Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 53
MENNING
Kringlunni, sími 553 2888
Gabor stígvél
í L vídd og XL vídd - Stærð 36-41 - Litur svart
Verð frá kr. 24.950
Póstsendum
í L vídd og XL vídd - margar gerðir - Stærð 36-421/2
Verð frá kr. 25.950,- F
iski
slóð
Gra
nda
gar
ður
MýrargataÁna
nau
st
Við erum hér!
Arnar GuðborgDagný
Rakel KóngaSilla
SALON REYKJAVÍK
Grandagarði 5 • Reykjavík • S. 568 5305
salon@salon.is
Vertu velkomin(n)!
Við erum flutt
út á Granda!
Hárgreiðslustofan Salon Reykjavík hefur
flutt sig um set úr Glæsibæ út á Grandagarð 5,
gegnt gamla Ellingsen húsinu.
STÓRTÓNLEIKAR verða haldnir á
Miklatúni í kvöld kl. 20, þar sem
nokkrir af þekktustu óperusöngv-
urum þjóðarinnar koma fram ásamt
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
undir stjórn Guðmundar Óla Gunn-
arssonar.
Kynnir á tónleikunum verður
Arnar Jónsson leikari, en verndari
þeirra er Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Íslands, sem
mun opna dagskrá kvöldsins með
ávarpi.
„Ég er verndari vegna þess að
þetta er listviðburður, og það er
sjálfsagt að vera verndari list-
viðburða á Íslandi. Því neitar maður
ekki þegar maður er beðinn,“ sagði
Vigdís þegar blaðamaður Morg-
unblaðsins náði af henni tali á æf-
ingu fyrir tónleikana í gærdag. „Mér
finnst svo dásamlegt að þeir séu
komnir heim, stórsöngvararnir okk-
ar, það er ævintýri,“ bætti hún við.
„Óperusöngur Íslendinga víða um
heim er hreint ævintýri, og við
hlökkum gríðarlega mikið til þegar
allir okkar söngvarar eru komnir í
óperu hérna heima. Það gerist fyrr
eða síðar, en vonandi fyrr.“
Vigdís sagðist hrifin af því fram-
taki sem í óperutónleikunum í kvöld
fælist. „Mér finnst það til fyr-
irmyndar í alla staði og svo ljúflegt
og yndislegt að allir geta komið, sem
vilja njóta þess á menningarnótt að
hlusta á óperusöng. Óperusöngur er
líka svo sérstakur vegna þess að
hann er í leiðinni leikhús, og honum
fylgir svo mikil saga.“
Barkarnir ýmsu vanir
Ljúfir tónar hljómsveitarinnar og
kraftmikil rödd Kolbeins Ketils-
sonar tenórsöngvara sönnuðu orð
Vigdísar og heilluðu blaðamann upp
úr skónum á æfingunni, en Kolbeinn
syngur á tónleikunum ásamt Arndísi
Höllu Ásgeirsdóttur, sópran, Ólafi
Kjartani Sigurðarsyni, baritón,
Kristni Sigmundssyni, bassa, og Sig-
ríði Aðalsteinsdóttur, mezzósópran.
Á efnisskránni eru þekktar perlur úr
heimi óperubókmenntanna, meðal
annars Habneran fræga úr Carmen
Bizets og Largo al factotum úr Rak-
aranum í Sevilla eftir Rossini, svo
tekin séu tvö afar þekkt dæmi.
Kolbeinn sagðist í æfingahléi
hlakka til að taka þátt í tónleikunum.
„Mér líst alveg stórkostlega vel á
þetta og hlakka til að vera með.
Þetta er jú nýjung í íslensku tónlist-
arlífi, svona „open-air“, eiginlega
„óperu-air“,“ sagði hann hlæjandi.
„Ég hef tekið þátt í tónleikum af
þessu tagi áður og það er alltaf mjög
skemmtileg stemmning sem mynd-
ast þar.“
Og þú heldur að barkarnir ykkar
muni þola íslenska veðurfarið?
„Já, já, þeir eru ýmsu vanir, bark-
arnir. Ef það blæs ekki alveg beint
ofan í okkur held ég að þetta eigi eft-
ir að takast bara vel.“
Vonast til að sjá sem flesta
Það er BM-Vallá sem býður til
tónleikanna í tilefni af sextíu ára af-
mæli fyrirtækisins. Víglundur Þor-
steinsson, stjórnarformaður, sagði
fólkið sem komið hefði að undirbún-
ingi tónleikanna fullt eftirvæntingar
og sjálfur sagðist hann hlakka mjög
til kvöldsins í kvöld.
„Veðrið virðist ætla að verða okk-
ur hliðhollt, enda er spáin góð. Við
vonumst bara eftir að sjá sem flesta
á Miklatúni,“ sagði hann, en minnti
fólk þó á að koma klætt og útbúið
eftir veðri, enda væri um útitónleika
að ræða. Arnar Jónsson kynnir tók í
sama streng, en minnti fólk á að
gleyma ekki öðrum mikilvægum út-
búnaði fyrir tónleika af þessu tagi:
Góða skapinu og gleðinni í hjartanu.
Tónlist | Allir geta hlustað á óperuperlur á Miklatúni í kvöld
Morgunblaðið/Eyþór
Æft af kappi fyrir tónleikana í kvöld: Guðmundur Óli Gunnarsson heldur um tónsprotann og Kolbeinn Ketilsson ten-
órsöngvari og Ólafur Kjartan Sigurðarson barítónsöngvari syngja einsöng með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Klædd eftir veðri í kátu skapi
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
TVÖ leikverk eftir Agnar Jón Eg-
ilsson verða frumsýnd í Austurbæ í
dag í tilefni Menningarnætur. Ann-
arsvegar er um að ræða barna- og
unglingaleikritið Drekaskóg og
hinsvegar leikritið Afganga. Í báð-
um tilvikum er leikstjórn í höndum
leikskáldsins.
Í Drekaskógi segir frá því er
börn eru dregin inní hættulegan og
myrkan álagaskóg þar sem þau
flækjast í átök skógardísa, eld-
flugna og svartálfa - og hitta dreka.
Leikendur allir eru á aldrinum 9–
17 ára.
Leikritið Afgangar gerist á hót-
elherbergi í Reykjavík á einni
nóttu. Tveir einstaklingar, kona og
maður um þrítugt, koma saman inn
á herbergið og við tekur tæling-
arleikur. Þó er ekki allt sem sýnist
því hjónaleysin eiga sér leyndarmál
sem koma upp á yfirborðið eftir því
sem líður á leikinn.
Það eru þau Elma Lísa Gunn-
arsdóttir og Stefán Hallur Stef-
ánsson sem fara með einu hlutverk
verksins.
Sýningin á Drekaskógi hefst
klukkan 14.00 en Afgangar eru
sýndir klukkan 21.00. Ókeypis er á
báðar þessar sýningar.
Tvær frumsýningar
í Austurbæ