Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 8

Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 8
8 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Í Náttúruverndaráætl-un 2004-2008 var lagttil að stofnaðir yrðu þrír nýir þjóðgarðar; Látrabjarg-Rauðisandur, Hekla og Þingvellir- Skjaldbreiður-Tindaskagi. Að auki var lagt til að stækka þjóðgarðana við Snæfellsjökul, í Jökulsár- gljúfrum og í Skaftafelli. Í þingsályktun um náttúru- verndaráætlunina, sem lögð var fyrir Alþingi lög- gjafarþingið 2003-2004, er lagt til að unnið verði að friðlýsingu fjórtán svæða næstu fimm árin með einum eða öðrum hætti, jafnframt því að unnið verði áfram að stofnun Vatnajökulsþjóð- garðs. Af svæðunum fjórtán hafa Guð- laugstungur einar verið friðaðar, en það var gert í desember á síð- asta ári. Unnið er að undirbúningi friðlýsingar hinna svæðanna sam- kvæmt upplýsingum Umhverfis- stofnunar. M.a. er unnið að samn- ingum við landeigendur og verið að afla upplýsinga hjá Fasteignamati ríkisins og sýslumönnum á við- komandi svæðum. Í sumum tilvik- um er málið komið svo langt að bú- ið er að halda borgarafundi heima í héraði. Áður en svæði er friðlýst þarf m.a. að afla samþykkis landeig- enda og ábúenda fyrir mörkum friðaða svæðisins sem og reglum sem um það munu gilda. Það ferli getur tekið þónokkurn tíma að sögn Guðríðar Þorvarðardóttur fagstjóra hjá Umhverfisstofnun. Samkvæmt lögum um náttúru- vernd frá árinu 1999 skal umhverf- isráðherra láta vinna náttúru- verndaráætlun fyrir landið allt á fimm ára fresti. Í áætluninni sem nú er í gildi er auk þjóðgarðanna þriggja lagt til að 32 ný svæði verði vernduð sem friðlönd, tíu sem náttúruvætti, eitt sem vistkerfi, 24 sem búsvæði og tvö sem fólkvang- ar. Friðun Látrabjargs undirbúin Ákveðið hefur verið að stefna að stofnun þjóðgarðs við Látrabjarg og Rauðasand, líkt og fram kemur í Náttúruverndaráætluninni. Í þingsályktun um áætlunina er talið mikilvægt að svæðið verði verndað fyrst og fremst vegna fjölbreytts og mikils fuglalífs á fuglabjörgun- um en jafnframt vegna landslags. Þá sé talið mikilvægt að svæðið verði verndað sem friðland eða þjóðgarður með sérstakri áherslu á sjófuglabyggðir og fjörusvæði. Bæjarráð Vesturbyggðar styð- ur framkomna tillögu um þjóðgarð við Látrabjarg og mælti á síðasta fundi sínum með að hún yrði tekin til ítarlegrar umfjöllunar í bæjar- stjórn á næstunni. Nú er unnið að gerð aðalskipulags fyrir Vestur- byggð og samkvæmt drögum að því er lagt til að svæðið, sem ætl- unin er að verði þjóðgarður, verði nú þegar hverfisverndað, en sam- kvæmt skipulagslögum frá árinu 1997 er hverfisverndun ákvæði í svæðis-, aðal- eða deiliskipulagi um verndun sérkenna eldri byggð- ar eða annarra menningarsögu- legra minja. Að sögn Guðnýjar Sigurðardóttur, starfandi bæjar- stjóra í Vesturbyggð, hefur hverf- isverndunin mætt nokkurri and- stöðu meðal landeigenda á svæðinu. Það gæti því tafið fyrir stofnun þjóðgarðsins, en hún telur þó að af henni gæti orðið eftir um eitt ár. Guðný segir vonir standa til að þjóðgarðurinn skapi störf fyrir bæjarfélagið. Ferðaþjónusta gæti aukist enn frekar. Þegar kemur mikill fjöldi ferðamanna að Látra- bjargi ár hvert, en með stofnun þjóðgarðs yrði þjónusta og allt ut- anumhald í fastari skorðum. Þjóðgarðurinn Látrabjarg- Rauðisandur, yrði samkvæmt Náttúruverndaráætlun um 490 km² að stærð. Þar eru mikil fugla- björg. Finna má fjölda