Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 49

Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 49 DAGBÓK ÁAkureyri er nú unnið að þróun námsefnisum samkynhneigð fyrir grunnskólanem-endur. Sverrir Páll Erlendsson mennta-skólakennari er í stjórn Norðurlands- deildar FAS – Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, og einn af aðstandendum náms- efnisverkefnisins: „Norðurlandsdeild FAS og S78N – Norðurlandshópur Samtakanna ’78, stóðu fyrir ráðstefnu um samkynhneigð þar sem þátt tóku fulltrúar skóla og félagsmiðstöðva á Akureyri og víðar að af Norðurlandi. Á ráðstefnunni kom greini- lega í ljós að mikið skortir á námsefni og fræðslu þar sem fjallað er um samkynhneigð eða að sýndir séu aðrir lífsmátar og fjölskyldugerðir en gagnkyn- hneigð,“ segir Sverrir Páll. „Í framhaldinu hafði Gunnar Gíslason, forstöðumaður skóladeildar á Ak- ureyri samband við undirbúningsnefnd ráðstefn- unnar og einnig var haldinn fundur með öllum skólastjórum á Akureyri. Í kjölfarið var sett á lagg- irnar starfsnefnd með fulltrúum allra grunnskóla sem kallaði til liðs við sig nokkra ráðunauta og skil- aði á vordögum áfangaskýrslu.“ Starf nefndarinnar skilaði sér meðal annars í námskeiði um samkynhneigð fyrir alla grunnskóla- kennara á Akureyri sem haldið var í byrjun vik- unnar. Þá hefur verið unnið að því að setja saman námsefni handa nemendum á öllum stigum grunn- skólans: „Hugmyndin er ekki sú að námsefnið fjalli um samkynhneigð sérstaklega, heldur að í skól- unum verði fjallað um samkynhneigð, fjölskyldur samkynhneigðra og samkynhneigða foreldra rétt eins og talað er um aðrar kynhneigðir og fjöl- skyldugerðir,“ útskýrir Sverrir Páll: „Í því náms- efni sem nú er til í grunnskólum er ákaflega lítið fjallað um að kynhneigð geti verið með fleiri en einu móti. Gengið er út frá því að allir séu gagnkyn- hneigðir nema annað komi í ljós.“ Sverrir Páll segir þögnina sem ríkir um samkyn- hneigð í námsefni grunnskóla geta haft skaðleg áhrif á samkynhneigða nemendur: „Margir sam- kynhneigðir tala um hve erfitt er að ganga í gegn- um skólakerfi þar sem aldrei er minnst á þeirra til- veru. Forgangur gagnkynhneigðarinnar veldur því að þeir geta hvergi fundið sér samsvörun í kerfinu, sem um leið krefst af þeim að vera öðruvísi en þeim er eiginlegt. Þessi skortur á sýnileika og umræðu um samkynhneigð verður vafalítið til þess að sumir samkynhneigðir geta ekki lifað lífi sínu eðlilega, lokast inni í skápnum eins og sagt er, í leyni með kynhneigð sína,“ útskýrir Sverrir Páll. Með opinni umræðu og fræðslu vonast Sverrir Páll til að sú tíð komi að enginn þurfi lengur að vera í felum, og allir geti fengið að vera þeir sjálfir: „Það er öllum til gagns að samkynhneigð sé rædd í starfi skólanna og að allir viti að til eru samkynhneigðir nemendur í grunn- og framhaldsskólum, samkyn- hneigðir kennarar og skólastjórar, samkynhneigðir þingmenn, læknar og lögfræðingar, strætóbíl- stjórar og sjómenn, og að til eru önnur fjölskyldu- form en hin hefðbundna kjarnafjölskylda.