Morgunblaðið - 19.08.2006, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 57
Kvikmyndin Börn í leikstjórnRagnars Bragasonar og í fram-
leiðslu Vesturports hefur verið valin
til þátttöku í keppni á hinni virtu al-
þjóðlegu kvikmyndahátíð San Seb-
astian á Spáni sem fer fram 21. til 30.
september næstkomandi.
Í fréttatilkynningu segir að San
Sebastian International Film Festi-
val sé ein rótgrónasta kvik-
myndahátíð í heiminum, en hún hefur
verið haldin árlega síðan 1953.
Börn keppir í flokknum Zabatelgi –
New Directors sem inniheldur
áhugaverðustu kvikmyndirnar í al-
þjóðlegri kvikmyndagerð hvert ár
eftir unga leikstjóra, en 17 aðrar
kvikmyndir eru í þeim flokki. Börn
keppir um Altadis – New Directors
verðlaunin, hæstu einstöku pen-
ingaverðlaun sem í boði eru á kvik-
myndahátíð í heiminum og einnig
Montblanc verðlaunin fyrir besta
handrit ársins, að því er segir í til-
kynningu frá framleiðendum.
Myndin verður frumsýnd á Íslandi
þann 14. september næstkomandi, en
í aðalhlutverkum eru Gísli Örn Garð-
arsson, Nína Dögg Filippusdóttir og
Ólafur Darri Ólafsson.
Börn er sjálfstæður fyrri hluti tví-
leiks Ragnars Bragasonar og Vest-
urports um samskipti foreldra og
barna. Seinni myndin, Foreldrar
verður frumsýnd síðar á árinu.
Sent verður út beint frá tónleikumRobbie Williams í Vínarborg á
Rás 2 klukkan
19.00 til 21.00 í
kvöld.
Þar sem tón-
leikana ber upp á
Menningarnótt
mun Rás 2 mæta
með öflugar
græjur fyrir utan
verslun Skíf-
unnar á Lauga-
vegi 26 til að
borgarbúar sem verða á röltinu milli
klukkan 19 og 21 á Menningarnótt
geti notið tónleikanna í góðum hljóm-
gæðum.
Í fréttatilkynningu segir að Robbie
Williams sé söluhæsti og vinsælasti
popptónlistarmaður Breta á 21. öld-
inni. Hann hefur selt alls 50 milljónir
eintaka platna á sólóferlinum og nælt
sér í 15 Brit verðlaun. Sjö af átta plöt-
um hans hafa náð alla leið á topp
breiðskífulistans í Bretlandi. Hann er
nú á tónleikaferðalagi til þess að
fylgja eftir útkomu plötunnar Inten-
sive Care og eru tónleikarnir í kvöld
hluti af því ferðalagi.
Jennifer Aniston neitar því alfariðað hún og leikarinn Vince
Vaughn séu trúlofuð. Í nýlegu viðtali
við tímaritið
People segir
Aniston að hún
sé ekki farin að
ganga með
trúlof-
unarhring
ólíkt því sem
margir haldi
fram um þess-
ar mundir.
Tímaritið US
Weekly birti fyrr í mánuðinum frétt
þess efnis að Vaughn hefði beðið An-
iston í einkaþotu eftir ferð til Mexíkó.
Tímaritið segist hafa margar öruggar
heimildir fyrir þessu og standi því við
frétt sína. Aniston segist yfirleitt ekki
svara fréttum af þessu tagi en hafi
ákveðið að gera það í þetta sinn því að
frétt US Weekly hafi farið að birtast
hjá virtum fréttastofum um allan
heim. Hún segir að það sé mikilvægt
að það sem komi þar fram sé rétt.
Gísli Örn Garðarsson í hlutverki
sínu í Börnum.
Fólk folk@mbl.is
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Lið-a-mót
FRÁ
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
SVALASTA SPENNU-
MYND SUMARSINS
LADY IN THE WATER kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 12.ára.
LADY IN THE WATER LUXUS VIP kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:20
5 CHILDREN AND IT M/- ensku tal. kl. 2 - 3 - 4
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 2 - 5 - 7 - 8 - 10 B.i. 12.ára.
THE LONG WEEKEND kl. 6:15 - 8 - 10:10 B.i. 14.ára.
OVER THE HEDGE M/- Ísl tal. kl. 2 - 4 Leyfð
OVER THE HEDGE M/- ensku tal. kl. 11 Leyfð
SUPERMAN kl. 5 - 8 B.i. 10.ára.
BÍLAR M/- Ísl tal. kl. 2 Leyfð
JOHNNY DEPP
ORLANDO BLOOM
KIERA KNIGHTLEY
JAMIE FOXX COLIN FARRELL
S.U.S. XFM 91,9M.M.J. KVIKMYNDIR.COM eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI ÞAU ÆTLA AÐ NÁ AFTUR HVERFINU...
....EINN BITA Í EINU !
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
B.J. BLAÐIÐ
eeee
S.U.S. XFM 91,9.
eeee
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
Frá leikstjóra Sixth Sense, Signs og Village.
PAUL GIAMATTI (SIDEWAYS) SÝNIR STJÖRNULEIK
57.000 GESTIR
FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA
“COLLATERAL” OG “HEAT”
eee
HJ - MBL
eee
LIB - TOPP5.IS
B.I.16
B.I.12
B.I.16
LADY IN THE WATER kl. 3 - 5:40 - 8:10 - 10:30 B.i. 12.ára. DIGITAL SÝN.
5 CHILDREN AND IT M/- ensku tal. kl. 2 - 4 - 6
MIAMI VICE kl. 5:15 - 8 - 10:45 B.i. 16.ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 8 - 11 B.i. 12.ára. DIGITAL SÝN.
OVER THE HEDGE M/- Ísl tal. kl. 1:50 - 3:30 Leyfð DIGITAL SÝN.
eee
„Þrusugóð
glæpamynd“
Tommi - kvikmyndir.is
eee
„Þeir sem vilja
hasar verða síður
en svo sviknir“
þ.þ. - fbl
eee
V.J.V - TOPP5.IS