Morgunblaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 39 MINNINGAR ✝ Sigurjón ArnarTómasson bif- vélavirkjameistari fæddist í Vest- mannaeyjum 21. febrúar 1946. Hann andaðist á heimili sínu á Brekastíg 22 í Vest- mannaeyjum 10. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Sigurjóns voru hjónin Elísabet Hrefna Eyjólfsdótt- ir, f. 8. júní 1913, d. 11. júlí 1984, og Tómas Elías Sigurðsson, f. 30. mars 1914, d. 26. janúar 1994. Þau bjuggu allan sinn búskap á Breka- stíg 7c í Vestmannaeyjum. Systur Sigurjóns eru: Erna Tómasdóttir, f. 29. desember 1937, gift Guðjóni Stefánssyni, og Hrefna Guðbjörg Tómasdóttir, f. 28. janúar 1942, gift Kristni V. Pálssyni. Hinn 25. desember 1971 giftist Sigurjón eftirlifandi eiginkonu sinni Maríu Ragnhildi Ragnars- dóttir, f. 10. ágúst 1949. Foreldrar hennar voru Guðmunda Valgerð- ur Jónsdóttir, f. 13 desember 1908, d. 16. október 1978, og Ragnar Benedikts- son, f. 13. mars 1895, d. 7. júní 1968. Börn Sigurjóns og Maríu eru: 1) Ragnar Benedikt, f. 28. september 1971, starfsmaður hjá BM Vallá, kvæntur Ragnheiði Jónsdótt- ur sjúkraliða, f. 30. október 1973. Börn þeirra eru: a) Ólafur Brynjar, f. 9. febrúar 1994, b) María Ragnhildur, f. 7. júní 2000. 2)Elísabet Hrefna, f. 22. janúar 1975, leikskólakennari og nemi, gift Gísla Gunnari Geirssyni, við- skiptafræðingi og nema, f. 24. febrúar 1976. Börn þeirra eru: a) Gísli Rúnar, f. 15. ágúst 1994, b) Arnar Geir, f. 19. febrúar 1998, og c) Gunnar Hrafn, f. 5. ágúst 2002. 3) Arnar Valgeir, f. 10. júní 1980. Útför Sigurjóns Arnars verður gerð frá Landakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Elsku pabbi. Ein af mínum fyrstu minningum er um ferðirnar mínar með þér og Tomma afa inn á bílaverkstæðið þitt. Þar kenndir þú mér ýmislegt um bílaviðgerðir, og seinna þegar ég var kominn með bílpróf varst þú alltaf tilbúinn að rétta mér hjálparhönd. Þú varst svo hrifinn af gömlum bíl- um, og gekkst í fornbílaklúbbinn. Ógleymanleg er hringferðin sem við fjölskyldan fórum með þeim árið 1987 á gamla Buicknum hans Tomma afa. Í þeirri ferð naust þú þín vel innan um alla gömlu bílana. Óteljandi bílana gerðir þú upp, meira að segja bíla sem margir sögðu um „þetta er ekki hægt, þessi bíll er allt of mikil drusla.“ En allir urðu þessir bílar flottir í þínum höndum, þú varst svo mikill snilling- ur í höndunum. Það var alveg sama hvort sem var inni á verkstæði eða heima. Þú varst alltaf tilbúinn að styðja okkur systkinin í gegnum allt, og gladdist alltaf þegar okkur gekk vel í lífinu. Ekki grunaði mig að brúðkaupsdagurinn minn 24. júní sl. yrði síðasti dagurinn sem við sæj- umst í þessu lífi. Það var yndislegur dagur, og er ég þakklátur fyrir allt spjallið sem ég og þú áttum saman um morguninn bara við tveir. Sum- arið var planað og ætluðum við fjöl- skyldan og þið mamma eitthvað sam- an eins og svo oft áður í ágúst. Sú ferð verður ekki farin að sinni. Þú ert komin í önnur heimkynni þar sem afi og amma bíða þín örugglega. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaður viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðasta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Elsku pabbi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þinn sonur, Ragnar. Elsku hjartans pabbi minn. Þetta er það versta sem ég hef gert, að skrifa minningargrein um þig. En mér finnst ég skulda þér það. Ég var alltaf pabbastelpan þín og þótti svo vænt um þig og það veistu. Ég gleymi aldrei þeim stundum er við sátum við eldhúsborðið og spil- uðum fram á nótt, bara við tvö. Við föndruðum líka mikið saman og fyrir jólin var alltaf sest við eldhúsborðið og föndrað. Ég gleymi aldrei kirkj- unni sem þú bjóst til úr eldspýtum og settir flottan turn á, og settir ljós í og bómull yfir. Þessa kirkju áttum við í mörg ár og þú pakkaðir henni alltaf svo vel niður eftir jólin. Einnig bjóstu til eftirlíkingu af húsinu okkar úr pappakassa og málaðir alveg eins. Ég gæti endalaust talið upp allt sem þú bjóst til og föndraðir. Þú varst líka byrjaður að mála og ein mynd var komin upp á vegg eftir þig. Þú sagðir stundum í gamni, „ætli ég verði ekki bara listmálari í ellinni.