Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 55
DÓMNEFNDIN deildi ekki um
keisarans skegg á Tom Selleck-
kepkninni sem fram fór á skemmti-
staðnum Sirkus á fimmtudag.
Erik Hirt þótti hafa glæsilegustu
grönina, en skegg Styrmis Guð-
mundssonar hafnaði í öðru sæti og
skegg Óttars Proppé í því þriðja.
„Hún er með uppásnúningi að
hætti Wyatt Earp, allólík þeim
skeggjum sem unnið hafa keppnina
til þessa,“ sagði Erik um sigur-
mumpinn þegar blaðamaður náði af
honum tali.
Keppnin á fimmtudag var sú
þriðja sem Erik hefur tekið þátt í:
„Ég hef ofboðslega gaman af að
leika mér með andlitshár – var lengi
með hökutopp, svona kleinuhring,
síðan tók við þriggjadagagamalt um
allangt skeið, en undanfarin þrjú ár
hef ég verið með yfirvararskegg.“
Erik segir ákveðinn lífsstíl fylgja
því að hafa yfirvararskegg, og mætti
jafnvel tala um veiðihár: „Þetta vek-
ur alltaf kátínu, og stelpurnar eru
vitlausar í þetta, vilja koma við og
prófa að kyssa,“ gantast Erik.
Þó skegg Eriks sé sérlega veglegt
segir hann ekki snúið að hirða
kampinn: „Ég er svo heppinn að
skeggið krullast af náttúrunnar
hendi og þarf ég voða lítið að gera
nema raka vel og klippa einstaka
hár sem fer út í loftið. Það vill þó
stundum verða erfitt að borða án
þess að skeggið fari í matinn, svo ég
gæti þess að hafa alltaf munnþurku
við höndina.“
Þrátt fyrir frækilegan sigur
kveðst Erik ekki hyggja á þátttöku í
alþjóðlegum skegg-mótum, þó ekki
sé loku fyrir það skotið hagi örlögin
því þannig til að hann verði staddur
erlendis á heppilegum tíma.
Tíska | Tom Selleck-keppnin 2006 lukkaðist með ágætum
Sigurskeggið uppásnúið
að hætti Wyatt Earp
Til að fullkomna „lúkkið“ klæddust
keppendur margir búningum í stíl
við yfirvararskeggin.
Sigurvegarinn, Erik Hirt (annar frá hægri), uppábúinn og með yfirvararskeggið góða á sínum stað, í faðmi dóm-
nefndar. F.v. Svavar Örn Svavarsson, Björgvin Halldórsson, Ragga Gísla og Ragnar Páll Steinsson.
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
HROLLVEKJAN Hostel 2, sem til
stendur að taka að hluta til hér á
landi, verður meðal annars tekin
upp í Bláa lóninu og í líkamsrækt-
arstöðinni World Class í Laugum.
Þá er einnig ráðgert að taka hluta
myndarinnar á sveitabæ fyrir aust-
an fjall. Aðstandendur mynd-
arinnar komu til landsins í gær, en
þeirra á meðal var leikstjórinn Eli
Roth. Hópurinn hélt beint í Bláa
lónið þar sem tökustaðir voru skoð-
aðir, en í dag stendur til að fara í
Laugar og austur fyrir fjall. Ein-
ungis er um undirbúningsvinnu að
ræða, en áætlað er að tökurnar
sjálfar fari fram um mánaðamótin
október/nóvember.
Það er Eyþór Guðjónsson sem
hefur veg og vanda af komu hóps-
ins hingað til lands, en hann lék eitt
af aðalhlutverkunum í fyrri mynd-
inni, Hostel. Þá kemur fyrirtækið
True North einnig að skipulagn-
ingu verkefnisins hér á landi.
Stefnt er að því að frumsýna Hostel
2 næsta vor.
Úr hrollvekjunni Hostel.
Hostel í Laugum
og Bláa lóninu
FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA
“COLLATERAL” OG “HEAT”
POWERSÝNING KL. 10 Á STÆRSTA thx TJALDI LANDSINS
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15-POWER B.i. 16 ára Sýnd kl. 4, 7 og 10 B.i. 16 ára
-bara lúxus
Sími 553 2075
kl. 8 og 10.15 B.i. 14 ára
Mögnuð
spennu
mynd
í anda „
24“
Sýnd kl. 2 og 6
HÖRKU SPEN-
NUMYND Í ANDA
JAMES BOND
eee
S.V - MBL
COLIN FARRELL JAMIE FOXX
ACADEMY AWARD WINNER
EITRAÐASTI
SPENNUTRYLLIR ÁRSINS
HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI
SVALASTA SPENNUMYND
SUMARSINS
POWERSÝNING KL. 10.15 Á STÆRSTA thx TJALDI LANDSINS
eee
„Þrusugóð
glæpamynd“
Tommi - kvikmyndir.is
eee
HJ - MBL
eee
LIB - TOPP5.IS
Sýnd kl. 2 ÍSL. TAL400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐUSími - 551 9000
Snakes on a Plane kl. 3, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára
A Praire Home Company kl. 3, 5.45, 8 og 10.15
Ástríkur og Víkingarnir kl. 3 og 6
Silent Hill kl. 8 og 10.40 B.i. 16 ára
The Da Vinci Code kl. 10.10 B.i. 14 ára
Click kl. 3, 5.50 og 8
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.eeeeP.B.B. DV
COLIN FARRELL JAMIE FOXX
ACADEMY AWARD WINNER
FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA
“COLLATERAL” OG “HEAT”
SVALASTA SPENNUMYND
SUMARSINS
eee
HJ - MBL
eee
LIB - TOPP5.IS
eee
„Þeir sem vilja
hasar verða síður
en svo sviknir“
þ.þ. - fbl
eee
„Þrusugóð
glæpamynd“
Tommi - kvikmyndir.is
eee
„Þeir sem vilja
hasar verða síður
en svo sviknir“
þ.þ. - fbl
Sýnd kl. 2 og 4 ÍSL. TAL