Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 11 um með ábendingum um vega- og samgöngu- bætur með tilliti til umferðaröryggis og kvað Ágúst tillögum Rannsóknarnefndar umferðar- slysa vera vel tekið og að mörgu leyti eftir þeim farið. Þess má þó geta, að öll þungaumferð fer enn um Hallormsstaðaskóg þrátt fyrir mjög ákveðnar athugasemdir Rannsóknarnefndar- innar. „Umferðarstofa er áróðursmaskínan um umferðarmál“ Þótt árleg skýrsla Rannsóknarnefndar um- ferðarslysa og ýmsar varnaðarskýrslur, sem nefndin lætur frá sér fara, séu ekki notaðar beinlínis og markvisst í áróðri fyrir bættri um- ferðarmenningu, þá eru þær birtar á netinu (www.rnu.is/) og eru upplýsingagögn fyrir t.d. Umferðarstofu, sem rekur áróður í útvarpi fyr- ir bættri framkomu og akstri ökumanna. Í nýjustu skýrslu Rannsóknarnefndar um- ferðarslysa eru banaslys í umferðinni í fyrra tekin fyrir og sundurgreind. Það er lærdómsrík lesning. Alls voru banaslysin 19 talsins í 16 um- ferðaróhöppum. Tvívegis er talið, að um sjálfs- víg hafi verið að ræða og því eru þau atvik ekki talin með í fjölda slysa, sem leiddu til dauða. Auk ársskýrslu með sundurgreiningu á öll- um banaslysum gefur Rannsóknarnefnd um- ferðarslysa út svokallaðar „varnaðarskýrslur“, þar sem augum er beint að einhverju einu til- teknu atriði, sem ökumenn verða að hafa í huga við akstur bifreiða. „Í varnaðarskýrslum Rannsóknarnefndar umferðarslysa koma fram upplýsingar um um- ferðarslys í forvarnarskyni. Upplýsingarnar varða eitt öryggisatriði eða fleiri sem rannsókn- arnefndin telur tilefni til að fjalla um í sérstakri skýrslu.“ Í janúar á þessu ári kom út varnaðarskýrslan „Bílbeltið hefði skipt máli“. Vísar nefndin til slyss, áreksturs tveggja fólksbifreiða, sem varð í innanbæjarakstri haustið 2005. Ökumaður annars ökutækisins slasaðist mjög alvarlega, hlaut áverka innvortis í brjóstholi, brot í mjaðmagrind, nefbrot og sár á andliti. Telur rannsóknarnefndin að meiðsli ökumannsins hefðu ekki orðið eins mikil hefði hann notað bílbelti. Hinn ökumaðurinn slapp við meiri háttar meiðsli. Hann notaði bílbelti. Ályktunarorð nefndarinnar eru þessi: „Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur ítrekað bent á mikilvægi þess að ökumenn og farþegar noti bílbelti í umferðinni og telur að fækka mætti banaslysum í umferðinni um 20% og alvarlegum umferðarslysum verulega ef allir notuðu bílbelti. Er það von nefndarinnar að um- fjöllun um þetta slys auki þekkingu og skilning á mikilvægi þess að nota bílbelti í umferðinni.“ Það sem af er árinu hafa alls 15 manns lát-izt í banaslysum og hafa allmörg þeirraorðið á næstliðnum vikum, hættulegasta tímanum í umferðinni ár hvert, júlí og ágúst. Í fyrra fórust 19 manns í 16 umferðarslysum og hlutust 6 banaslys af ölvunarakstri, þar af tvö sem stöfuðu af samspili áfengis og ólöglegra vímuefna. Enda þótt nokkuð hafi borið á fréttum af banaslysum á liðnum vikum telur Ágúst Mo- gensen, framkvæmdastjóri Rannsóknarnefndar umferðarslysa, að þetta ár verði ekki verra en undanfarin ár. Þessi tími árs sé ávallt slæmur vegna mikilla ferðalaga. Auk Umferðarstofu, sem sinnir áróðri og kynningu í þessum mála- flokki, starfa jafnframt Rannsóknarnefnd um- ferðarslysa og Fræðslumiðstöð bílgreina við rannsóknir á sviði umferðarmála. Tilgangur þessara þriggja aðila er í raun sá sami, þótt hver þeirra hafi sérstaklega afmörkuðu verkefni að gegna. Í liðnum mánuði kom út mikil skýrsla frá Rannsóknarnefnd umferðarslysa sem er skipuð af samgönguráðherra og er meginhlutverk hennar að rannsaka orsakir umferðarslysa með tilliti til forvarna. Í skýrslu nefndarinnar fyrir árið 2005 er farið í saumana á öllum banaslysum sem urðu í fyrra og þau greind í smáatriðum, or- sakir og áhættuþættir, auk áhættuhegðunar ungra ökumanna, notkunar hættuljósa, loftþrýst- ings í hjólbörðum, slits