Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 29
DAGLEGT LÍF Í ÁGÚST
Nánari upplýsingar á siminn.is eða á næsta sölustað Símans.
* Eingöngu innan kerfis Símans
SUMARTILBOÐ
Á SAMSUNG SÍMUM
5KR.
SMS&MMS
ALLARHELGAR Í SUMAR
*
Nánari upplýsingar á siminn.is eða á næsta sölustað Símans.
Gullfallegur samlokusími,
sem býður upp á alla helstu
möguleikana. Meðal búnaðar
má nefna VGA myndavél og
hægt að taka upp hreyfimyndir,
FM-útvarp, 3MB minni, 6 klukku-
stunda taltíma á rafhlöðu og
margt fleira.
14.980kr.
SAMSUNG X650
Glæsileg hönnun. Örþunnur,
með stórum TFT hágæða
litaskjá og 1,3 MP myndavél
sem hægt er að snúa 180
gráður. Hægt er að tengjast
tölvu, handfrjálsum búnaði
og blátannarsímum í
gegnum blátannarbúnað.
37.980kr.
SAMSUNG D820
* Eingöngu innan kerfis Símans
17.900
Vika í Bretlandi
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
31
58
3
03
/2
00
6
Bíll úr flokki A
50 50 600 • www.hertz.is
*Verð miðað við gengi 1. maí 2006.
*
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
frá
VERÐ á sólarlandaferðum í Noregi
hríðlækkar um þessar mundir en
slíkar verðlækkanir eru árviss við-
burður þar í landi á haustin þegar
skólafríi lýkur. Í frétt á vefsíðu For-
brukaren.no segir frá því að hægt sé
að fá fjölmargar ferðir í sólina á
1.000 krónur (um 11.300 isk) með
norskum ferðaskrifstofum þar sem
innifalin er flugferð til og frá Noregi
og vikudvöl á ótilgreindu hóteli.
Meðal þeirra áfangastaða sem
nefndir eru í greininni eru Tyrkland,
innan mánaðar því frá miðjum sept-
ember má búast við því að verðið
hækki á ný.
Grikkland, Kanaríeyjar og Túnis.
Vilji fólk nýta sér þessi tilboð ætti
það þó að stefna á sólarlandaferð
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ódýrt í
sólina
NOREGUR
Blóm og hjátrú
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull býður
upp á gönguferð og blómaskoðun
sunnudaginn 20. ágúst kl. 14.00.
Blómasérfræðingur þjóðgarðsins
Ásta K. Davíðsdóttir fræðir fólk um
plöntur og ýmsan þjóðlegan fróðleik
og hjátrú sem tengjast þeim, t.d.
hvernig holtasóley var notuð til að
draga til sín auð og fíflablöð til að
dempa blóðhita ungra ólofaðra
manna. Gangan er létt og tekur u.þ.b.
2 klst. Mæting er við afleggjarann
upp í Eysteinsdal. Allir velkomnir og
ekkert gjald.
Ferðabæklingar á ensku um
áfangastaði Iceland Express
Farþegar Iceland Express og aðrir
geta nú sótt ókeypis ferðabæklinga á
netinu um Kaupmannahöfn, London
og aðra áfangastaði Iceland Express.
Upplýsingabæklingarnir eru fram-
leiddir á ensku og þá er hægt að
nálgast á vef Iceland Express á PDF
formi þannig að auðvelt er að lesa á
vefnum eða prenta út og taka með
sér. Bæklingarnir eru uppfærðir árs-
fjórðungslega og eru fullir af ábend-
ingum um áhugaverða staði, veit-
ingahús, söfn, leiksýningar og fleira.
Þeir innihalda kort af hverri borg og
upplýsingar um samgöngur.
Beint flug til
St. John’s í haust
Eins og undanfarin átta ár býður
Hópferðamiðstöðin – TREX upp á
haustferðir til St. John’s á Nýfundna-
landi, sem er nútímaleg borg á stærð
við Reykjavík og í fréttatilkynningu
frá Hópferðamiðstöðinni kemur fram
að borgin sé töfrandi blanda gamla
og nýja heimsins þar sem gott er að
versla. Í boði eru skoðunarferðir um
borgina og nágrenni hennar, m.a. á
útsýnisstaðinn Signal Hill og til Cape
Spear, austasta odda Norður-
Ameríku. George Street frægasta
kráargatan lifnar við með Hallo-
weenhátíð sem hægt er að njóta í
fyrstu ferðinni.
Að þessu sinni eru áætlaðar 3 ferðir
og eru dagsetningar:28. okt – 31. okt,
31. okt. – 4. nóv og 4. nóv – 8. nóv.
Farið er í beinu leiguflugi með Ice-
landair og flugtíminn er 3–3,5 klst. Í
boði er gisting á Hótel Fairmont
Newfoundland í miðbænum og Hótel
Holiday Inn sem er stutt frá.
Fyrir árshátíðarhópa eða aðra sem
þess óska er hægt að útvega góða
samkomusali. Að þessu sinni gefst
Kanadamönnum á Nýfundnalandi eða
annars staðir færi á að kaupa flug-
sæti frá St. John’s til Íslands og til
baka og er það nýjung. Nánari upp-
lýsingar á www.vesttravel.is
www.icelandexpress.is
www.vesttravel.is
St. John’s á Nýfundnalandi.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
ICELANDAIR hóf beint flug til
Manchester í vor og nú hefur verið
ákveðið að halda því áfram yfir vetr-
artímann. Flogið verður tvisvar í
viku til Manchester í vetur á föstu-
dögum og mánudögum.
Vegna aukins áhuga á ferðum til
Berlínar hefur verið ákveðið að
halda áfram áætlunarflugi þangað
út októbermánuðFlogið verður
tvisvar í viku til Berlínar út október.
Skíðasvæði yfir vetrartímann
Önnur stórborg í Evrópu, Péturs-
borg í Rússlandi, mun einnig standa
ferðaglöðum Íslendingum til boða
í haust en þangað verður flogið einu
sinni í viku í september og október.
Í lok janúar hefst skíðaflug til
Salzburg í Austurríki og er síðasta
flugið til Salzburg 3. mars. Frá Salz-
burg er þægilegt að komast á helstu
skíðasvæði Austurríkis s.s. Ober-
tauern, Zauchensee, Gastein,
Kitzbuhel, Flachau, Schladming,
Saalbach og Zell-am-See.
Á sama tíma og bætt er við flugi
til Evrópu verður lítillega dregið úr
flugi til Bandaríkjanna á þeim tíma
yfir háveturinn þegar minnst eft-
irspurn er.
Áætlunarflug til Baltimore verður
fellt niður frá 9. janúar til 8. mars
og
til Minneapolis frá 10 janúar til
15. mars.
Beint flug til 14 áfangastaða
Icelandair heldur í vetur úti beinu
áætlunarflugi til 14 áfangastaða í
Evrópu og Bandaríkjunum.
Áfangastaðir félagsins í vetur eru
Amsterdam, Baltimore/Washington,
Boston, Frankfurt, Glasgow, Kaup-
mannahöfn, London, Manchester,
Minneapolis, New York, Orlando,
Ósló, París, Salzburg og Stokk-
hólmur.
FERÐALÖG
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Alltaf gaman að skreppa til útlanda og kæla sig í gosbrunnum.
Flogið til Man-
chester í allan vetur