Morgunblaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 25
MENNING
TÉKKNESKI kammerhópurinn
Musica ad Gaudium, er fyrst kom
fram hér 2004, hleypti vetrarvertíð
Salarins af stokkunum á miðviku-
dag ásamt Eydísi Franzdóttur er
starfað hefur við og við með hópn-
um frá um 1992. Kvartettinn mun
stofnaður 1989 og hefur sérhæft sig
í flutningi tónlistar frá end-
urreisnar- og barokktímabilinu.
Það var viðeigandi sumarbjartur
blær yfir dagskránni. Síðbarokkhöf-
undar skörtuðu sínu fisléttasta í
samblandi við kunnug lútusöngslög
endurreisnarmeistarans Dowlands
og barnslegt ferska nútímatónlist
Tékkans Jiris Bezdìk í elzta og
yngsta enda. Stutt kantata Telem-
anns, „Weg mit Sodoms gift’gen
Früchten“ f. sópran, flautu og fylgi-
bassa kynni að vísu að verka obbo-
lítið í (ó)tíma töluð jafnskömmu eft-
ir „Gay Pride“ gleðigönguna, en
hljómaði samt upplyftandi fyrir hug
og hjarta – einkum bráðfalleg
seinni arían í röltandi 4/4 og hug-
ljúfum anda Schafe können sicher
weiden.
Þríþætt Slovanika Bezdeks (f.
1961) fyrir óbó & sembal, er hér var
frumflutt, bar ýmist merki popp-
áhrifa eða leitandi framúrstefnukl-
issna, en var þó lengst af áheyrileg.
Prelúdía og fúga Buxtehudes í g-
moll fyrir sembal (er raunar endaði
á ótilgreindri postlúdíu eftir spil-
fúguna í 4/4) var glimrandi vel leik-
in á nýfengið hljóðfæri Salarins af
Alenu Tichá, og í lokaverkinu fyrir
hlé, kantötu Händels „Crudel tir-
anno, Amor“, fór tékkneski sópr-
aninn á kostum í tveim hröðum arí-
um með m.a. miklu og glæsilegu
flúri. Einkum sýndi síðasti þátt-
urinn dæmalaust spræka hryn-
kennd „Saxans mikla“ í bezt fáan-
legu ljósi.
Tónsköpun Bezdìks kom talsvert
betur út en í Slovanikunni í fjög-
urra laga flokki hans fyrst eftir hlé,
„Sprcha ze sna“. Hér sem endra-
nær gaf tónleikaskráin hvorki kost
á fróðleik um höfunda, verk né
texta, en ef marka mátti mús-
íkáhrifin í heillandi túlkun söngkon-
unnar (dimmþétt röddin minnti mig
örlítið á Montserrat Figueras) og
meðspilenda hennar hefðu þessi
sjarmerandi stuttu lög vel getað
verið hugsuð fyrir börn og lögð út
af ævintýrum.
Fimm söngvar úr Fyrstu söngva-
bók Johns Dowlands voru allir í
fremsta flokki; flestir vel kunnir og
að sama skapi vel túlkaðir, nema
hvað Come Again var of hraður og
textatjáningin því flaustursleg.
Hugvitssöm beiting blokkflautna,
m.a. af bassa- og kontrabassastærð,
lagði til jafnt skemmtilega fyllingu
sem fjölbreytni, og raunar eftirtekt-
arvert fyrr og síðar hvað kontra-
bassinn var kræfur í fylgibassa við
sembal. Václav Kapusta brilleraði
síðan með virtúósum fagottleik í
Sónötu hins þýzk-enska J. E. Galli-
ards (1687–1749), og loks voru flutt
„Fimm þjóðlög“ (þ. á m. Móðir mín
í kví, kví) við almennan fögnuð.
Hið eina sem skyggði á þessa
annars ánægjulegu tónleika var al-
gert umfjöllunarleysi tónleikaskrár
um höfunda og verk – einkum í ljósi
þess hve mörg voru lítt kunn. Ekki
einu sinni ártöl voru tilgreind, og
fyndist manni að í slíkum tilvikum
mættu húsráðendur vel taka fram
fyrir hendurnar á flytjendum og
bæta ögn úr þekkingarskák.
Sumarbjart síðbarokk
Morgunblaðið/Eyþór
„Það var viðeigandi sumarbjartur blær yfir dagskránni,“ segir Ríkarður
Örn Pálsson um tónleika Musica ad Gaudium.
TÓNLIST
Salurinn
Verk eftir Telemann, Bezdìk, Buxtehude,
Händel, Dowland og Galliard. Musica ad
Gaudium (Andrea Brožáková sópran,
Alena Tichá semball, Jaromír Tichý
flauta/blokkflautur og Václav Kapusta
fagott/k.b.blokkflauta). Gestur: Eydís
Franzdóttir óbó. Miðvikudaginn 16.
ágúst kl. 20.
Kammertónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson