Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 17

Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 17 framan, komu fyrst fram heillegar upplýsingar um ferðir og veikindi Haraldar. Eins og áður sagði dreymdi litla bróður Haraldar, Sigurgeir afa minn, alla tíð um að halda til borg- arinnar sem geymdi gröf bróður hans og freista þess að finna hana. En Argentína var langt í burtu – annar heimur og ekki á færi allra að fara svo dýra og fyrirhafnar- sama ferð. Þegar við þrjú ákváðum að halda upp á það að 100 ár voru liðin frá fæðingu Haraldar og leita grafar hans þá var ljóst að gamli maðurinn gat ekki farið með okkur en ferðin skyldi þó farin meðan hann væri enn á lífi. Að finna gröf í fjarlægri 11 milljón manna borg, þarfnast tölu- verðar undirbúningsvinnu. Við vissum að Haraldur hafði verið jarðsunginn frá norskri sjómanna- kirkju í Buenos Aires og því höfð- um við samband við sr. Hannes Björnsson, þá prest Íslendinga í Noregi, sem gat veitt okkur mik- ilvægar upplýsingar sem áttu eftir að koma okkur á sporið. Leitin þrengdist og þegar við héldum af stað til Buenos Aires í upphafi árs- ins, vorum við komin með stað- góðar upplýsingar þótt gröfin sjálf hefði ekki enn verið fundin. Buenos Aires er stórborg í öll- um skilningi þess orðs og býður upp á flest sem hugurinn girnist. Hvort sem áhuginn beinist að fjöl- breyttu mannlífi, tónlist, dansi, arkitektúr, kvikmyndum, sögu, tísku eða matargerð, þá er Buenos Aires svo sannarlega þess virði að heimsækja. Á gististaðnum okkar, Caserón Porteño, sem var fremur eins og stórt heimili en hótel, var tangótími hvert kvöld og var mikil ánægja að upplifa töfra þessa þokkafulla dans. Framandi upplifun og áhrif Íbúar Buenos Aires hafa ekki alltaf átt sjö dagana sæla og má þar nefna pyntingar og manns- hvörf á tíma herforingjastjórnar- innar sem var við völd frá 1976- 1983, og gjaldþrot árið 2001. Engu að síður upplifðum við borgarbúa sem stolt, lífsglatt og bjartsýnt fólk sem lætur ekki slá sig út af laginu. Nautasteikin er á sínum stað, tangóinn hefur verið gæddur nýju lífi og borgin er á leiðinni að verða einn stærsti leyndardómur- inn í kvikmyndagerð. Um leið og við leituðum grafar Haraldar og fórum á þær slóðir sem hann var á fyrir tæpum 80 árum, fylltust vit okkar af framandi upplifunum og áhrifum. Eins og Haraldur geng- um við um stræti Buenos Aires, horfðum á fagrar byggingar og fjölbreytt mannlíf, borðuðum góð- an mat og kynntumst áhugaverðu fólki. Við gengum um heillandi hafnarsvæðið þar sem gömlu vöru- húsunum hefur verið breytt í veit- ingastaði og gömlu löndunarkrön- unum gefið nýtt líf. Við fórum á staðinn þar sem norska sjómanna- kirkjan sem Haraldur var jarð- sunginn frá stóð en hún var rifin til að rýma fyrir vegaframkvæmd- um árið 1985. Einnig skoðuðum þýska spítalann þar sem hann lá veikur síðustu dagana og fórum í ógleymanlega ferð til Campana, borgarinnar þar sem Emma Mærsk lagði að bryggju og olían var affermd. Campana er lítil borg sem ólíkt Buenos Aires og Mon- tevideo er ekki ofarlega á lista ferðamanna sem halda til La Plata fjarðarins. Forvitin augu litu því á eftir okkur er við gengum niður snotra aðalgötu bæjarins og að hafnarsvæðinu. Höfnin hefur ef- laust verið glæsileg þegar Camp- ana var vinsæll viðkomustaður olíuflutningaskipa utan úr heimi, en má nú muna sinn fífil fegurri. Í Campana var heitt – mjög heitt. Með vatnsbrúsa í hönd reyndum við að ímynda okkur hvar Emma Mærsk hafi legið við bryggju, hvar Haraldur og félagar hefðu horft á bæjarbúa ærslast og dansa á kjöt- kveðjuhátíðinni, eða tóku þeir kannski fullan þátt í hátíðarhöld- unum? Þegar við stóðum og horfðum út á fljótið vildi svo skemmtilega til að stórt olíuskip sigldi framhjá okkur. Hvílík tilviljun – það var eins og Emma Mærsk væri komin til að leggjast að bryggju. Skammt frá gististaðnum okkar í Buenos Aires beið okkar stærsta verkefni ferðarinnar, þ.e. leitin að gröf Haraldar. Við höfðum vitn- eskju um að Haraldur hefði verið grafinn í þýska hluta kirkjugarðs- ins Cementario Chacarita og þang- að