Morgunblaðið - 20.08.2006, Síða 4

Morgunblaðið - 20.08.2006, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR www.lyfja.is - Lifið heil EINU SINNI Á DAG Í EINA VIKU DREPUR FÓTSVEPPINN. Lamisil gel FÆST ÁN LYFSEÐILS ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S LY F 33 20 4 06 /2 00 6 Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd Selfossi - Laugarási Lamisil er borið á einu sinni á dag í eina viku. Hreinsið og þurrkið sýkt svæði vel áður en borið er á. Bera skal Lamisil á í þunnu lagi á sýkta húð þannig að það þeki allt sýkta svæðið. Lamisil er milt og veldur mjög sjaldan húðertingu. Lamisil inniheldur terbinafin sem er sveppadrepandi (fungisid) efni og vinnur á sveppasýkingum í húð af völdum húðsveppa, gersveppa og litbrigðamyglu („lifrarbrúnir blettir“). Lamisil á ekki að nota gegn sveppa- sýkingum í hársverði, skeggi eða nöglum nema samkvæmt læknisráði. Það má ekki nota ef þekkt er ofnæmi fyrir terbinafini eða öðrum innihaldsefnum í Lamisil. Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarseðil sem fylgir hverri pakkningu. AFAR þröngt var á flokksþingi Framsóknarflokksins á Hótel Loft- leiðum í gærmorgun, ekki síst þeg- ar kosningar um embætti til for- ystusveitar flokksins fóru fram. Mjög löng röð myndaðist um ganga hótelsins þegar um 760 manns gengu til kosninga og varð það til þess að töf varð á tilkynningu um embætti formanns. Létt var þó yfir flokksmönnum sem brugðu sér margir hverjir út í góða veðrið til umræðna um mál- efni líðandi stundar þegar þeir höfðu lokið við að greiða atkvæði sitt. Þingmennirnir Dagný Jónsdóttir og Birkir Jón Jónsson og Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi ráðherra, voru glaðbeitt á leið sinni að kjör- borðinu þrátt fyrir langa bið. Morgunblaðið/Sverrir Þröngt á þingi hjá Framsóknarflokknum FLOKKSÞING framsóknarmanna hófst á því í gærmorgun að farið var yfir stjórnmálaályktun flokks- ins sem lögð var fyrir á föstudags- kvöld. Stjórnmálanefnd hafði farið yfir ályktunina eftir almennar um- ræður á fyrra degi þingsins og stóð sú vinna í fáeinar klukkustundir. Ályktunin var svo samþykkt með handauppréttingu en engar athugs- emdir bárust frá flokksmönnum. Fáeinar breytingar voru gerðar á ályktuninni, aðallega breytingar á orðalagi en m.a. var einnig bætt inn í ályktunina að Framsókn- arflokkurinn legði höfuðáherslu á jafnrétti til náms, enda væri það öflugasta vopnið gegn stéttaskipt- ingu í samfélaginu. Einnig að flokk- urinn teldi að forvarnir sem byggj- ast á styrkingu einstaklingins væru árangursríkasta aðferðin til bættr- ar almennrar lýðheilsu og að hvergi mætti hvika í baráttunni gegn fíkniefnum. Stjórnmála- ályktunin samþykkt SIV Friðleifsdóttir, frambjóðandi til formanns Framsóknarflokksins og fráfarandi ritari, sagðist í ávarpi sínu, eftir að úrslit lágu fyrir, ætla að halda áfram að vinna að fullum krafti fyrir flokk- inn. „Ég mun vinna áfram í heil- brigðisráðuneytinu af fullum kröftum. Og ég mun standa við bakið á öllum flokksmönnum í þeirri vinnu sem framundan er,“ en Siv minnti á að einungis níu mánuðir væru til alþingiskosninga og mikil vinna framundan. Hún hvatti flokksmenn til að vinna saman. „Ég heiti á ykkur öll að vinna saman með okkur í þeirri forystu sem nú verður kjörin að því að efla flokkinn á þessum tíma.“ Siv þakkaði Jóni Sigurðssyni fyrir drengilega kosningabaráttu og flokksmönnum fyrir það traust sem hún naut í kjörinu og sagði að allir Framsóknarmenn væru sig- urvegarar að loknu glæsilegu flokksþingi. Jón Sigurðsson hlaut 53,8% greiddra atkvæða á meðan Siv Friðleifsdóttir hlaut 44,15% þegar kosið var um embætti formanns á flokksþingi framsóknarmanna sem haldið var á Hótel Loftleiðum í gærdag. Flokksmenn vinni saman með forystunni GUÐNI Ágústsson sagðist í ávarpi sínu, eftir að sigur hans í varafor- mannskjörinu hafði verið kunn- gerður, vera hræður og þakklátur yfir sigrinum. Hann sagði að flokk- urinn þyrfti á nýrri samstöðu að halda. „Ágætu vinir. Framsókn- arflokkurinn á sér sterka og litríka baráttusögu í níutíu ár. Hann þarf á afli okkar og krafti að halda. Hann þarf nýrri samstöðu. Hann þarf sókn á grænu ljósi. Hann hefur orkað miklu á liðnum árum og áratugum. Hann hefur gefið þessari þjóð mikið. Nú þurfum við að gefa þessum flokki einingu og samstöðu,“ og taldi hann að öll aðildarfélög og allir flokks- menn ættu að fylkja liði og breiða út málstaðinn: „Við verðum öll sem einn her. Förum inn í skólana og fyr- irtækin og berjumst fyrir málstað okkar í nýrri samstöðu og sókn.