Morgunblaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 31 magnstekjuskattur verið til staðar. Hann hefði verið lagður á í góðu samkomulagi og að það væri almenn skoðun að hann ætti að vera hófleg- ur og einfaldur. „Við núverandi aðstæður er varðveisla stöð- ugleikans mikilvægust í efnahagsmálum og jafn- framt lækkun vaxta, aukinn sparnaður og það að halda sem mestu fjármagni í landinu okkar. Þeir sem tala fyrir hækkun skattsins mættu hafa þetta í huga því að augljóst er að hækkun hans hefði þveröfug áhrif. Hér eins og oftast verður samhengi hlutanna að ráða ferð en ekki eitt af- markað atriði ef vel á að takast til,“ sagði Hall- dór. Hann kom einnig á málefni einkahlutafélaga og sagði að í skattalögum væri gert ráð fyrir að þeim sem stunduðu sjálfstæðan atvinnurekstur bæri að reikna sér laun við þá vinnu sína hver sem hún væri. „Verður ekki annað séð en að skattyfirvöld hafi hreinlega vanrækt að gefa út viðmið- unarreglur um það þótt þau hafi í reynd verið af- ar nákvæm á öðrum sviðum. Því verður vart trú- að að þeir sem hafa eingöngu tekjur af fjármagnstekjum vinni ekkert að öflun teknanna og séu iðjulaust fólk.“ Fíkniefnin enn vágestur Halldór sagði að hann væri stundum spurður um það þegar hann ræddi þær framfarir sem orðið hefðu, hvað hefði mistekist. Þar vildi hann gera fíkniefnamálin að umtalsefni, sem flokk- urinn hefði gert að áherslumáli í kosningunum 1999. Í kjölfarið hefði mikið átak verið gert í bar- áttunni við þennan mesta vágest nútímans og einhverjar orrustur hefðu unnist en miklu fleiri hefðu tapast. Halldór benti á að í fréttum hefði komið fram að yfir 70 fíkniefnatilfelli hefðu kom- ið upp á Akureyri um verslunarmannahelgina. „Það er ljóst að sölumenn dauðans eru enn í fullu fjöri. Þeirra vinna er að leggja líf ungmenna í rúst,“ sagði Halldór. Hann sagðist einnig hafa áhyggjur af þeirri þróun hér á landi að alþjóðleg samtök um skipulagða glæpastarfsemi væru hér að skjóta rótum. „Það eru mjög váleg tíðindi, enda er tilgangur slíkra samtaka vitaskuld að vega að æsku lands- ins og byrla henni eitur og græða á ógæfu ann- arra og ég hlýt að viðurkenna, á þessari stundu, að okkur sem förum, og fórum, með stjórn þessa lands hefur ekki tekist nægilega vel upp í þess- ari baráttu og við verðum að herða tökin með því að efla löggæsluna og gefa henni auknar heim- ildir í þeirri baráttu,“ sagði Halldór. Flokkurinn áhrifamikill Hann fjallaði einnig um sögu og hlutverk Framsóknarflokksins í þau 90 ár sem hann hefur starfað. Hann sagði engan flokk hafa haft jafn- mikil áhrif á þjóðfélagið á þessum tíma og Fram- sóknarflokkinn. Hann hefði borið gæfu til að breytast og þróast með þjóð sinni. Leiðarstjarna flokksins væri þó sú sama og áður, að setja manneskjuna og velferð hennar í öndvegi. Hann lauk ræðu sinni með því að lýsa yfir þakklæti fyrir það traust sem honum hefði verið sýnt sem formanni flokksins og til þeirra sem hann hefði unnið með. Sérstaklega þakkaði hann eiginkonu sinni og fjölskyldu stuðning sem aldr- ei hefði brugðist og þjóðinni fyrir umburðarlyndi og traust sem gerði honum mögulegt að sinna störfum sínum. „En nú er mál að linni. Nú taka aðrir við. Nú stíg ég niður af sviðinu,“ sagði Halldór að lokum. á flokksþingi Framsóknarflokksins sem hófst á Hótel Loftleiðum í gær starf við Bandaríkin í nýju ljósi Morgunblaðið/Sverrir ðum að Framsóknarflokkurinn hefði borið gæfu til að þróast með þjóð sinni. Uppskar hann mikið frambjóðendum til embætta formanns og varaformanns, Siv Friðleifsdóttur og Guðna Ágústssyni. Um níuhundruð manns sóttu flokksþing Framsóknarflokksins í gær. Jón Sigurðsson, sem er í framboði til embættis formanns, var meðal þeirra sem hlýddu á ræðu Halldórs Ásgrímssonar. MIKILVÆGI góðrar samstöðu Framsóknarmanna um nýja forystu sem kosin verður í dag, hugsjónir flokksins og mikilsvert framlag Hall- dórs Ásgrímssonar til íslensks sam- félags var meðal þess sem bar á góma í almennum umræðum á flokksþingi Framsóknarmanna á í gærkvöldi. Alls tóku sextán manns til máls í fjörugum umræðum. Flestir ræðumenn notuðu tæki- færið og þökkuðu Halldóri Ásgríms- syni, fráfarandi formanni, vel unnin störf í þágu flokksins og samfélags- ins. Gunnar Bragi Sveinsson sagði flokkinn standa á tímamótum, en að ekki væri um það deilt að Framsókn- arflokkurinn hefði haft mest mót- andi áhrif á samfélagið á umliðnum árum og áratugum, þar sem haldist hefði í hendur áherslan á jöfnuð og einkaframtakið. Sagði hann flokkinn oft hafa þurft að þola ómaklega gagnrýni frá andstæðingum flokks- ins sem drægju oft upp ranga mynd af starfi