Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 2

Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 2
HAGSTÆTT leiguverð og skemmtilegt laðar unga námsmenn að stúdentaíbúðum, að sögn Sig- urðar Guðmundssonar, sviðsstjóra rekstrarsviðs hjá Byggingarfélagi námsmanna (BN), sem hyggst á næstu sex árum reisa um 800 íbúðir fyrir námsmenn á höfuðborgar- svæðinu. Þörfin fyrir húsnæði á höfuðborg- arsvæðinu hefur aukist samfara fjölgun námsmanna og eru á biðlista allt að 400 umsóknir eftir húsnæði. Sigurður segir að mest sé sótt í einstaklings- eða paraíbúðir og reynt sé að koma til móts við það. „Við erum búin að fylla allar íbúð- ir sem við erum með hér á höf- uðborgarsvæðinu,“ segir Sigurður og bætir við að enn sé verið að vinna úr umsóknum. „Það er stór hópur stúdenta sem fá ekki húsnæði,“ seg- ir hann. Hagstæð lánakjör BN Leiguverð á hinum almenna leigumarkaði er töluvert hærra en leigan á stúdentaíbúðunum og segir Sigurður að einkum séu tvær ástæð- ur fyrir því að félagið geti boðið upp á lægra leiguverð. Annars vegar kemur til að félagið sé undir reglu- gerð um félagslegt húsnæði, líkt og Félagsstofnun stúdenta, en það þýð- ir að BN fær lán hjá Íbúðalánasjóði með 3,5% vöxtum. Einnig kemur til að félagið er sjálfseignarstofnun og ekki rekin með hagnaðarsjónarmið og fyrir vikið er hægt að halda verð- inu niðri, að sögn Sigurðar. BN hóf fyrr á árinu úthlutun íbúða í nýjum byggingum félagsins við Klausturstíg og Kapellustíg í Grafarholti en þar munu alls 200 para- og einstaklingsíbúðir rísa. Út- hlutun íbúðanna mun svo halda áfram út árið. Þá hefur félagið hafið fram- kvæmdir á nýrri lóð við Bjarkarvelli 5 í Hafnarfirði þar sem 100 ein- staklings- og paraíbúðir munu rísa. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki á miðju næsta ári og er þá heildarfjöldi þeirra íbúða sem BN hefur yfir að ráða orðinn 531. Þá mun félagið hefjast handa árið 2008 við að reisa um 500 íbúðir á um 14.500 fermetra svæði sem markast af Háteigsvegi, Þverholti, Stórholti og Einholti í Reykjavík. Áætlað er að verkinu verði lokið árið 2011 en farið verði að úthluta fyrstu íbúð- unum strax árið 2008. Félagið hefur keypt upp lóðirnar á svæðinu og er gert ráð fyrir að allt atvinnuhúsnæði við Þverholt 15–21 og Einholt 6–8 verði rifið og ný fjöl- býlishús, atvinnuhúsnæði, bílastæði, stígar og garðar byggt í staðinn. Framkvæmdirnar eru í samvinnu við verktakafyrirtækið Þverás ehf. Hagstætt leiguverð laðar að Tölvugerð mynd af væntanlegum stúdentagarði á svæðinu sem afmarkast af Þverholti og Einholti. Byggingarfélag námsmanna áætlar að reisa um 500 íbúðir þar og að framkvæmdum verði lokið árið 2011. Byggingarfélag námsmanna hyggst byggja 800 íbúðir á sex árum Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is 2 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR JÓN FORMAÐUR Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðn- aðarráðherra, var kjörinn formaður Framsóknarflokksins á þingi flokks- ins í gær. Hann fékk 54,8% atkvæða en Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- ráðherra fékk 44,15% atkvæða. Aðr- ir frambjóðendur fengu minna. Jón sagði í ræðu eftir kjörið að hann myndi gera allt sem í hans valdi stæði til að jafna ágreining sem upp kynni að koma innan flokksins. Ábyrgð, samstaða, tillitssemi og gagnkvæm virðing ættu að vera kjörorð flokksins. Einnig var kosið til varaformanns og ritara. Ísraelar gera árás Sérsveitir ísraelska hersins gerðu skyndiáhlaup á svæði í Bekaa- dalnum í Austur-Líbanon snemma í gærmorgun og rufu þar með sex daga vopnahlé á milli Ísraela og Hizbollah. Aðgerðir sem þessar setja vopnahléið í hættu en ástandið á svæðinu er mjög ótryggt. For- sætisráðherra Líbanons sagði árás- ina „svívirðilegt brot“ á vopnahléinu. Metþátttaka í maraþoni Metþátttaka var í Reykjavíkur- maraþoninu sem haldið var í gær. Alls voru 9.848 skráðir í hlaupið sem er met en í fyrra voru skráðir 4.150 sem þá var met. Flestir tóku þátt í tíu km hlaupinu eða rúmlega 2.300 manns en tæplega 500 hlupu mara- þon. Þetta er í 23. sinn sem mara- þonið er haldið í Reykjavík. Einn kvartað Aðeins ein kvörtun hefur borist frá sjúklingi til Landlæknisembætt- isins vegna nýs tilvísanakerfis til hjartalækna. Ekki er samningur við Tryggingastofnum um endur- greiðslur til sjúklinga vegna þjón- ustu hjartalækna en ef fólk leitar til þeirra eftir að hafa fengið tilvísun frá heimilislækni getur það fengið endurgreitt. Líkamanum ofboðið Bíll sem kominn er yfir ákveðinn hraða og keyrir út af eða lendir í árekstri getur valdið ótrúlegum meiðslum á mannslíkamanum, að sögn Snorra S. Konráðssonar, fram- kvæmdastjóra Fræðslumiðstöðvar bílgreina, en sérfræðingar hennar eru kallaðir til þegar alvarleg um- ferðarslys verða. Hann segir að allt sem fari yfir venjulegan gönguhraða valdi verulegum meiðslum og fólk geti prófað að ganga á venjulegum gönguhraða á glervegg og sjá hvern- ig það fari út úr því. