Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 60

Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. endurskoðun reikningsskil skattar / ráðgjöf www.ey.is MISMUNUR á innkaupsverði og útsölu- verði bóka á skiptibókamörkuðum er allt að 63% að því er fram kemur í nýrri verð- könnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í gær föstudag í fimm bókaverslunum á höf- uðborgarsvæðinu sem kaupa og selja not- aðar kennslubækur fyrir framhaldsskóla. Lægsta útsöluverðið var oftast hjá Office 1 eða í 23 tilvikum af 29. Hæsta út- söluverðið var oftast hjá Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar sem reynd- ust með hæsta útsöluverðið í 27 tilvikum. Skólavörubúðin er eina verslunin sem borgar peninga þegar komið er með not- aðar námsbækur. Á öllum öðrum skipti- bókamörkuðum sem farið var á er gefin út innleggsnóta í viðkomandi verslun fyrir andvirði bókanna.| Daglegt líf Allt að 63% álag á bækur skiptibóka- mörkuðum ALÞJÓÐAHÚSIÐ hefur nú til skoðunar mál sex kvenna sem eru frá ríkjum utan EES-svæðisins og leitað hafa eftir aðstoð vegna atvinnu- og dval- arleyfismála, eftir að hafa yfirgefið íslenska eig- inmenn sína. Að sögn Margrétar Steinarsdóttur, lögfræðings Alþjóðahúss, eiga allar konurnar það sameiginlegt að hafa verið beittar ofbeldi af ein- hverju tagi í hjónabandinu. Einni kvennanna hef- ur þegar verið vísað úr landi. Margrét segir að sú ákvörðun íslenskra stjórn- valda að veita borgurum EES-ríkja forgang fram yfir fólk utan svæðisins þegar kemur að veitingu atvinnuleyfa hafi gert það að verkum að eigin- menn kvenna sem ekki eru frá EES-ríkjunum hafi nú ákveðið vopn í höndunum. Þeir geti gefið konunum til kynna að lúti þær ekki vilja þeirra geti þeir séð til þess að þeim verði vísað úr landi. „Þetta er vopn sem áður var ekkert svo virkt vegna þess að Útlendingastofnun sýndi þessum málum gjarnan skilning og skoðaði málin mjög vel. [...] En núna er ásteytingarsteinninn Vinnu- málastofnun sem skoðar bara lögin og hvort upp- fyllt séu skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis,“ seg- ir Margrét. Farið eftir settum reglum Hjá Baldri Aðalsteinssyni, verkefnastjóra í at- vinnuleyfum hjá Vinnumálastofnun, fengust þær upplýsingar að stofnunin færi eftir reglum sem henni hefðu verið settar, en þær kvæðu á um að fólk frá Evrópska efnahagssvæðinu hefði forgang fram yfir fólk frá þriðju ríkjum þegar sótt er um atvinnuleyfi hér á landi. Um mál útlendinga sem hafa verið giftir íslenskum ríkisborgurum í stutt- an tíma og lagt stund á atvinnu hér á landi en svo skilið við makann, segir Baldur að í raun sé staða þeirra sú sama og staða annarra einstaklinga sem aldrei hafa komið til landsins og eru að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi í fyrsta sinn. Mál sex útlenskra kvenna sem skilið hafa við íslenska eiginmenn til skoðunar Leggur ofbeldismönnum nýtt vopn upp í hendurnar Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is  Æskilegast | 6 EIN þeirra kvenna sem leitað hafa aðstoðar hjá Alþjóðahúsi vegna þess að þær sjá fram á að fá ekki að dveljast áfram á Íslandi er Margarita, sem er 45 ára gömul og frá Rúss- landi en hún hefur búið hér á landi í um eitt ár ásamt dóttur sinni. Margarita er með dval- arleyfi sem gildir fram í desember en af því að hún skildi við íslenskan mann sinn sótti hún um nýja tegund leyfis. Hefur henni nýlega ver- ið synjað um sjálfstætt dvalar- og atvinnuleyfi. Margarita skildi við eiginmann sinn vegna þess að hann beitti hana andlegu ofbeldi og þvingunum og heimtaði m.a. að laun hennar rynnu inn á bankareikning hans. Margarita hefur starfað hjá Osta- og smjör- sölunni