétt andspænis hvor öðrum á sitt hvorum járnþrífætinum. Örlítil rifa, kannski tveir sentímetrar á breidd, skilja skjáina að og sést þar á milli að þeir eru með sitthvora erlendu sjón- varpsstöðina í gangi sem kjafta hvor ofan í aðra. Þegar Aleksandra sýndi verkið fyrst í Sviss hafði hún þýsk- svissneska fréttastöð á öðrum skján- um og svo fransk-svissneska frétta- stöð á hinum. Því er von á ein- hverjum svipuðum samræðum, þar sem andstæðir pólar mætast, á þess- ari sýningu í Listasafni ASÍ. Myndir sem koma í ljós Í öðru horni salarins er víd- eóverkið „María í snjónum“ eftir Aleksöndru sem sýnir „kitch“-mynd af Maríu guðsmóður með blikkandi ljósum og flúri sem hugsanlega hefur verið keypt fyrir slikk á einhverjum útimarkaði. Myndin hangir í tré og í fyrstu sést rétt grilla í hana úr fjar- lægð og blikkandi ljósin mynda eins konar lýsandi áru í kringum hana. Myndavélin færist svo stöðugt nær Maríu þar til hún er komin alveg upp að henni. Í gryfjunni á neðri hæð safnsins er gengið inní svartamyrkur en þar er búið að skyggja fyrir alla glugga. Niður úr loftinu hanga fjölmörg blá vasaljós í appelsínugulum streng. Vasaljósin eru framlengd með gráu plaströri og þegar kveikt er á þeim og þeim beint að einhverjum fleti þá kemur þar í ljós, í bókstaflegri mein- ingu, mynd sem listamaðurinn hefur teiknað á glerið á ljósinu en hvert vasaljós hefur að geyma ólíka mynd. Þannig tekur áhorfandinn virkan þátt í innsetningunni með því að tendra á ljósunum og varpa fram myndum í myrkrinu. Sýningin verður opnuð klukkan 15 í dag og verður opin til klukkan 22 um kvöldið. Sýningar standa til 10. september. Myndlist | Tumi Magnússon og Aleksandra Signer opna sýningu í Listasafni ASÍ í dag Myndir í myrkri Morgunblaðið/Eyþór Tumi Magnússon. Neðarlega sjást myndirnar af lofræstiopunum þremur. Eftir Þormóð Dagsson thorri@mbl.is „Samræður“ eftir Aleksöndru Signer.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.