flokksins. Þannig benti Ís- ólfur Gylfi Pálmason á að margir vildu flokkinn feigan, m.a. vegna þeirrar sterku stöðu sem flokkurinn hefði haft í íslensku stjórnmálalífi og benti á að á 90 ára líftíma flokksins hefði hann verið í ríkisstjórn í 60 ár. Allmargir ræðumenn lögðu í fram- sögum sínum mikla áherslu á að Framsóknarflokkurinn kæmi sterk- ur út úr flokksþinginu og þar væri lykilatriði að flokksmenn fylktu sér að baki nýrri forystu. Einn ræðu- maður hafði á orði að kosningar um forystusveit flokksins snerust um traust til að skapa sátt og leiða flokk- inn í gegnum grimmar alþingiskosn- ingar framundan. Skapa þyrfti sátt um forystu flokksins og vígaferlum innan hans yrði að ljúka. Meðal ræðumanna voru Austfirð- ingarnir Dagný Jónsdóttir og Guð- mundur Þorgrímsson sem lögðu mikla áherslu á hve lífsnauðsynleg uppbygging stóriðju fyrir austan hefði verið þeim landshluta og þökk- uð Halldóri sérstaklega framgöngu hans í því máli. Stefán Bogi Sveinsson sagðist ekki upplifa að Framsóknarflokkur- inn væri í sókn heldur fremur í vörn. Sagði hann flokksmenn hljóta að velta fyrir sér hvernig best væri að snúa þeirri varnarstöðu í sókn. Í máli Páls Magnússonar kom fram að nú þegar Halldór væri að draga sig í hlé ríktu hér bestu lífs- kjör sem þjóðin hefði nokkru sinni séð. Sagði hann því ljóst að Halldór væri að hverfa frá góðu ævistarfi, enda þar á ferð einn merkasti stjórn- málamaður íslensku þjóðarinnar síð- ustu áratugi. Sagði hann Halldór hafa beitt sér af krafti í umdeildum málum er vörðuðu kvótakerfið, upp- byggingu stóriðjustefnunnar og einkavæðingu ríkisbankanna. Benti hann á að þessi þrjú mál væru þó undirstaðan undir velsæld íslensku þjóðarinnar í dag. Skapa þarf sátt um forystu flokksins ína og bætti við að ágreiningur innan flokks- ins hefði skaðað hann og þyrfti að vinna á honum. Jónína sagðist hafa mikinn metnað fyrir hönd flokksins og vildi leggja allt sitt af mörkum til að efla hann. Í framboði til ritara Framsóknarflokksins eru þau Sæunn Stefánsdóttir, Haukur Logi Karlsson, Kristinn H. Gunnarsson og Birkir J. Jónsson og kynntu þau einnig helstu bar- áttumál sín fyrir kjósendum. uðni þegar hann biðlaði til flokks- um stuðning. a sagði mikil tækifæri felast í því að nn standi nú á krossgötum. Kjark ns vegar til að stíga stór skref fram á okkurinn eigi að eflast og halda ð hafa víðtæk áhrif á íslenskt sam- Við þurfum að sækja fram af reisn og ðingu. Kjósendur þurfa að geta sam- ig flokknum og forystu,“ sagði Jón- Bjartmarz umhverfisráðherra og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra heilsast ktum í gærdag en þau eru í framboði um embætti varaformanns flokksins. AÐ LOKINNI ræðu Halldórs Ásgrímssonar, fráfarandi formanns Framsóknarflokksins, var lögð fram stjórnmálaályktun, hún kynnt flokksmönnum og stjórnmálanefnd kosin í kjölfarið. Nefndin fór yfir ályktunina og gerði viðeigandi breytingar í gærkvöldi, eftir að fundi var frestað, en þing hefst í dag á því að ályktunin verður lögð fram til samþykktar. Í ályktun flokksþingsins er m.a. tæpt á því að mikilvægt sé að leggja áherslu á menntun, rannsóknir og nýsköpun til að tryggja samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Farið er yfir al- þjóðasamskipti og Evrópumál og þar komið inn á samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Segir að samningurinn henti íslensku þjóðinni vel og allt bendi til að svo verði áfram á næstu árum. Til að tryggja framtíðarhagsmuni þjóðarinnar sé mikilvægt að unnið verði áfram að umræðum og stefnumótun varðandi samskipti við aðrar þjóðir, þar á meðal aðrar Evr- ópuþjóðir. „Hornsteinn öryggis- og utanríkisstefnu Íslands mun áfram byggja á þátttöku landsins í Sameinuðu þjóðunum, Atlantshafsbandalaginu og öðru varnarsamstarfi vestrænna þjóða, svo og Evrópusamstarfi, ekki síst áframhaldandi nánu samstarfi við önnur Norðurlönd,“ segir í ályktuninni. Einnig er farið yfir húsnæðismál, atvinnustig og skattamál og segir m.a. að mikilvægt sé að skoða skattkerfið í heild sinni með það að markmiði að tryggja jafnrétti. Horfa þarf þá til lágmarksframfærslu, tekna, örorku, aldurs og eigna hvers og eins til að tryggja sanngjarnt skattkerfi. Framsóknarmenn telja jafnframt að enn þurfi að bæta við það fjármagn sem veitt er til ný- sköpunar og rannsókna, auk þess sem flokkurinn vill tryggja jafnan aðgang að heilbrigð- isþjónustu og byggja upp þjónustu sem gerir eldra fólki kleift að velja sér búsetu og halda virðingu og stolti sínu jafnvel þó að heilsa bresti. EES-samningurinn hentar vel áfram
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.