Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ Nýtt ár er hafið. Eld-snemma þann 1. jan-úar 2006 halda faðirog sonur af stað fráÍslandi á meðan margir fagna enn upphafi nýs árs með söng og gleðilátum þó rödd flestra sé orðin rám eftir ævintýri næturinnar. Frá Basel í Sviss heldur undirrituð, dóttirin, illa sof- in til London þar sem þremenn- ingarnir hittast. Við erum á leið til Buenos Aires, þessarar fögru ,,Parísar suðursins“ sem hefur að geyma allt sem lífnautnaseggir þrá; ástríðu, lífsgleði, góðan mat og auðvitað tangóinn. Aðalástæða fararinnar er þó hvorki að dansa tangó né að njóta alls sem Argent- ína býður í mat og drykk, heldur að heimsækja borgina sem geymir jarðneskar leifar föður- og afa- bróður okkar, Haraldar Magnús- sonar sjómanns sem dó í Buenos Aires 20. apríl 1929. Sjómennskan átti eftir að færa Haraldi ástir og ævintýr í fjar- lægum löndum sem fyrir sveita- strák fæddan í Steingrímsfirðinum í upphafi 20. aldarinnar hlýtur að hafa verið í einu orði sagt stór- kostlegt. Bróður Haraldar, Sigur- geir afa minn, dreymdi alltaf um að leita grafar Haraldar til að geta kvatt bróður sinn sem hann sakn- aði svo sárt. Þótt þessi 92 ára sí- ungi öldungur hafi ekki getað ferðast alla leið til Buenos Aires, þá var honum það mikil fróun að við systkinin ásamt föður okkar færum þangað og upplifðum drauminn hans. „Sá ekkert nema sjóinn“ Í ár eru 100 ár liðin síðan Har- aldur fæddist á Kollafjarðarnesi í Steingrímsfirði í Strandasýslu, nánar tiltekið þann 11. mars 1906 en hann var sonur hjónanna Magnúsar Jónssonar og Guðbjarg- ar Jónsdóttur bænda á Kollafjarð- arnesi, síðar Hvalsá. Þegar Har- aldur var aðeins 9 ára gamall, dó Magnús faðir hans (langafi minn). Guðbjörg móðir hans sat þá ein að búi með 7 börn, það elsta 14 ára og það yngsta var Sigurgeir afi minn, aðeins 2 ára. Á þessum tíma og við þær að- stæður sem þá voru var ljóst að koma varð systkinunum fyrir hjá frændfólki, vinafólki eða öðrum eftir atvikum. Haraldur fór til dvalar á bænum Tröllatungu í Tungusveit og var þar fram yfir fermingu en þá fór hann til Ísa- fjarðar til að vinna við sjómennsku sem síðar átti eftir að verða líf hans og yndi, eða eins og Sig- urgeir bróðir hans lýsir því ,,hann sá ekkert nema sjóinn“. Sigurgeir lýsir bróður sínum sem sérlega góðum dreng, afar glaðlyndum, greindum og fylgnum sér sem stefndi af festu að því sem hugur hans stóð til. Það hefur því varla komið á óvart þegar Haraldur ákvað um 18 ára aldurinn að ráða sig á síldarskip til Danmerkur. Þar var hann um veturinn en kom síðan aftur til Íslands vorið eftir og var þá orðinn nótabassi. Hann fór síðan aftur til Danmerkur um haustið og kom ekki heim til Ís- lands eftir það. Í Danmörku réð hann sig á stórt flutningaskip sem sigldi m.a. um Norðursjóinn. Á flutningaskipinu lentu Haraldur og skipsfélagar hans í því að bjarga skipsbrotsmönnum og tók björg- unin nokkuð á skipsmenn. Afdrifarík dvöl í Kaupmannahöfn Eftir björgunina, átti Haraldur – sem bæði var blautur og kaldur – vakt sem varð þess valdandi að hann veiktist og fór í kjölfarið á hressingarhæli í Kaupmannahöfn til að ná sér. Veran í Kaupmanna- höfn átti eftir að verða afdrifarík. Þótt eflaust hafi margt breyst í kóngsins Kaupmannahöfn síðan Haraldur var þar snemma á 20. öldinni, þá er næsta víst að stór- borgin hefur þá sem nú verið áhugaverð í augum Íslendings sem eflaust kom við á Hviids Vinstue við kóngsins Nýjatorg eftir að skyggja tók eða fór í gönguferðir eftir Löngulínu í átt að litlu haf- meyjunni. Ólafur Tómasson stýrimaður segir frá því í sjóferðaminningum sínum að Haraldur hafi trúlofast indælli danskri stúlku. Hver veit nema þau hafi gengið saman eftir Löngulínu en nálægt henni, á sjó- ferðaheimilinu Betel í Nýhöfninni, lágu leiðir þeirra Ólafs og Har- aldar fyrst saman. Félagarnir áttu svo eftir að ráða sig á þrettán þús- und tonna tankskip, Emmu Mærsk, sem ólíkt því sem þeir höfðu áður reynt átti eftir að sigla með þá til framandi landa í fjar- lægri heimsálfu. Við kæjann í Kaupmannahöfn kvaddi Haraldur unnustu sína og varla hafa þau búist við öðru en að sameinast á ný – en sú varð aldrei raunin. Þó veran á Emmu Mærsk hafi líklegast ekki verið nein skemmtisigling þá færði hún unga sveitastráknum, sem þá var aðeins um tvítugt, ótrúlegar upplifanir. Leið Emmu Mærsk lág fyrst til Houston í Texas, til að sækja svartolíu sem var svo losuð í Evr- ópu, en síðar til Tallara í Perú til að sækja jarðolíu sem flytja átti í olíuhreinsunarstöðvar í Campana rétt