síðastliðna mánuði og segist afar ánægð í starfi sínu þar og hefur vinnuveitandi hennar einnig verið ánægður með störf henn- ar og vill hafa hana áfram í vinnu. Synjað um dvalarleyfi ALDREI áður hafa jafn margir skráð sig til þátt- töku í Reykjavíkurmaraþoni og nú, en hlaupið fer fram í dag. Í hverri einustu vegalengd sem boðið er upp á er búið að slá met, og þegar rætt var við að- standendur hlaupsins rétt fyrir miðnætti í gær var ekki búið að fara í gegnum allar umsóknir en talið er að þátttakendur verði um 9.200. Vildu forsvarsmenn hlaupsins benda þátttakendum á að leggja bílum sín- um á Háskólasvæðinu vegna þessa gífurlega fjölda. Keppnisgögn fyrir Reykjavíkurmaraþon Glitnis voru afhent í Laugardalshöllinni í gær og allan dag- inn lá þangað stöðugur straumur keppenda. Góður andi var í húsinu en greinilegt var að eftirvæntingin var mikil, hvort sem var meðal þekktra hlaupagikkja eða algjörra nýgræðinga. Sumir líta á Reykjavík- urmaraþon sem eintóma skemmtun og láta sér tíma- töku í léttu rúmi liggja en aðrir líta fyrst og fremst á það sem keppnishlaup og hafa æft mánuðum saman fyrir þetta tiltekna hlaup. Flestir eru þó líklega fyrst og fremst að keppa við sjálfa sig á þessari frábæru hlaupahátíð. Boðið er upp á alls kyns dagskrá í tengslum við hlaupið og hefð er fyrir því að íbúar við götur sem hlaupið er um hvetji hlauparana með hljóðfæraleik, klappi, stappi og blístri. Hlauparar hljóta að vonast til að sem flestir fylgist með hlaupinu og hvetji þá áfram því hvatning er himnasending fyrir þreytta fætur. Morgunblaðið/Eggert Helmingi fleiri í mara- þoni nú en í fyrra VASKUR hópur fuglafræðinga og fuglaáhugamanna hélt í gær út í Elliðaey við Vestmannaeyjar og stefna þeir að því að merkja a.m.k. 1.000 sjó- og stormsvölur. Einungis er hægt að vinna að merkingum að kvöld- og næturlagi því svölurnar vilja helst ekki vera á ferli í landi fyrr en eftir að skyggja tekur. Svölurnar eru minnstu sjófuglar sem verpa hér á landi, stormsvalan er um 25 grömm og sjósvalan um helmingi þyngri og eru þær því t.d. minni en margir spörfuglar. Að sögn Guðmundar A. Guð- mundssonar, fuglafræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands og eins leiðangursmanna, eru svöl- urnar veiddar í svokölluð slæðunet sem strengd eru á milli tveggja stanga. Netin eru reist í ljósaskipt- unum þegar mikið af fuglum flögr- ar um varpið og gengur stundum svo mikið á að merkingarmenn hafa ekki undan við að bregða merkjum á fuglana. Stærsta varp sjó- og stormsvölu á Íslandi er í Elliðaey og raunar er Elliðaey stærsta byggð sjósvöl- unnar í Evrópu. Það er því aug- ljóslega eftir miklu að slægjast fyr- ir leiðangursmenn. Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson Þótt sjósvalan sé nátthrafn á hún það til að láta sjá sig í dagsljósi. Verða bara merktar í myrkri ÓRÉTTLÆTI er fólgið í ríkjandi fyrir- komulagi niðurgreiðslna á heyrnartækj- um, að mati talsmanna einkafyrirtækisins Heyrnartækni. Heyrnar- og tal- meinastöð Íslands (HTÍ) niðurgreiðir eingöngu þau tæki sem stofnunin kaupir inn. Viðskiptavinir Heyrnartækni hafa átt rétt á sömu krónutölu við niður- greiðslu tækja og HTÍ frá árinu 2003. Vandi Heyrnartækni felst í því að fyrir- tækið fær aðeins lítið brot af því árlega fjármagni sem hið opinbera veitir til þess- ara tækjakaupa. „Nú er það svo að við er- um löngu búin að klára kvóta þessa árs og við vitum ekki hvað tekur við eftir áramót. Við höfum engin svör fengið frá heilbrigð- isráðuneytinu og það ríkir alger óvissa,“ segir Björn Víðisson, framkvæmdastjóri Heyrnartækni. | 8 Óréttlátt fyrirkomulag ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.