og aðskotahluta, bifhjóla- slysa, viðbragða leikmanna á slysstað, bílbelta- notkunar, slysa í vetrarfærð, hraðaksturs, ölvunaraksturs, svefns og þreytu o.s.frv. Verkaskipti á milli Rannsóknarnefndarinnar og Fræðslumiðstöðvar bílgreina er einkum fólgin í því, að fulltrúar beggja mæta á slysstaði alvar- legra slysa, en fulltrúi rannsóknarnefndarinnar kannar öll ytri ummerki slysa og skráir tugi at- riða, sem kynnu að hafa skipt máli við slysið og verið orsakavaldur. Fræðslumiðstöð bílgreina fer hins vegar í saumana á bílum sem lenda í alvar- legum slysum og gera tæknilega úttekt á ástandi bílanna. Fræðslumiðstöð bílgreina er sjálfstæð stofnun Félags iðn- og tæknigreina og Bílgreina- sambandsins, sem starfar samkvæmt samningi við samgönguráðuneytið. Hlutverk miðstöðvar- innar snýr að bíltæknilegum atriðum, þ.e. starfs- mennirnir mæta á slysstað og einbeita rannsókn sinni að bílnum sjálfum og kanna um 200 atriði er varða tæknileg atriði bílsins og leita uppi hugsanlegar orsakir slyss, sem hægt er að rekja til galla, bilana eða rangrar uppsetningar bílsins, t.d. jafneinföld atriði eins og loft í dekkjum, sem er ótrúlega oft meinbugur á. Hvað varðar liðið ár var það niðurstaða Rann- sóknarnefndar umferðarslysa að útafakstur hefði verið algengasta tegund slysa eða 60%, en framanákeyrslur komu þar á eftir. Algengustu orsakir banaslysa í umferðinni árið 2005 voru ölvunarakstur, hraðakstur og að bílbelti var ekki notað. Starf þessara tveggja stofnana hefur sér þann tilgang fyrst og fremst að stuðla að forvörnum með öflun upplýsinga og kynningar. Það er í samræmi við breytingu á lögum, að í skýrslu RNU 2006 er nákvæmt yfirlit um banaslys árs- ins 2005 og þau sundurgreind. Það er ekki beinlínis hugguleg lesning. Skýrslan er birt á Netinu á slóðinni www.rnu.is. Í skýrslunni er gerð tillaga um að skólar lands- ins nýti sér skýrslur nefndarinnar ásamt öðrum skýrslum, sem gefnar eru út um umferðarörygg- ismál í rannsóknar- og verkefnavinnu nemenda og lögð áherzla á forvarnargildi skýrslnanna og dæmanna sem tekin eru um bæði banaslysin og gáleysisakstur, sem gæti orðið ungu fólki víti til varnaðar. Umferðarvá – rannsóknir í forvarnarskyni Lögreglumenn við störf á vettvangi í Garðabæ. Samningur Fræðslumiðstöðvar bílgreina við yfirvöld rennur út í lok október og kvaðst Snorri ekki vita hvort Ríkislögreglustjóri hygðist framlengja samninginn. Hann benti á, að starf miðstöðvarinnar hefði þróazt einhver býsn frá því þetta starf var hafið, en það sem þyrfti að gera núna væri að skerpa verklags- reglur. Snorri sagði að hann gerði ekki ráð fyr- ir neinum stökkbreytingum, en hins vegar þyrfti að bæta við nánari útfærslum á ein- stökum atriðum. „Það sem ræður því er að- allega tækniþróun í bílum, t.d. hvernig eigi að bregðast við þegar rafkerfið er verulega skemmt. Nú er svo komið, að nánast öll stjórn- un bifreiða er háð rafkerfi bílanna.“ Veruleg hætta á hagsmunaárekstrum Það er síðan hlutverk Rannsóknarnefndar- innar að draga ályktanir af verkum okkar og niðurstöðum og koma þeim á framfæri og ákveða hvað er notað, þegar nefndin leggur fram tillögur um breytingar og lagfæringar á umferðarmannvirkjum og svo lagabreytingar, hvað þurfi að laga og bæta. Fræðslumiðstöð bílgreina hefur lögsögu um allt land og sendir fulltrúa sína á vettvang hvar sem er á landinu eftir því sem efni standa til. Snorri sagði að sem betur fer væri ekki meira um alvarleg slys en svo, að það dygði að hafa eina miðstöð í Reykjavík. Hann lagði áherzlu á að þeir sem stunduðu þetta starf þyrftu að þjálfast í rannsóknum af þessu tagi og menn héldust ekki í æfingu nema með því að vinna nokkuð stöðugt við þetta. Þá benti hann á, að menn sem ynnu þessi verk þyrftu að vera hlut- lausir og mættu ekki hafa hagsmuni af bíla- viðgerðum og kvað það erfitt að finna menn, úti á landi