“ Þú varst líka svo sérstaklega barngóður og þegar barnabörnin komu til sögunnar gast þú eldalaust leikið við þau. Elsku pabbi, síðustu átta mánuðir voru svo góðir í lífi þínu. Þegar Ragnar bróðir gifti sig 24. júní síðastliðinn bókstaflega geislaði af þér þar sem þið sátuð tveir saman inni í kór. Þá hugsaði ég að þú værir kominn yfir allt og ættir bara góð ár framundan. En lúmski sjúkdómurinn var aldrei langt undan og þú hélst að þér væri óhætt. Að horfa upp á þig síðustu þrjár vikur án þess að geta gert neitt er búið að vera svo erfitt. Þú hringdir í mig reglulega til að spjalla, en lífsviljinn var einhvern veginn búinn, þótt þú segðir það ekki þá vissir þú að hverju stefndi. Hafðu þökk fyrir allt og allt, ég veit að afi og amma eru búin að taka vel á móti þér. Þín dóttir, Elísabet Hrefna. Elsku pabbi. Að setjast niður og skrifa minn- ingargrein um þig er eitthvað svo skrýtið og erfitt. Þú varst alltaf svo klár og laghentur. Mín fyrsta minn- ing er að þú varst alltaf eitthvað að brasa og laga. Þú hélst alltaf öllum hjólunum okkar við. Krakkarnir í hverfinu komu með sín hjól til þín, alltaf gastu lagað allt. Þú spilaðir svo oft á gítar. Ég held að ég hafi ekki verið nema fimm ára þegar þú fórst að kenna mér að spila. Þú komst músíkáhuganum inn hjá mér, og fylgdist alltaf með mér. Fyrir tíu árum síðan fórum við saman til Reykjavíkur að kaupa fyrsta alvöru bassann minn. „Arn- ar,“ sagði hann við mig, „þú kaupir þér flottan bassa.“ Hann hafði svo mikla trú á öllu sem við gerðum. Elsku pabbi þegar ég var barn og unglingur var ég þér oft reiður og sár, þegar þér tókst ekki að hafa stjórn á lífi þínu, en ég ætla bara að minnast góðu stundanna sem voru svo miklu, miklu fleiri. Ég gæti skrif- að svo margt meira um allt sem við gerðum saman, en ég kveð þig ekki bara sem pabba heldur líka sem besta vin. Þinn elskandi sonur, Arnar Valgeir. Elsku tengdapabbi minn. Ég man þegar ég hitti þig í fyrsta skipti, í ágúst 1999, þá vorum við Raggi á leið norður í land að heim- sækja foreldra mína í annað skiptið síðan við kynntumst. Þið María vor- uð þá nýkomin frá Prag. Ég gleymi ekki hvað ég var stressuð enda boð- uðuð þið okkur til ykkar með fimm mínútna fyrirvara. Að sjálfsögðu var þessi kvíði algjörlega ástæðulaus og varð okkur bara ágætlega til vina að ég held. Ein af mínum bestu stund- um með þér og Maríu var þegar við ferðuðumst saman. Fyrir nokkrum árum fórum við með ykkur á Akur- eyri og við fórum líka með ykkur og foreldrum mínum í Borgarvirki sem var æðislegt. Þá eru ótaldir allir smábíltúrarnir sem við fórum í þegar þið María komuð upp á land. Þá voru Gullfoss og Geysir í miklu uppáhaldi og rúnturinn endaði með ís í Eden. Því miður verða ferðalögin okkar ekki fleiri í þessu lífi. Vonandi mun- um við hittast í því næsta. Þín tengdadóttir, Ragnheiður. Það var árið 1993 að við hittumst fyrst. Þá var ég sautján ára síðhærð- ur rokkari að koma heim með einka- dóttur þinni og verð ég því að við- urkenna að ég kveið svolítið fyrir. Þú tókst strax vel á móti mér og gerðir það alltaf eftir það. Það var ótrúlegt að fyrstu bílarnir sem við Elísabet keyptum okkur biluðu allir eftir fyrstu vikuna. Það kom sér því vel að eiga tengdapabba sem var bifvélavirki. Ég gleymi ekki öllum þeim tíma sem þú lagðir í bíl- ana okkar og alltaf gerðirðu það með bros á vör. Svo þegar ég ætlaði að fara að reyna að gera upp við þig sagðir þú alltaf: „Ég set þetta bara á stóra reikninginn.