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Minningar 46/49 Ummæli vikunnar15 Auðlesið efni 50 Hugsað upphátt 37 Myndasögur 54 Veiði 29 Dagbók 54/57 Forystugrein 34 Víkverji 54 Reykjavíkurbréf 34 Velvakandi 55 Sjónspegill 36 Staður og stund 56 Menning38/39, 58/65 Bíó 62/65 Umræðan 40/45 Sjónvarp 66 Bréf 45 Staksteinar 67 Hugvekja 46 Veður 67 * * * Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó- hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns- dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, borgarstjóri Reykjavíkur, tóku í gær, laug- ardag, við 200 þúsund undirskriftum Litháa en undir- skriftirnar eru þakkir til íslensku þjóðarinnar fyrir að hafa fyrst þjóða viðurkennt sjálfstæði Litháens fyrir fimmtán árum. Söfnunin hefur staðið yfir undanfarna mánuði í Litháen og fylgdi fjölmenn sveit Litháa undirskrift- unum til Íslands, m.a. tónlistarmenn sem taka þátt í dagskrá Menningarnætur í Reykjavík. Það var Arturas Zuokas, borgarstjóri Vilnius, höf- uðborgar Litháens, sem afhenti skrárnar íslensku þjóð- inni og verða þær síðan varðveittar í Þjóðskjalasafni Ís- lands. Við athöfnina skrifuðu borgarstjórinn í Reykjavík, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, og Arturas Zuokas, borgarstjóri Vilnius, undir samning um vina- bæjatengsl höfuðborganna tveggja. Morgunblaðið/Jim Smart 200 þúsund Litháar þakka fyrir sjálfstæðisyfirlýsingu GRÍMUR Björnsson, jarðfræðingur sem nú starfar hjá Orkuveitu Reykjavíkur, hefur staðfest að hon- um hafi verið gert að tjá sig ekki um málefni Kárahnjúkavirkjunar, þ.e. um málefni samkeppnisaðila, í þessu tilviki Landsvirkjunar nema með leyfi forstjóra hennar. Af því tilefni ritar Dofri Hermannsson grein á vef sínum (dofri.is) undir fyrirsögninni „Keflaðir vísindamenn“. „Það er auðvitað stórundarleg staða,“ skrifar Dofri, „að yfirmenn OR sem er í eigu Reykjavíkurborg- ar skuli taka þátt í að þagga niður í vísindamanni sem sett hefur fram stóralvarlegar athugasemdir um áreiðanleika og öryggi stærstu framkvæmdar Íslandssögunnar. Framkvæmdar sem unnin er af öðru fyrirtæki sem jafnframt er að 45% hluta í eigu og á ábyrgð Reykjavík- urborgar. Höfum í huga að LV er í opinberri eigu og að það kemur fólki við hvort þarna er málum blandið eða ekki. Að þagga niður í vísinda- manni sem hefur mikið fram að færa í málinu er einfaldlega siðlaust,“ skrifar Dofri. Rétt er að taka fram að Grímur Björnsson hafði veitt Morgun- blaðinu vilyrði fyrir ýtarlegu viðtali þar sem hann ætlaði að tjá sig sem vísindamaður. Þegar taka átti við- talið tjáði Grímur blaðamanni Morg- unblaðsins að hann mætti ekki tjá sig um málefni samkeppnisaðila og því gæti hann ekki veitt umrætt við- tal. „Keflaðir vísinda- menn“ TALSVERÐUR erill var hjá lögregl- unni í Reykjavík aðfaranótt laug- ardagsins. Seint á föstudagskvöld barst lögreglunni tilkynning um að maður hefði verið sleginn í andlitið í heimahúsi í Skerjafirði. Að sögn lög- reglu brotnaði maðurinn á nokkrum stöðum á andliti, m.a. á kjálka og augntóft. Hann var fluttur meðvit- undarlaus á sjúkrahús en þar komst hann til meðvitundar. Árásarmaðurinn var handtekinn. Hann var sagður hafa verið undir áhrifum áfengis en tildrög árásinnar liggja ekki fyrir. Sleginn í heimahúsi ÍSLENDINGAR unnu í gær Ítala, 19:11, í 17. umferð í opna flokknum á Evrópumótinu í brids, sem haldið er í Varsjá í Póllandi. Ítalar hafa haft forustu allt mótið og höfðu aðeins tapað einum leik áður en þeir mættu Íslendingum. Þeir voru þrátt fyrir tapið í gær efstir með 331 stig eftir 17 umferð- ir. Ungverjar voru í 2. sæti með 313 stig og Norðmenn þriðju með 303 stig. Íslendingar voru í 7. sæti með 284 stig. Íslendingar lögðu Ítala á EM í brids LÖGREGLAN í Reykjavík leitar að ökumanni grárrar jeppabifreiðar sem síðastliðinn föstudag um sex- leytið var ekið vestur Engjaveg í Reykjavík. Hægri hliðarspegill bif- reiðarinnar rakst í gangandi veg- faranda sem stóð við bifreið norðan Engjavegar. Vegfarandinn, kona, slasaðist á hægri handlegg og hægri mjöðm. Eftir óhappið var jeppabifreiðinni ekið brott af vett- vangi. Hliðarspegill bifreiðarinnar brotnaði af festingum og dinglaði laus. Ökumaður bifreiðarinnar er beðinn um að hafa samband við lög- reglu í síma 444 1130 og einnig vitni ef einhver eru. Ökumanns leitað ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.