“ Menntun | Unnið að námsefni fyrir grunnskóla þar sem samkynhneigð er sýnileg Samkynhneigð rædd í grunnskólum  Sverrir Páll Erlends- son fæddist á Siglufirði 1948. Hann lauk stúd- entsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri 1968 og BA-prófi í ís- lensku og sagnfræði frá Háskóla Íslands 1974. Sverrir Páll hefur starf- að sem íslenskukennari við Menntaskólan á Ak- ureyri síðan 1974. Hann var félagsmálaráðunautur við Menntaskólann um 25 ára skeið, og er ritstjóri vefjar MA. EM í Varsjá. Norður ♠D8 ♥KDG10852 V/NS ♦10 ♣1083 Vestur Austur ♠K6 ♠G42 ♥64 ♥Á973 ♦G84 ♦93 ♣KD7642 ♣ÁG95 Suður ♠Á109753 ♥– ♦ÁKD7652 ♣– Lítum í suðurátt: Engin sagnkerfi eru sniðin fyrir svona hendur, enda væri það tilgangslaust, því ekkert kerfi fengi frið til að lýsa slíkum spilum – fyrir mót- herjunum eða jafnvel makker! Vestur Norður Austur Suður Helgemo Jón Helness Þorlákur Pass 3 hjörtu Pass 6 tíglar Pass Pass Pass Í leik Íslands og Noregs á EM vakti Jón Baldursson á þremur hjörtum á norð- urspilin og Þorlákur Jónsson skaut á sex tígla. Það reyndist vel heppnað, tíg- ullinn brotnaði 3-2 og spaðinn lá þægi- lega: tólf slagir og 1.370 fyrir ómakið. Á hinu borðinu hindraði Magnús Magnússon með vesturspilin: Vestur Norður Austur Suður Magnús Boye Matthías Erik 3 lauf Pass 5 lauf 5 grönd * Pass 6 hjörtu Pass 6 spaðar Pass Pass Pass Matthías Þorvaldsson hækkaði í fimm lauf og Erik Sælensminde bauð upp á báða litina með fimm gröndum. Og nið- urstaðan varð sex spaðar. Augljóslega vinnst slemman með því að spila spaða að drottningunni og treysta á hagstæða tígullegu en Erik valdi aðra leið sem ekki var eins árangursrík. Hann tromp- aði laufútspilið, tók tígulás og stakk tíg- ul með áttunni. Hleypti svo spaða- drottningunni. Magnús átti þann slag og síðan fékk Matthías annan á spaða- gosa. Einn niður og 16 stig til Íslands. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. Bg5 e6 3. Rd2 c5 4. e3 h6 5. Bh4 cxd4 6. exd4 Be7 7. c3 b6 8. Bd3 Bb7 9. Bxf6 Bxf6 10. Rgf3 d6 11. De2 Rd7 12. h4 Dc7 13. O-O-O O-O-O 14. Kb1 Hhe8 15. Re4 Be7 16. c4 Kb8 17. Hc1 f5 18. Rc3 Bf6 19. Rb5 Dc6 20. Dd2 Re5 21. Be2 a6 22. Ra3 Rg4 23. Bd1 e5 24. d5 Dc5 25. Hc2 e4 26. Re1 e3 27. fxe3 Rxe3 28. Hc1 f4 29. Bh5 He7 30. Bg6 Hc8 31. Rd3 Dd4 32. Db4 Ka7 33. Da4 Hc5 34. Db3 Hcc7 35. Da4 Kb8 36. Db4 Bc8 37. Rc2 Rxc2 38. Hxc2 He3 39. Rc1 Dc5 40. Dd2 Hce7 41. Hf1 Bxh4 42. Rd3 Dc7 43. Rxf4 Bg5 44. Df2 Ka7 45. a3 Bg4 46. g3 Dd7 47. Rd3 Be2 48. Rb4 Bxf1 49. Rc6+ Kb7 50. Df8 He8 51. Bxe8 Dxe8 52. Dxg7+ He7 53. Rxe7 Dxe7 54. Dxe7+ Bxe7 55. Hf2 Bd3+ 56. Ka1 Bg5 57. Hf7+ Kc8 58. b3 Bg6 59. Hf8+ Kc7 60. a4 b5 61. axb5 axb5 62. Kb2 b4 63. Hg8 Bf6+ 64. Kc1 Be4 65. Kd1 h5 66. Kd2 Bc3+ 67. Kc1 Be5 68. Hg5 h4 69. Hg4 Bf5 70. Hxh4 Bxg3 71. Hh5 Be4 72. Hh3 Bf4+ 73. Kb2 Be5+ 74. Kc1 Kb6 75. Hh4 Bf5 76. Hh1 Kc5 77. Hd1 Be4 78. Hf1 Kd4 79. Kd2 Bg7 80. Hf7 Bh6+ 81. Kd1 Bg5 82. Hg7 Be3 83. He7 Kd3 84. He6 Bf3+ 85. Ke1 Bc5 86. Hg6 Kc2 87. Hg3 Bh5 88. Hh3 Bg4 89. Hg3 Bh5 90. Hh3 Be8 91. Ke2 Bd7 92. Hg3 Staðan kom upp á sterku alþjóðlegu kvennamóti sem lauk fyrir skömmu í Krasnoturyinsk í Rússlandi. Alþjóðlegi meistarinn Viktorija Cmilyte (2476) frá Litháen hafði svart gegn fyrrverandi heimsmeistara kvenna í skák, búlgörsku skákkonunni Antoaneta Stefanova (2520). 92 … Ba4! Einfaldasta leiðin til sigurs þar eð hvítur þarf að láta hrók sinn fyrir b-peð svarts. 