“ Það var oft fjör að koma á heimili ykkar Maríu í gegnum tíðina. Þar sast þú ævinlega í eldhúsinu þegar þú varst heima. Mér þótti mjög gam- an að því þegar þú varst að skjóta á mig einhverju gríni til að fá mig til að þrasa og ég gerði það sama á móti. Yfirleitt mistókst þetta hjá okkur báðum, enda þekktum við hvor ann- an orðið það vel. Þrátt fyrir að vera fjörugur maður tók ég alltaf eftir því hve góð og róandi áhrif þú hafðir á peyjana okkar Elísabetar. Það var nefnilega svo merkilegt að sjá hvern- ig þeir komu kannski ærslafullir í heimsókn, en þegar þeir settust hjá þér róuðust þeir allir og sátu jafnvel hjá þér alla heimsóknina. Það er ekki líkt mínum peyjum. Takk fyrir allar góðu stundirnar. Þinn tengdasonur, Gísli Gunnar Geirsson. Elsku besti afi okkar. Það er svo ótrúlegt að hafa þig ekki lengur hjá okkur. Þú komst allt- af í heimsókn á laugardagsmorgn- um. Þú kallaðir okkur alltaf litlu prinsana þína þrjá. Við söknum þín svo og gleymum þér aldrei. Legg ég nú bæði líf og önd ljúfi Jesús í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (H. Pétursson.) Gísli Rúnar, Arnar Geir og Gunnar Hrafn. Elsku afi. Þegar við komum til Vestmanna- eyja var alltaf farið inn í dal með bátana sem þú keyptir handa okkur. Þú ætlaðir að kaupa handa okkur gítar og kenna okkur á hann. Þú varst alltaf svo góður við okkur, við söknum þín svo. Ástarfaðir himinhæða, heyr þú barna þinna kvak. Enn í dag og alla daga í þinn náðarfaðm mig tak. (Stgr. Thorst.) María Ragnhildur og Ólafur Brynjar. Þegar maðurinn hefur tæmt sig af öllu kemur friðurinn mikli yfir hann. Eftir blóma ævinnar færist hvað eina aftur til upphafsins. Að hverfa til upphafsins er friðurinn. Eftir langa og ójafna baráttu hef- ur Sigurjón mágur minn fengið hvíld. Losnað úr ánauð þeirra afla sem náð höfðu heljartaki og svipt hann reisn hinna fögru og tæru hljómum lífsins, hinum helgu gild- um, og fundið fyrir friðlausum öld- um. Örvilnaður af angist svo tilveran fékk á sig harða ásýnd þess mis- kunnarleysis, sem við eigum svo erf- itt með að skilja. Lífið, sem er svo fagurt, er hverfult, það er svo margt sem hefur áhrif á örlög þess. Sigurjón ólst upp í foreldrahúsum. Hann var sonur hjónanna Elísabetar Eyjólfsdóttur og Tómasar Sigurðs- sonar, yngstur barna þeirra. Systur hans eru Erna, gift Guðjóni Stefáns- syni, og Hrefna, gift undirrituðum. Æskuárin heima á Efrahvoli liðu við mikið ástríki og væntumþykju og var sú skrautmálaða mynd í umgjörð tryggðar og fegurðar og ætíð í aug- sýn hugans. Það leið yfir hann djúpt andvarp þegar hann minntist þeirra gleðiríku ára. Þá var hamingjan eins og sólarupprás, litrík og óþrjótandi fögur. Í myndum daganna má sjá fjölskylduna í sunnudagsferðum á gamla Rauð sem svo var kallaður, en það var pallbíll, eða Gránu, gömlum Playmout, og síðan Ráðherrabílnum hans Ólafs Thors, sem Tómas eign- aðist árið 1959, stolt bílaflotans af Buick-gerð, það var áð í blómskrýdd- um lundi og nestistaskan tekin fram. Síðan komu björt og ævintýrarík unglingsárin, nýjar vonir og þrár með bliki hinna liðnu ára. Ungling- urinn knái eignaðist KK-skellinöðru og þeysti á henni um eyjuna þvera og endilanga. Þá átti hann heiminn all- an og hugurinn var ferskur af mann- dómskrafti í gleðiríkri tilveru. Svo eignaðist hann drossíurnar hverja af annarri og var hver annarri glæsi- legri. Lengst man ég eftir amerískri eðalbifreið, rauðri og hvítri, af gerð- inni De Sodo. Ég minnist ferðar okk- ar hjóna með þeim félögum Sigur- jóni og Adda Palla á íslensku sumri um landið okkar