þjóðminja á svæðinu. Vestast á Látrabjargi eru Bjargtangar sem jafnframt er vestasti tangi landsins og Evrópu. Í Látrabjargi er stærsta álku- byggð í heimi, en þar verpa a.m.k. 45 fuglategundir og eru sjö þeirra á válista: Himbrimi, grágæs, straumönd, fálki, svartbakur, stuttnefja og hrafn. Á svæðinu má ennfremur finna a.m.k. tvær sjald- gæfar plöntutegundir; ferlaufung og bjargstrý. Hlutar svæðisins hafa verið á náttúruminjaskrá um nokkurt skeið. Hægt að stofna þjóðgarð þó land sé í einkaeigu Þjóðgarða má stofna á land- svæðum þar sem landslag eða líf- ríki er sérstætt eða á því hvílir söguleg helgi. Miðað er við að um- rædd svæði séu í ríkiseign nema sérstakar ástæður mæli með öðru og samkomulag náist um það milli ráðherra og landeigenda. Friðlýs- ing krefst töluverðrar undirbún- ingsvinnu ef tryggja á að hún skili árangri. Hana þarf að vinna í sem mestri sátt við heimamenn og hún þarf að falla sem best að áætlunum um aðra landnotkun. Strangar reglur gilda aðra landnotkun við stofnun þjóðgarðs þar sem meg- inmarkið með slíkri friðlýsingu er að veita fólki aðgang að svæðum þar sem náttúra landsins fær að þróast eftir eigin lögmálum án verulegrar íhlutunar mannsins. Fréttaskýring | Friðlýsing landsvæða Eitt af fjórtán verið friðað Þjóðgarðurinn Látrabjarg-Rauðisandur myndi efla atvinnulíf í Vesturbyggð                                 Friða á Látrabjarg og Rauðasand. Þjóðgarðar samanlagt um 2% af flatarmáli landsins  Á Íslandi hafa verið stofnaðir þrír þjóðgarðar samkvæmt lög- um nr. 44/1999 um nátt- úruvernd. Þjóðgarðurinn í Skaftafelli var stofnsettur árið 1967, þjóðgarðurinn í Jökuls- árgljúfrum árið 1973 og þjóð- garðurinn Snæfellsjökull árið 2001. Heildarflatarmál þjóðgarð- anna þriggja er nú um 1.900 km² eða tæplega 2% af flatarmáli landsins. Unnið er að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar í fjarnámi: Undirbúningur undir nám í grafískri miðlun, prentun, ljósmyndun og bókbandi. Nánari upplýsingar á www.ir.is / fjarnam FJÖLDI lekandatilfella á þessu ári er kominn yfir heildarfjöldann á síð- astliðnu ári og tilfellunum fjölgar enn. Fyrstu sjö mánuði þessa árs var sóttvarnalækni tilkynnt um 21 tilfelli lekanda frá rannsóknarstofu Land- spítala – háskólasjúkrahúss (LSH) í sýklafræði. Árið 2005 urðu lekanda- tilfellin 19 að tölu, en það var helm- ingsaukning frá árinu 2004. Sam- kvæmt upplýsingum frá göngudeild húð- og kynsjúkdóma er mest um smit í þröngum hópi einstaklinga með sögu um misnotkun fíkniefna, en hluti sjúklinga er þó utan þessa hóps. Karlmenn eru í meirihluta þeirra sem sýkjast. Á þessu ári hafa greinst 15 karlar og 6 konur, flest á aldrinum 20–29 ára. Sýkingin greinist oftast á göngu- deild húð- og kynsjúkdómadeildar LSH, sem einnig annast meðferð og rekur smitleiðir. Aðrir sem annast greiningu og meðferð eru kvensjúk- dómalæknar og heilsugæslulæknar. Svo virðist sem stór hluti hinna sýktu síðastliðin tvö ár hafi smitast á Íslandi, segir í Farsóttarfréttum Landlæknisembættisins. Ófrjósemi er vel þekktur fylgi- kvilli lekanda, einkum hjá konum. Töluverður hluti fær engin einkenni af völdum sýkingarinnar og eru kon- ur oftar án einkenna en karlar. Smit berst að stórum hluta frá ein- kennalausum einstaklingum sem ekki vita um sýkinguna. Það berst við kynmök um leggöng, en einnig berst smitið við munnmök og enda- þarmsmök. Skyndikynni auka líkur á smiti en smokkanotkun dregur mikið úr