93. bxa4 b3 94. Hd3 b2 95. Hd2+ Kb3 96. Hd1 Ka2 97. Kd3 b1=D+ 98. Hxb1 Kxb1 99. Kc3 Ka2 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik Afmæliskveðjur til vina og ættingja á Íslandi BJÖRN Viljar Gunnarsson Husmo, sem býr í Noregi, er fimm ára í dag. Hann sendir ástarkveðjur til allra vina og ættingja og þakkar fyrir yndislegt sumarfrí með þeim í sum- ar. Skoðanabæling KONA hringdi í símatíma Útvarps Sögu og sagði að Jón Valur Jensson ætti bara að hafa skoðanir sínar á samkynhneigð fyrir sig. Ég get ekki verið sammála þessari konu. Jón hefur verið málefnalegur í um- ræðunni á Útvarpi Sögu og bent meðal annars á rannsóknir varðandi þetta mál. Í Kastljósi fyrir stuttu, þar sem Jón Valur Jensson og Heimir Már Pétursson ræddu þessi mál endaði þátturinn með því að Heimir spurði Jón hvort hann vildi ekki prófa að vera samkynhneigður. Ég var á vonum ákaflega hneyksluð á þessum ummælum og tel slíkan málflutning ekki vera góðan fyrir umræðuna um samkynhneigð. Það eru allt of fáir sem tjá skoðun sína varðandi þetta mál og það er oft vegna þess að fólk er hrætt við að vera kallað fordómafullt og gam- aldags. Það sem þarf er umræða þar sem þessi mál eru rædd æs- ingalaust frá öllum hliðum. Ég veit að innan kirkjunnar er umræða um þessi mál. En mér finnst að kirkjan ætti að opna umræðuna fyrir alla. Það gengur ekki að ein skoðun sé í gangi og við hin eigum að þegja. Fólk vill heldur ekki að kirkjan komi með niðurstöðu sem allir eigi að samþykkja. Þetta er ekki bara einkamál samkynhneigðra og kirkj- unnar heldur varðar þetta allt sam- félagið. Sigrún Reynisdóttir. Kettlingar fást gefins KETTLINGAR vilja komast á gott heimili. Þeir eru kassavanir og mjög sprækir. Um er að ræða tvo högna og þrjár læður. Einnig vant- ar eldri kisu heimili. Upplýsingar í síma 615 1212. Brynja. Velvakandi Svarað í síma 569 1100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 95 ára afmæli. Í dag er ErlingurÞorsteinsson, háls- nef- og eyrnalæknir, 95 ára. Erlingur er að heiman á afmælisdaginn. Árnaðheilla ritstjorn@mbl.is Brúðkaup | Eva Dögg Guðmunds- dóttir og Einar Þór Ingólfsson voru gefin saman í Fríkirkjunni í Reykjavík 22. júlí sl. af sr. Helgu Soffíu Konráðs- dóttur. Þau eru búsett í Danmörku. Hvernig var líf fólks á landnámsöld? Sýningin er opin alla daga frá 10–17 Aðalstræti 16 101 Reykjavík www.reykjavik871.is Afmælisþakkir Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu mér hlýju og vinarhug í tilefni 90 ára afmælis míns þann 18. júlí sl. Arnþór Guðmundsson frá Krosshúsum í Flatey, Oddeyrargötu, Akureyri. TILKYNNING Hef opnað stofu í læknamiðstöðinni Domus Medica, Egilsgötu 3, 101 Reykjavík. Viðtalspantanir í síma 563 1060. Elín Laxdal MD, PhD. Sérfræðingur í almennum og æðaskurðlækningum. ósnortna náttúru og hefur tekið fjölda ljósmynda á ferðum sínum um landið. Á sýningunni verða nálægt 100 ljósmyndir. Frímann ljósmyndari verður viðstaddur opnunina. Sýningin stendur í rúmlega mánuð. Ljósmyndasýning í Gallerí Ásdís Klösterstæde 14 (hliðargata frá strikinu) í Kaupmannahöfn var opnuð föstudaginn 18 ágúst með myndum eftir Frímann Frímanns- son frá Akureyri. Hann er áhugamaður um ís- lenska hestinn og íslenska Ljósmyndasýning íslenska hestsins í Danmörku

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.