fagra. Í litrófi bjartra sumardaga blómstraði lífið sínu fegursta í söng og gleði. Núna finnst manni það undarlegt að öll þau fagnaðarljóð séu löngu hljóðnuð, en minningin um þá ljúfu daga hjúfra sig að hjartarótum. Tómas, faðir Sigurjóns, var lands- þekktur bifvélavirki og það var því eðlilegt að Sigurjón legði þá iðngrein fyrir sig. Varð hann fljótlega snjall bifvélavirki enda erfði hann marga af eiginleikum föður síns, sem þekkt- astur var undir nafninu Sæsi. Og saman störfuðu þeir í áratugi, lengi vel með Herberti Sveinbjörnssyni, sem bjó yfir skemmtilegri kímnigáfu og laðaði að marga viðskiptavini, sem héldu tryggð sinni við gamla verkstæðið á Strandvegi ævilangt. Þegar Tómas hætti störfum eftir langa starfsævi keypti Sigurjón verkstæðið og rak það af miklum öð- lingsskap meðan hann lifði. En í heimi bílaviðgerða hefur tækninni fleygt fram með tölvunotkun og sér- þekkingar er krafist á öllum sviðum þótt margt af hinu gamla hafi haldið velli. Þessi þróun dró smátt og smátt úr rekstrinum og vann því Sigurjón hluta dagsins í Vinnslustöðinni, ásamt því að sinna tryggum við- skiptavinum. Mörgum rétti hann hjálparhönd án þess að krefjast þóknunar fyrir, slík greiðasemi lýsir mannkostum hans. Eitt af hinum stóru augnablikum í lífi Sigurjóns var þegar hann giftist eftirlifandi konu sinni, Maríu R. Ragnarsdóttur. Og þá urðu himnarnir rauðir og stjörnur tindruðu þegar börn og síð- an barnabörn fæddust hvert af öðru. Hnigin er sól og sorgin seytlar um svipi. Sigurjóni er þökkuð samfylgd- in og óskað góðrar heimkomu á nýjar lendur. Eflaust á hann eftir að að- stoða einhverja sem ferðast um há- landavegi himnaríkis. Ég votta syrgjendum samúð mína. Vertu sæll félagi. Kristinn Viðar Pálsson. Kæri Sigurjón, mig langar að þakka þér fyrir allt sem ég komst upp með á mínum unglingsárum heima hjá ykkur Maju þegar ég og Elísabet dóttir ykkar brölluðum sem mest saman. Ekki var spurt um hve hátt mætti spila á græjurnar uppí herbergi, og það þungarokkið. Þá voruð þið Maja, konan þín, bara orð- in vön þessu enda Raggi í næsta her- bergi við eldhúsið með sína tónlist og Arnar uppi líka með sitt rokk og eng- inn samt að spila sama lagið. Þvílíkt umburðarlyndi hjá ykkur. Svo má ekki gleyma „Toyota ter- cel“ bílnum sem þú gafst Elísabetu og á þessum kagga rúntuðum við og áttum okkar bestu tíma saman, þökk sé þér. En við þökkuðum fyrir það að þú hafðir ekki keypt hvítu Löduna með bláu sportröndunum á, sem líkt- ist löggubílnum að okkur fannst, þegar við vorum sautján því við hefð- um þá frekar labbað heldur en að fá hann lánaðan. Jú, við vorum skvísur inn við beinið. Svo kom stóra ástin hjá Elísabetu, hann Gísli, inn í lífið og eignuðust þau svo sinn fyrsta son og það var náttúrulega ekki að spyrja að við vin- konurnar ólum drengi með 11 daga millibili. Þá hélt minn heimagangur áfram hjá ykkur og þú, Sigurjón, kallaðir þig líka afa sonar míns og þótti mér mjög vænt um það. Þú gafst þér alltaf tíma til að tala við strákana okkar og gantast með okk- ur, takk fyrir það. Hver man ekki eftir V-752? Já, þú fékkst að ditta að bílnum mínum oft- ar en einu sinni og aldrei þurfti ég nema að droppa við á verkstæðinu hjá þér þá var kagginn lagaður hið snarasta. Með þessum orðum mínum langar mig að þakka þér, Sigurjón, fyrir alla samveruna sem við áttum saman, spjallið, grínið, bílafjörið og að hafa alið með þér svona yndislega fjöl- skyldu, sem ég var svo heppin að fá að kynnast. Elsku Maja, Raggi, Elísabet, Arn- ar, og fjölskylda, ég votta ykkur mína samúð. Stefanía Ársælsdóttir. SIGURJÓN ARNAR TÓMASSON Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Alhliða útfararþjónusta í 16 ár Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.