líkum á smiti. Sóttvarnalæknir hvetur alla til að leita læknis sem hugsanlega hafa orðið fyrir smiti og/eða finna fyrir einkennum frá þvag- og kynfærum. Einnig er ástæða til að hvetja lækna til að vera á varðbergi og senda sýni í ræktun þegar grunur vaknar um sýkingu, segir í Farsótt- arfréttum. Fleiri tilfelli lekanda nú en allt árið í fyrra FERÐAKYNNINGARFUNDUR Vináttu og menningarfélags Mið- Austurlanda, VIMA, verður í Frið- arhúsi á horni Njálsgötu og Snorra- brautar (þar sem áður var hann- yrðaverslunin Erla) þriðjudaginn 22. ágúst nk. og hefst stundvíslega kl. 17.30. Þar verður sagt frá ferðum sem fyrirhugaðar eru hjá félögum, m.a. til Sýrlands, Jemen og Jórdaníu, Ír- an, Óman og Líbýu. Eins er ætluð ferð til Kákasuslandanna Armeníu, Georgíu og Aserbaídsjan. Einnig verður sýnd myndin Ferð- in til Jemen sem tekin var í sl. ferð og er um hálftímamynd Ólafs S. Guðmundssonar. Auk þess munu diskar rúlla í tölvum frá þessum áfangastöðum og menn geta skráð sig í ferðir og í félagið. Tekið skal fram að velunnarar sem enn hafa ekki gengið í VIMA eru velkomnir. Kaffi og krydderí á boðstólum. Morgunblaðið/Þorkell Frá Jórdaníu. Ferðir til Mið- Austurlanda kynntar ATVINNUGREININ sem flestir karlmenn undir 30 ára aldri stunda hér á landi er almenn byggingarstarf- semi. Kemur þetta fram í vefriti fjár- málaráðuneytisins. Störfum í mannvirkjagerð í heild hefur fjölgað um 28% á undanförnum fimm árum. Fjölgun hjá ungum körl- um er hlutfallslega minni en það, enda er töluverður hluti aðflutts vinnuafls, vegna uppsveiflunnar í byggingarstarfsemi, eldri en þrítug- ur. Þróunin í mannvirkjagerð er þess vegna ekki dæmigerð um atvinnuval þeirra sem hafa alið aldur sinn hér á landi. Næstfjölmennasta atvinnu- grein ungra karlmanna er vinna í stórmörkuðum og matvöruverslun- um og þar hefur fjölgað um 500 manns sem er fjórðungs aukning. Ár- ið 2000 voru fiskveiðar í öðru sæti en í fyrra hafði þessi grein fallið niður í fimmta sæti. Þriðja fjölmennasta greinin er matsölu- og skemmtistaðir þar sem rúmlega þúsund vinna og hefur heldur fækkað. Karlmönnum fjölgar nokkuð í félagsþjónustu Ungum karlönnum hefur fjölgað um tæplega 200 í félagsþjónustu án dvalar (t.d. leikskólum og félagsmið- stöðvum), í sérvöruverslunum ýmiss konar og litlu minna í grunnskólun- um. Allt eru þetta atvinnugreinar þar sem fjöldi ungra karla tvöfaldast og rúmlega það. Atvinnuþátttaka kvenna er með nokkuð öðrum hætti en hjá körlum. Fjölmennasta atvinnugrein ungra kvenna er félagsþjónusta án dvalar og þar hefur fjölgunin einnig orðið mest, yfir 400 konur sem er fjórðung- ur. Næst fjölmennust er vinna í stór- mörkuðum og matvöruverslunum, eins og hjá körlunum, en þar hefur konum ekki fjölgað mikið. Matsölu- og skemmtistaðir eru einnig í þriðja sæti hjá konunum. Ungum konum hefur fjölgað næstmest í grunnskól- um, um 300 sem er 46% aukning. Karlar í byggingavinnu og konur í félagsþjónustu ÞÓTT sumarið hafi verið nokkuð vindasamt og blautt, að minnsta kosti suðvestanlands, hafa inn á milli komið blíðviðrisdagar þar sem vind hefur nánast ekkert hreyft. Á slíkum dögum spegla höf og vötn umhverfi sitt og þótt vatnið gárist örlítið vegna golu og brengli spegilmyndina er það hin ágætasta skemmtun að rýna í myndir hafs- ins. Þessi trébátur lá við landfestar í Sandgerðishöfn nýverið. Morgunblaðið/ÞÖK Á nær spegilsléttum sjó

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.