Morgunblaðið - 20.08.2006, Page 19

Morgunblaðið - 20.08.2006, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 19 hljómi ekki kunnuglega er hann ann- ar liðsmanna frönsku hljómsveitar- innar Daft Punk. Daft Punk hefur nú gert kvikmyndina Electroma sem var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor. Thomas ætlar að svara spurningum áhorfenda við frumsýn- ingu myndarinnar, en það er viðburð- ur í sjálfu sér því meðlimir sveitarinn- ar koma nær aldrei fram opinberlega. Hann ætlar að bæta um betur og bregða sér í gervi plötusnúðs laug- ardagskvöldið 7. október. Þetta verð- ur í fyrsta sinn í tæpan áratug sem Bangalter kemur fram sem plötu- snúður og því um sannkallaðan hval- reka að ræða fyrir tónlistaráhugafólk. Framtíðarsýn um Tjarnarbíó Hrönn segir að aðstandendur kvik- myndahátíðarinnar hafi sérstaklega beint sjónum sínum að Tjarnarbíói sem heimahöfn hátíðarinnar. „Unnar hafa verið tillögur um gagngerar end- urbætur og breytingar á húsinu og viðbyggingar í porti hússins í sam- starfi við Sjálfstæðu leikhópana en hugmyndin er að báðir aðilar geti nýtt húsið sameiginlega til leiksýn- inga og kvikmyndasýninga. Framtíð- arsýn okkar um Tjarnarbíó er að þar verði heimahöfn Alþjóðlegu kvik- myndahátíðarinnar í Reykjavík, með fullkominni aðstöðu til kvikmynda- sýninga og góðri aðstöðu fyrir áhorf- endur og með því verði til staðar í borginni kvikmyndahús sem starf- rækt er allt árið. Þar yrði boðið upp á fjölbreytt úrval kvikmynda sem ann- ars gæfist ekki kostur á að sjá og ár- legur hápunktur þess yrði að sjálf- sögðu Alþjóðlega kvikmyndahátíðin sjálf á hverju hausti. Undirtektir hingað til hafa sannfært okkur um að áhuginn og þörfin fyrir Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina er sannarlega til staðar.“ daga Morgunblaðið/Ásdís TENGLAR .............................................. www.filmfest.is Kvöldstund með Eyfa & Co Tvennir tónleikar í Borgarleikhúsinu 1. sept. 2006 kl. 20:00 og 22:00 Öll helstu lög Eyfa: Álfheiður Björk Ástarævintýri Breyskur maður Dagar Danska lagið Ég lifi í draumi Gott Kannski er ástin Nína o.fl. o.fl. Eyjólfur Kristjánsson & gestir: Bergþór Pálsson, Björgvin Halldórsson, Björn Jörundur, Ellen Kristjánsdóttir, Jón Jósep & Stefán Hilmarsson. Hrynsveitina skipa: Birgir Nielsen (slagverk), Eyþór Gunnarsson (hljómborð), Friðrik Sturluson (bassi), Jóhann Hjörleifsson (trommur), Jón Elvar (gítar), Jón Ólafsson (hljómborð), Sigurgeir Sigmundsson (gítar) & Sigurður Flosason (saxófónn & slagverk). Bakraddir: Berglind Björk, Guðrún Gunnarsdóttir og Ingi Gunnar. 16 manna strengjasveit undir stjórn Þóris Baldurssonar. www.borgarleikhusid.is s: 568 8000 Húsavík | Þorsteinn Bjarnason, fyrrum bóndi, í Syðri-Tungu á Tjörnesi afhenti fyrir skömmu með formlegum hætti gjöf sem hann og kona hans, Ólöf S. Friðriksdóttir, sem lést í vor, gáfu Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Um er að ræða rafmagnshurð úr tengibyggingu á milli HÞ og Hvamms, út í endurhæfingar- og úti- vistarsvæðið Garðshorn. Kostaði hún uppsett um eina milljón króna. Friðfinnur Hermannsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar, þakkaði Þorsteini þessa höfðinglegu gjöf og sagði að með tilkomu þessarar hurðar myndi allt aðgengi fyrir hjóla- stóla og sjúkrarúm út í Garðshorn verða mun þægilegra. Friðfinnur sagði jafnframt að þar sem alltaf væri gott veður þessa dagana yrði hún mikið notuð og vonandi ætti Þorsteinn sjálfur, sem dvelur nú á sjúkradeild HÞ og er í hjólastól, eftir að fara þarna oft um á næstu árum. Þorsteinn sagði við þetta tækifæri að hann hefði lengi hugsað um það hvað það væri bölv- að að komast þarna út í Garðshorn og hve hörmulegt það væri fyrir blessaðar konurnar að ýta sjúklingum í hjólastólum yfir þessar tor- færur. „Ég hefði verið löngu búinn að saga þröskuldinn úr hefði ég til þess afl og getu,“ sagði Þorsteinn og bætti við að hann væri þakklátur fyrir að hafa þó getað lagt þetta af mörkum þótt hann væri orðinn gamall og far- lama. Á hurðinni sem er þrískipt er annars vegar greipt ljóð skáldkonunnar Huldu, „Gefðu mér jörð“, sem að sögn Sigríðar Jónsdóttur hjúkr- unarfræðings hefur verið leiðarstef við gerð Garðshorns og hins vegar falleg vísa sem Þor- steinn samdi. Hún hljóðar svo: Blómin anga grundin grær, glóir á drang og víkur. Sól í fangi blíður blær, báða vanga strýkur. „Hefði fyrir löngu verið búinn að saga þröskuldinn úr“ Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Þakkir Friðfinnur Hermannsson þakkaði Þor- steini Bjarnasyni gjöf þeirra hjóna. Eftir Hafþór Hreiðarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.