sérstaklega, sem væru hæfir til þessara starfa án þess að hafa starf af bíla- viðgerðum. „Við könnuðum það sérstaklega,“ sagði Snorri. Núna vinna þrír starfsmenn við þessi rann- sóknarstörf en hafa verið allt að sex. Hluti af starfsemi Fræðslumiðstöðvarinnar hefur ein- mitt lotið að því að meta hversu margir starfs- menn séu nauðsynlegir og með þrjá starfs- menn eru þeir á vakt allan sólarhringinn. „Við þurfum alltaf að vera reiðubúnir þegar kallið kemur,“ segir Snorri. Ekki ganga á glerhurð á venjulegum gönguhraða – Að undanförnu hafa orðið allnokkur bana- slys í umferðinni og í slíkum tilvikum koma rannsóknarmenn Fræðslumiðstöðvarinnar við sögu. Hvað hefur að þínu mati verið lærdómsrík- ast við rannsóknir ykkar á þessum alvarlegu umferðarslysum, banaslysunum? „Það sem mér sjálfum finnst lærdómsríkast, og almenningur þarf að læra líka, er sú stað- reynd að fólk í bíl er á nákvæmlega sama hraða og bíllinn sjálfur og mannslíkaminn er ekki gerður fyrir það að verða fyrir þeim skakka- föllum sem verða. Bíll sem er kominn yfir ákveðinn hraða og lendir í útafakstri eða árekstri eða einhverju öðru, getur valdið hreinlega ótrúlegum meiðslum á mannslíkam- anum. Einföld tilraun til að fólk geri sér grein fyrir þessu væri t.d. að láta einhvern ganga á venjulegum gönguhraða á glervegg og athuga hvernig það fer út úr því! Allt sem fer yfir venjulegan gönguhraða veldur verulegum meiðslum og það er þetta sem gerist í þessum umferðarslysum, að þrátt fyrir allan öryggis- búnað, öryggisbeltin og öryggispúðana, þá er líkamanum ofboðið. Þetta eru svo stórkostlegir kraftar, að þrátt fyrir allan öryggisbúnaðinn, þá er líkamanum ofboðið, hann þolir þetta hreinlega ekki.“ – Þú ert þá að segja að gagnsemi bílbeltanna sé takmörkuð þegar bíll er kominn yfir ákveð- inn hraða? „Já, því þá fer höfuðið og öryggispúðinn blæs út og er útblásinn í örskamma stund þannig að við fyrsta högg sleppur fólk kannski, en í öllum höggum eftir það og snöggum hreyf- ingum bílsins, er fólki hætta búin og þá koma meiðslin. Og svo er það annað, sem hefur skýrzt mjög í mínum huga. Það er svo margt sem farþegar og ökumenn geta haft stjórn á í þessum efnum. Númer eitt er að vera í öryggisbeltum, númer tvö að stilla hraðanum mjög í hóf og í þriðja lagi er það ekki síður mikilvægt að stilla loft í dekkjum á réttan hátt, gæta slits á dekkjum og að það sé með réttan loftþrýsting.“ – Þetta er kannski það sem almenningur trassar einna helzt? „Já, maður sér það t.d. á vörubílum, að það er nánast búið að „víggirða“ alla ventla dekkj- anna með hjólkoppum og það hefur stundum tekið okkur rannsóknarmenn á slysstað allt að tvo klukkutíma að ná þessum koppum af til þess að geta mælt loftþrýstinginn. Atvinnubíl- stjóri á vöruflutningabifreið í lengri ferðum þarf að kanna loftþrýstinginn í dekkjum bíls síns a.m.k. einu sinni á dag. Það er hægt að setja búnað á ventlana á innri dekkjum þess- ara bíla þannig, að mælingin verður mjög ein- föld. En þetta er trassað og girt fyrir mælingar með þessum hjólkoppum, sem eru aðallega settir á bílana til skrauts, bílarnir verða að líta vel út! Þetta er alveg afleitt. Það er hreinasta puð að ná þessum koppum af, því þeir eru sjaldan hreyfðir og festing- arnar ryðga fastar. Það er ekki nema með sér- stökum aðgerðum sem maður nær þeim af og þetta gengur alveg þvert á það sem menn vita, að það þarf að vera nægilegt loft í hjólbörðum.“ – Þetta er ekki beinlínis til fyrirmyndar hjá atvinnubílstjórum? „Nei, aldeilis ekki. Það er meira lagt upp úr útlitinu heldur en skynseminni,“ sagði Snorri. Og það á örugglega ekki bara við um vöru- bílstjóra – hégóminn er víða. alvarlegra bílslysa Morgunblaðið/Júlíus Umferðarslys tveggja bíla á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs. Höfundur er blaðamaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.