vestur af Buenos Aires í Arg- entínu. Leiðin til Perú lá framhjá eyjum Mið-Ameríku, Kúbu og Hispaniolu, í átt að Panamaskurð- inum þar sem Kyrrahafið beið. Hitinn nærri miðbaug olli því að skipsmenn fækkuðu fötum og skipskokkurinn hélt grænmeti og steiktum banönum að skipsmönn- um sem fussuðu og sveiuðu og heimtuðu ,,svinekød“. Lét engan bilbug á sér finna Ólíkt hinum skipverjunum var Haraldur sem var þekktur fyrir glaðlyndi sitt og vinnusemi, ekki samur við sig og vinnuþrekið var þverrandi eða eins og Ólafur Tóm- asson segir: ,,Haraldur þraukar, lætur engan bilbug á sér finna – en ég sé að vinnan gengur nær honum en áður“ (bls. 73). Áfram var siglt suður og Emma Mærsk siglir í fyrsta skipti yfir miðbaug – skipsmenn voru komnir á suður- hvel jarðar. Í Tallara í Perú, þang- að sem jarðolían var sótt, blasti misskipting auðs við Haraldi og fé- lögum, þar sem flestallir íbúar staðarins, indíánarnir bjuggu í hrörlegum kofum við ströndina en menn af hvítum kynstofni bjuggu í stórum og fínum híbýlum með sundlaugum og tennisvöllum. Eins og Ólafur Tómasson lýsir dvölinni í Tallara, þá tók fátæktin og miskunnarleysið sem við þeim blasti, mikið á þá. Frá Perú hélt skipið enn suður og áður en siglt var fyrir Hornhöfða var komið við í Talcahuano í Chile. Siglingin fyr- ir Hornhöfða, þar sem Kyrrahafið mætir Atlantshafinu var erfið. Báran var stór og illvíg og skipið tók djúpar dýfur. Loks róaðist ald- an og framundan voru Maldivas eyjar (Falkslandseyjar) og austur- strönd Argentínu. Örlagaríkt ár Áfram sigldi fleyið og La Plata fjörðurinn blasti við með Buenos Aires á bakborða og Montevideo í Uruguay á stjórnborða. Áfanga- staðurinn, hafnarborgin Campana var innan seilingar þar sem olían var affermd – Emma Mærsk var komin á leiðarenda í sinni fyrstu ferð til Argentínu. Við La Plata fjörðinn beið skips- félaganna suðræn stemning, sól og sumar. Campana var undirlögð af ærslasömu fólki í grímubúningum og flugeldar lýstu upp himininn enda stóð árleg kjötkveðjuhátíð sem hæst. Buenos Aires sem er skammt frá Campana var einnig heimsótt og er rétt hægt að ímynda sér hvað þessi áhugaverða heimsborg hefur haft upp á að bjóða fyrir félagana úr Norður- höfum á þriðja áratug síðustu ald- ar með sínum fögru byggingum, list, tísku, tangó og góðum mat. Á meðan Haraldur gekk um stræti Buenos Aires var borgin enn á hátindi síns gullaldartíma og Argentína var enn eitt af ríkustu löndum heims. En Adam var ekki lengi í Paradís. Árið 1929 var ör- lagaríkt ár, bæði fyrir borg tæki- færanna Buenos Aires sem ekki fór varhluta af heimskreppunni sem skall á þetta herrans ár, og ekki síst fyrir afabróður minn Harald Magnússon sem dó úr lungnaberklum þann 20. apríl 1929 á þýska spítalanum í Buenos Aires (Hospital Aleman) – einn og örugglega einmana í fjarlægri borg, svo langt frá ástvinum sínum á landinu bláa. Fjölskyldu hans og vini á Íslandi sem eflaust voru byrjuð að huga að vorverkum í lok apríl á meðan lóan söng dirrindí og vetrarblómið skartaði sínu fegursta, jú eða dönsku unnustuna sem kannski sat hjá litlu hafmeyjunni og horfði út á hafið, hefur ekki grunað að í Buenos Aires – þar sem komið var haust og laufin féllu af trjánum – lægi ástvinur þeirra fyrir dauð- anum. Brotakennd vitneskja Örlög Haraldar voru ástvinum hans sár. Frétt af andlátinu barst til Íslands um sauðburð og síðar fékk fjölskyldan sendan illa farinn sjópoka en taska, sem vitað er að var send, barst aldrei. Lengi vel hafði fjölskyldan aðeins brota- kennda vitneskju um ævintýri og örlög Haraldar þótt hann hefði sýnt móður sinni og systkinum mikla ræktarsemi og elsku, skrifað þeim bréf, sent þeim póstkort og gjafir. Með bók Jóhannesar Helga ,,Farmaður í friði og stríði“ (1976) þar sem hann skráir sjóferðaminn- ingar Ólafs Tómassonar stýri- manns sem vitnað er í hér að Gröfin handan hafsins Í upphafi 20. aldarinnar hélt Haraldur Magnússon sjó- maður á vit ævintýra á fjarlægum slóðum og bar beinin í Buenos Aires. Þremur aldarfjórðungum síðar héldu þrír ættingjar hans þangað í leit að fortíðinni. Hafdís Hanna Egilsdóttir segir frá leitinni að gröfinni handan hafsins. Haraldur Magnússon sjómaður (1906-1929) réði sig ungur á milli- landaskip sem hann sigldi með til Suður-Ameríku. Hann dó úr berklum í Buenos Aires. Í Buenos Aires er víða dansaður tangó. Gröfin fundin. Ferðalangarnir við gröfina þar sem Haraldur hvílir. F.v. Ægir Fr. Sigurgeirsson, Hafdís Hanna Ægisdóttir, Sigurgeir Árni Ægisson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.