“ Guðni þakkaði Jónínu Bjartmarz fyrir drengilega baráttu: „Sem betur fer bar aldrei skugga á þá kosninga- baráttu, við höfum verið vinir um langa hríð,“ auk þess sem hann ósk- aði vini sínum og gamla félaga Jóni Sigurðssyni til hamingju með for- mannsembættið og þakkaði Halldóri Ásgrímssyni fyrir vel unnin störf. Guðni þakkaði Margréti Hauks- dóttur, konu sinni, og sagði: „Þig dreymdi þennan draum fyrir mán- uði, nákvæmlega eins og tölurnar féllu.“ Markmiðið er stórsigur í vor Eftir ávarp Guðna tók Jónína Bjartmarz til máls og óskaði hún Guðna til hamingju með kjörið í ávarpi sínu og sagðist ætla að leggja sig fram í að vinna með forystunni áfram: „Ég sagði það á dögunum: Annaðhvort starfa ég í þessari for- ystu eða ég starfa dyggilega með þeim sem verða kosnir til forystu. Við þurfum öll að starfa saman núna. Við þurfum að undirbúa flokks- þingið okkar og málefnastarfið. Og markmið okkar allra er stórsigur í vor.“ Dreymdi niðurstöður kjörsins fyrir mánuði Morgunblaðið/Sverrir Siv Friðleifsdóttir fagnar nýrri forystu Framsóknarflokksins, Jóni Sigurðssyni formanni og Guðna Ágústssyni varaformanni. JÓN Sigurðsson, nýkjörinn formað- ur Framsóknarflokksins, þakkaði í ávarpi sínu, eftir að úrslit höfðu verið kunngerð, stuðningsmönnum og öðr- um sem gert hefðu þátttökuna eins glæsilega og raun bar vitni. Hann sagði úrslitin hafa farið á þá lund að allir hefðu sigrað og eftir flokksþing- ið myndu Framsóknarmenn ganga á nýjan leik einbeittir til verka. „Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að efla innri samstöðu og jafna ágreining sem upp hefur komið og upp kann að koma innan flokks- ins. Þetta er ekki einkasigur eins manns heldur er þetta sameiginleg- ur sigur alls flokksins og gefur við- spyrnu og fótfestu til rösklegra at- hafna á komandi mánuðum og misserum. Þetta er sameiginlegur sigur málstaðarins sem við berjumst fyrir,“ sagði Jón og bætti við að það væri lífsskoðun langflestra Íslend- inga að farsæld væri gjöf úr guðs hendi en í velgengni gleymdu menn stundum að þakka höfundi lífsins gjafir hans. „Þetta þurfum við öll að muna og þetta þarf ég að muna. Enginn veltir þungum steini úr vegi heldur allir saman.“ Lýðræðisleg fjöldahreyfing Jón lofaði flokksmenn fyrir góða þátttöku á flokksþinginu og sagði svo mikinn fjölda sýna styrk, sam- hug og afl framsóknarmanna. „Þetta sýnir einnig að Framsóknarflokkur- inn er lýðræðisleg fjöldahreyfing fólksins. Lýðræðið er auðvitað ófyr- irsjáanlegt og þannig á það að vera og hér hafa fulltrúar flokksmanna haft eðlilegt og sjálfsagt tækifæri til að velja sér sjálfir forystu fyrir Framsóknarflokkinn næstu ár,“ sagði Jón og þakkaði öllum fram- bjóðendum fyrir að gera flokksþing- ið áhugavert, gera það raunverulega lýðræðislegt og koma því til leiðar við þessi tímamót að framvegis stæðu allir saman í Framsóknar- flokknum. Hlutverk flokksins aldrei brýnna Jón þakkaði einnig Halldóri Ás- grímssyni fyrir langa og innilega vináttu og „umfram allt annað tjái ég honum þakkir framsóknarmanna og þjóðarinnar fyrir góð og mikil, ár- angursrík og farsæl störf fyrir land og þjóð um langt árabil.“ Að lokum sagði Jón hlutverk flokksins aldrei hafa verið brýnna en núna til að styrkja, bæta og örva íslenskt sam- félag til sóknar inn í framtíðina. „Hér á þessu þingi eru sterkir straumar og samefling, sem við eig- um í nafni Framsóknarflokksins að bera og miðla út til allrar þjóðarinn- ar. Við skulum líta fyrst og fremst á sameiginlegar hugsjónir og sameig- inleg verkefni fyrir land og þjóð.“ Jón Sigurðsson viðskipta- og iðnaðarráðherra er nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins Framsóknarmenn ganga ein- beittir til verka á nýjan leik Morgunblaðið/Sverrir Jón Sigurðsson, nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins, og Siv Friðleifsdóttir, mótframbjóðandi hans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.