héldum við í von um meiri upp- lýsingar. Jú, viti menn, þýskumælandi starfsmaður kirkju- garðsins dró fram gamla, stóra, brúna bók sem sýndi svart á hvítu að Haraldur hafði verið jarðsettur í garðinum en upplýsingar um ná- kvæma staðsetningu grafarinnar virtust í fljótu bragði ekki vera á hreinu. Við tókum því fleiri starfs- menn kirkjugarðins tali og með handapati og okkar fátæklegu spænsku tókst okkur með hjálp yndislegs starfsfólks að fá meiri upplýsingar en okkur hafði í raun og veru órað fyrir. Tilfinningaþrungin stund Okkur var tjáð að upphaflegt grafstæði Haraldar væri ekki þekkt en að árið 1971 hefði hann ásamt 3–4 öðrum verið færður í nýjan grafreit þar sem hann liggur nú. Það var tilfinningaþrungin stund þegar við gengum ásamt kirkjugarðsstarfsmanninum að gröf Haraldar en þar áttum við góða stund á meðan hugurinn leiddi okkur ekki bara til Íslands þar sem bróðir Haraldar, Sigur- geir, beið spenntur við símann eft- ir fréttum, heldur einnig til æv- intýra og veikinda Haraldar á fyrra hluta síðustu aldar. Hvernig leið honum fárveikum í þessari fjarlægu borg? Varð honum hugs- að til fjölskyldu sinnar á Íslandi – til unnustunnar í Kaupmannahöfn – til skipsfélagana á Emmu Mærsk sem voru þá í sinni 3. ferð til Perú að sækja jarðolíu? Frá steikjandi sólinni í Buenos Aires höfðum við góðar fréttir að færa – draumur Sigurgeirs afa míns hafði ræst. Okkur hafði tekist að finna gröf bróður hans, sveitastráksins af Ströndunum sem hélt ungur á vit ævintýra í fjarlægum löndum en veiktist og dó í fjarlægri borg – fjarlægu landi – fjarlægri heims- álfu – svo langt frá ástvinum sín- um. Nú vitum við að hann hvílir í fallegri gröf – í fallegri borg sem ólíkt því sem áður var – er ekki eins fjarlæg og við héldum. Þakkir: Sr. Hannes Björnsson Arnhildur Lilý Karlsdóttir og Arnar Sigurðsson Hernan Topasso Heimildir: Jóhannes Helgi. 1976. Farmaður í friði og stríði: Ólafur Tómasson stýrimaður rekur sjóferðaminningar sínar. Skuggsjá. 208 bls. Sigurgeir Magnússon (munnlegar og skrif- legar upplýsingar) Ýmsar ferðahandbækur TENGLAR .............................................. Skemmtileg og einföld gisting: http://www.caseronporteno.com/ Almennar upplýsingar: http:// www.buenosaires.gov.ar/ Tangó: http://buenosairest- ango.com/ Höfundur er líffræðingur og stundar framhaldsnám í Basel í Sviss. Litrík hús Bocca hverfisins í Buenos Aires. Hafnarsvæði Buenos Aires hefur verið gert upp og gömlu vöruhúsin fengið nýtt hlutverk. Ys og þys stórborgarinnar. Glæsilegar byggingar er víða að finna í Buenos Aires. SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS - HLÍÐASMÁRA 9 - 201 KÓPAVOGI FJÁRMÁL & REKSTUR Helstu námsgreinar: Rekstrarfræði Farið er í grunnatriði rekstrarhagfræði, rekstur fyrirtækja, umhverfi þeirra, mismunandi rekstrarform, markmið og skipulag fyrirtækja. Fjármálastjórnun Kenndur er arðsemisútreikningur, fjallað um ávöxtunarkröfur, áætlunargerð fyrirtækja og aðferðir við að meta virði verðbréfa og fjárfestinga. Notkun Excel við fjármál og rekstur Nemendur eru þjálfaðir við notkun Excel í rekstri, einkum við gerð rekstraráætlana, notkun fjármálafalla og arðsemismats. Kvöldnámskeið 1: Þri. - fim. kl. 18:00 - 22:00 ogá lau. kl. 13:00 - 17:00. Byrjar 28. ágústog lýkur 25. október Kvöldnámskeið 2: Sami tímiogaðofan Byrjar 18. sept. og lýkur 29. nóv. Morgunnámskeið: Þri. -mið. - fim. kl. 8:30 - 12:30 Byrjar 28. ágústog lýkur 29. nóv. Frábært námskeið fyrir þá sem vilja bæta við sig þekkingu í fjármálum og rekstri fyrirtækja. Námið snýr m.a. að rekstrar- fræðum, fjármálastjórnun og áætlanagerð með áherslu á efnistengdri verkefnavinnu. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa reynslu í Excel og grunn- þekkingu á bókhaldi. „Eftir Fjármála- og rekstrarnámið hjá NTV hef ég öðlast viðamikla og dýrmæta þekkingu sem mun nýtast mér í öllu sem ég á eftir að taka mér fyrir hendur í framtíðinni. Ég er mun verðmætari starfs- kraftur eftir námið!“ Kári Sigurfinnsson Sölumaður hjá Tölvulistanum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.