Morgunblaðið - 19.08.2006, Side 48

Morgunblaðið - 19.08.2006, Side 48
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÉG ÆTLA AÐ PANTA FISK DAGSINS HVAÐ MEÐ ÞIG? ÉG ÆTLA AÐ FÁ KÚ DAGSINS HMM... HVAÐ SEGIRÐU UM SMÁ BOLTALEIK SNOOPY? ÉG KASTA OG ÞÚ SÆKIR HVAÐ SEGIRÐU UM ÞAÐ KALLINN, ÉG KASTA OG ÞÚ SÆKIR... HANN ER EKKI HEIMA AND- VARP! ÞÚ ERT BÚINN AÐ SÓA HEILLRI VIKU Á BÓKASAFNINU ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ ÞÚ VINNIR STÍFT YFIR HELGINA, ANNARS SEGI ÉG KENNARANUM AÐ ÞÚ HAFIR EKKI GERT NEITT Í ÞESSU VERKEFNI! SKILURÐU MIG! ERTU AÐ HLUSTA EÐA EKKI, SAUÐURINN ÞINN! SVO VIRÐIST SEM GEIMVERAN SÉ AÐ REYNA AÐ TJÁ SIG LÆKNIR, ÉG GET EKKI SOFIÐ OG ÉG ER ALVEG AÐ FARA Á TAUGUM ÞAÐ HLJÓMAR EINS OG ÞÚ SÉRT UNDIR MIKLU ÁLAGI ER TENGDAMÓÐIR ÞÍN Í HEIMSÓKN? ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ GELDA ÖLL DÝRIN SEM ÉG ÞEKKI. HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ AÐ ÉG ER EKKI GELDUR? ÞÚ ERT GELDUR ÞAÐ VAR BÚIÐ AÐ GELDA ÞIG ÁÐUR EN ÉG TÓK ÞIG AÐ MÉR GRÍMUR? GRÍMUR? EINN STERKAN VILL EIN- HVER HENDA ÞESSUM HUNDI ÚT! ÞESSI GAUR SEM ER AÐ BERJAST VIÐ KÓNGULÓNA... ...HANN LÍTUR ÚT EINS OG ÉG HVAÐ ER AÐ GERAST ÞÓ ÉG SÉ FASTUR Á BAK VIÐ LÁS OG SLÁ ÞÁ KEMST ENGINN UPP MEÐ AÐ ÞYKJAST VERA ÉG! MÉR TÓKST AÐ FÁ NONNA TIL AÐ SPILA HAFNABOLTA JÁ, MEÐ ÞVÍ AÐ MÚTA HONUM MEÐ TÖLVULEIK EF ÞÚ HELDUR ÞESSU ÁFRAM ÞÁ LÆRIR HANNA BARA AÐ VERA ÞVER OG NEITA AÐ GEFA SIG ÞANGAÐ TIL HANN FÆR ÞAÐ SEM HANN VILL! ÞÁ Á HANN FRAMTÍÐ FYRIR SÉR Í PÓLITÍK ÚFF! Dagbók Í dag er laugardagur 19. ágúst, 231. dagur ársins 2006 Víkverja hefur lengigramist hversu erfitt er að gera verð- samanburð á lyfjum hérlendis. Verðlagning lyfja er flókin, enda hafa alls- kyns afslættir og nið- urgreiðslur Trygg- ingastofnunar áhrif á lokaverð lyfja. Vík- verja þykir það samt engin afsökun fyrir því að hafa ekki lyfja- verð auðveldlega að- gengilegt í apótekum, svo viðskiptavinurinn geti vitað upp á hár hvað hann þarf að borga fyrir lyfin sín áður en hann leggur inn lyfseð- ilinn. Apótekarar eru undantekn- ingalítið liðlegir að gefa upp verð þegar spurt er, en það tekur alltaf sinn tíma að finna út endanlegt verð á tölvunum, og aðstæður þannig að kúnninn er lattur til að gera verð- samanburð. Það fær heldur ekki að viðgangast í öðrum verslunum að verðmerkingum sé sleppt og látið duga að gefa verð aðeins upp sé sér- staklega um það beðið. Og hvað er Víkverji svo að fjarg- viðrast yfir þessu? Jú -það getur nefnilega verið heilmikill verðmunur á lyfjum milli apóteka. Víkverji þurfti að kaupa sér mjög dýran lyfjaskammt á dög- unum, og sá sér þann kost vænstan að gera verðsamanburð gegn- um síma. Eftir nokkuð mörg og tímafrek símtöl kom í ljós að munurinn á ódýrasta og dýrasta apótekinu var 3.800 krónur fyrir þriggja mánaða skammt, og munar Víkverja ald- eilis um minna. Það var Garðs Apó- tek við Sogaveg sem bauð best, en Lyf og heilsa var með dýrasta verð- ið, Lyfjaval næstdýrast og Lyfja þar á eftir, í örverðkönnun Víkverja. Litlu apótekin voru almennt með lægra verð en stóru apótekakeðj- urnar, og kom það Víkverja nokkuð á óvart. Víkverji vill hvetja lesendur til að gera verðsamanburð áður en farið er í apótekin, en arka ekki beint í það apótek sem næst er, sérstaklega ef um er að ræða lyf sem fólk þarf að nota að staðaldri. Það tekur nokkra stund við símann en getur marg- borgað sig. Í tilviki Víkverja sparast rösklega 15.000 kr á ári. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is          Mosfellsdalur | Margeir Alex Haraldsson og Kjartan Jónsson skemmtu sér konunglega í blíðunni. Þeir voru að henda sér ofan í hyl Tungufoss en hann er í ánni Köldukvísl í Mosfellsbæ. Þrátt fyrir blíðuna þá tóku strákarnir enga óþarfa áhættu og klæddu sig í blautbúninga til að kólna ekki um of, enda gef- ur nafn árinnar það til kynna hversu köld hún er. Morgunblaðið/Eyþór Fjör í Köldukvísl MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Allt sem faðirinn gefur mér, mun koma til mín, og þann sem kemur til mín, mun ég alls eigi brott reka. (Jóh. 6,37.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.